Morgunblaðið - 01.03.1980, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MARZ 1980
23
Jóel Kr. Jóelsson:
Nokkur orð
um skattamál
Um þetta leyti árs eru framtöl
og skattamál mikið til umræðu
manna á meðal, í fjölmiðlum og
að sjálfsögðu meðal þingmanna
og annarra ráðamanna þjóðar-
innar.
Þó einkennilegt megi virðast
eru lög um tekju- og eignaskatt
lítt kunn almenningi. Menn láta
sér yfirleitt nægja þær upplýs-
ingar sem skattstjórar og aðrir
sérfræðingar láta frá sér fara.
Ætla mætti að lög sem svo mjög
snerta hag hvers einstaklings
væru til á hverju heimili. En
jafnvel þó að svo væri kæmi það
ekki að fullum notum vegna þess
að skattalögin eru svo torskilin
venjulegu fólki að töluverð fyrir-
höfn er að öðlast fullan skilning
á þeim og þá helst ekki nema
með aðstoð sérfróðra manna.
Það hlýtur að vera eðlilegt og
hagkvæmt, bæði fyrir þegna
þjóðfélagsins og yfirvöld, að
skattalögin séu til á hverju
heimili í landinu, og það sem er
ennþá nauðsynlegra, að þau séu
einföld og aðgengileg þannig að
allur almenningur skilji þau án
sérfræðilegra útskýringa.
Nú taka gildi ný skattalög,
sem samþykkt voru 1978 og
breytingar við þau 1980. í þess-
um lögum felast miklar breyt-
ingar frá fyrri lögum og telja
ýmsir að margt sé þar til bóta
frá eldri lögum. Aðrir finna á
þeim ýmsa annmarka. Hvað sem
því líður virðast þau síst að-
gengilegri til lestrar fyrir hin
almenna skattgreiðanda en þau
gömlu. Svo virðist sem skatt-
stjórum sé í auknum mæli gefið
úrskurðarvald um vafaatriði,
þar sem hugkvæmni og úrræði
löggjafans þrýtur. í einni grein
laganna 59. greininni er ríkis-
skattstjóra beinlínis fyrirskipað
að ákvarða mönnum tekjur. Til
glöggvunar skal hér tilfærður sá
kafli þessarar greinar, sem um
þetta fjallar: 59. gr. „Ef maður,
er starfar við eigin atvinnu-
rekstur eða sjálfstæða starfsemi
eða hjá aðila honum tengdum,
telur sér til tekna af starfi þessu
lægri fjárhæð en ætla má að
launatekjur hans hefðu orðið ef
hann hefði unnið starfið sem
launþegi hjá óskyldum aðila,
sbr. 2. mgr. l.tl. A-liðs 7. gr.,
skal ákvarða honum tekjur af
starfinu. (undirstrikun mín)
Ríkisskattstjóri skal árlega setja
skattstjórum viðmiðunarreglur
og skal þá gætt aðstöðu viðkom-
andi aðila, aldurs hans, heilsu og
starfstíma, umfangs starfsins og
annarra atriða er máli skipta.
Viðmiðunartekjur þeirra er
landbúnað stunda skulu miðast
við launaþátt í verðlagsgrund-
velli landbúnaðarafurða, þó að
teknu tilliti til aðstæðna hverju
sinni, svo sem því ef bóndi nær
ekki heildartekjum grundvallar-
bússins vegna afurðaverðs, ár-
ferðis eða annarra atriða er máli
skipta að mati ríkisskattstjóra.
Telji skattyfirvöld að endur-
gjald fyrir starf maka manns
eða barns hans innan 16 ára
aldurs á tekjuárinu, sbr. 2. mgr.
1. tl. A-liðs 7. gr., sé hærra en
makinn eða barnið hefði aflað
hjá óskyldum eða ótengdum að-
ila skulu þau ákvarða tekjur
makans eða barnsins af starf-
inu.“
Öllum má vera ljóst eftir
lestur þessarar greinar að hún
brýtur harkalega í- bága við
hugmyndir okkar íslendinga um
frelsi einstaklingsins og frið-
helgi eignaréttarins, og getur
haft ófyrirsjáanlegar og jafnvel
óbætanlegar afleiðingar komi
hún til framkvæmda.
Ég vona að þingmenn þjóðar
vorrar beiti sér fyrir því, að
þessi grein verði afnunim og
tryggi þannig áframhaldandi
lýðræði á íslandi.
VANTAR ÞIG VINNU
VANTAR ÞIG FÓLK
ÞL' AI GLYSIR LM AI.LT
LAND ÞEGAR ÞL ALG-
LÝSIR í MORGLNBLADIM
Afmælis-
kveðja
Afmæliskveðjan er svolítið sein-
búin, en hvaða máli skiptir það í
sjálfu sér. Vonandi á vinur minn,
Baldur Snæland, eftir að vera
lengi enn meðal ættingja sinna og
vina. Það er okkur öllum mikil
ánægja hve létt hann hefur farið
með þau sjötíu ár, sem hann hefur
nú lagt að baki. En margt er það í
fari hans sem hér hefur hjálpað.
Góðvild hans er einstök, drengur
er hann hinn bezti og sannur
vinur vina sinna.
Starfssamur maður hefur Bald-
ur alla tíð verið. Hann var einn
þeirra sjómanna, sem voru á
togurunum á styrjaldarárunum,
en þá var hann vélstjóri. Það yar
ekki á allra færi að vera þá á
sjónum og tíðum í hættulegum
millilandasiglingum með aflann.
Að þessum áhættusömu störfum
gekk Baldur jafnan ótrauður. Oft
komzt hann þó í hann krappan á
þessum árum.
Ég sendi Baldri mínar innileg-
ustu heillaóskir, svo og hans
ágætu eiginkonu og allri fjölskyld-
unni. Tryggð hans við okkur hjón-
in verður seint þökkuð.
Tryggve Thorsteinsen
Ljóðasafn handa unglingum
(JT ER komin hjá Ríkisútgáfu náms-
bóka Ljóðasafn handa unglingum í
samantekt Finns Torfa Hjörleifssonar.
Baldur Ragnarsson kennari segir
m.a. í aðfaraorðum:
„Ljóðasöfn handa skólanemendum
geta eflaust verið með ýmsu móti og
flest hafa margt til síns ágætis; góður
kveðskapur stendur ávallt fyrir sínu og
oft vont að fullyrða hvað hentar
nemendum og kennurum fremur öðru.
Ríkisútgáfa námsbóka hefur áður gefið
út nokkur ljóðasöfn, Skólaljóð. Litlu
skólaljóðin, Nútimaljóð og Ljóðalest-
ur; öll eru þessi söfn góð og gegn þótt
ólík séu bæði um ljóðaval og undir-
markmið, enda megintilgangur þeirra
allra hinn sami: kynning skáldskapar.
Slík kynning hlýtur ávallt að krefjast
fjölbreytni og könnunar á nýjum
möguleikum, nýjum áherslum; því
fleira sem hér býðst þeim mun líklegra
má telja að þörfum skólanna sé betur
fullnægt.
Ljóðasafn það, sem hér birtist, er
athyglisvert framlag á þessum vett-
vangi þar sem nýjar leiðir eru reyndar
bæði í vali og meðferð viðfangsefna.
Hér er bæði að finna kvæði frumort og
þýdd á íslensku, öll eru þau með
nútímalegum svip og þó blönduð að
formi. Einstakt við þetta safn er þó, að
flest ljóðin hafa verið reynd í kennslu
áður en þau hlutu þar endanlegan sess.
Þá tilraunakennslu önnuðust kennarar
í ýmsum skólum veturna 1973—1974 og
1974—1975 á vegum Skólarannsókna-
deildar. Verður að telja að þá hafi
fengist þær niðurstöður sem eindregið
mæltu með þeirri endanlegu útgáfu
sem hér birtist. Kennsluleiðbeiningar
þær, sem fylgja safninu, eru og að
verulegu leyti byggðar á umsögnum og
hugmyndum tilraunakennaranna."
Nokkrar grafikmyndir (dúkristur)
eftir Jón Reykdal eru í bókinni ásamt
ítarlegum heimildaskrám.
Bókin er 182 bls.
Fylgiritið Leiðbeiningar um ljóða-
kennslu, eftir Finn Torfa Hjörleifsson,
er 48 bls.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
klϚningar
Klæöum eldrl húsg. ákl. eöa
leöur. Framl. hvíldarstóla og
Chesterfieldsett.
Bólstr. Laugarnesvegl 52, s.
32023._______________________
Tek aö mér
aö leysa út vörur
fyrir verzlanir og Innflytjendur.
Tllboö sendist augld. Mbl.
merkt: „Ú — 4822“.
Framtalsþjónusta
í Hamarshúsinu viö Tryggva-
götu, 5 hæö.
Tökum aö okkur útfyllingu skatt-
framtala fyrir einstakllnga.
Tímapantanir ( síma 15965 frá
9—20 alla daga vikunnar.
4ra herb.
86 fm íbúö á 1. hæö í nýlegu húsi
viö Ránargötu.
Uppl. í síma 17443 um helgina.
Keflavík, nágrenni
Slysavarnardeild kvenna heldur
basar í Tjarnarlundi laugardag-
inn 1. marz kl. 3.
Nefndln.
Heimatrúboöið
Óðinsgötu 6a.
Almenn samkoma á morgun kl.
20.30. Allir velkomnir.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR 11798 og «533.
Sunnudagur 2. marz
1. kl. 10. Göngufarö yfir
Svínaskaró.
Gengiö frá Hrafnhólum og
niöur í Kjós.
Fararstjóri Tómas Einarsson.
Verið vel búin.
2. kl. 13. Gönguferó á Meóal-
fell.
Létt fjallganga.
Fararstjóri Þórunn Þóröar-
dóttlr.
3. Fjöruganga á Hvalfjarðar-
eyri.
Hugaö aö bakkalútum og
öörum skrautsteinum.
Fararstjórl Baldur Sveinsson.
Verö í allar feröirnar kr. 3000 gr.
v/ bílinn.
Farið frá Umferöarmiöstööinni
aö austan veröu.
Feröafélag íslands.
□ GIMLI 5980337 — frl.
UTIVISTARFERÐIR
Laugard. 1. 3. kl. 20
Tunglakinaganga, tunglmyrkvi.
stjörnuskoöun, ofan Hafnar-
fjaröar, meö Einari Þ Guöjóhn-
sen. Verö 2000 kr.
Sunnud. 2. 3.
Kl. 10.30 Hvalfjaröaratrönd,
Saurbær, Kræklingur, Þyrilsnes,
Brynjudalur, með Jóni I. Bjarna-
syni. Verö 5000 kr.
Kl. 13 Fjöruganga á Kjalarnesi
með Konráöi Ó. Kristinssyni eöa
Esja (Kerhólakambur). Veró
3000 kr. frítt f. börn m. fullorön-
um.
Fariö frá B.S.Í. bensínsölu.
Laugardalur um næstu helgi.
Útivlst.
| raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar |
| þjónusta \ nauóungaruppbod Nauðungaruppboð á húseigninni Borgarheiöi 3 th. Hveragerði. Eign Gunnars Ólafssonar áöur auglýst í 81., 85. og 88. tbl. Lögbirtingablaös 1979. fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 6. marz 1980 kl. 10.00 skv. kröfu hdl. Jóns G. Zoéga. Sýslumaður Árnessýslu.
Húseigendur — hús- byggjendur um land allt Meö nýrri viöurkenndri byggingaraöferö get- um viö lækkaö byggingarkostnaö einbýlis- húss um u.þ.b. 6 millj. Komiö í veg fyrir sprungumyridanir vegna togspennu útveggja. Komiö í veg fyrir alkaliskemmdir í buröar- veggjum og rakaútstreymisskemmdir í út- veggjum. Vinnum alla trésmíöavinnu, mótasmíöi, gler- ísetningar, loft og milliveggi, eldhús og klæöaskápa, parketlögn, þiljun veggja o.fl. Einnig múrverk, þípulögn, raflögn. Vönduö vinna, meistara- og iönaöarmanna. Leitiö upplýsinga. Geymið auglýsinguna. Sími byggingarmeistara 82923. Nauðungaruppboð á húselgnlnni Dynskógum 28, Hverageröl. Eign Siguröar Einarssonar áöur auglýst í 81., 85. og 88. tbl. Lögbirtingablaös 1979, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 6. marz 1980 kl. 15.15 skv. kröfum Gjaldheimtunnar ( Reykjavík, hrl. Brynjólfs Kjartanssonar, hdl. Steingríms Eiríkssonar og hdl. Ásmundar Jóhannssonar. SýslumaQur Árnessýslu
| til sölu |
Steypubílar Til sölu tveir góöir og vel útlítandi steypubílar meö 51/z rúmmetra tunnu. Upplýsingar gefa Þorgeir og Helgi h.f., símar 93-1494 og 93-1830.
Nauðungaruppboö á húseigninni Kambahrauni 42, Hverageröi. Eign Björgvins Einars- sonar áöur auglýst í 81., 85. og 88. tbl. Lögbirtlngablaös 1979, fer fram á elgninni sjálfri fimmtudaginn 6. marz 1980 kl. 16.30 skv. kröfu veödeildar Landsbankans. Sýslumaöur Árnessýslu.
Lyftari Til sölu Steinbock diesel lyftari, 1.5 tonn. í mjög góöu lagi. Einnig Scania 56, árgerö ’66, meö krana. Uppl. í síma 99-3870 oa 3877.