Morgunblaðið - 03.10.1979, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 1979
nánar kynnt sérstaklega á pró-
gramminu.
Tónleikaferðin hófst 29. sept. og
stendur yfir til 12. okt. og er
leitast við að fara sem víðast. Þeir
félagar byrjuðu að spila í félags-
heimilinu í Vestmannaeyjum 29.
sept. Mánudaginn 1. okt. spiluðu
þeir í Menntaskólanum á Akur-
eyri eftir setningu skólans. Á
þriðjudeginum 2. okt. var staldrað
við á Húsavík og spilað í tveimur
skólum þar, og tónleikar síðan um
kvöldið. í kvöld spila Símon og
Siegfried í Norræna húsinu í
Reykjavík kl. 9. Síðan verður
haldið til Austfjarða og á tímabil-
inu 4. okt. — 7. okt. verða
tónleikar á Egilsstöðum, Neskaup-
stað, Seyðisfirði og Eskifirði.
Áætlað er að spila síðan í
Njarðvík og hinn 10. okt. í Borg-
arfirði. Að lokum spila þeir félag-
ar í Háskóla íslands hinn 11. okt.
INNLEIMT
Svavar stýrir fundi ráð-
gjafarnefndar EFTA
DAGANA 4.-5. október verður
haldinn i Genf fundur ráðgjafar-
nefndar Friverslunarsamtaka
Evrópu — EFTA. Nefnd þessi er
tengiliður milli EFTA og sam-
taka i atvinnulifi aðildarrikj-
anna og f jallar m.a. um starfsemi
EFTA og ástand og horfur í
efnahags- og viðskiptamálum að-
ildarrikjanna.
Af halfu samtaka hér á landi
sækja fundinn Agnar Tryggvason
frá Sambandi íslenskra samvinn-
ufélaga, Ásmundur Stefánsson frá
Alþýðusambandi íslands, Davíð
Sch. Thorsteinsson frá Félagi
íslenskra iðnrekenda, Hjalti Geir
Kristjánsson frá Verslunarráði
íslands og Jón H. Bergs frá
Vinnuveitendasambandi íslands.
Þar sem ísland hefur á hendi
formennsku í ráði EFTA síðari
hluta þessa árs mun Svavar
Gestsson viðskiptaráðherra stýra
fundi ráðgjafarnefndarinnar að
þessu sinni.
Stóru-Vogaskóli hinn nýi.
Stóru-Vogaskóli flytur í
nýtt og veglegt húsnæði
STÓRU-VOGASKÓLI á Vatns-
leysuströnd flutti í nýtt og
veglegt húsnæði í haust og var
það formlega vigt á sunnudag-
inn. Ilið nýja og veglega skóla-
hús er i Vogunum, en gamla
húsið var úti á strönd. —
Hreinn Ásgrimsson skólastjóri
sagði í samtali við Morgunblað-
ið að með tilkomu þessa nýja
skólahúsnæðis yrði algjör bylt-
ing i skólahaldinu. Aður fyrr
þurftu eitthundrað nemendur
að kúldrast í 100 m2 húsnæði, en
þetta nýja húsnæði er 620 m2.
Hreinn sagði að í hinu nýja
húsnæði væru fimm rúmgóðar
kennslustofur, þar af ein sér-
staklega ætluð til kennslu í
náttúru- og eðlisfræði. Þá væri
góð aðstaða fyrir kennara og
skólastjóra. Öll handavinnu-
kennsla fer svo fram í gamla
húsnæðinu, en skólinn þarf að
sækja alla íþróttakennslu til
Njarðvíkur ennþá.
Við skólann eru auk skóla-
stjóra sex fastráðnir kennarar
og þrír lausráðnir og nemendur
eru eins og áður sagði rúmlega
eitt hundrað.
Stóru-Vogaskóli er næstelsti
starfandi barnaskóli landsins á
eftir Eyrarbakkaskóla og hefur
starfað í 107 ár.
Bygging hins nýja skóla tók
alls um þrjú ár og var einu ári á
«
undan áætlun enda þörfin
gífurleg. Næstu verkefni að sögn
Hreins fyrir utan að ljúka vinnu
utanhúss og í lóð eru að koma
upp viðunandi íþróttaaðstöðu og
þá fyrst sundlaug sem hefur
verið til umræðu í mörg undan-
farin ár. Heildarkostnaður við
byggingu hins nýja skóla nam
110 milljónum króna.
I tilefni þessa merka atburðar
bárust skólanum margar góðar
gjafir, þar á meðal gáfu gamlir
nemendur skólanum málverk af
Viktoríu Guðmundsdóttur sem
var skólastjóri í 31 ár frá 1921 til
1952. Þá gaf kvenfélagið á staðn-
um skólanum eitt hundrað þús-
und króna peningagjöf. Það
gerði og ungmennafélagið.
Lionsfélagið gaf skólanum nýtt
ræðupúlt og listakonan Patricia
Hand sem býr í Vogunum gaf
skólanum málverk.
Hreinn Ásgrímsson skólastjóri
Stóru-Vogaskóla ávarpar gesti.
Frá vígslu skólans. Meðal annars má sjá marga þingmenn kjördæmisins.
Tónleikar í Norræna húsinu í kvöld
Hundraðasta
sýning á Frök-
en Margréti
HUNDRAÐASTA sýning
Þjóðleikhússins á Fröken
Margréti eftir Roberto
Athayde verður í dag, mið-
vikudag 3. október. Herdís
Þorvaldsdóttir fer með hlut-
verk Margrétar. Leikurinn
hefur m.a. verið sýndur í
Finnlandi og hlaut góða dóma.
Ulfar Hjörvar þýddi leikinn en
Benedikt Árnason er leik-
stjóri. Sýningum fer nú senn
að ljúka.
GÍTARLEIKARARNIR Símon
H. ívarsson og Siegfried Kobilza
frá Austurríki, eru nú á tónleika-
ferð um landið, og spila þeir
eingöngu spánska gítarmúsik.
Annars vegar spánska klassiska
músik og hins vegar flamingo
músik. Áheyrendum gefst þar
með einstakt tækifæri að kynnast
nánar þessari vinsælu þjóðar-
músik Spánverja, en hún er
Sambandsþing
Norrænufélaga
SAMBANDSÞING Norrænu félag-
anna á íslandi verður haldið i
Norræna húsinu föstudaginn 5. okt.
n.k.
Það er haldið annað hvert ár.
Rétt til setu á þinginu ciga nú 137
fulltrúar eða rúmlega 1% af öllum
félagsmönnum.
Auk skýrslu stjórnar um störf
undanfarinna tveggja ára eru fiuttar
starfsskýrslur hinna einstöku félaga.
Ennfremur eru lagabreytingar á
dagskrá svo og stjórnarkjör.
Starfsemi Norræna félagsins hefur
mjög færst í aukana hin síðari ár.
Þinginu lýkur með kvöldfagnaði í
Félagsheimili starfsmanna Flug-
leiða.
Til þingsins er boðað á þessum
tíma svo að þingfulltrúum gefist
kostur á að njóta norrænu menning-
ardaganna sem hefjast í Norræna
húsinu á laugardaginn 6. okt. n.k.
FréttatllkynninK.
Kvartett John McNeals. Frá vinstri: John McNeal, Tom Warrington, Mike Hyman og Bil Bickford.
J azztónleikar
JAZZTÓNLISTARMAÐURINN
John McNeal og kvartett hans
halda tónleika á vegum Jazz-
vakningar í Laugarásbiói n.k.
fimmtudag 4. október kl. 22.
McNeal er 31 árs trompettleik-
ari og hefur starfað með hljóm-
sveit Horac Silver en er nýlega
búinn að stofna eigin kvartett.
Kvartettinn skipa, auk McNeals,
þrír ungir tónlistarmenn Tom
Warrington bassaleikari, Mike
Hyman trommuleikari og Bill
Bickford gítarleikari.
McNeal hefur gefið út tvær
sólóplötur og sú þriðja er væntan-
leg í nóvember.
Spænsk gítar-
músik um landið