Morgunblaðið - 01.03.1980, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 01.03.1980, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MARZ 1980 HVERNIG er að vera fæddur á þeim degi sem aðeins rennur upp fjórða hvert ár. Til að fá svar við þessari spurningu og fleirum brugðum við félagarnir undir okkur betri fætinum og fórum í stutta heim- sókn til tveggja ungra drengja í Hafnarfirði, en báðir litu þeir fyrst dagsins ljós hinn 29. febrúar fyrir réttum 12 árum síðan. Fyrst töluðum við við Sigþór Árnason og spurðum hann hvernig honum fyndist að eiga afmæli 29. febrúar. „Ekkert öðruvísi," svaraði hann, „ég á bara afmæli þá.“ Ertu búinn að fá mikið af gjöfum? „Já og mest flugmódel og peninga." Aðspurður kvað hann miklu betra að eiga heima í Hafnar- firði en Reykjavík, — „því að það eru svo mikil læti þar og mikil umferð." Æfirðu einhverjar íþróttir? Stutt heimsókn í Haf narf jörð Unnið af nemend- um Menntaskólans á Akureyri sem undanfarið hafa verið í starfskynn- ingu á Morgun- blaðinu, þeim Bárði H. Tryggva- syni og Jóni Hjaltasyni. Já, ég æfi handbolta með F.H. í fimmta flokki. Áð svo búnu þökkuðum við fyrir okkur og héldum á fund hins afmælis-barnsins, Hauks Hrafns Gunnarssonar. Sem fyrr byrjuðum við á því að spyrja hvernig honum fyndist að eiga afmæli 29. febrúar. „Mér finnst það ekkert skrítið," svaraði Haukur. „Þegar ekki er hlaupár held ég afmælið mitt 28 febrúar." Áttu einhver sérstök áhuga- mál? „Já, alvöruflugvélar." Æfirðu einhverjar íþróttir? „Nei, en mér þykir gaman að fara á skíði." Að lokum tók Haukur það fram að sér þætti „Mogginn" fremur áhugavert blað, einkum vegna þykktar hans. Um leið og við ljúkum þessu greinarkorni, viljum við óska þeim Sigþóri Hauki og öðrum þeim sem eiga afmæli 29. feb. til hamingju með daginn. Afmælisbarnið Sigþór Árnason lengst til vinstri ásamt gestum. „Að eiga afmæli f jórða hvert ár“ Boðskapur páf a til íslendinga í GÆR, á hlaupársdaginn, 29. febrúar, var lesinn í morgun- pósti Ríkisútvarpsins boðskap- ur Jóhannesar Páls II. páfa til islensku þjóðarinnar. Þýðingu hans gerði óskar Ingimarsson en Óskar Halldórsson dósent las. Kæru vinir, kæru íslendingar, kæru bræður og systur í trúnni á Drottin vorn, Jesúm Krist. Það er mér sönn gleði að mega þiggja hið ágæta boð um að flytja íslensku þjóðinni kveðju í Ríkisútvarpinu. Boðskapur minn til yðar í dag er boðskapur vináttu, virðingar og aðdáunar á Hans hágöfgi, forseta íslands, á stjórnvöldum og fólkinu öllu í landinu — landi sem nær allt að heimskautsbaug. Verið þess fullviss, að biskup Rómar lítur á yður í nálægð sinni og í kærleiksanda Krists. Mig langar hér og nú til að votta hollustu frumherjum kristninnar meðal yðar og þús- und ára sögu hennar í landinu. Eg lýsi aðdáun minni á því sem gert hefur verið í aldanna rás til að útbreiða nafn Jesú Krists með þjóðinni og kunngjöra hann sem „kraft Guðs og speki Guðs“. (I. Kór. 1:24). Sérstakar kveðjur flyt ég ka- þólska söfnuðinum á íslandi: Frehen biskupi og prestunum öllum, lærðum og leikum, sem leitast við að lifa í trú sinni, bera guðspjöllunum vitni og þjóna náunga sínum af göfuglyndi og kærleika. Megi vitneskjan um tengsl yðar við móðurkirkjuna verða yður hvatnig og veita yður nýjan styrk. Einnig vil ég senda kveðjur öllu kristnu fólki á Islandi, öllum þeim sem játa, að „Jesús Kristur sé Drottinn" (Fil. 2:11), að hann sé sonur Guðs og frelsari heims- ins, að hann einn sé „Meðalgang- arinn milli guðs og manna" (I: Tím. 2:5). Bæn mín er sú, að Heilagur andi megi sameina oss öll í fyllingu þess bræðralags, sem Kristur ætlar lærisveinum sínum. Ég kveð með lotningu allt velviljað fólk á íslandi — alla þá, sem eru arftakar göfugrar menningar, iðjusama íbúa frið- elskandi þjóðar. Ég kveð yður í önn og erli dagsins, að þeim störfum sem yður eru nauðsyn- leg til lífsframfæris. Héðan sendi ég kveðju mína heimilum yðar og kirkjum, sjúkrahúsum og skólum, verksmiðjum og bændabýlum — á hvern þann 'stað þar sem fólk kemur saman til að byggja upp heim friðar og skapa andrúmsloft kærleika. Ég flyt sjómönnum á hafi úti sérstakar kveðjur í anda vináttu og bróðurlegrar liðsemdar. Huggunarorð sendi ég sjúkum og þjáðum, börnum og ungu fólki votta ég einlæga ást. Þér, kæru íslendingar, sem eigið dýra fjársjóði í náttúrunni, hafið kynnst orku og fegurð vatnsins. Þér hafið fundið hana í hverum og jöklum, í ám, vötnum og fossum. Ég bið þess í dag, að þér megið finna í orðum Jesú og varðveita að eilífu þá „lind, er sprettur upp til eilífs lífs“ (Jóh. 4:14). Guð blessi land yðar! Guð blessi sérhyert heimili og sérhvert hjarta á íslandi! Póstur, sem á að hafa forgang skil- inn eftir í Ósló NOKKUR brögð hafa verið að því að undanförnu að bréfapóst- ur hafi verið skilinn eftir i borgum erlendis, en siikur póst- ur á að hafa algjöran forgang. Þá hefur það einnig gert starfs- mönnum póstsins erfitt fyrir hve ferðum hefur verið fækkað. Árni Þór Jónsson póstvarðstjóri sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að póstur frá Kaupmanna- höfn hefði í fyrrakvöld verið tekinn úr flugvél í Ósló. Voru það 5 sendibréfapokar, 2 blaðapokar og 19 bögglapokar. Pósturinn hefði verið tekinn úr vélinni senni- lega vegna farþega, en Árni Þór sagðist þó ekki hafa fengið það staðfest. Hann sagði að bréfapóstur ætti að hafa algjöran forgang og þá á undan farþegum. Benti Árni á, að fyrir 100 kíló af sendibréfapósti væri greitt hærra verð en næmi farseðli farþega með farangur. Nefndi hann sem dæmi, að fyrir 100 kíló af sendibréfapósti til Bandaríkjanna væri greitt nokkuð á þriðja hundrað þúsund krónur. Vegna breyttra flugáætlana til Bandaríkjanna og færri ferða en áður, hefði póstur þaðan borizt verr en áður. Hvað England varð- aði sagði hann, að mjög slæmur kafli hefði komið nú um miðjan febrúar. Þá hefði póstur sem átti að koma hingað 12. febrúar, síðan 15. febrúar og þá hinn 18. febrúar ekki borizt til landsins fyrr en 22. febrúar og þá í sömu ferðinni 10 daga póstur. Hann sagði póstmenn vera óánægða með þessa þjónustu og þá einnig fréttaflutning blaða- fulltrúa Flugleiða um þessi mál, en fyrrnefnd dæmi sýndu svart á hvítu hvernig þetta hefði gengið. Námskeið í næringarfræði og vöruþekkingu Á VEGUM Náttúrulækningafé- lags íslands eru að hefjast nám- skeið í næringarfræði og vöru- þekkingu. Fyrsta námskeiðið verður hald- ið á matstofu Náttúrulækninga- félagsins að Laugavegi 20B í Reykjavík næstkomandi laugar- dag og sunnudag kl. 9.30 til 17.oo báða dagana. Leiðbeinendur verða: Jóhannes Gíslason, Guðfinnur Jakobsson og Roy Firus.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.