Morgunblaðið - 01.03.1980, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR L MARZ 1980
'M
FREKAR gengur brösótt að berja
saman vetraríþróttahátíðina á
Akureyri, en í gær varð að fresta
öllum keppnisgreinunum að einni
undanskilinni. Það tókst þó a.m.k.
að setja hátíðina formlega i gær-
kvöldi. Vonskuveður var á Akur-
eyri í gær, norðangarri og ekki
fýsilegt að keppa eða dvelja í
utandyra.
Aðeins var keppt í 500 metra
skautahlaupi karla og drengja,
voru 6 keppendur í karlaflokki og
3 í drengjaflokki. Keppa átti
einnig í 1500 metra skautahlaupi
en sökum veðurhæðar varð að
aflýsa því í bili. í dag verður reynt
að troða inn þeim keppnisgreinum
sem ekki tókst að keppa í í gær,
auk þess sem reynt verður að
halda áætlun, ef veður leyfir...
Örn Indriðason sigraði í 500
metra skautahlaupi karla, hljóp á
55,1 sekúndu. Hafði Örn yfirburði,
því næsti maður, Sigurgeir Har-
aldsson, fékk tímann 59,8 sekúnd-
ur. Bæði Örn og Sigurgeir eru úr
Skautafélagi Akureyrar. Röð og
tími keppendanna var þessi.
1. Örn Indriöason SA 55,1 sek.
2. Sigurgeir Haraldsson SA 59,8 sek.
3. Gunnar Snorrason UBK 60,0 sek.
4. Sigurður Baldursson SA 60,2 sek.
5. Ásgrímur Ágústsson SA 62,1 sek.
6. Skúli Lórenzson SA 65,5 sek.
Sem fyrr segir voru keppendur
aðeins þrír í drengjaflokki. í
fyrsta sæti varð Ágúst Ásgríms-
son, SA, fékk tímann 59,2 sekúnd-
ur, bróðir hans Bergþór Ásgríms-
son varð annar á 61,3 sekúndum.
Þriðji varð Jóhann Ævarsson SA
á 65,5 sekúndum.
sor/gg.
Árangur Þórdísar
einsdæmi í Kanada
„ÞAÐ hefur engin kanadisk kona
leikið afrek Þórdísar eftir. Hún
hefur sýnt mikinn áhuga og á
tvimælalaust mikla framtíð fyrir
sér í hástökkinu," sagði Pat Reid
landsþjálfari Kanada i frjáls-
íþróttum i spjalli við Mbl. i gær
er hann var inntur eftir árangri
Þórdísar Gísladóttur ÍR og
Þráins Hafsteinssonar ÍR á
meistaramóti Kanada i frjáls-
Þórarinn Ragnarsson blm. Mbl. í Madrid skrifar:
„Mikilvægasti leikur
Vals fyrr og síðar“
íþróttum innanhúss um helgina,
en Þráinn og Þórdis hafa verið
gestir Pats frá því í október.
Þórdís varð kanadískur meistari
í hástökkinu, stökk 1,75 metra og
sigraði eftir spennandi og tvísýna
keppni. Um fyrri helgi sigraði
Þórdís á unglingameistaramóti
Óntaríófylkis í sömu grein, stökk
1,80 metra og setti Islandsmet.
Skömmu áður vann hún hástökkið
á fullorðins-meistaramóti fylkis-
ins með 1,78 metra stökki. „Þess-
um árangri hefur engin kanadisk
kona náð, að vinna tvö meistara-
mót í stærsta fylki landsins og
kóróna það með því að sigra einnig
á sjálfu meistaramóti Kanada,"
sagði Pat.
Þráinn stóð sig einnig vel á
mótinu, varð annar í fimmtar-
þrautinni á eftir góðum tugþraut-
armanni, og skildu innan við 30
stig í lokin. Hlaut Þráinn 3530 stig
og er það nýtt íslandsmet, hann
átti sjálfur hið fyrra, 3,500 stig.
Rafmagnstimataka var sjálfvirk
og árangurinn á mótinu því hlut-
fallslega betri. Ekki vissi Pat
árangur Þráins í einstökum grein-
um þrautarinnar, nema að hann
hefði náð sínu bezta í hástökki
innanhúss.
Þau Þórdís og Þráinn héldu í
vikunni til Kaliforníu þar sem þau
slógust í hópinn með fjölda ann-
arra íslenzkra frjálsíþrótta-
manna, og sagði Pat að þar yrðu
þau við æfingar í hlýju og góðu
veðri í a.m.k. einn mánuð, en þar
dvelja nú 15 manns við æfingar,
og fjórir frjálsíþróttamenn eru í
Texas og Alabama. — ágás.
Skagamenn
réðu George
Kirby í gær
KLUKKAN 6.30. að íslenskum
tíma í dag fer fram fyrri leikur
Vals og Atietico Madrid í und-
anúrslitum Evrópumeistara-
keppninnar i handknattleik i
glæsilegri íþróttahöll hér í
Madrid. höll sem rúmar 3000
manns, þar af 1500 i sæti.
Uppselt er á leikinn og virðist
vera mikili áhugi á leiknum hér
i Madrid. Töluvert er fjallað um
hann bæði i biöðum og útvarpi.
Þar kemur fram að Spánverjar
telja sig alveg örugga um sigur
í leiknum, þeir eru fullvissir um
að komast í úrslitin. Ölium
leiknum verður sjónvarpað
beint um ailan Spán og einnig
lýst í útvarpi. Þess má geta að
Valsmenn fóru út með myndseg-
ulbandsspólur frá islenska sjón-
várpinu og reynt verður að
taka upp leikinn svo hægt verði
að sýna hann heima.
Ferðin til Madrid var bæði
löng og erfið og stóð í 17
klukkustundr. Það var lúinn
hópur sem gekk til náða í
fyrrakvöld. Allar móttökur hér
eru til mikillar fyrirmyndar,
hópurinn býr á mjög góðu hóteli
í útjaðri Madrid og allt er gert
til_þess að mönnum líði sem best.
I gærdag hvíldust menn og
bjuggu sig undir átökin og slegið
var upp miklu skákmóti sem
fram fór úti við, þar sem veður
er mjög gott, 16 stiga hiti,
heiðskírt og sólskin. Dagurinn í
gær var heitasti dagurinn sem
komið hefur í Madrid á þessu
ári. í gærkvöldi var svo tekin
klukkustundar löng æfing í Höll-
inni sem leikið verður í og leist
leikmönnum mjög vel á allar
aðstæður. Einna helst væri hægt
að kvarta yfir því að áhorfenda-
stæðin eru svo til alveg við
hliðarlínurnar beggja vegna
leikvangsins. Á æfingunni kom í
ljós að mikill hugur er í mönnum
að standa sig vel í leiknum í
kvöld.
Stefán Gunnarsson fyrirliði
sagði í gær, að þessi leikur væri
án efa sá mikilvægasti sem
Valur hefði leikið fyrri og síðar.
Hilmar þjálfari tók undir þau
orð Stefáns. Stefán sagðist vera
bjartsýnn á góðan árangur. „Við
megum ekki tapa með meira en
þremur mörkum í leiknum; tak-
ist okkur það, er það sigur fyrir
okkur".
Lið Atletico Madrid leikur
flata vörn og leika þeir ekki
kerfisbundinn handknattleik og
sagði Hilmar það henta liði Vals
vel. Allir leikmenn Atletico
Madrid eru atvinnumenn í
íþróttinni og hér hefur maður
heyrt því fleygt að þeir fái
jafnvirði 350.000 íslenskra
króna, takist þeim að sigra í
þessum eina leik.
Hilmar þjálfari hefur miðað
allan undirbúning að undan-
förnu fyrir þennan eina leik og
nú er bara að bíða og sjá hvernig
gengur. Allir í hópnum biðja
fyrir bestu kveöjur heim.
Þórdís Gisladóttir, frjálsíþróttakonan snjalla úr ÍR, hefur staðið sig
vel á frjálsíþróttamótum i Kanada að undanförnu, og hápunkturinn
var að sjálfsögðu sigur hcnnar á kanadiska meistaramótinu um
síðustu helgi. LjÓHm. Mhl. úkús.
SKAGAMENN réðu í gærkvöldi George Kirby til að þjálfa
1. deildarlið bæjarins í íslandsmótinu í knattspyrnu í
sumar. Kirby, sem hefur verið framkvæmdastjóri 4. deildar
liðsins Halifax í ensku knattspyrnunni, þjálfaði Skagaliðið
í fjögur ár með frábærum árangri áður en Vestur-Þjóðverj-
inn Klaus Hilpert tók við því, einnig með góðum árangri.
• George Kirby
— Hilpert komst ekki af
persónulegum ástæöum
Gunnar Sigurðsson sagði í
viðtali við Mbl. í gærkvöldi að
Skagamenn hefðu átt viðræður
við Hilpert um framhald á
störfum hans og tók Hilpert til
að byrja með vel í það. í
fyrrakvöld skýrði hann hins veg-
ar knattspyrnuráði Akraness frá
því í símtali að hann gæti ekki
komið til íslands í sumar af
persónulegum ástæðum og
harmaði hann það mjög. Hilpert
bauð Skagamönnum mjög hæfan
og vel menntaðan. þjálfara í
staðinn, en forráðamenn IA
kusu heldur að ráða Kirby, sagði
Gunnar aðspurður.
Kirby er væntanlegur til
landsins 1. maí næstkomandi.
Skagamenn eru hins vegar byrj-
aðir að æfa af fullum krafti
undir stjórn Harðar Helgasonar,
sem gat sér gott orð í fyrra sem
aðstoðarþjálfari Hilperts. Mun
Hörður sjá um liðið þar til Kirby
kemur. SS/gg.
• Klaus Hilpert
Mikil veðurhæð
spillir íþrótta-
hátíðinni á
Akureyri
— Fresta varö
öllum greinum
í gær utan
500 m
skautahlaup