Morgunblaðið - 16.02.1977, Page 29
X.
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1977
29
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL. 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
^ (/JATTTÍ^-'Lia'U Lf
a.m.k. I umrætt skipti, þegar flug-
vélinni var rænt, sem talað er um
í bréfinu, voru öryggisverðirnir í
verkfalli. Þeirra hlutverk er mik-
ilvægt og virðist geta haft hinar
víðtækustu afleiðingar ef þeir
vinna ekki sín störf.
0 Fyrirbæri
í lofti
„Vegna athugasemdar frá Þor-
steini Sæmundssyni varðandi
grein mína i Velvakanda 11.
febrúar, vil ég taka fram, að um-
mæli þau sem ég hafði í huga,
voru þessi:
1. Þegar Örnólfur hafði í sjón-
varpsþættinum bent á, að meðal
hugsanlegra skýringa á hinum
umræddu fyrirbærum væri það,
að þau stöfuðu frá íbúum annarra
hnatta, sagði Þorsteinn Sæmunds-
son: „Það er að vísu ekki hægt að
neita þeim möguleika." — En
Þessir hringdu . .
% Enn um
hassið
— Nokkrir hafa haft samband
út af hassmálum í framhaldi af
þeirri umræðu sem verið hefur
um það mál, sérstaklega i
sambandi við skóla. Einn maður,
Sturlaugur Björnsson, er með eitt
atriði sem lítið hefur komið fram
í þessari umræðu og sagði hann
m.a.:
— Mig langar til að vekja
athygli á þvi að í þeirri umræðu-
hrinu, sem staðið hefur yfir um
þessar mundir um hassið hefur
það ekki komið fram að nokkurt
magn af hassi er blandað morfíni
og mun það vera gert til að örva
sölu á því. Þetta er það sem er
stórhættulegt við hassið, menn
ánetjast þarna öðru efni um leið
SKAK
Umsjón:
Margeir Pétursson
I landskeppni Sovétrikjanna og
Júgöslaviu, sem fram fór í
júgóslavneska bænum Krk í maí
1976 kom þessi staða upp i skák
Palatniks, Sovétrikjunum, sem
hafði hvftt og átti leik, gegn
Krnié, Júgóslavíu:
þetta, að möguleiki sé fyrir hendi,
hlýtur að þýða, að málið sé um-
ræðuvert.
2. Bæði í sjónvarpsþættinum og í
útvarpsfrétt 17. sept. sl. kom fram
að Þ. Sæm. hefði áhuga á að safna
frásögnum og athugunum af
þessu tagi, einmitt vegna þess að
hann teldi, að um óleysta vísinda-
lega gátu væri þarna að ræða.
Þetta vona ég að valdi engum
misskilningi.
Þorsteinn Guðjónsson."
% tsland
áhugavert
Hér verður lítillega brugðið út
af venjunni og birt nafn manns
sem hefur mikinn áhuga á ís-
landi, vill koma hingað bráðlega
og langar fyrst til að skrifast á við
einhvern hér. Hann safnar
frímerkjum, hefur áhuga á
siglingum, garðrækt, ferðalögum
og fleiru og er nafn hans og heim-
ilisfang:
R.M. Whiffen,
2 Bourne Rise, Colling Bourne,
Marlborough,
Wiltshire,
U.K.
% Spurning
dagsins
Nokkuð hefur verið rætt um
verndun gamalla húsa i Reykja-
vík í vetur og einnig um þá miklu
flutninga fólks, úr gömlu hverf-
unum til þeirra nýrri. Á að sporna
við þeirri þróun að ykkar mati,
lesendur góðir, og þá á hvern
hátt? Nefndar hafa verið ýmsar
leiðir, t.d. að hækka lán húsnæðis-
málastjórnar til kaupa á gömlum
íbúðum, en sjá lesendur fleiri
lausnir á þessu máli? Eða á
kannski ekkert að hafa áhrif á
þetta, eigum við bara að láta
fækka í eldri hverfunum smám
saman og láta hendingu ráða
hvort einhverjir koma í staðinn.
HESTAR
Walter Feldmann óskar eftir að kaupa tamda
hesta til útflutnings.
Þeir sem hafa hesta til sölu, vinsamlegast hafið
samband við
Sigurður Hannesson & co. hf.
Ármúla 5, Reykjavík
Sími 85513.
32. h6! Dxd4 33. Dxf7 (Hvítur
hótar nú 34. Df8 + ) Hg8 34. e8=D
Bxe8 35. Hxe8 og svartur gafst
upp. Sovétmenn sigruðu með yfir-
burðum í landskeppninni, hlutu
29 v. gegn 11. 1 liði Sovétmanna
voru þau Vaganjan, Romaishin,
Tukmakov, Sveschnikov,
Palatnik, Cehov, Kochiev, Vladi-
mirov, Zaitseva og Aksjarumova.
Meðal júgóslavnesku þátt-
takendanna voru Kurajica, Hulak
og Barle.