Morgunblaðið - 01.03.1980, Page 35

Morgunblaðið - 01.03.1980, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MARZ 1980 35 9, Stjórn KKÍ kærir 17 körfuboltamenn STJÓRN KKÍ sat mikinn fund og langan í fyrrakvöld. Var spjaldamáliö umtalaða til um- ræðu. Til giöggvunar fyrir les- endur skal það rifjað upp, að vegna formgalla á meðferð guiu spjaldanna, var málum nokk- urra leikmanna visað frá hjá aganefnd. en leikmenn þessir áttu annars yfir höfði sér leik- bann. Stjórn KKÍ tók 9ig til og kærði fyrir aganefnd alla þá leikmenn sem fengið hafa gul 9pjöld í vetur, 17 manna hóp plÚ9 einn liðstjóra. Kæran er ekki þannig sett fram að viðkomandi menn verði dæmdir í bann, hún hljóð- ar upp á minni háttar óprúða framkomu, en refsingin við því er einungis aðvörun. Reyndar hafa aðeins þrír úr þessum stóra hópi fengið fleiri gul spjöld en eitt, þeir Ríkharður Hrafnkels- son og Tim Dwyer úr Val og ÍR-ingurinn Jón Jörundsson. Það sem eftir er af þessu móti er líklegt að framkvæmd þessa máls verði sú, að dómararnir kæri leikmenn beint. gg. íslandsmótiö í handknattleik: Úrslitaleikir á toppi og botni um helgina MIKIÐ fjör færist í 1. deildar- keppnina i handknattleik um helgina, en þá verða úrslitaleik- ir á toppi og botni. Tveir algerir fallbaráttuleikir fara fram, HK og KR eigast við að Varmá og Fram mætir ÍR. Leikur HK og KR fer fram að að Varmá í dag klukkan 18.00. Með því að næla sér í stig, myndu KR-ingar hífa sig af mesta hættusvæðinu, en með sigri myndi HK enn eiga nokkra möguleika á því að bjarga sér frá falli. Líklega dugar HK ekkert minna en sigur, því staða liðsins er ekki góð eins og sjá má á töflunni hér að neðan. Leikmenn HK hafa ekki verið nein lömb að leika vjð að undanförnu og með áhorfendur að baki sér á Varmá, mega KR-ingar hafa sig alla við ef þeir ætla að fá eitthvað af stigum. Leikur Fram og ÍR, sem fer fram í Laugardalshöllinni á morgun klukkan 19.00, er ekki síður mikilvægur. Það lið sem tapar þeirri viðureign stendur vægast sagt á heljarþröm. ÍR- ingar hafa unnið nokkra góða sigra í vetur, en Framarar hafa hins vegar sýnt mun meiri fram- farir. Ekkert skal sagt um sigur- líkur liðanna. Þriðji leikur 1. deildar karla er viðureign FH og Víkings suður í Hafnarfirði. Hefst leikurinn klukkan 14.00 í dag. Þetta eru tvö efstu liðin í deildinni, en sigri Víkingur er liðið orðið meistari. Verði jafntefli, eða sigri FH, á liðið enn möguleika á því að ná Víkingum að stigum. Það myndi þó byggjast á því að Víkingur tapaði síðan fyrir ÍR og HK í síðustu leikjum sínum. Þó vonin sé veik, ætla FH-ingar sér að berjast eins og Ijón til sigurs og eru Víkingarnir hvergi lík- legri til þess að tapa stigi eða stigum en gegn FH í Firðinum. En lítum skipulega yfir leiki helgarinnar. Laugardagur: Hafnarfjörður kl. 13.00 1. deild kvenna Haukar-Valur kl. 14.00 1. deild karla FH—Vikingur Varmá kl. 18.00 1. deild karla HK-KR Sunnudagur: Varmá kl. 15.15 2. deild kvenna HK—Þróttur Keílavfk kl. 15.00 3. deild karla fBK—Grótta Vestmannaeyjar kl. 14.00 2. deild karla Týr—Þór Ve LaugardalshöII kl. 19.00 1. deild karla Fram—ÍR kl. 20.15 1. deild kvenna KR—Fram Ýmsar íþróttir um helgina NM í sundi. Tvær íslenskar stúlkur taka þátt I Norðurlandameistaramóti unglinga í sundi sem fram fer í Kupio í Finnlandi um helgina. Hér er um þær Katrínu Sveinsdóttur að ræða og Þórðnnu Héðinsdóttur. Báðar keppa þær í 100, 200 metra skriðsundi og 4x200 metra fjórsundi. Auk þess keppir Katrín í 400 metra skriðsundi og Þóranna keppir í 100 og 200 metra baksundi. Júdó ÍSLANDSMEISTARAMÓTIÐ í júdó fer fram um helgina í íþróttahúsi Kennaraháskólans. í dag verður keppt í öllum þyngdarflokkum karla. Hefst keppnin klukkan 17.00. Á morgun verður hins vegar keppt í opnum flokki karla, í kvennaflokki og flokkum unglinga. Trimmganga Trimmganga á skíðum verður hald- in í Hveradölum í dag og á morgun og hefst báða dagana klukkan 14.00. Það er Skíðafélag Reykjavíkur sem sér um göngu þessa, en allir þátttakendur fá viðurkenningarskjal frá ÍSÍ. Lyftingar Unglingameistaramót íslands í lyft- ingum verður haldið í anddyri Laugar- daíshaltar í dag og hefst það klukkan 14.00. Margir bráðefnilegir kraftajötn- ar verða meðal keppenda og má búast við því að eitthvað af metum fjúki í loftið meö lóðunum. Körfuknattleikur Tveir leikir verða háðir í úrvals: deildinni. í dag klukkan 13.00. í Njarðvík eigast við heimamenn og ÍS. Á morgun klukkan 13.30 leika síðan ÍR og Valur í Hagaskólanum. Sam- kvæmt mótaskrá fara einnig fram 2 leikir í 1. deild. UMFS og UMFG leika i Borgamesi í dag klukkan 13.00 og á Akureyri leika Tindastóll og Þór, einnig í 1. deild. Hefst leikur þeirra klukkan 15.00. íslendingarnir í kröppum dansi REYKdAVIKUR Loks kom að því að íslend- ingarnir á Reykjavikurskákmót- inu áttu í vök að verjast. Allir fimm mættu þeir útlendingum í fimmtu umferð og uppskeran varð því miður fremur rýr, þrjú jafn- tefli og tvö töp. Annars gladdi það hjörtu margra áhorfenda að flækjukóng- urinn Kupreichik lagði Miles að velli með svörtu í bráðskemmti- legri skák, dæmigerðri fyrir sovét- búann, sem hefur sýnt afburða liflega taflmennsku það sem af er mótinu. Með þessum sigri sinum náði Kupreichik vinnings forskoti fram yfir næstu menn, þá Browne, Miles, Helga Ólafsson, Sosonko og Torre. Hin útlendingaviðureignin i fimmtu umferðinni var á milli þeirra Schllsslers og Sosonkos. Svíinn, sem ávallt lætur öryggið sitja i fyrirrúmi lét snemma af hendi biskupaparið til þess að komast út i heldur rýmra enda- tafl. Eftir Ben-Oni byrjun þeirra félaga kom upp þessi staða: Svart: Sosonko Hvitt: SchUssler 13. f4!? (Júgóslavneski stórmeist- arinn Bukic, sem hefur dálæti á þessu afbrigði með hvítu er vanur að hróka hér og svara síðan 13. — Dh4 með 14. f4 — Rg4, 15. Bxg4 — Bxg4, 16. Del, en ókosturinn við það framhald er að svartur getur auðveldlega vikið sér undan drottn- ingakaupum með því að leika 16. — De7. Hinn gerði leikur hvíts þvingar hins vegar fram drottn- ingakaupin.) — Rg4, 14. Bxg4 — Dh4+, 15. g3 — Dxg4,16. Dxg4 — Bxg4,17. h3 — Bd7, 18. g4 — Bxc3, (Svartur lætur biskupaparið af hendi, en í staðinn eru góðar líkur á því að honum takist að mynda sér frípeð á drottningarvæng.) 19. bxc3 — Rf6, 20. Kf2 — b5. Svartur reyndist hafa nægilegt mótspil og um síðir lauk skákinni með jafntefli. En víkjum nú að skákum Islend- inganna. Torre reyndist mun betur heima í byrjuninni en Margeir og eftir að þeim síðarnefnda hafði mistekist snemmborin atlaga stóð Torre með pálmann i höndunum. 13. Rg5? (Hugmyndin er vitaskuld ekki að svara 13. — h6 með 14. Rge4 heldur með 14. Rxf7! — Kxf7, 15. Bxc6 - bxc6, 16. Db3+ - Rd5, 17. Rxd5 — Bxel, 18. Rxc7+. Torre féll vitanlega ekki í þessa gildru og hvítur hefði því betur leikið 13. Bd2 og haldið þannig jafnvæginu.) — De7,14. Rd5 - Rxd5,15. Bxd5 - Bh5,16. Bd2 - Bxd2,17. Dxd2 - Rd4,18. Re4? (Gróf yfirsjón. Nauð- synlegt var 18. Kg2 þ6 heldur sé farið að síga á ógæfuhliðina.) — c6, 19. Ba2 - Bxe2!, 20. De3 - Bh5 og svartur var ekki í vandræðum með úrvinnsluna. Browne beitir gjarnan Najdorf- afbrigðinu eins og fyrirmynd hans, Bobby Fischer, og það kom í hlut Guðmundar Sigurjónssonar að kljást við það í fimmtu umferðinni. Snemma kom í ljós að Guðmundur sætti sig fyllilega við jafntefli, þó hann hefði hvítt en Browne reynd- ist ekki á sama máli. Virtist bandaríski stórmeistarinn um tíma standa betur, en í tímaþröng hans tókst Guðmundi að koma sér upp feikiöflugum riddara á miðborðinu og bjargaði þar með skákinni. Svart: Browne Hvitt: Guðmundur 19. - Bg5, 20. Bg3 - Bh4,21. Bf4 - Bg5, 22. Bg3 - Bh4, 23. Bf4 - Bf6, (Ekkert jafntefli, þökk fyrir.) 24. Db4 — Rc6! (Hugmyndin 25. Dxb7 yrði nú svarað með Rc5 og dagar drottningarinnar eru taldir.) Skák eftir Leif Jósteinsson og Sævar Bjarnason 25. Da3 - Rde5. 26. Rd5 - Bg5, 27. Bg3 - Ra5, 28. Bd3 - Rac4. 29. Db4 — b5, (Hér var Browne orðinn mjög naumur á tíma.) 30. b3 - Rb2, 31. Bxe5 - dxe5, 32. Hal (Hvítur sér fram á það að svartur kemur hrók niður á c2 og þá er betra að hafa auga með a-peðinu. í framhaldinu fær svartur sterkt spil eftir c-línunni, en riddarinn á d5 og hin hálfopna f-lína bjarga hvítum.) - Rxd3. 33. cxd3 - Hc2, 34. Del - a5, 35. Ddl - Hec6, 36. Df3 - De8, 37. Hf2 - Hcl+, 38. Hxcl - Hxcl+, 39. Hfl - Hxfl+. 40. Dxfl - Dc6, 41. h3 — Dc2. Jafntefli, því að hvítur leikur 42. Dal. Helgi Ólafsson og Vasjukov tefldu afbrigði af Katalan-byrjun sem mjög er í tízku um þessar mundir. Sovézka stórmeistaranum tókst án teljandi erfiðleika að jafna taflið og síðan var samið eftir töluverð uppskipti. Hvftt: Helgi Ólafsson Svart: Vasjukov Katalan-byrjun 1. c4 - e6, 2. g3 - d5, 3. Bg2 - Rf6, 4. d4 - Be7, 5. Rf3 - 0-0, 6. 0-0 — dxc4, 7. Dc2 — a6, 8. Dxc4 (Framhaldið 8. a4 — Bd7! hefur mjög verið í brennidepli að undan- förnu. Helgi velur rólegra fram- hald.) - b5,9. Dc2 - Bb7,10. Bd2 - Ha7!?, 11. a4 - Be4,12. Dcl - b4, 13. Bg5 - Rbd7, 14. Rbd2 - Ba8. 15. Rb3 - c5, 16. dxc5 - Hc7,17. Hdl - Dc8,18. Bf4 - Rxc5!, 19. Rbd4 - Hd7,20. Re5 - Hxd4, 21. Hxd4 - Bxg2, 22. Kxg2 - Da8+, 23. Kgl - Rb3, 24. Ddl - Rxdf, 25. Dxd4 - Hd8, 26. Dc4 - Hc8, 27. Dd3 - Hd8. 28. Dc4 — Hc8, 29. Dd3. Jafntefli. Af biðskákunum er það að segja að Jón L. Árnason stóð mjög höllum fæti gegn Byrne í biðstöð- unni, enda fór svo að Jón varð að lokum að sætta sig við sitt fyrsta tap á mótinu. Haukur virtist standa lakar lengi framan af skák sinni við Helmers, en eins og Haukur á vanda til varðist hann af mikilli hörku. Hann tryggði sér jafntefli með þráskák. Elóstig Nafn 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. 12. 13. 14. Vinn. 2540 1. W. Browne (Bandar.) 1 'k 'k 'k 'k 3 2530 2. R. Byrne (Bandar.) 0 , 'k 1 0 1 2'k 2420 3. H. Schussler (Svíþjóö) ’Á 'k 'k 'k 'k 2'k 2435 4. Jón L. Árnason 'k 0 'k 'k 'k 2 2475 5. Guömundur Sigurjónsson 'k 0 'k 'k 0 Vk 2545 6. A. Miles (England) 1 'k 1 'k 0 3 2425 7. Margeir Pétursson 0 1 1 'k 0 2'k 2445 8. Helgi Ólafsson i * 1 'k 0 3 2405 9. K. Helmers (Noregur) 0 0 'k 'k 0 1 2425 10. Haukur Angantýsson 1 'k 0 0 'k 2 2545 11. E. Vasjukov (Sovétr.) 'k 'k 0 'k 'k 2 2520 12. E. Torre (Filippseyjar) 'k 'k 'k 'k 1 3 2535 13. V. Kupreitshik (Sovétr.) 1 'k 'k 1 1 4 2545 14. G. Sosonko (Hollandi) 'k 0 'k 1 1 3

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.