Morgunblaðið - 01.03.1980, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MARZ 1980
Tómas Árnason viðskiptaráðherra:
Endurkaup afurða-
lána verði óbreytt
„ÞAÐ cr stcína mín ok ríkis-
stjórnarinnar að stcfnan í cndur-
kaupum afuróalána vcrði óbrcytt
frá því sem var,“ sajíði Tómas
Árnason. viðskiptaráðhcrra. scm
í Kær átti viðræður við banka-
stjórn Seðlabanka íslands. Tóm-
as sajjði. að samkomulají hcfði
orðið milli sín ok bankastjórnar-
innar að málið yrði látið kyrrt
lÍKKja að svo stóddu. cn Scðla-
bankinn ta“ki nú upp viðræður
við viðskiptahankana um það að
þeir brúuðu það hil. scm komið
hefði upp við 1 '/2% lækkun cndur-
kaupanna.
Tómas Árnason, viðskiptaráð-
herra sagði: „Á fundinum voru
endurkaupin rædd oj{ staða sjáv-
arútvegs, iðnaðar oj? landbúnaðar
og var ákveðið að láta fyrirhugað-
ar lækkanir á endurkaupum
Seðlabankans á afurðalánavíxlum
kyrrar liggja í bili og að Seðla-
bankinn tæki jafnframt upp við-
ræður við viðskiptabankana um
það, hvort þeir gætu fjármagnað
það l’/2%, sem tekið hafði gildi og
ákveðið hafði verið áður en núver-
andi ríkisstjórn settist að völdum.
Síðan er meiningin að taka þessi
mál upp í sambandi við gerð
fjárfestingar- og lánsfjáráætlunar
fyrir árið 1980, en þar er ávallt
fjallað um peningamálastefnuna.
Verða þá þessi mál tekin upp í
einu lagi og mörkuð ákveðin
stefna."
„Það er mín stefna og ríkis-
stjórnarinnar," sagði Tómas, „að
þetta verði óbreytt frá því sem það
var áður, þ.e.a.s. lánað verði 75%
út á afurðir." Kvaðst Tómas von-
ast til þess að það gæti orðið.
Flokkur Framkvæmda-
stofnunarmanna til Eyja
SEX starfsmenn Framkvæmda-
stofnunar með Sverri Hermanns-
son forstjóra Framkvæmdastofn-
unar í broddi fylkingar héldu til
Vestmannaeyja í gær til skrafs
og ráðagerða við fjölmarga aðila
í atvinnurekstri Eyjanna. Þá fór
Eggert Haukdal stjórnarformað-
ur Framkvæmdastofnunar einn-
ig með hópnum til Eyja svo og
þingmenn úr Suðurlandskjör-
dæmi. Yfirmenn Framkvæmda-
stofnunar ætiuðu að mæta á
©
INNLENT
Eyjaráðstefnunni, sem var haldin
þar i janúarlok. en gátu ekki
mætt á síðustu stundu vegna
óviðráðanlegra atvika og ákváðu
þeir því að fara við fyrsta tæki-
færi. Siðan hefur ríkisstjórnin
tekið upp málið og fara erindin
saman.
Starfsmenn Framkvæmdastofn-
unar sem fóru til Eyja auk Sverris
Hermannssonar eru Karl Bjarna-
son og Guðmundur Ólafsson úr
lánadeild, Benedikt Antonsson
skrifstofustjóri áætlanadeildar og
Sigurður Þorsteinsson úr byggða-
deild. Auk þess að fara í fyrirtæki
munu Framkvæmdastofnunar-
menn halda fundi með ýmsum
aðilum og bjóða upp á viðtalstíma
fyrir þá sem hafa hug á slíku.
Ýmsum forsvarsmönnum
stjórnvalda voru fyrir skömmu
afhent eintök með úrdrætti úr
ræðum allra framsögumannanna
á Eyjaráðstefnunni.
' :
TJALDUR heitir hann og ber einkennisstafina SU 115, en á
myndinni rennir báturinn sér meðfram höfninni í Fáskrúðsfirði.
Tjaldur er 17 tonn að stærð, smiðaður á Fáskrúðsfirði og
sjósettur síðastliðið haust. Hann var afhentur nýjum eigendum í
janúarmánuði síðastliðnum og hefur verið á linu undanfarið. Afli
hefur verið allgóður þegar gefið hefur, en tið verið rysjótt til
sjávarins. Eigandi bátsins er Framfari á Fáskrúðsfirði, en að
fyrirtækinu standa þeir Jóhann Árnason og Rúdolf Midjord,
báðir af færeysku bergi brotnir, Jóhann er skipstjóri og Rúdolf
vélstjóri.
(Ljósm. Albert Kemp)
Tíu umsókn-
ir um stöðu
fréttamanns
TÍU manns hafa sótt um
stöðu fréttamanns við Út-
varpið, en sú staða losnaði
er Jón Ásgeirsson sagði
starfi sínu lausu nú um
mánaðamótin.
Umsækjendur eru: Agnes
G. Bragadóttir, íþrótta-
kennari og BA, Álfheiður
Ingadóttir blaðamaður,
Anna Ólafsdóttir Björns-
son BA, Gunnar Bergþór
Pálsson nemi, Hallgrímur
Thorsteinsson BA, Hrafn-
hildur Guðmundsdóttir
leikari, Jón Ormur Hall-
dórsson BA, Jón Ásgeir
Sigurðsson blaðamaður,
Magnús Gunnsteinn Haf-
steinsson, Þórður Ingvi
Guðmundsson, með mast-
ers-gráðu í stjórnsýslu.
Fréttastofa útvarps hef-
ur mælt með Hallgrími
Thorsteinssyni í stöðuna,
en hann starfaði þar í
afleysingum síðastliðið
sumar. Utvarpsráð tók ekki
afstöðu til umsækjenda á
fundi sínum í gær, en gerir
það væntanlega á fundi
á þriðjudag.
Skuldastaða ríkissjóðs við
Seðlabankann 32,3 milljarðar
HEILDARSKULD ríkissjóðs
við Seðlabankann var hinn
26. febrúar síðastliðinn 32,3
milljarðar króna og hafði
aukizt frá áramótum um 5,7
„Niðurstöðurnar komu
okkur ekki á óvart“
segir Guðjón Tómasson framkvæmdastjóri Sambands málm- og skipasmiðja
„ÞAÐ má segja að við höfum vitað
hverjar niðurstöðurnar yrðu að
ákveðnu marki. þannig að þetta
kemur okkur ekki á óvart,“ sagði
Guðjón Tómasson framkvæmda-
stjóri Sambands málm- og skipa-
smiðja er Mbl. innti hann álits á
könnun þeirri er fram hefur farið
á nýtingu vinnutíma við skipavið-
gerðir, en i niðurstöðum könnun-
arinnar kemur fram að nýtingin í
þeim verkefnum sem athuguð
voru var ekki nema 44,3% og í
einstöku verkefni fór nýtingin
niður í 21%.
„Þrátt fyrir að fræðilega geti
nýtingin komist upp í 80% er ekki
raunhæft að miða við það, þar sem
allar aðstæður hér á landi eru
slæmar. Þá er auðvitað ekki hægt
að dæma alla iðnaðarmennina af
þessum niðurstöðum. Það tekur til
að mynda langan tíma að flytja
skip milli staða í höfnum og eru
dæmi þess að skip hafa verið á sjö
stöðum í höfninni í aðeins fimm
daga viðgerð. Sem dæmi um það
slæma ástand sem ríkir er hægt að
nefna það, að aðeins ein viðgerðar-
bryggja er til á landinu, þ.e. á
Akureyri.
Þá kom það fram í samtalinu við
Guðjón að boðaður hefur verið
fundur með viðkomandi aðilum í
næstu viku þar sem málin verða
rædd. Það væri hins vegar alveg
ljóst að þetta væri langtímaverk-
efni, sem ekki yrði leyst í neinni
skyndingu.
Gunnar Ragnars forstjóri Slippstöðvarinnar á Akureyri:
„Fráleitt að dæma
svona heila stétt“
— MÉR FINNST þessar niður-
stöður vera byggðar á veikum
grunni og fráleitt að dæma heila
stétt manna á þessu litla úrtaki,
sagði Gunnar Ragnars forstjóri
Slippstöðvarinnar á Akureyri er
hann hafði samband við Morgun-
blaðið i gær.
— Ég þekki ekki til þess hvernig
þessi könnun fór fram, að öðru
leyti en því sem greint er frá í
Morgunblaöinu, sagði Gunnar.
— Eðlilega hnaut ég um það, að
þarna eru tekin 13 verk, sem í heild
tóku 900 vinnustundir, þannig að
hvert viðgerðarverkefni hefur að
meðaltali tekið innan við 70 vinnu-
stundir. Það er ekki hægt að dæma
allar skipaviðgerðir eftir þessum
dæmum og það er staðreynd að
þegar um lítil viðgerðarverkefni er
að ræða verður hreinn verktími
iðulega minni.
—Eg er sannfærður um að ef
litla viðgerð þyrfti að framkvæma
við bryggju í Kaupmannahöfn til
að skip gæti haldið áfram ferð
sinni þá yrði útkoman mjög svipuð
þessu. Við höfum gert ýmsar
mælingar hér hjá okkur og fengið
alls konar tölur, en einmitt lágar
þegar um lítil og óundirbúin verk-
efni er að ræða. Við erum með
viðgerðarverkefni, sem tekur 15
þúsund vinnutíma, þar er allt
önnur útkoma, sagði Gunnar
Ragnars.
milljaröa króna. Skuldaaukn-
ingin frá áramótum og til
jafnlengdar í fyrra var hins
vegar 9,8 milljarðar króna.
Samkvæmt upplýsingum
Höskuldar Jónssonar, ráðu-
neytisstjóra í fjármálaráðu-
neytinu hefur staðan á þessu
tímabili, tæplega tveimur
mánuðum, versnað um 4 millj-
ónum króna minna en í fyrra
og verður þess þó að gæta að
verðlag þessara tveggja ára er
ekki sambærilegt. Ástæður
þessa eru m.a. þær, að fjárlög
hafa enn ekki verið afgreidd
og er ríkissjóður nú rekinn á
greiðsluheimildum. Því innir
fjármálaráðuneytið af hendi
greiðslur, sem eru í eins miklu
lágmarki og frekast er kostur.
Höskuldur sagði, að þrátt
fyrir það, liti hann svo á að
ekki væri mikið um ógreidda
reikninga að ræða. Hins vegar
hefði kröfuhöfum verið til-
kynnt að þeir fengju ekki
greiðslur, fyrr en fjárlög hefðu
verið samþykkt, nema með
þessum takmörkunum, sem
áður eru nefndar.
Áðurnefndan dag, 26.
febrúar var hlaupareikningur
ríkissjóðs hjá Seðlabankanum
með jákvæða innstæðu, sem
nam 373 milljónum króna.
Síðan skuldar ríkissjóður um 4
milljarða í ríkissjóðsvíxlum.
Stærsta skuldin er ógengis-
tryggt lán hjá Seðlabankan-
um, en stærsti hluti hennar
mun þó vera með verðtrygg-
ingu.
Stefán Sturla
Stefánsson látinn
STEFÁN Sturla Stefánsson að-
stoðarbankastjóri Útvegsbanka
íslands andaðist á sjúkrahúsi hér
í Reykjavík s.l. fimmtudagskvöld
og var banamein hans hjartaslag.
Stefán var fæddur þ. 5. nóvem-
ber 1927, sonur Stefáns Sigurðs-
sonar, skálds frá Hvítadal og konu
hans Sigríðar Jónsdóttur. Hann
lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1949 og
prófi í viðskiptafræðum frá Há-
skóla íslands 1954. Ári síðar hóf
hann störf í Útvegsbanka íslands,
var forstöðumaður Hagdeildar
bankans og síðar aðstoðarbanka-
stjóri frá ársbyrjun 1971.
Stefán Sturla Stefánsson var
kvæntur Katrínu Hauksdóttur
Thors og eiga þau eina dóttur,
Sofíu Erlu.