Morgunblaðið - 01.03.1980, Page 24

Morgunblaðið - 01.03.1980, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MARZ 1980 Sighvatur Björgvinsson alþm.: Það er eðlilegt, að fólk sé almennt ánægt með að löng stjórnarkreppa skuli loksins vera leyst með stofnun nýrrar meiri- hlutastjórnar. Fólk er yfirleitt ánægt með nýja ríkisstjórn og væntir af Jienni góðs. Hinu hættir mönnum til að gleyma, að það eitt út af fyrir sig er ekkert afrek að mynda ríkisstjórn á Islandi. Það hefur oft tekizt og á væntanlega oft eftir að takast. Mergur málsins er sá, til hvers ríkisstjórn er mynduð og hvernig hún starfar. Þótt landsmenn allir sameinist um að óska nýrri ríkisstjórn góðs gengis og séu yfirleitt ánægðir með ríkisstjórnir fyrst eftir að þær hafa verið myndaðar, þá dæma menn ríkisstjórnir síðan af verkum þeirra en ekki tilurðinni. Sárast við ríkisstjórnir á Islandi á Framsóknaráratugnum er, að þeim mun meira, sem þeim hefur verið hampað í upphafi, þeim mun meiri vonbrigðum hafa þær vald- ið. Fyrstu sporin Af málefnasamningi ríkis- stjórnarinnar er ekki meira að græða en af öðrum slíkum plögg- um. Svo losaraleg samsuða spáir litlu um feril ríkisstjórnarinnar og gefur raunar ekki aðrar vísbendingar en að í þessari ríkis- stjórn sitja menn, sem vilja vera í stjórn. Ríkisstjórnin verður því ekki dæmd af málefnasamningn- um frekar en svo margar aðrar ríkisstjórnir, heldur fyrst og fremst af verkum sínum. í grein í Dagblaðinu nýverið vakti ég athygli á fyrirætlunum ríkisstjórnarinnar í landbúnað- armálum, sem kosta munu skatt- greiðendur í það minnsta 15—20 milljarða í ár til viðbótar því, sem fyrir er. Auðvitað er hægt að fresta greiðslu slíks reiknings um einhvern tíma; t.d. með því að taka hluta reikningsupphæðarinnar að láni erlendis frá; en það breytir vitaskuld ekki því hver reiknings- upphæðin er, né heldur hverjir — þ.e.a.s. skattgreiðendur — eiga að borga. En það eru fleiri aðgerðir, sem ríkisstjórnin hefur þegar boðað eða í vændum eru. Raunar má segja, að þeirri leiftursókn gegn verðbólgu, sem Sjálfstæðisflokk- urinn boðaði fyrir kosningar, hafi Gunnar Thoroddsen nú eftir kosn- ingar snúið í leiftursókn gegn skattgreiðendum landsins. Ef skoðað er hvaða aðgerðir í skattamálum ríkisstjórnin hefur nú þegar boðað og jafnframt reynt að spá í spilin miðað við þá vitneskju, sem fyrir liggur um framkvæmda- og útgjaldaáform ríkisstjórnarinnar, þá gætu skatt- greiðendur átt í vændum aðgerðir í hátt við það, sem nú greinir: 10% hækkun útsvara I gildandi lögum um tekjustofna sveitarfélaga nemur leyfileg út- svarsálagning 10% af útsvars- skyldum tekjum, en sveitarfélög- um er heimilt að fengnu samþykki fjármálaráðuneytisins að leggja á 10% aukaútsvar. Hæsta lögleyfða útsvarsálagning nemur þannig 11%. í frumvarpi til laga um breyt- ingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, sem nú liggur fyrir Alþingi, er gert ráð fyrir því, að „grunnálagningin" í útsvari verði hækkuð úr 10% í 11%, en heimild- in til að leggja á aukaútsvar verði felld niður. Yrði þannig hæsta lögleyfða útsvarsálagning eftir sem áður 11%. Fyrir nokkrum dögum kynntu stjórnarsinnar á Alþingi breyt- ingartillögur stjórnarflokkanna við þetta frumvarp. Ein af breyt- ingartillögunum var að veita heimild til þess að hækka útsvars- álagninguna um 10% frá ákvæð- um frumvarpsins þannig, að hæsta útsvarsálagning, sem lög leyfðu, yrði 12.1% Þessi tillaga stjórnarflokkanna um að hækka heimild til útsvars- álagningar úr 11% í 12.1% gæti haft í för með sér aukna skatt- byrði í útsvari, sem nemur 5.1 milljarði. í stjórnarsáttmálanum var því hins vegar lofað að lækka útsvör á launafólki. Þarna stangast strax á orð og efndir. Stjórnarsáttmáli þar sem lofað er lækkun útsvars er birtur í febrúarbyrjun. Skömmu eftir miðjan febrúar er hins vegar tillaga gerð um útsvarshækkun upp á 5.1 milljarð. 40% hækkun tekjuskatts I fjárlagafrumvarpinu, sem Tómas Arnason lagði fyrir Al- þingi í október, var gert ráð fyrir því að tekjuskattur einstaklinga á árinu 1980 næmi 37.4 milljörðum króna. Samkvæmt þessum áætl- unum hefði verið stefnt að aukinni skattbyrði tekjuskatts á árinu 1980 ofan á aukna skattbyrði í tekjuskatti sem samþykkt var á árið 1979, og er þá miðað við beina skatta í hlutfalli við tekjur á Sighvatur Björgvinsson næsta ári yrði síðan tekið til viðbótar álíka stórt skref til skattalækkunar og væru þá al- mennar launatekjur orðnar skatt- frjálsar. Fyrsta verk núverandi ríkis- stjórnar í skattamálum var að hafna þessum úrræðum. Hún íýsti því yfir, að hún mundi hverfa aftur til skattaáforma í frumvarpi því til fjárlaga, sem Tómas Árna- son lagði fram — þ.e.a.s. hún mundi hækka tekjuskatt um 7.2 milljarða frá frumvarpi Alþýðu- flokksins og auka tekjuskatts- byrðina á árinu 1980. En ríkisstjórnin lét ekki þar við sitja. í sjónvarpsþætti nýlega við- urkenndi viðskiptaráðherra, Tóm- as Árnason, að til stæði að auka enn skattheimtuna með því að hækka tekjuskatt frá því sem ráð herra því yfir, að ekki væri nauðsynlegt að á sama tíma og ríkisstjórnin sinnti ýmsum öðrum málum væi hún að berjast við að endurgreiða skuldir ríkissjóðs við Seðlabanka íslands. Markmið hennar væi að gera ráð fyrir rekstrarjöfnuði á ríkissjóði. Hvað þýðir þetta? í fjárlagafrumvarpi Tómasar Árnasonar frá í haust var gert ráð fyrir því, að tekjur umfram gjöld á rekstrarreikningi næmu tæplega 9 milljörðum króna. Þetta fé átti að ganga til skuldagreiðslna við Seðlabanka íslands. Hluti af þessu fé — 4.5 milljarðar króna — er þegar ákveðið með sérstökum samningum við Seðlabankann frá því í sumar að greiða skuli honum á fyrstu þremur mánuðum ársins 1980 og verður tæplega við því hreyft. Eftir standa þá 4—4.5 milljarðar af áætluðum rekstrar- afgangi, sem til ráðstöfunar gætu verið. Fjármálaráðherra er ekki hægt að skilja á annan veg en hann fyrirhugi að auka sérstak- lega útgjöld ríkisins um slíka 4—4.5 milljarða án tekjuöflunar á móti þannig að rekstrarreikningur í fjárlögum verði gerður upp nánast á núlli. í fjárlögum ársins 1979 var áformað að tekjur umfram gjöld á rekstrarreikningi yrðu 6.6 millj- arðar kr. Öllum var hins vegar ljóst — enda staðfesti reynslan það — að slíkt áform mundi renna út í sandinn. Rekstrarafgangur upp á 6.6 milljarða breyttist á árinu í rekstrartap er nam um 3.0 milljörðum kr. þannig að ef menn hefðu lagt upp með áætlun um rekstrarjöfnuð á ríkissjóði — eins og Lúðvík Jósefsson og Alþýðu- Ný skatta- bylgja á næsta leiti árinu, sem skatturinn er greiddur. Þessum fyrirætlunum mót- mælti þingflokkur Alþýðuflokks- ins og neitaði að standa að fjár- lagafrumvarpi Tómasar Árnason- ar, m.a. af þessum sökum, en alkunnugt er, að sú er afstaða Alþýðuflokksins, að sökum flókins tekjuskattskerfis og misréttis, sem það kerfi býður upp á, beri að stefna að afnámi tekjúskatts af almennum launatekjum. í fjárlagafrumvarpi því, sem minnihlutastjórn Alþýðuflokksins lagði fram í desembermánuði sl. og núverandi ríkisstjórn hefur lagt til hliðar, var tekið á þessum málum. Ríkisútgjöld voru þar skorin niður um tæpa 7 milljarða króna og tekjuskattur lækkaður um sömu upphæð þannig að í því framvarpi var áætlun um tekju- skatt einstaklinga lækkuð í 30.2 milljarða kr. Skömmu fyrir stjórnarskipti lagði ég svo fram á Alþingi frumvarp til laga um skattstiga, þar sem skattstigar voru ákveðnir þannig að þessi skattalækkun kæmi fyrst láglaunafjölskyldum og fólki með lægri meðaltekjur til góða, en á hafði verið fyrir gert í frumvarpi því sem hann flutti á sl. hausti! Ráðherrann sagði, að skattbyrðin yrði líklega aukin um það bil eitt prósentustig — eða úr röskum 20% af tekjum álagningarárs í rösk 21%. Þetta „sakleysislega“ 1% getur þýtt hækkun tekjuskatts um 4—6 milljarða kr. Með þessari yfirlýsingu hefur viðskiptaráðherra sem sé þegar boðað 40% hækkun á tekjuskött- um einstaklinga frá þeim tillög- um, sem minnihlutastjórn Al- þýðuflokksins lagði fram í des- ember. Og miðað við framkvæmdaáform ríkisstjórnar- innar verður því miður að líta svo á, að sú skattahækkun sé í algeru lágmarki. Hún gæti orðið meiri. Margra milljarða skattavíxill. I Morgunpósti útvarpsins fyrir fáum dögum lýsti fjármálaráð- bandalagið heimtuðu — þá hefði niðurstaðan getað orðið 9—10 milljarða króna fjárvöntun. Auðvitað verður síðar að afla fjár til að standa undir slíkum hallarekstri og það var gert eins og menn muna með því að hækka söluskatt og vörugjald á s.l. sumri. Ef ekkí' hefði verið til sá 6.6 milljarða „varasjóður", sem fólst í áætlun fjárlaga um rekstraraf- gang, hefði sú skattahækkun þurft að verða sem því svarar meiri. Með því að leggja frá landi í upphafi árs með áætlun um lítinn sem engan rekstrarafgang á ríkissjóði í 40—50% verðbólgu, eins og fjármálaráðherra hefur nú boðað, er í raun stefnt að margra milljarða rekstrarhalla. Slíkt kall- ar auðvitað á síðari tíma tekjuöfl- un með hækkuðum sköttum og eru því fyrirætlanir ríkisstjórnarinn- ar um að breyta áætluðum rekstrarafgangi á fjárlögum upp á 9 milljarða í rekstrarjöfnuð ekki annað en frestun á skattheimtu sem þeirri upphæð nemur auk þess sem ríkisfjármálin vinna þá alls ekki gegn verðbólgunni. 1% sölu- skattshækkun Það sem hér að framan hefur verið sagt byggist á áformum, sem ráðherrar í ríkisstjórninni, stuðn- ingsmenn ríkisstjórnarinnar á Al- þingi eða ríkisstjórnin öll hafa ýmist þegar gert uppskátt um eða flutt tillögur um. Hins vegar er ljóst, að þær skattahækkanir, sem þegar hefur verið skýrt frá, munu ekki duga til þess að mæta þeim útgjaldaáformum, sem ríkis- stjórnin hefur boðað. Hannibal Valdimarsson sagði eitt sinn um kommúnista nokk- urn, að stóri kosturinn við hann sem andstæðing væri sá, að hon- um dytti aldrei neitt í hug. Slíkt á raunar við um Alþýðubandalagið og efnahagsmálin. Þeir Alþýðu- bandalagsmenn eru svo fastir í sínu eigin hjólfari, að það má næstum alltaf með öruggri vissu geta sér til um hvað þeir gera. Verður því hér á eftir bæði í gamni og alvöru reynt að spá frekar í spilin miðað við þau útgjaldaáform, sem þegar hafa verið boðuð og hefðbundin úrræði Alþýðubandalagsins. Mér þykir líklegt að til þess að ná endum saman í áformum ríkisstjórnarinnar vanti enn um tvo tugi milljarða þrátt fyrir þær auknu álögur og breytingar, sem að framan voru raktar. Miðað við að ríkisstjórnin hverfi ekki frá loforðalistanum strax í upphafi ferils síns er líklegt,að Alþýðu- bandalag og Framsóknarflokkur bregðist við vandanum með þess- um hætti: 1. Að stórauka erlendar lántökur. 2. Að taka upp þau nýju vinnu- brögð að leysa útgjaldavanda utan fjárlaga með nokkurs konar við- bótarfjárlögum — eða fjárlaga- kálfum. 3. Að afla „sérstakra viðbótar- tekna“ með afbrigðilegum hætti. Tökum fyrst fyrir viðbótartekjuöflunina. Líklegt er, að ríkisstjórnin treystist ekki til öllu meiri hækk- unar beinna skatta en þegar hefur verið á minnzt, nema hvað verið getur að einhverjar hækkanir á eignasköttum verði ákveðnar; en þó munu þær ekki gefa umtalsvert fé í ríkissjóð. Einasta tekjuöflun- arúrræðið, sem eftir er, virðist vera hækkun óbeinna skatta, nema þá menn taki það ráð að hverfa frá loforðalistanum. Gall- inn við þá tekjuöflunaraðferð er hins vegar sá, að öfugt við hækkun beinna skatta — sem ekki mælist í vísitölu — koma allar hækkanir á óbeinum sköttum fram í vísitöl- unni; hækka hana og auka þar með verðbólgu í landinu. Þetta mun mönnum í ríkisstjórn Gunn- ars Thoroddsens ekki þykja ráð. Jafnvel þeir munu koma auga á, að til lítils sé að hækka óbeina skatta — og þar með vísitöluna — til þess að afla fjár m.a. til að greiða niður þessa sömu vísitölu. Og hvað er þá til ráða? Hið hefðbundna úrræði Alþýðu- bandalagsins í þessari stöðu er mjög einfalt. Boðað er að til standi að leggja í miklar „félagslegar framkvæmdir" og til þeirra þurfi sérstaklega að afla fjár. Það verði gert með hækkun á óbeinum sköttum, en auðvitað nái það ekki nokkurri átt að slík fjáröflun, sem bara sé framkvæmd „fyrir fólkið", verði til þess að auka verðbólguna í landinu. Því beri að taka þessa „sérstöku fjáröflun" út úr vísitöl- unni og alls ekki gera þar ráð fyrir henni, enda eigi að nota peningana til „félagslegra stórræða". Sú fjáröflun, sem mér finnst líklegt að ráðizt verði í með þessum eða sviðuðum hætti, ef ekki verður þá horfið frá efndum loforðanna 1 málefnasamningnum, gæti verið ígildi söluskattshækk- unar um svo sem eins og eitt stig. Síðan gæti auðvitað komið til greina að taka hana með öðrum hætti en með hækkun söluskátts — t.d. með hækkun vörugjalds — eða með hækkunum annarra

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.