Morgunblaðið - 01.03.1980, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MARZ 1980
29
fclk í
fréttum
+ ÞESSI mynd var fyrir nokkru tekin í réttarsal í ítölsku borginni Tórínó. Þá voru þessar fjórar
manneskjur, þrír karlar ok ein kona, leidd fyrir rétt. Allt eru þetta hryðjuverkamenn úr Rauðu
herdeildunum ok öll hafa þau áður komið við sögu og hlotið dóma fyrir morð og ofbeldisverk. Einn í
hópnum er kærður fyrir morðið á ítalska stjórnmálamanninum Aldo Moro. Hryðjuverkamenn þessir
heita (frá v.): Attilio Casaletti, Pierluigi Zuffada, þá konan Paola Besuschio og lengst til hægri er
Corrado Alunni. í réttarsalnum var mjög ströng öryggisgæzla i höndum varða, sem voru gráir fyrir
járnum.
+ í TILEFNI af því að mikil endurskipulagning hefur farið
fram á fólksflutningum með lestum i brezku nýlendunni Hong
Kong, austur í Kína, var brezka prinsessan Alexandra send
þangað austur fyrir skömmu til þess að vera við hina
hátíðlegu athöf nsem fram fór þar. sem sérstakur fulltrúi
heimalandsins. Myndin er tekin af prinsessunni en hún kom
tii fiskimannabæjarins Tai 0. t>ar var henni fagnað af
sólabörnum sem veifuðu brezkum fánum.
Hamre hershöfð-
ingi og landvarnir
+ í NORSKUM og dönskum
blöðum heíur þessi yfirmaður
norska hersins, Sverre Ilamre,
verið í fréttum undanfarið í
sambandi við landvarnir í
löndunum báðum. Lét hann
þau orð falla fyrir skömmu, að
hernaðarlega trygg staða
Dana, einkum á Sjálandi, væri
mjög mikilvæg, fyrir landvarn-
ir Noregs.
Hann sagði ennfremur, að
færi svo, að Danir drægju úr
landvörnum sínum, hefði það í
för með sér, að Norðmenn
neyddust til þess að taka til
endurskoðunar eigin varnar-
ááetlanir.
Málari
Churchills
er látinn
+ LÁTINN er í Bretlandi
brezki listmálarinn Graham
Sutherland, en hann varð
frægur fyrir málverk það sem
hann málaði af forsætisráð-
herra Breta Winston Churc-
hill. — Þetta málverk olli
deilum, og sitt syndist hverj-
um. — Churchill sjálfur var
ákaflega óánægður með þetta
málverk Sutherlands.
Listagagnrýnendur töldu
það mjög gott verk. Var það
málað i tilefni af 80 ára
afmæli stjórnmálaskörungs-
ins mikla, árið 1954. — Fjöl-
skylda Churchills gat aldrei
fellt sig við þetta málverk.
Svo fór að lokum að ekkja
Churchills lét tilkynna að hún
hefði látið eyðileggja mál-
verkið!
Sutherland listmálari sagð-
ist aðeins hafa málað það sem
hann sá. Ég mála ekki til þess
að fá hrós og viðurkenningu.
Þess má geta að hann mál-
aði einnig þýzka stjórnmála-
manninn Konrad Adenauer
og rithöfundinn Somerset
Maugham. — Þá málaði hann
myndir í heimsstyrjöldinni
síðai — myndir af brenndum
borgum og bæjum í Bretiandi
eftir loftárásir Þjóðverja.
Stenmark
+ VIÐ gerðum sænska
skíðakónginn Stenmark, að
ólympíumeistara í bruni, hér í
þessum dálkum nýlega. Okkur
er reyndar ekki kunnugt um
að hann hafi getið sér orðs í
þeirri grein skíðaíþróttanna,
enda varð hann ólympíu-
meistari í stórsvigi og svigi,
blessaður. — Þessi mistök eru
hér með leiðrétt.
Vegna breytinga sem áttu sér stað á húsnæði Glæsibæjar i des. s.l. er
rakarastofan nú flutt i stærra húsnæði. Auk almennrar þjónustu, er
Rakarastofan Glæsibæ sú eintT sem býður uppá hið nýja franska Cleo
permanent jafnt fyrir dömur sem herra. Rakarastofan er opin alla
virka daga frá 9—6, nema föstudaga frá 9—8 og laugardaga frá
9-12.
ÚTGARÐUR
í Glæsibæ
Veislumatur,
hvaða nafni sem
hann nefnist:
Kaldireða heita réttir,
Kalt borð, Kabarett,
Síldarréttir, Smurt brauð,
Snittur o.fl.
Sendum í heimahús
Leigjum einnig út sali.
ÚTGARÐUR
í Glæsibæ
86220
Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
verða til viðtals í Valhöll, Háaleitisbraut 1 á laugardögum
frá klukkan 14.00 til 16.00. Er þar tekiö á móti hvers kyns
fyrirspurnum og ábendingum og er öllum borgarbúum
boöið að notfæra sér viötalstíma þessa.
Laugardaginn 1. marz veröa til viðtals Pa
Gíslason og Bessí Jóhannsdóttir.
Páll er í framkvæmdanefnd vegna bygginga-
stofnana í þágu aldraðra og heilbrigðismála
VIÐTALSTIMI p
Alþingismanna og ^
borgarfulltrúa |
Sjálfstæöisflokksins ^
I Reykjavík |