Morgunblaðið - 06.11.1977, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 06.11.1977, Qupperneq 14
62 MORGÚNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1977 Gunnar J. Friðriksson: Hvers vegna iðnað? Það er ekki vandalaust að haldí ræðu um iðnað eftir að ræðuflóð um þetta sama efni sem flætt hef- ur yfir þjóðina á þessu iðnkynn- ingarári og ekki síst núna síðustu vikuna við iðnkynningu t Reykjavík. Það fer því ekki hjá því að flest það sem ég segi sé endurtekning á því sem áður hefur verið sagt. Á þessum fundi hefur mér ver- ið ætlað að gera nokkra grein fyrir iðnaðinum frá sjónarhóli þess sem hefur það að aðalstarfi að reka iðnfyrirtæki. í stuttu máli er útilokað að gera iðnaðinum nokkur viðhlýtandi skil svo gagn sé að, þar sem sú starfsemi sem almennt er (kallað eða) nefnt iðn- aður er svo umfangsmikill og vandamálin svo mörg og oft ólík. Það er því óhjákvæmilegt að stikla á stóru, en væntanlega munu umræður hér á eftir gefa tilefni lil að gera einstökum mála- flokkum ítarlegri skil. Það hefur háð viðleytni, við að gera mönnum grein fyrir mikil- vægi iðnaðar á íslandi, að al- mennt freistast menn til þess að líta á hugtakið iðnaður sem álíka heilsteypt og hugtakið landbúnað- ur eða sjávarútvegur. Allir vita hvað átt er við þegar talað er um landbúnað, það er búið og bónd- inn. Sama er að segja um sjávar- útveg, það er fiskiskipið og sjó- maðurinn. Að vísu, gætir þess nokkuð að sjávarvöruiðnaðurinn þ.e.a.s. vinnsla sjávarafla í landi svo sem frystihús, fiskimjölsverk- smiðjur o.s.frv. sé flokkað undir sjávarútveg, sem stafar af því, að sömu aðilar fást oft við hvort- tveggja og ekki hefur myndast þar sú verkaskipting sem þekkist með öðrum þjóðum. Það sem í daglegu tali er átt við með iðnað er aftur á móti svo geysilega víð- tækt að nær ómögulegt er að draga upp heillega mynd af iðn- aði. í höfuðdráttum má segja að iðnaðurinn skiptist í þrennt, þ.e.a.s. byggingariðnað, fram- leiðsluiðnað og þjónustuiðnað. Hver þessara greina skiptist síðan í óteljandi undirflokka, og kynni af einum þeirra segir okkur lítið um aðra þætti iðnaðar. Á íslandi munu vera starfandi rúmlega 100 frystihús og skoði maður eitt þeirra hefur maður öðlast nokkuð glögga hugmynd um hverskonar starfsemi fer fram í öllum hinum frystihúsunum. í Reykjavík einni munu vera starfandi um 200 fyrirtæki í fram- leiðsluiðnaði og við þau um 4 þús. manns sem framleiða sælgæti, fatnað, húsgögn, umbúðir, veiðar- færi, hreinlætisvörur, málningu, kex, smjörlíki, raftæki, vélar og ótal margt fleira. Til þess að fá viðhlýtandi yfirlit yfir iðnaðar- starfsemi í landinu, þyrfti því að heimsækja gífurlegan fjölda fyrirtækja og myndi það taka langan tíma. En það sem er sam- eiginlegt með allri þessari starf- semi er að fyrirtækin breyta inn- lendum eða erlendum hráefnum í nytsama eða ónytsama og verð- 'mætari hluta æta eða óæta. Áður en ég held lengra langar mig að fara örfáum orðum um upphaf iðnaðar á Íslandi. A land- námsöld stóð iðnaður á Íslandi jafnfætis iðnaði i nágrannalönd- unum og þá fyrst og fremst í Noregi. Landnámsmenn fluttu með sér þá þekkingu sem þar var fyrir hendi. Það voru notaðar sömu aðferðir við framleiðslu á járni úr mírarauða, (en það var ekki fyrr en á tólftu öld að Svíar fóru að vinna málmgrýti úr jörðu). Framan af öldum voru islendingar sjálfum sér nógir um járn, en járnið var og er undir- staða alls iðnaðar. Á hverjum bæ var smiðja og þar smíðuð þau verkfæri og vopn sem þurfti til veiða og framleiðslu á bæjum. Síðan hnignaði þessu öllu og sam- fara þvi fór hagur þjóðarinnar versnandi. Nokkrar tilraunir voru gerðar fyrr á tímum til þess að koma á verksmiðjuiðnaði á is- landi, svo sem saltvinnslu á Reykjanesi og við Djúp, og brennisteinsvinnslu við Mývatn og Krýsuvík, en merkilegastar eru að sjálfsögðu þær tilraunir er gerðar voru einmitt hér í Reykja- vík, og lögðu grundvöll að þessari borg, þ.e.a.s. Innréttingarnar sem kenndar eru við Skúla Magnús- son, landfógeta. Þar voru ofnir dúkar og unnin klæði ýmiskonar,- sútuð skinn, snúin reipi og kaðlar, en dönsku einokunarkaupmenn- irnir náðu tökum á þessari stofn- un og sáu til þess, að þessi tilraun fór út um þúfur. Það er svo ekki fyrr en um siðustu aldamót og ekki að neinu marki fyrr en eftir heimsstyrjöld- ina 1914—1918 að iðnaður fer að þróast hér á ný. Lágu ýmsar ástæður til þess hve islendingar voru seinni til en aðrar nærliggj- andi þjóðir, og má þar helst nefna vantrú ráðamanna, minnimáttar- kennd þjóðarinnar og svo að sjálf- sögðu fátæktin. Mig langai’ hér að nefna eitt dæmi um vantrú ráðamanna á iðnaði á Íslandi. 1907 voru starfandi hér á landi þrjár vindlaverksmiðjur, tvær voi u hér i Reykjavík og störfuðu þar um 80 stúlkur og ein á Akur- eyri og störfuðu þar um 30 stúlk- ur. Rikissjóður taldi sig verða af tolltekjum vegna þessarar starf- semi, og lagði þvi frumvarp á Al- þingi um hækkun tolla á óunnu tóbaki. Þegar svo bent var á það við umræður um málið á Alþingi að samþykkt þessi gæti orðið til þess að þessi starfsemi leggðist niður, sagði svo ágætur maður sem Hannes Hafstein var „Vindlagjörð er alsendis óeðlileg- ur atvinnuvegur fyrir Íslend- inga“. Þess er rétt að geta að ekki létu danir eða hollendingar slíkt á sig fá þó þar yxi ekki tóbak og framleiða enn í dag hina ágæt- ustu vindla. Frumvarpið var svo samþykkt á Alþingi og leiddi það til þess, að verksmiðjurnar löggðust niður og voru þessa þó eitt af fáum at- vinnutækifærum sem konur höfðu þá á íslandi. Þessi vantrú á íslenskum iðnaði er nú óðum að hverfa, og nú munu starfa við iðnað á islandi um 30 þúsund manns og er fisk- iðnaðurinn þá ekki meðtalinn. En hvers vegna iðnað. Hvernig væri umhorfs ef sjávarútvegur og landbúnaður ættu einir að standa undir þeirri miklu yfirbyggingu sem velferðarþjóðfélag okkar er í dag svo ekki sé talað um ef sinna ætti þó ekki nema væri brot af þeim kröfum sem gerðar eru til aukinnar þjónustu hins opinbera af ýmsum hópum i þjóðfélaginu. Það er því augljóst að renna verð- ur fleiri stoðum undir efnahagslff þjóðarinnar,- Önnur ástæðan er að sjálfsögðu sú, að með auknum fólksfjölda eru ekki fyrir hendi atvinnutækifæri handa þeim mikla fjölda ungs fólks sem ár- lega bætist á vinnumarkaðinn. Það er nær samhljóða álit hag- spekinga að hvorki sjávarútvegur né landbúnaður muni þurfa á auknu vinnuafli að halda í náinni framtíð meðal annars vegna auk- innar framleiðni og takmörkunar hráefna. Einnig mun með vaxandi framleiðni í þeim iðnaði sem fyrir er, geta orðið um fækkun starfs- fólks að ræða. Ef búið ér að slá því föstu, að við viljum og þurfum að hafa iðn- að í landinu þá verðum við að sjálfsögðu að gera okkur grein fyrir því hvernig jarðvegur er fyr- ir iðnað á tslandi. Hvort þannig sé búið að þessum atvinnuvegi að likur sé til þess að sú iönaðar- starfsemi sem fyrir er nái að þroskast og að það nýtt sem kann að finnast hafi möguleika til þess að vaxa upp og ná þroska. Það hefur verið gert stórátak og mikl- ar'fórnir verið færðar til þess að efla landbúnað á islandi, einnig hafa venð gerð slórátök af opin- berri hálfu til þess að efla útgerð á islandi, fyrst og fremst með þvi að auðvelda kaup á framleiðslu- tækjum svo sem fiskiskipum, með hafnargerð og annarri þjónustu. Þó hefur ekki verið lagt sama kapp á uppbyggingu fiskiðnaðar- ins og er það í sjálfu sér lítt skiljanlegt. En hvað almennan iðnað snertir sem flestir eru sam- mála um að beri að efla og byggja upp, hefur að visu jafnt og þétt þokast í rétta átt en þó er enn Iangt í land að viðunandi sé búið að þessum yngsta og þó fjölmenn- asta og stærasta atvinnuvegi þjóð- arinnar. í áraraðir bjó iðnaöurinn við ströngustu höft og hömlur á öllum sínum athöfnum. Hann varð að sætta sig við skömmtun á hráefnum og ennþá strangari skömmtun á vélum. Af opinberri hálfu var almennt litið svo á að ekkert þyrfti fyrir iðnaðinn að gera vegna þess að hann nyti svo lánsfé ekki sá sami ög sjávarút- vegs og landbúnaðar? Hvers vegna fær útflutningsiðnaður ekki endurgreiddan uppsafnaðan söluskatt til jafnvægis við erlenda keppinauta? Og áfram mætti spyrja. Öneitanlega hefur margt verið gert, og nú síðast jöfnun vaxtakjara atvinnuveganna. En vegna þess, hve efnahagsþróunin í landinu hefur verið atvinnuveg- unum óhagstæð er skjótra að- gerða þörf. Sem dæmi vil ég nefna að útlánageta Iðnlánasjóðs er aðeins !4 af eftirspurn. Ef bor- in eru saman lán úr sjóðnum und- anfarin 6 ár og byggingarvísitala á sama tímabili, þá sést að á föstu verðlagi fóru útlán minnkandi frá árinu 1970—1976 en það ár náðu þau sama verðgildi og 1970. Sú ályktun sem gerð var á ráð- stefnu sambands isl. sveitarfélaga um nauðsyn á byggngu Iðngarða, er þýðingarmikil til þess að leysa vanda smáiðnaðarins og munu þau jafnframt auðvelda lausn stærri verkefna. Á þeirri ráð- stefnu bar nokkuð á góma sam- keppni milli sveitarfélaga um að laða til sin iðnað. í viðræðum við ráðamenn í Reykjavik hef ég orðið þess var, að þeir teldu ekki rétt að slaka á kröfum um gatna- gerðargjöld á iðnaðarlóðum þar sem það þýddi óeðlilega sam- keppni við önnur sveitarfélög. í því sambandi vil ég benda borgar- og sveitarstjórnarmönnum á, að hvað framleiðsluiðnað snertir., stendur samkeppnin ekki milli þeirra, heldur við félaga þeirra innan EFTA og EBE. Það fer ekki milli mála, að ríki, borg og sveitarfélög ráða mestu um aðstöðu og vaxtarskilyrði iðnaðar. Við opinberar aðgerðir verður að taka tillit til þeirra erfiðleika Ræða á degi iðnaðarins í Reykjavík 30. september mikillar tollverndar sem vegna tekjuþarfa ríkissjóðs höfðu verið lagðir á innfluttar iðnaðarvörur. Það er ekki fyrr en í byrjun síð- asta áratugs þ.e.a.s. þegar viðreisnarstjórnin komst til valda, að eitthvað rofar til í þess- um málum, þá var innflutningur véla og hráefna gefin frjáls en áfram var iðnaður látinn gjalda þeirrar tollverndar sem enn hafði, með minni fyrirgreiðslu í fjármálum og ströngum verðlags- höftum sem héldu mörgum grein- um iðnaðarins i algerri spenni- treyju, og staðið hafa samfleytt í yfir 30 ár. Nokkrar greinar iðnaðarins /oru teknar sliku kverkataki, að pær hafa ekki náð eðlilegum þroska og bíða þess seint eða aldr- ei bætur. Ég vil J þessu sambandi sérstaklega nefna véla- og málm- iðnaðinn. Sá iðnaður er forsenda annars iðnaðar og er það því stór tjón fyrir iðnþróun í landinu hvernig að þessari iðngrein hefur verið búið. Það hefur verið samhljóma álit þeirra fjölmörgu ráðamanna í þjóðfélaginu sem látið hafa til sín heyra á þessu iðnkynningarári að iðnaður sé íslendingum nauðsyn- legur og hann beri að efla. Þess vegna er eðlilegt að þeir sem við iónaðarframleiðslu fást og þeir sem við hann vinna spyrji. Hvers vegna er iðnaðurinn lát- inn greiða tvisvar sinnum meira aðstöðugjald en fiskiðnaðurinn? Hvers vegna er iðnaðurínn látinn greióa launaskatt en ekki útgeró og landbúnaður? Hvers vegna er smásöluverð á rafmagni til iðnað- ar mun hærra en samsvarandi verð í nærliggjandí Iöndum? Hvers vegna er mun minna fjár- magni veitt til þjónustustofnana iðnaðarins en annarra þjónustu- stofnana atvinnuveganna? Hvers vegna...or aðgai>í*ui' iónaðar , að. sem verðbólgan hefur valdið og veldur iðnaðinum, þar verður að taka tillit til þess við skattlagn- ingu, við lánafyrirgreiðslu og með því að fá framlengingu aðlögunar að EFTA. Það er útilokað að fyrirtæki sem búa við þá verðbólgu sem við höfum þurft að búa við undanfar- in ár geti til lengdar keppt við fyrirtæki í löndum sem búa við litla eða enga verðbólgu. Pn framlenging aðlögunar að EFTA verður að ná jafnt til allra. Þar má ekki refsa þeim sem betur hafa staðið sig í samkeppninni. Aðgerðir til eflingar atvinnu- lífsins og þar með iðnaðarins geta því aðeins náð tilgangi sínum að þegar sé gripið til róttækra að- gerða til þess að draga úr verð- bólgunni. Með áframhaldandi óðaverðbólgu er útilokað að byggja upp traustan iðnað. Af- koma þorra iðnaðar hefur ekki verið þannig að hafst hafi í við verðbólgunni. Vegna skattalaga sem taka mið af stöðugu verðlagi er iðnaðinum gert ómögulegt að viðhalda eigin fjármagni, hvað þá að treysta hann betur eins og eðli- legt og sjálfsagt ætti að vera. Á verðbólgunni verður að vinna bug. Á flestum sviðum iðnaðar hafa orðið framfarir þrátt fyrir erfiðar aðstæður, í því sambandi vildi ég mega nefna fatagerð úr ull. Þar hafa dugmiklir og hugkvæmir sölumenn, hugmyndarikir hönn- uðir og útsjónasamir framleið- endur unnið stórvirki við að gera verðlitla ull að verðmætari út- flutningsvöru. Slikur árangur næst ekki með neinni miðstýr- ingu heldur þar sem hæfileikar einstaklingsins fá að njóta sin. Á öðrum sviðum hafa framfarir því miður ekki orðið eins nauð- synlegar og æskilegt hefði verið t.d. þarf í véla- og málmiðnaði að gera stór átak til þess að bæta fyrir það sem misgert hefur verið gagnvart þeirri iðngrein. Hann þarf að gera svo öflugan og þrótt- mikinn að hann geti hannað ný tæki og endurbætt og viðhaldið þvi sem í gangi er til þess að íslensk framleiðsla geti staðið i fremstu röð hver á sínu sviði. Við sem í iðnaði erum megum ekki einskorða okkur við að gera kröfur til annarra. Við veróum að gera kröfur og það meiri kröfur til okkar sjálfra. Því aðeins getum við vænst skilnings og trausts þjóðar og ráðamanna að við sýn- um það í verkí að við séum traustsins verðir. Það er von mín að sú kynning á íslenskum iðnaði og iðnaðarvör- um sem staðið hefur nú í eitt ár, megi bera þann árangur sem að var stefnt. Næsta skrefið ætti svo að vera iðnkynning innávið þ.e. aö iðnaðarmenn og iðnrekendur reyni að læra hver af öðrum og hvetja hvern annan til dáða.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.