Morgunblaðið - 23.02.1977, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 23.02.1977, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 1977 Hæstiréttur hunzar beiðni Erlichmans Washington, 22. febrúar. Reuter. HÆSTIRÉTTUR Banda- ríkjanna hefur neitað að taka upp að nýju ákærur á hendur John Erlichman, einum helzta ráðgjafa Nix- ons, sem bornar voru fram í tengslum við Watergate- málið. DALE CARNEGIE Námskeiðið getur hjálpað þér að: it Öðlast meira öryggi. it Halda áhyggjum í skefjum. if Starfa af meiri lífskrafti ★ Þjálfa þig í betri mannlegum samskiptum. 82411 | r Eínkiiloyfi á Islr'tndi um rcARXh.'nt. STJÓRNUNARSKÓLINN /v (MsKF.Wl.\ Konráð Adolphsson Erlichman, sem eitt sinn var einn valdamesti maður Bandaríkjanna, situr nú i fangabúðum í Arizona. Hann á fyrir höndum 13 ára fangelsisvist vegna tveggja brota, en búast má við að hann verði náðaður mun fyrr. Hæstiréttur hafði enga umsögn með ákvörðun sinni, sem varðaði innbrot, sem Erlichmann lét skipu- leggja hjá sálfræðingi, sem lið í samsæri gegn meint- um andstæðingum Nixons. Sálfræðingurinn hafði haft dr. Daniel Ellsberg í rann- sókn, en sá lét svo kölluð „pentagon skjöl“, sem voru leyniskjöl um Vietnam- stríðið komast til dagblaða. Fyrir þetta brot hlaut Erlichmann 20 mánaða til fimm ára fangelsisdóm. Lækkað verð á HP tómatsósu í fle8töllum matvöruver8lunum til að auðvelda þér að kynrmst hiraim sérstæðu vörugæðum. Hafðu HP vöru heim með þér, strax í dag. „King Kong” í Hong Kong Eftirlíking af „King Kong“ í Hong Kong. Hún ð að auka aðsókn að nýrri kvikmynd um kvikmyndaapann fræga. Henni var komið fyrir f skemmtigarði. Andófsmaður flyzt frá Sovétríkjunum Moskvu 22. febrúar — NTB SOVÉZKI sagnfræðingur- inn og andófsmaðurinn Ludmilla Aleksejeva fór í dag frá Sovétríkjunum ásamt eiginmanni sínum, vísindamanninum Nikolaj Viljams, og tvítugum syni, Mikhail. Aleksejeva er í hópi níu manna sem stofn- uðu hreyfingu til að fylgj- ast með hvernig Sovétrfkin hafa fylgt ákvæðum Hels- ingforssáttmálans um öryggi Evrópu og sam- vinnu. Helsingforshópurinn var settur á laggirnar í fyrra og varð samein- ingarafl ýmissa andófshópa. Með- al verkefna var að safna upplýs- ingum um pólitiska fanga, skerð- ingu á mannréttindum og önnur brot á Helsingforssáttmálanum. Aleksejeva var skjalavörður hópsins. Mikinn hluta þeirra gagna, sem hún hafði safnað sam- an, tók lögreglan í sína vörzlu, þegar hún gerði húsleit hjá henni og öðrum félögum hópsins, þar á meðal Aleksander Ginsburg, I byrjun janúar. Þau hjónin komu eftir hádegið i dag til Vínar en þaðan halda þau til Bandaríkjanna, þar sem þau ætla að setjast að. Fulltrúar Amnesty International tóku á móti þeim og sagði Aleksejeva við komuna að kúgun andófsmanna færi stöðugt vaxandi í Sovétrikj- unum og að hún ætti von á því að aðrir félagar hennar verði hand- teknir eða látnir flytja úr landi. Enn ágreiningur meðal OPEC-ríkja Abu Dhabi, 22. febrúar. Reuter Olfuráðherra Saudi-Arabfu, Ahmed Zaki Yamani, sagði ( dag að helztu olluframleiðslurfkjum heimsins hefði ekki tekist að jafna ágreining sinn um olluverð. En yfirlýsing hans hefur einnig dregið úr ótta innan samtaka olfu- útflutningsrikja, OPEC, um að verðstrfð brjótist út á milli rfkjanna. Yamani virtist staðfesta fregnir um að Saudi-Arabía hefði hafnað mörgum aðferðum til að koma á sameiginlegu verði olíufram- leiðendanna, þegar hann sagði að stjórn sín hefði engar áætlanir um að hækka verð á olíu. Bent hefur verið á ýmsar leiðir til að binda enda á tveggja taxta verðkerfið, sem gilt hefur siðan Saudi-Arabía og Sameinuðu furstadæmin höfnuðu samþykkt OPEC um að hækka oliuverð um 15% i tveim áföngum á þessu ári. í staðinn hækkuðu þessir tveir framleiðendur oliuverð sitt um 5% þar eð þeir töldu að meiri hækkun yrði efnahagslífi heims- ins ofviða. önnur OPEC-ríki hækkuðu um 10% hinn 1. janúar og ætla að hækka aftur um 5% í júlí. Sama stjórn í Danmörku Kaupmannahöfn, 22. febrúar. NTB. ANKER Jörgensen forsætisráð- herra heldur áfram viðræðum um stjórnarmyndun f þessari viku, en kunnugir telja að aðallega verði reynt f viðræðunum fyrst f stað að koma til leiðar nýju sam- komulagi f málum sem ekki var fjallað um fyrir kosningarnar. Vegna samningaviðræðna aðila vinnumarkaðarins liggur á samn- ingi um húsnæðismál sem ætlazt er til að dragi úr húsaleiguhækk- unum. Auk þess verður reynt að ná samkomulagi um áætlun til að auka atvinnu. 170.000 Danir eru atvinnulausir og atvinnuleysi var eitt af aðalmálum kosninganna. Stjórnmálaflokkarnir munu einnig gera með sér nýtt sam- komulag um varnarmál i stað fyrra samkomulags sem rennur út 1. apríl. Loks þurfa stjórnmála- menn að koma sér saman um hvernig standa skuli undir aukn- um útgjöldum og dreifa þeim. Tillaga hefur komið fram um skatt á hráorku, en hún hefur fengið litinn stuðning. Allt bendir því til þess, að engin breyting verði á stjórninni fyrst um sinn og að minnihlutastjórn sósíaldemókrata sitji áfram, að minnsta kosti fram að páskum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.