Alþýðublaðið - 31.08.1920, Blaðsíða 3
ALÞYÐUBLAÐIÐ
3
€.$, Snðnrlani
íer til Borgarness
3. september.
Miöillinn.
Sálarrannsóknarfélagið hefirhlot-
ið þökk margra manna fyrir það,
að hafa fengið miðilinn Mr. Pe-
ters hingað. Fregnum þeim, sem
opinberlega hafa komið fram af
fundum hans, ber þó ekki alstað-
ar saman, og aðrir en félagar
Sálarrannsóknarfélagsins hafa ekki
fengið að vera þar viðstaddir.
Auðvitað er félagið frjálst að því
hverjum það hleypir á fundi sína,
en samt er fjöldi manns sem ekki
hefir fundið ástæðu til að ganga
í Silarrannsóknarfélagið, eins og
því er fyrirkomið, en hefir þó
áhuga á hlutlausum rannsóknum
þessara máia, og mundi því gjarna
vilja vera á fundi með Mr. Peters.
Og í sjálfu sér verður ekki séð,
hvað Sálarrannsóknarfélagið getur
haft á móti slíku. — Ekki getur
það óttast „vantrúaða".
Það ætti ekki að verða til ann-
ars en þess, að ennþá fieiri sann-
færðust, ef miðillinn er svo ágæt-
ur sem af er Iátið.
Það væri lika sjálfsagt að á
slíkum fundi fengi t. d. nefnd
hlutlausra en fróðra manna að
gera þær rannsóknir sem þeir álitu
nauðsynlegar, til þess að vísinda-
leg -nákvæmni væri viðhöfð, og
allur efi útilokaður eftir föngum.
Mætti fá slíka menn t. d. úr
Læknafélaginu og Háskólanum.
Ef miðillinn er eins viss í sinni
sök og sagt er — um það er ekki
ástæða til að efast að svo komnu
— ætti honum ekki að vera nema
Þægð í því, að fá hæfileika sína
staðfesta, einnig af óviðlcomandi
utanfélagsmönnum, en sé eitthvað
b°gið við alt saman, ætti mönn-
Utn sem einlæglega leita sannleik-
ans* eins og félagar S. R. F. I.
segjast gera, ekki síður að vera
þökk á þv/, ag þag værj sannað.
^*lfii ekki einhver félagi S. R,
• L stinga upp á þessu á fund-
um þeirra svo að það yrði rætt
þar, án óviðkomandi íhlutunar, en
almenningi gefinn kostur á að
heyra svarið. Hér er sem sé bent
á þá einu leíð sem altaf er farin
í slíkum rannsóknum, og oiörgurn
mundi einnig kærkomin hér.
Akademicus.
Ðm dBjprog vep.
Kveikja ber á hjólreiða- og
bifreiðaljóskerum eigi síðar en kl.
8 í kvöld.
Sýniug' Ríkarðs Jónssonar er
opin kl. n—8 í barnaskólanum;
gengið inn um norðurdyr, næst
Lækjargötu.
Bíóin. Gamla Bio sýnir: „Car-
men“. Nýja Bio sýnir: „Blómið
blóðrauða" í síðasta sinn.
Iínattspyrnan. í kvöld kl. 61/2
hefst knattspyrnumótið um Islands-
hornið með því, að Víkingur og
Fram eigast við. Má búast þar
við góðri skemtun.
Af síldveiðuni komu í nótt:
„Þórður Kakali“ frá Ingólfsfirði,
er hættur veiðum, og „Seagull"
frá Siglufirði líka hættur. Síldveiði
er enn nyrðra og hafa sumir mót-
orbátarnir aflað hátt á 4. þús.
tunnur.
Gígjan fór á sunnudaginn suð-
ur að Vífilsstöðum og Iék þar á
lúðra fyrir sjúklingana. Á hún
þakkir skyldar fyrir.
Skipakomur ; í gær: Mai frá
Englandi, Jón Forseti af fiskiveið-
um, fór til Englands með ísfisk
samdægurs.
Equator eistlénzk skonnorta fór
tií Canada í gær.
. Hjóuaband. Gefin voru saman
í hjónaband af síra Ólafi Ólafs-
syni Fríkirkjupresti á laugard. var
Einar Jónsson og Sigurbjörg Helga-
dóttir, Seljalandi.
Brauðgerðarhús Björns Sím-
onarsonar biður þess getið út af
ummælum hér í blaðinu nýlega,
að alt brauð frá því sé flutt í
lokuðum ílátum. Blaðinu er sönn
ánægja að geta þessa, og hins
líka, að fleiri brauðgerðarhús geta
1 sem betur fer sagt hið sama.
íslandsbanki eða stjórn hans
segist ekki halda önnur landslög
en þau, sem hún hafi fallist á.
Ekki hefir enn þá heyrst að ung-
lingarnir í steininum hafi samþykt
hegningarlögin; sennilega losna
þeir þá við hegningu fyrir gerðir
sinar I
• |
Svala fermir hér fisk, sem
senda á til Spánar, tekur viðbót
á höfnum austanlands.
Dáin. Á laugardagskvöldið lést
Sigríður Jónsdóttir Húnfjörð, eftir
stutta legu. Hún var kona Jósefs
skálds Húnfjörð; dugnaðarkona
og vel látin.
Af Eyrarbakka er blaðinu
'símað, að rafstöðin þar hafi í
fyrsta sinn verið opin til reynslu
á föstudaginn var. Mótor rekur
aflstöðina.
Bílslys: Á sunnudaginn valt
bíll um koll í Fossvogi fullur af
fólki. Varð það undir bílnum og
drógu piltar úr „Gígju" o. fl. er
þar komu að fólkið undan vagn-
inum, sem var alveg á hvolfi.
Meiðsli voru lítil sem engin, nema
kona ein gekk úr liði um axlar-
liðinn. Ekki er Ijóst hvernig þetta
hefir atvikast, en sennilega hefir
illur vegur og ónóg stjórn valdið
nokkru um, auk afspyrnuveðurs.
Veðrið í morgun.
Vestm.eyjar
Reykjavík .
ísafjörður .
Akureyri .
Grímsstaðir
Seyðistjörður
Þórsh., Færeyjar
Stóru stafirnir
Loftvægishæð
Færeyjar; loftvog
fremur stilt veður.
suðaustlæga átt.
SA, hiti 8,2»
ASA, hiti 9,6.
logn, hiti 7,5.
logn, hiti 10,
logn, hiti 9.0.
logn, hiti 9,6.
SA, hiti 9,3.
inerkja áttina.
suðau stan við
hægt fallandi;
Útlit íyrir hæga
Kanpið
jk-lþýOublaÖiO I