Morgunblaðið - 03.10.1979, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 1979
31
VÍKINGAR lentu framan af í hinu mesta basli með ÍR-inga í siðari leik kvöldsins í 4-liða
úrslitakeppni Reykjavíkurmótsins í handbolta. Reyndar stóðu Víkingar uppi með stórsigur í lokin,
en lengi framan af fyrri hálfieik var svo mikill hasar í leiknum, að spurningin var einungis sú, hvort
ÍR-ingar hefðu kraft til að halda út á slíkum hraða eða ekki. Lokatölur leiksins urðu 24—16 fyrir
Víking, en staðan í hálfleik var 11—8, einnig fyrir Víking.
Það var hávaði og læti í ÍR-ing-
unum í byrjun leiks. Þeir voru
hreyfanlegir og sterkir fyrir í
vörninni, svo mjög, að sá fátíði
atburður átti sér stað, að hin vel
smurða sóknarvél Víkings hikst-
aði oftar en einu sinni og leikmenn
liðsins voru heppnir að fá dæmda
leiktöf á sig aðeins einu sinni.
Víkingarnir voru engir eftirbátar í
vörninni, þannig að lítið var skor-
að. Staðan eftir tíu mínútur var
3—2 fyrir Víking og fimm mínút-
um síðar var staðan einu marki
betur, 3—3.
Swindon
lagði
Stoke
ÞRÍR aukaleikir í 3. umferð
ensku bikarkeppninnar fóru
fram í gærkvöldi, úrslit þeirra
urðu sem hér segir:
Bristol City — Peterbrough 4—0
Swindon — Stoke 2—1
Wimbledon — Plymouth 1—0
3. deild:
Barnsley — Blackburn
Grimsby — Bury
Hull —Chesterfield
Rotherham — Carlisle
Sheffield Wed - Millwall
1-1
1-0
2-1
4-1
2-0
UEFA sigur
Dundee Utd
DUNDEE Utd. tryggði sér rétt til
þátttöku í 2. umferð UEFA-
keppninnar, vann Anderlecht
samanlagt 2—1. Jafntefli varð í
gærkvöldi, 1—1. Bennie Nielsen
skoraði fyrir Anderlecht, en Kopel
jafnaði fyrir DU, sem vann fyrri
leikinn 1—0.
Upp úr því fóru hlutirnir að
ganga aðeins betur upp hjá Vík-
ingum, þannig að þeim auðnaðist
að ná þriggja marka forystu í
leikhléi. Var það einkum einstakl-
ingsframtak Ólafs Jónssonar sem
það orsakaði.
Þriggja marka forystan hélst
töluvert framan af síðari hálfleik
og IR-ingarnir héldu í vonina að
minka muninn og ógna Víking. En
kappið var meira en forsjónin,
Sigurður Gíslason ÍR, var rekinn
af leikvelli fyrir allt of gróft brot
heldur en efni stóðu til, Víkingar
juku muninn og þaðan varð ekki
aftur snúið.
Víkingar áttu ekki einn af sín-
um betri dögum þrátt fyrir
8-marka sigur. Margt sem þeir
reyndu gekk ekki upp og margir
þeirra létu það fara í taugarnar á
sér, t.d. með því að hrinda til
markverði ÍR, eftir að hann hafði
varið snilldarlega, sem hann gerði
reyndar oft í leiknum. En vörn og
markvarsla Víkings var í góðu lagi
og það gerði gæfumuninn, svo og
þokkleg yfirvegun ísóknarleiknum
undir lok leiksins. Ólafur Jónsson
átti mjög góðan leik fyrir Víking,
einnig þeir Erlendur Her-
mannsson og Árni Indriðason, auk
Jens í markinu. Aðrir gerðu of
mörg mistök og fundu sig ekki í
leiknum.
Baráttan var aðalvopn ÍR-inga
og hana skorti ekki, voru jafnvel
fantabrögð í heiðri höfð í vörn-
inni. Víkingarnir voru slegnir út
af laginu framan af, en sigu fram
úr þegar draga tók af ÍR-ingum.
Bjarni Bessason var atkvæðamik-
ill í liði ÍR og skoraði bróðurpart-
inn af mörkum liðsins. Vörnin var
lengst af góð, með þá Sigurð
Gíslason og Sigurð Svavarsson
bestu menn.
Mörk Víkinga: ólafur Jónsson 5,
Páll Björgvinsson og Steinar Birg-
isson 4 hvor, Erlendur Hermanns-
son og Árni Indriðason 3 hvor,
Þorbergur Aðalsteinsson og Sig-
urður Gunnarsson 2 hvor.
Mörk ÍR: Bjarni Bessason 8,
Sigurður Svavarsson 3 (allt víti),
Bjarni Bjarnason 2, Guðjón
Marteinsson, Ársæll Hafsteinsson
og Steinn Öfjörð eitt hver.
— gg-
• Ársæll Hafsteinsson ÍR-ingur, hleypur á múrvegg, sem er
skrokkurinn á Árna Indriðasyni í vörn Víkings. Ljósm. RAX.
Valur fór
vel af stað
VALSMENN fóru bærilega af stað í fjögurra liða úrslitakeppni Reykjavíkurmótsins í handknattleik, þegar
liðið vann Fylki mjög örugglega með 27 mörkum gegn 23. Staðan í hálfleik var 16—7 fyrir Val. Svo sem sjá
má af hálfleikstölunni, var vart hægt að tala um spennu í leiknum, til þess voru yfirburðir Valsmanna allt of
miklir. Frammistaða Brynjars Kvaran var hápunktur kvöldsins, hann gerði sér lítið fyrir og varði 24 skot í
leiknum og er það ekki lítið afrek.
Fyrri hálfleikur var alger ein-
stefna, Valsarár skoruðu þá hvert
markið af öðru og flest gekk upp.
Fylkismenn hnoðuðu hins vegar
allt hvað af tók og uppskáru varla
nokkurn skapaðan hlut, vörn Vals
var firnasterk fyrir. Munurinn var
mestur 10 mörk, en níu í hálfleik.
í síðari hálfleik fór mjög að gæta
áhugaleysis og rólegheita hjá Vals-
mönnum. Þeir gerðu margar vit-
leysur og fáa hluti vel. Fylkismenn
skoruðu hins vegar af og til og
heldur fleiri mörk heldur en
Valsmenn. Þannig söxuðu þeir á
forskotið, án þess nokkurn tíma að
ógna því. Var leikurinn þar af
leiðandi lítið augriayndi. Því að
handknattleikur sá sem bæði lið
sýndu í síðari hálfleik var dapur.
En Valsmenn voru sjálfum sér líkir
í fyrri hálfleik og fleyttu sér á því.
Eins og áður sagði var Brynjar
Kvaran markvörður senuþjófur að
þessu sinni. „Kollegi" hans hjá
Fylki sýndi snilldartakta í síðari
hálfleik, en varði lítið í þeim fyrri.
Þeir Steindór og Gunnar Lúðvíks-
son áttu einna skemmtilegustu
sprettina hjá Val, en sá síðarnefndi
er frekar óyfirvegaður í skotum
sínum. Hjá Fylki átti Ragnar
Hermannsson ágætan leik og Sig-
urður Símonarson berst jafnan
sem sturlaður væri. Hann er
hættulegur línumaður, grípur vel.
Mörk Vals: Þorbjörn Guðmunds-
son 6, Stefán Halldórsson 5 (3 víti),
Steindór Gunnarsson og Gunnar
Lúðvíksson 4 hvor, Bjarni Guð-
mundsson 2, Stefán Gunnarsson og
Karl Jónsson eitt hvor.
Mörk Fylkis: Magnús Sigurðsson
5, Einar Ágústsson og Ragnar
Hermannsson 4 hvor, Sigurður
Símonarson 3, Guðni Hauksson,
Ásmundur Kristinsson og Óskar
Gunnarsson 2 hver, Gunnar Bald-
ursson 1 mark.
— gg.
2 0 O | B
• Slysið fræga í Monza. Ronnie Peterson lét þar lifið. Nú hafa ökumennirnir tveir sem ákeyrslunni ollu,
verði kærðir fyrir manndráp.
Ökuþórar kærðir
fyrir manndráp. . .
RICARDO Patresse ítalski kapp-
aksturskappinn, sem kom við sögu
er Ronnie Peterson beið bana i
Monza kappakstrinum á siðasta
ári, hefur verið ákærður fyrir
manndráp á ítaliu. Gianni Restelli,
annar ítalskur ökuþór var einnig
ákærður, en kom þó minna við
sögu.
Þeir félagarnir hafa sætt geysi-
lega umfangsmiklum yfirheyrslum
síðustu mánuðina og verið lítið
hrifnir af og talið engan grundvöll
fyrir því að skella skuldinni á sig.
Saksóknarinn í Mílanó var þó ekki á
sömu skoðun og þeir félagar, þegar
hann fékk gögnin í sínar hendur.
Réttarhöldin munu þó ekki hefjast
fyrr en næsta vor.
Miklar breytingar hafa verið
gerðar á kappakstursbrautinni í
Monza, einkum beygjunni banvænu.
Vona kappakstursyfirvöld á Ítalíu að
breytingarnar verði til þess að öku-
þórarnir í Formula 1 láti undan og
keppi í Monza, en flestir sóru þeir
eftir slysið í fyrra, að keppa þar
aldrei aftur.
11 hlutu vinning
í 6. leikviku Getrauna komu fram 11 raðir með 11 réttum og var
vinningur fyrir hverja kr. 122.000.-. Með 10 rétta var 81 röð og
vinningur fyrir hverja kr. 7.100,-._
Námskelð
hiá UBK
KNATTSPYRNUDEILD Breiðabliks heldur knattspyrnunámskeið
fyrir 6. flokk 6—10 ára. i íþróttahúsi Gerplu við Skemmuveg,
mánuðina okt., nóv. og desember. Námskeiðið verður einu sinni í viku
þessa þrjá mánuði. Á miðvikudögum frá kl. 4.20 til kl. 5 fyrir 6 og 7
ára. Óg kl. 5 til 6 fyrir 8—9 og 10 ára.
Námskeiðið hefst 3. okt. Þátttökugjald er 5000 kr. og greiðist í
upphafi námskeiðs. Kennari verður Guðmundur Helgason íþrótta-
kennari. Nánari upplýsingar veitir Jón Ingi í síma 40394.
Fimm daga lota
um frjálsiþróttir
í DAG hefst að Hótel Loftleiðum þjálfaranámskeið er Frjálsíþrótta-
samband tslands stendur að. Kennarar á námskeiðinu verða tveir af
fremstu þjálfurum Breta í kastgreinum og stökkgreinum frjáls-
iþrótta, þeir Maxwell Johnson og John Anderson. Upphaflega stóð til
að kúluvarparinn góðkunni, Mike Winch, kæmi, en ekki gat orðið aí
þvi.
Námskeiðið hefst í dag kl. 10 fyrir hádegi, en strax að setningunni
lokinni hefjast fyrirlestrar. Námskeiðið verður með þeim hætti, að frá
morgni og fram eftir degi verða fyrirlestrar og rabbtimar, en siðdegis
verða verklegir timar ýmist á frjálsiþróttavellinum í Laugardal eða i
iþróttahúsum bæjarins. Stendur námskeiðið i fimm daga og i gær
höfðu 15 manns viðs vegar að af landinu tilkynnt þátttöku sína.
Margir fleiri höfðu áhuga, en áttu ekki heimangengt þar sem
námskeiðið stendur yfir á venjulegum vinnutima.
ÍR-ingarnir
héldu ekki út