Morgunblaðið - 01.03.1980, Síða 1

Morgunblaðið - 01.03.1980, Síða 1
36 SÍÐUR OG LESBÓK 51. tbl. 67. árg. LAUGARDAGUR 1. MARZ 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Iran: Óvíst hvort nefndar- menn hitta gíslana Tcheran, New York, 29. febrúar. AP. TALSMAÐUR Sameinuðu þjóð- anna í New York sagði í dag, að rannsóknarnefndinni, sem nú rannsakar feril fyrrum írans- keisara, hefði verið tjáð, að hún mundi hitta gíslana i bandariska sendiráðinu. Fréttir frá Teheran hermdu í dag, að nefndarmenn hefðu haldið kyrru fyrir á hóteli sínu í dag og engin áform væru uppi um að þeir hittu gíslana. Óvíst er því, hvort nefndin fer í sendiráðið að svo stöddu. Hundruð bæklaðra manna, sem segja að þeim hafi verið misþyrmt á valdatímum keisarans, söfnuð- ust í dag saman framan við hótel rannsóknarnefndarinnar til að bera vitni um ógnarstjórn hans. Liu Shao-Chi fær uppreisn Pckin*:, 29. febrúar. AP. MIÐSTJÓRN kinverska komm- únistaflokksins ákvað i dag að veita Liu Shao-Chi fyrrverandi forseta uppreisn æru og hreinsa hann af öllum áburði um að vera Engin von um líf Títós Ljubljana. 29. febrúar. AP. LÍF Títós Júgóslavíuforseta hékk í kvöld á bláþræði. í tilkynningu lækna hans sagði, að þrátt (yrir að allt hefði verið gert sem í mannlegu valdi stæði til að vinna bug á veikindum hans, væru engin batamerki sjáanleg. Tilkynn- ing læknanna var sú stytzta, sem út hefur verið gefin frá því Tító lagðist veikur fyrir sjö vikum síðan. Engin von er nú talin til þess að hann lifi veikindin af. föðurlandssvikari, endurskoðun- arsinni og óþokki. Liu var svipt- ur öllum völdum, lítillækkaður og auðmýktur árið 1969 og er talið að hann hafi látizt skömmu síðar. Jafnhliða því að Liu var veitt uppreisn æru var fjórum dyggum fylgismönnum Mao Tse-Tungs vísað úr stöðum þeirra hjá flokkn- um, en tveir af nánustu stuðnings- mönnum Deng Hsiao-Pings vara- forsætisráðherra voru teknir í mið- stjórnina. Miðstjórnin ákvað einn- ig að banna „lýðræðisveggina" svokölluðu, veggspjöldin, sem mönnum var um nokkurt skeið frjálst að skrá skoðanir sínar á. Þessir atburðir eru taldir benda til þess, að Kínverjar vilji draga úr dýrðarljómanum, sem umlykur Mao, og halda áfram raunsærri uppbyggingarstefnu í anda Lius. Þessi ákvörðun miðstjórnarinnar er á sinn hátt talin mikilvægur stuðningur við Deng varaforsætis- ráðherra, sem var tvívegis lítillæk- kaður á valdatíma Maos. Afganistan: (Símamynd AP) VOPNIN KVÖDD — Skæruliðar úr röðum Roberts Mugabes leggja vopn sín til hliðar undir eftirliti brezks hermanns, áður en þeir fá að greiða atkvæði i búðunum, þar sem þeir hafa dvalið að undanförnu. Skæruliðarnir greiddu atkvæði í gær, á síðasta degi kosnipganna í Rhódesíu. Rhódesía: Kosningasvik með aðstoð Coca Cola? Salisbury. 29. febrúar. AP. TÓLF blökkumenn voru í dag handteknir í Rhódesíu og sakaðir um að hafa ætlað að greiða atkvæði tvisvar í kosningunum, sem nú fara þar fram. Höfðu þeir, að því er talið er, reynt að afmá merki, sem stimplað er á alla þá, sem kosið hafa, með því að hella yfir það Coca Cola. Brezki kjörstjórinn í Rhó- desíu, sir John Boynton, sagð- ist í dag ætla að ganga alveg úr skugga um það, hvort hægt væri að afmá merkið með Coca Cola, en hann sagðist ekki telja, að neinn stjórn- málaflokkanna hefði skipu- lagt kosningasvik af þessu tagi. Kosningaþátttaka var mikil í dag, síðasta dag kosn- inganna, eins og fyrri dagana tvo var búizt við því að um 90% atkvæðisbærra manna mundu greiða atkvæði. Kosn- ingaúrslit munu liggja fyrir á þriðjudag. Búizt við frekari aðgerð- um uppreisnarmanna Kabul, Washington, 29. íebrúar. AP. HERIR Sovétmanna og stjórnar- innar í Kabul hafa fengið sér- stök fyrirmæli um að vera við öllu búnir og taka af fullri hörku á öllum mótmælaaðgerð- um gegn Sovétmönnum í Afgan- istan. Leiðtogar uppreisnar- manna hafa hótað að skipu- leggja víðtækar mótmælaað- gerðir og árásir nú um helgina. Vestrænir stjórnarerindrekar í Kabul efuðust um það í dag, að uppreisnarmönnum tækist að skipuleggja jafnvíðtækar aðgerð- ir og gert var í síðustu viku, en talið er að þá hafi um 300 farizt í götubardögum í Kabul og 1000 særzt. Varð mikið manntjón í röðum uppreisnarmanna, þegar sovézkir skriðdrekar og þyrlur skutu á þá og telja stjórnarer- indrekarnir, að nokkurn tíma muni taka að þétta raðirnar á ný. Anatoly Dobrynin sendiherra Sovétríkjanna í Washington átti í dag fund með Cyrus Vance utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna og ræddu þeir m.a. Afganistanmál- ið. Telja sumir fréttaskýrendur, að stórveldin tvö séu nú að reyna að finna grundvöll fyrir samning- um um tryggingu fyrir hlutleysi landsins. Bandaríska utanríkis- ráðuneytið endurtók þó í dag þá afstöðu Bandaríkjastjórnar, að Sovétmenn yrðu að verða á brott með allt lið sitt frá Afganistan áður en um annað yrði rætt. Brezka stjórnin afhenti Sovét- stjórninni formlega í dag tillögu Efnahagsbandalagsríkjanna níu um hlutleysi Afganistans sam- hliða brottflutningi sovézka hers- ins frá landinu. Að sögn tals- manna brezka utanríkisráðuneyt- isins hafa Sovétmenn sýnt þess- ari hugmynd áhuga. Ekki er búizt við því, að neinn þeirra flokka, sem býður fram, fái hreinan meirihluta atkvæða og er því talið líklegast að samsteypu- stjórn blökkumanna taki við völdum í landinu. Meðal þeirra, sem greiddu atkvæði í dag, voru skæruliðar Muga- bes og Nkomos, en þeir hafa dvalið í sérstökum undanfarnar vikur. búðum Konunum sleppt úr sendiráðinu í Bogota Bogota, 29. tebrúar. AP. SKÆRULIÐARNIR, sem halda tugum manna i gislingu i sendi- ráði Dóminikanska lýðveldisins i Bogota létu i dag lausar fimm konur úr hópi gislanna. í hópi kvennanna var sendiherra Costa Rica i borginni. Eftir í sendiráð- inu cr nú 41 gísl, þeirra á meðal 15 sendiherrar erlendra ríkja. Skæruliðarnir hafa sleppt öll- um konunum, sem í sendiráðinu voru, 15 talsins, og einnig fjórum mönnum, sem særðust, þegar sendiráðið var tekið. Skæruliðarnir hafa krafizt þess að fá afhentar 50 milljónir Bandaríkjadala og að 311 fangar, sem þeir segja að séu hafðir í haldi af pólitískum ástæðum, verði látnir lausir. Leiðtogi skæruliðanna sagði í dag, að hann og menn hans væru reiðubúnir til að hafast við í sendiráðinu í einn eða tvo mánuði gerðist þess þörf til að fá kröfunum framgengt. Starfsmenn Rauða krossins í Bogota komu í dag með matvæli, teppi og sígarettur í sendiráðið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.