Morgunblaðið - 01.03.1980, Page 11

Morgunblaðið - 01.03.1980, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MARZ 1980 11 Leiðbeiningarnar í 12 lengdarmetrum. Vonandi verður sem flestum hjálp í lesningunni. Ljósm. Mbl. Kristján. Úr 3 metrum í 12: Til einföldimar? Með útkomu nýja skattframtalseyðublaðsins var sagt að nú yrði ekkert mál fyrir skattborgarana að gera hreint fyrir sínum dyrum, allt væri einfaldara og auðveldara, meira að segja svo auðvelt að skattstofurnar myndu nú ekki veita framteljendum aðstoð. Ríkisskattstjóri hefur gefið út leiðbeiningar sem birtar voru í Mbl. sl. fimmtudag og þurfti heilar 12 bls. undir útlistanirnar. Hér áður fyrr, í tíð gamla eyðublaðsins, komust allar útskýringarnar fyrir á 3—4 bls. Er starfsmenn Mbl. mældu dálkalengd leiðbeininganna, kom í ljós að þeir voru 12 metra langir, en hafa í gegnum árin aðeins náð 3 metra lengd. Hvort þetta þýðir, að skattaálagningin hækkar í sama hlutfalli og lengdarmetrafjöldinn verður að koma í ljós, en einum starfsmanni Mbl. varð að orði, er hann sá dálkana límda upp á vegg: „Þetta kalla ég nú að gera einfalt mál fjórfalt.“ Helgarviðtalið Oft hefur því heyrst fleygt, að Noröurlandaráðsþing séu lítiö annað en „glasaglamursamkundur“ og pappírsframleiðslumaskína og nefndar hafa verið ævintýralegar háar upphæðir, sem á að hafa verið eytt í veizluhöld samhliða þingunum. Sú saga var eitt sinn sögð, aö íslenzkur þátttakandi, sem var aö undirbúa fyrstu för sína á slíkt þing á erlendri grund, hefði hringt í sér reyndari mann og spurt ráða um undirbúning og hvaö bezt væri að hafa með í förina af skjölum o.þ.h. Svörin, sem hann átti að hafa fengið, voru þau, að hann skyldi ekki hafa neinar áhyggjur af málefnalega undirbúningnum — þaö kæmi allt af sjálfu sér. „Mundu aðeins að hafa með þér allar tegundir samkvæmisklæðnaðar, þá ertu hólpinn." Hvaö svo sem rétt er í ofangreindu, þá er það staðreynd, að norræn samvinna er annað og meira en skálaveizlur og leggja ríkisstjórnir landanna mikið upp úr þessari samvinnu. Það er þó einnig staðreynd, að á sameiginiegum fundi forsætisnefndar Norðurlandaráðs og forsætisráöherra landanna, sem haldinn var í Reykjavík í lok októbermánaðar s.l., var samþykkt að dregið skyldi verulega úr veizluhöldum þinganna og skyldi sú ákvörðun fyrst koma til framkvæmda á næsta þingi ráðsins, sem hefst í Reykjavík n.k. mánudag. Til að förvitnast svolítiö um þessa hliö Noröurlandaráös- þinganna hélt Hlaðvarpinn til fundar viö Matthías Á. Mat- hiesen alþingismann og vænt- anlegan forseta Noröurlanda- ráðs, en þetta verður fjórtánda þingið sem hann situr. Við spuröum hann fyrst, hvort þaö væri rétt, aö nú yröi stórlega dregið úr veizlum og hvort þinggestir fengju e.t.v. engin veizluboð aö þessu sinni: „Þaö er rétt hjá þér, aö þaö hefur oft heyrzt, aö mikiö sé um veizluhöld og pappírsfram- leiðslu. Orð eru þó til alls fyrst og það fylgir slíkum samkom- um, aö menn hittast utan venjulegs vinnutíma og ræöa málin óformlega og menn þurfa hvort eð er aö snæða. Þaö er einnig rétt, aö þaö var samþykkt á sameiginlegum fundi forsætisnefndarinnar og forsætisráöherra, aö rétt væri að draga úr veizluhöldunum.” — Veröa þá engar veizlur núna í Reykjavík? „Þaö veröur ekkert kvöld- veröarboö. Eina samkoman sem haldin veröur er þegar úthlutun bókmennta- og tón- listarverðlaunanna fer fram og borgarstjórn Reykjavíkur býð- ur þingfulltrúm til móttöku á Kjarvalsstöðum. Einnig reikna ég meö að stjórnmálaflokkarn- ir haldi þeirri venju sinni aö bjóða fulltrúum samstarfs- flokka sinna til einhvers konar móttöku.” — Hversu margar veiziur voru þetta áöur og hverjir héldu þær? „Þetta hefur nú verið dálítið misjafnt en gestgjafar hafa verið ríkisstjórnir landanna, höfuðborgarstjórnir, þingin og stjórnmálaflokkarnir auk sendiráðanna. Þátttakendum hefur yfirleitt veriö boöiö til kvöldverðar af þessum aöilum og á fjögurra til fimm daga þingum þýðir þaö, aö hvert kvöld er skipað, og ber því metra á þessari hliö.“ — Hvaö olli því aö ákveðið var aö afnema þetta nú? „Ákvörðunin er í reynd runn- jn undan rifjum annarra en íslendinga og aö mínu áliti heföi þaö átt betur viö, aö þessi ákvöröun heföi veriö tek- in á undan þinghaldi í einhverri hinna stærri höfuöborga. Þaö er hálfleiöinlegt fyrir okkur, þegar viö tökum á móti persónulegum kunningjum okkar hér í umhleypingasamri veöráttunni á íslandi um hávet- ur, aö þá segi aðrir okkur fyrir um framkvæmd íslenzkrar gestrisni.” — Nú hlýtur aö sparast mikiö fé meö þessu, en eru aörar hliöar á málinu. Spjallað við Matthías Á. Mathiesen um samdrátt í veizluhöld- um Norður- landaráðs Akvörð- unin runnin undan rifjunt annarra enís- lendinga „Ég veit ekki hvaöa upp- hæöir þarna eru á bak við, en þaö er rétt, auövitað sparast hér fé. Það má einnig benda á aöra hlið sem er sú, aö margir virðast einnig vilja fá meiri tíma til viöræöna á flokkspólitískum grundvelli og einhvern veginn treysta menn sér ekki til aö ræöa slík mál í opinberum veizlum.“ — Hver er eftirminnilegasta veizlan þin af þeim fjölmörgu, sem þú hlýtur aö hafa setið á 13 þingum? „Ég á margar góðar minn- ingar af Noröurlandaráösþing- unum, en ég er ekki viss um aö veizlurnar séu þar efstar á blaði. Veizla á fyrsta þinginu sem ég sótti veröur mér ævin- lega minnisstæð. Þaö var 1962 í Finnlandi, en eins og menn vita gengu Finnar ekki í Norö- urlandaráð strax viö stofnun þess vegna aöstæðna þeirra. Þeir voru og eru yfirmáta gestrisnir og lögöu þá mikla áherzlu á virka þátttöku. Einar Olgeirsson, sem þá sat Norö- urlandaráðsþingið, kom í þess- ari veizlu siglandi til mín meö hinn þekkta finnska þingmann Herttu Kuusinen upp á arminn og skenkti mér hana sem borðdömu. Hertta þessi var mikill kommúnisti og var faöir hennar, Otto Kuusinen, m.a. í Æðstaráði Sovétríkjanna. Þetta var mjög skemmtilegur kvöldveröur, enda borðdaman, þó fulloröin væri, mjög huggu- leg og kunni góö skil á mörgum málefnum og var hún óspar á aö svara því sem spurt var um finnsk stjórnmál. Fyrrverandi eiginmaður hennar, Leyno, var innanríkisráöherra Finna 1948 og haföi, eftir því sem sagt er, haft afgerandi áhrif á áfram- haldandi sjáifstæöi Finnlands." — Hverju vilt þú svara þeirri gagnrýni á Norðurlandaráð, aö þaö sé eitt skriffinnskubákn og afraksturinn ekki í réttu hlutfalli við umfangiö? „Ég er þeirrar skoðunar og ég veit aö víöa um heim er einnig litiö á Norðurlandaráö sem tákn um góða fyrirmynd aö samskiptum þjóöa ! milli. Sjálfstæöisstefna þjóöanna er þar virt og menn bera virðingu fyrir skoöunum hvers annars. Menningarmálin ber þar hæst og þó menn hafi kannski ekki áþreifanlegan árangur aö benda á, þá er þetta samstarf enn í þróun og sú þróun getur tekiö langan tíma. í dag er þjóöerni íbúa landanna ekki lengur nein fyrirstaöa fyrir gagnkvæmum samskiptum og má þakka þaö störfum ráös- ins.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.