Morgunblaðið - 06.11.1977, Side 28

Morgunblaðið - 06.11.1977, Side 28
76 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. NÖVEMBER 1977 spennta og unnt væri, svo að þeim létti síðar og féllu í gildru án þess að gæta sfn. Fjórum minútum áður en hinn framlengdi frestur er út runninn, berst flugturninum f Mogadishu tilkynning þess efnis, að björgunarsveitin frá GSG 9 sé í aðflugi. En flugræningjarnir fá ekki þær fréttir, heldur ber Salewski þeim þessi miklu, en ósönnu tfðindi: „Við höfum skipti! Sambandsstjórnin í Bonn var rétt í þessu að samþykkja að láta fangana nfu lausa.“ Sigur- gleði flugræningjanna varð mikif, og þeir féllust i faðma. „Við höfum sigrað! Við höfum unnið. Strfðið er búið.“ Meðan verið er að deila aftur út handtöskum meðal farþeganna 86, birtast tveir ljósir deplar á dökkum himninum: Og undir fullu skini ljóskastaranna lendir Lufthansavélin Boeng 707 „Stutt- gart“ á flugvellinum í Mogadishu með 60 menn úr GSG 9: Björgunarsveitin var komin. Flugræningjarnir heyra að vfsu drunurnar í vélunum og hraða sér i flugstjórnarklefann, en hinir skæru rosabaugs-lampar blinda þá svo, að þeir geta ekki áttað sig á því, hvers konar vél þetta sé, hverrar gerðar eða frá hvaða flug- félagi. Og þegar „Stuttgart" fer á ská framhjá rændu flugvélinni í um 150 metra fjarlægð, eru öll ljós hennar slökkt, en áður höfðu brautarljósin verið slökkt. „EFTIR 9 KLUKKUSTUNDIR“ Nú hefur það gerzt, sem Salewski, sálfræðingur, hafði ætlazt til: Flugræningjarnir eru orðnir svo sigurvissir, að þeir spyrjast ekki einu sinni fyrir um það hjá flugturninum, hverjir hafi verið að lenda. Fyrir þeim er það aðeins eitt, sem skiptir máli: Hvenær getur flugvélin frá Frankfurt með fangana, sem á að sleppa, verið væntanleg til Moga- dishu? Jurgen Vietor, aðstoðar- flugmaður, verður að reikna út hugsanlegan flugtfma. Hann segir: „Þeir geta verið komnir hingað eftir níu klukkustundir." 1 fyrsta sinn í 96 tima máttu nú farþegar rændu flugvélarinnar tala saman að vild. Flugræningjarnir söfnuðu saman handsprengjum sínum. A sömu stundu er verið að taka vopn upp í „Stuttgart" sem hafði numið staðar f 2000 metra fjar- lægð og var algjörrega myrkvuð. Þetta voru vopn af fjölbreyti- legum gerðum og jafnframt hinum fullkomnustu ásamt ýmis konar tækjum og búnaði. Þetta einvalalið. sem hér var komið. bjöst einnig skotheldum vestum. Hin snöggu og áköfu orðaskipti sem fram höfðu farið milli fiug- turnsins og rændu flugvélarinnar fram að hinni ímynduðu og tilbúnu uppgjöf þýzku stjórnar- innar, hafa nú breytzt í vinsam- legt spjall. Kl. 21.05: Hryðjuverka- mennirnir hafa búizt við því frá kl. 17.30 að Baader og félagar hans séu á flugi með stefnu á Austur-Afríku. A meðan býr GSG 9 sig undir áhlaup sitt af ítrustu nákvæmni og læðast að hinni rændu vél að aftan. Kl. 22.15: Áhlaupssveitin um- kringir flugvélina. Uppi 1 flugturninum verður Salewski, sálfræðingur á sama tlma að leysa mikilvægasta verk- efni sitt: Honum verður að takast að fá hryðjuverkamennina til að farafram I stjórnklefa vélarinnar. Hann spyr og spyr og spyr. Loks gefur Salewski til kynna, að þeir séu þrfr I stjórnklefanum. Eftir þessu merki hafði björgunarsveit- in beðið. KI. 22.52: Stigar úr léttum málmum og klæddir gúmmfi eru reistir upp að fjórum dyrum flug- vélarinnar. „FEUERZAUBER“ Kl. 23.04: Ulrich Wegener, fyrir liði GSG 9 sveitarinnar beygir sig niður í sandinum ásamt mönnum sinum. Hann var i Entebbe-leiðangrinum, þegar ísraelsk áhiaupssveit freisaði 102 gfsla 4. júlí 1976. Þá var Flugræningjanum Suhala Sayeh, sem lifði árásina af, gefið súrefni í Mogadishu. Litla myndin var tekin við brúðkaup í Beirút 1 975. Wegener ráðunautur og gestur. En nú er hann stjórnandi. Og klukkan er 23.05, er hann gefur skipun með lykilorðinu: „Feuer- zauber!" Á allstóru svæði umhverfis vélina hefur liðssveitin komið fyr- ir æfingasprengjum sem mynda belti. Nú springa þær allar á sömu sekúndu. Og á þeirri sömu sekúndu ráðast allir mennirnir úr áhlaupssveitinni að fjórum dyr- um þotunnar og lokunum, sem nota á við slys til að opna að utan, er snúið. Þar sem enginn þrýst- ingur er í vélinni, opnast þykkar hurðirnar auðveldlega út. Fyrsti GSG-maðurinn kastar ljóssprengju inn f farþegaklefann fyrir framan flugstjórnarkeflann. Þessu vopni var beitt i fyrsta sinn í Mogadishu. Það eru enskir sér- fræðingar I baráttunni gegn hermdarverkum, sem hönnuðu þetta vopn og tveir menn voru sendir frá London til aðstoðar Wischnewski og höfðu það með sér. Þegar þessi sprengja sprakk, lýsti hún með skærum bjarma upp stjórnklefa vélarinnar. Birt- an og hávaðahvellur „deyfingar"- sprengjunnar eiga að gera hryðju- verkamennina óvfga f sex sekúndur. En á broti úr sekúndu eftir sprenginguna eru fyrstu mennirnir úr „GSG-9" komnir inn f vélina. „Beygið ykkur niður!“ æpa þeir á þýzku. „Beygið ykkur og þá skeður ekkert.“Inn um allar dyrnar fjórar að framan og aftan æða hinir ungu fullhugar í vélina. Samtfmis spýta handvélbyssur þeirra út úr sér kúlnahlfð inn i framhluta vélarinnar. Fyrirliði flugræningjanna fellur þegar og önnur kvennanna særist illa. Hinn karfmaðurinn skýtur til baka. Hann hittir einn árásar- manna í bakið. en kúlan lendir á skotheldu vestinu og veldur engum skaða. Þjóðverjinn snýr sér við með fingur á gikknum, sex skot hæfa Arabann úr örstuttu færi beint I andlitið. Deyjandi kastar flugræninginn tveimur handsprengjum. Þær renna undir fremstu sætaröðina. Við sprenginguna særast þrjár konur lítillega. „STRÁKAR þetta HEFÐIGETAÐ GENGIÐ HRAÐAR“ Hin konan úr hópi hryðjuverka- mannanna hefur smeygt sér inn um dyrnar að salerni 1. farrýmis. Hún hefur skothríð þaðan. En kúlnahríð úr vélbyssu sker sund- ur þunna hurðina. Konan fellur helsærð. Kl. 2.07: Fyrstu farþegarnir eru þegar komnir út á vinstri væng vélarinnar undir bert loft. Bardaganum er lokið. Kl. 2.12 eru allir komnir heilir i höfn. Klukkan f Þýzkalandi er 12 mfnútur yfir miðnætti (og einnig á Islandi). Frá flugturninum er sent eftir- farandi skeyti: „Aðgerðum lokið. Þrfr hryðjuverkamannanna dauðir. Kona úr þeirra hópi lffs- hættulega særð.“ 45 minútum síðar safnast björgunarmennirnir saman við flugvél sfna. Hið fyrsta, sem fyrir- liðanum, Wegener, verður þá að orði er: „Strákar, þetta hefði getað gengið svolftið hraðar." uILoit íleíkhús London er sannarlega lííleg borg. Leikhússtarfsemi í miklum blóma, nýjustu kvikmyndimar í hverju bíói, konsertar fæmstu listamanna og hvaó eina. Þaö leiöist engum í London. London — ein fjölmargra staða í áætlunarflugi okkar. FLUGFÉLAG /SLANDS L0FTLEIDIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.