Morgunblaðið - 30.11.1977, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1977-
31
AGÚSTRISI
SVAVARSSON
MEÐ12MÖRK
GEGN SAAB
ÁGÚST Svavarsson gerdi sér lítid
fvrir og skoradi nálega helming
marka Drott í sænsku 1. deildinni
um helgina r lidid lék gegn Saab á
útivelli. Skoraói Ágúst 12 mörk í
leiknum í 15 skotum, aó því er
Dagens Nyheter segir, en úrslit
leiksins uróu 26:24. Fimm marka
sinna gerói Ágúst úr vítaköstum,
en hann er markhæstur í 1. deild-
inni sænsku.
Liverpool — West Ham 1
Ef hægt er að tala um, að einhverjir
leikir séu öruggir, þá eru það leikir á
borð við þenna Spáum við heimasigri,
þrátt fyrir að WH hafi gert jafntefli á
Anfield síðustu þrjú árin
Manchester Utd. — Wolves 1
Þessi leikur er einnig ..öruggur” Það
yrðu mjög óvænt úrslit, ef þessum leik
lyktaði á annan veg en með heimasigri
Middlesbrough — Arsenal 1
Arsenal er á leið ofan i öldudal og
teljum við, að Boro tefji eigi för þeirra
og sigri örugglega
Newcastle — Leicester 1
Loks fá lið þessi mótherja af svipaðri
getu og verður hér áreiðanlega
grimmasta viðureign umferðarinnar
Við spáum heimaliðinu sigri, því að
þeir virðast færir um að skora mörk, en
Leicester ekki
WBA— Norwich 1
Norwich er ekki sama liðið heima og
heiman og WBA er geysilega sterkt lið
heim að sækja Spáin er því heima-
sigur
Tottenham — Southampton 1
Tottenham hefur aðeins tapað einu
stigi á heimavelli, það sem af er þessu
keppnistímabili og þó að Southampton
sé nú í þriðja sæti deildarinnar, hefur
árangur liðsins á útivelli verið upp og
niður, oft niður. Líkur á heimasigri eru
þvi yfirgnæfandi
— gg
Einn með
alla rétta
og 700
Þúsund kr.
UNGUR Reykvikingur var hinn lán-
' sami i 14. leikviku Getrauna. en
hann var einn um að vera með 11
leiki rétta, en einum leik á getrauna
seðlinum varð að fresta vegna veð-
urs. Var sá heppni með 16 raða
kerfisseðil og fékk einnig fjóra seðla
með 10 leikjum réttum. Fyrir 11
rétta var vinningurinn 692 þúsund
krónur, fyrir 10 rétta 13.400, en 22
raðir fundust með 1 0 réttum.
Á starfstimabilinu. sem lauk 30.
júni s.l.. var velta Dönsku getraun-
anna alls kr. 18.26 milljarðar isl.
króna. og er það aukning um 30%
frá fyrra ári, úr 14 milljörðum. Af
þessari upphæð tekur danska rikið i
skatt kr. 3.8 milljarða. 19% af velt-
unni og að auki skatt af öllum vinn-
ingum, sem eru yfir 6.900.— kr. isl.
Þátttaka i Danmörku er sem svar-
ar 5 raðir á íbúa á viku hverri, þegar
bezt lætur, en á laugardag var þátt-
taka i islenzku getraununum 0.2 rað-
ir á ibúa.
Meö þessum sigri sinum tók
Drott efsta sætið í deildinni og
hefur nú 12 stig eftir 8 leiki. Lugi,
lið Jóns Hjaltalín er í 2. sæti með
11 stig og á einn leik til góða. Lék
liðið ekki í 1. deildinni um helg-
ina, en lék á laugardaginn seinni
leikinn í Evrópukeppnínni gegn
Dimitrov frá Búlgaríu og tapaði
leiknum eins og fyrri viðureign
liðanna. Jón var markahæstur i
liði Lugi með fimm mörk.
Ólafur Benediktsson og félagar
hans i Olympia unnu GUIF frá
Eskilstuna um helgina með 24:22
og er Iið Ólafs nú komið með 5
stig i deildinni. Stóð Ólafur sig
vel i leiknum eins og reyndar í
öðrum leikjunt Olympia.
Búizt við
spennandi
leikjum við
Færeyinga
HINIR árlegu landsleikir við
Færeyinga í hlaki munu fara
fram 9. og 10. desember. Verða
þeir báðir leiknir i Iþróttahúsi
Hagaskóla. Sá fyrri föstudaginn
9. des. kl. 20.30 og sá síðari laug-
ardaginn 10. des. kl. 14.00.
Undirbúningur fvrir þessa
leiki er nú í fullum gangi. Mattlií-
as Elíasson þjálfari Þröttar liefur
verið ráðinn landsliðsþjálfari og
12 leikmenn valdir til æfinga.
Þeir eru frá Þrótti: Gunnar
Árnason, Guðmundur E. Pálsson,
Valdemar Jónasson, Jason ívars-
son og Böðvar II. Sigurðsson.
Frá tS: Halldór Jónsson,
Indriði Arnórsson, Júlíus B.
Kristinsson, Kjartan Páll Einars-
son og Sigfús Haraldsson.
Frá Víkingi: Páll Ölafsson og
frá UMFL: Haraldur Geir Hlöð-
versson.
Liður í undirhúningi landsliðs-
ins er pressuleikur sem fram fer í
Iþróttahúsi Hagaskólans sunnu-
daginn 4. des. kl. 16.
Búast má við að leikirnir við
Færeyinga verði spennandi því
svo virðist seni þeir dragi heldur
á Íslendinga ef úrslit fyrri leikja
eru skoðuð. Leikirnir í des. 1975
föru 3—1 og 3—0 en í des. 1976
3—2 og 3—1 f.vrir Island. Gera
má ráð fyrir að þessir leikir verði
einu landsleikir tslendinga í
blaki á þessum vetri, þannig að
áhugafólk er hvatt til að koma í
Hagaskólahúsið 9. og 10. des.
ÞS/KPE
Víkingur
AÐALFUNDUR Blakdeildar Vik-
ings verður haldinn í Félagsheim-
ili Víkings við Hæðargarð í kvöld
og hefst klukkan 20.00. Fundar-
efni: venjuleg aðalfundarstörf.
Aðalfundur Knattspyrnudeildar
Víkings verður einnig haldinn i
félagsheimilinu í kvöld.
... ' ' y _' Tt, __
m
Orðsending
frá F.Í.G.P.
Við hvetjum alla limi unga sem aldna til að rnæta á
fundinn að TRÖÐ i dag kl 1 2.00
Dagskrá:
1. Tröðinkvödd.
2. Leitað náða á nýjum stað.
3. „Hvað gerum víð vegna borðsins?".
F.h. formanns, Nefndin.
„Ef ég hefði ekki vitað það,
að Guð er til, mundi ég hafa
trúað á hestana mína“, sagði
eyfirzki bóndinn Friðrik í
Kálfagerði, og skáldjöfurinn
Einar Benediktsson sagði:
„Göfugra dýr en góðan ís-
lenzkan hest getur náttúran
ekki leitt fram“. — Þannig
hafa tilfinningar íslendinga
til hestsins ávallt verið og
eru enn og sér þess víða
merki. ! ríki hestsins undir-
strikar sterklega orð þessara
manna. Þar eru leiddir fram
fræðimenn og skáld, sem
vitna um samskipti hestsins,
mannsins og landsins, og
víða er vitnað til ummæla
erlendra ferðamanna. Bók-
in mun halda athygli hestamannsins óskiptri, eins og
hófatakið eða jóreykurinn, hún mun ylja og vekja minn-
ingar, hún er óþrjótandi fróðleiksbrunnur hverjum hersta-
manni, heillandi óður til tslands og fslenzka hestsins.
I RIKI
Ocfvoio dyr *n yöftoo ítlanykoo htO nóH-
úr©n «Wki •••41 l'om, mmjSi isókljnfvrmR Ei
Hfntó'-VUwn. bes»i ;iok vr.dirchlkor or? hon« og
hi>n n fictleiblxvnnu' hvot.vm hovlr.maivci,
hv.llnortí óSvi fii iilu»i!l 09 i(lor«kn bo»!v
Sambysst Stereo
Magnari
Plötuspilari
Kassettutæki
Útvarp
Tveir hátalarar
^sés^ fyigia
PHILIPS
Argerd 1977
Fjölmargir kostir
í vönduðu tæki
á hagstæðu verði
1. Útvarp fyrir LW, MW, SW
og FM (stereo)
2. Innbyggt loftnet.
3. Magnari 2x17 wött (music).
4. Stenst kröfur DIN 45 500
um Hi Fi.
5. Kassettutækið tekur
Chromium kassettur.
6. Sjálfvirk upptökustilling.
7. 3ja tölu teljari á
kassettutæki.
8. 2ja hraða Hi Fi plötuspilari.
9. Plötuspilaraairmur á lyftu.
10. Auðveld stilling á arm-
þyngd og hliðarrásun.
11. Heyrnartól og hljóðnema-
innstungur að framan.
12. O.fl. o.fl. o.fí. o.fl.
Philips kann
tökin á tækninni
heimilistæki sf
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 15655