Morgunblaðið - 01.03.1980, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 01.03.1980, Qupperneq 36
Síminn á afgreiösiunni er 83033 JfltJtjjitnííIíiíití* Sími á ritstjórn og skrifstofu: 10100 LAUGARDAGUR 1. MARZ 1980 ?engisfelling eða hratt gengissig ekki „að svo stöddu44 T U í l>iriv»1rí <4 ■ 4-i 1 <*/im nllímanaa mÁ ItHnAn í Á. ! i ! f L 1 '1 J ,,ÉG TEL hvorki ástæðu til genj?isfellinjíar né hraðs gengissigs að svo stoddu, en fari svo að menn sjái fram á varanlegan halla á helztu útflutninKsatvinnuvegunum, þá verða gengismálin endurskoðuð ásamt öðrum málum í því sambandi," sagði Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra í samtali við Mbl. í gær. Mbl. spurði forsætisráðherra, hvort gengissig hefði verið að undanförnu. „Nei. Það er ekki,“ svaraði Gunnar. Og spurningu blaðsins um það, hvort hægt gengissig yrði á næstunni fyrst hann útilokaði hratt gengissig að svo stöddu, svaraði forsætisráðherra, að um breytingar á gengismálum hefðu engar ákvarðanir verið teknar. óvissuatriði í þessu, til dæmis verðþróunin á Bandaríkja- markaði, þar sem ekki liggur fyrir, hvort þar kemur til frekari verðlækkunar eða sú verðlækkun, sem varð, er varanleg. Auk þess á yfir- nefnd verðlagsráðs sjávar- útvegsins eftir að ákveöa fiskverð og sú ákvörðun getur haft verulega þýðingu fyrir stöðu frystiiðnaðarins. „Frystiiðnaðurinn hefur undanfarin tvö ár búið við þokkalega afkomu og er því betur búinn undir tíma- bundna erfiðleika nú en oft áður, sérstakar aðgerðir hans vegna eru því ekki bráðað- kallandi," sagði forsætisráð- herra, er Mbl. spurði hann um það mál. „Það eru ýrnis Eitt af þeim atriðum, sem þeim frystihúsamönnum þótti mjög miður voru horfur á lækkandi afurðaverðslán- um. Ríkisstjórnin hefur nú ákveðið að vinna að því að afurðalánin verði í heild óbreytt áfram.“ Mbl. spurði forsætisráð- herra, hvenær hann byggist við því að ríkisstjórnin tæki afstöðu í málum frystiiðnað- arins og vitnaði til ummæla Steingríms Hermannsonar sjávarútvegsráðherra, sem sagði í samtali við Mbl., að ríkisstjórnin kannaði nú blandaðar aðgerðir vegna vanda frystiiðnaðarins, þ.e. eitthvert gengissig og aðrar aðgerðir. „Þessi mál eru öll í athug- un. Ég get ekkert frekar um þau sagt,“ svaraði hann. Vextir hækka ekki — Hefðu átt að hækka um 3 til Askur og Versalir meðaltali á 19,25 pund en skinn af kvenmink á 11,39 pund. Past- elminkur var um 30% af ís- lenzku skinnunum og seldust skinn af karlmink á 22,01 pund að meðaltali en skinn af kven- mink á 11,48 pund að meðaltali. 5% miðað við verðbólgustigið MIÐAÐ við þar reglur, sem notaðar hafa verið við út- reikning verðbótaþáttar vaxta, samkvæmt ákvæðum svokallaðra „Ólafslaga“ ættu vextir nú um þessi mánaða- mót að hækka um 3 til 5%. Seðlabanki íslands hefur nú ákveðið að verða við tilmæl- um ríkisstjórnarinnar um að vextir hækki ekki. í frétta- tilkynningu frá Seðlabankan- um. sem gefin var út í gær, segir: „Bankastjórn Seðlabankans hefur að undanförnu átt við- ræður um þetta mál við ríkis- stjórnina, og hefur ríkis- stjórnin í dag farið formlega fram á það, að verðbótaþáttur vaxta verði látinn óbreyttur að þessu sinni. Jafnframt hef- ur hún lýst yfir því, að hún ráðgeri að taka til endurskoð- unar ákvæði laga um stjórn efnahagsmála o.fl., að því er varðar lengd aðlögunartíma, unz fullri verðtryggingu verði náð. í samræmi við þetta hefur bankastjórn Seðlabankans í dag ákveðið, að höfðu samráði við bankaráð, að engar breyt- ingar verði að sinni á verð- bótaþætti vaxta, en leggur um leið áherzlu á mikilvægi þess, að ekki verði horfið frá þeirri grundvallarstefnu um verð- tryggingu sparifjár og heil- brigða ávöxtun fjármagns, sem mörkuð var á síðasta ári með Iögunum um stjórn efna- hagsmála." Gott verð f yrir íslenzk minkaskinn á uppboði í London í VIKUNNI var skinnauppboð hjá Hudsons Bay og Annings Ltd í London og voru seld þar um ein milljón skinna, þar af 13 þúsund íslenzk minkaskinn. Að sögn Skúla Skúlasonar umboðsmanns fyrirtækisins varð útkoman mjög góð. Seldust öll íslenzku skinnin á svipuðu verði í pundum talið og á uppboðihu fyrir ári síðan en mun hærra verði í íslenzkum krónum talið því nú er pundið skráð á 928 krónur en var skráð á 645 krónur í febrúar í fyrra. Skinn af svartmink voru um 70% af íslenzku skinnunum og seldust skinn af karlminnk að fá vínveit- ingaleyfi VEITINGAHÚSIN Askur við Laugaveg í Reykjavík og Versalir við Hamra- borg í Kópavogi hafa fengið leyfi dómsmálaráðuneytis- ins til vínveitinga. Um- sóknir Matstofu Austur- bæjar og Hornsins eru enn til athugunar. Að sögn veitingamanna Asks og Versala verða aðeins létt vín á boðstólum og verða vínin til sölu í fyrsta sinn nú um helgina. Pétur Sveinbjarnarson hjá Aski tjáði Mbl. að eingöngu yrðu seld þar létt vín og einnig vín hússins borið fram í karöflum svo- nefndum. Á virkum dögum verður vín aðeins á boðstól- um eftir klukkan 18 en um helgar verður einnig vín á boðstólum í hádeginu. Bjarni G. Alfreðsson veitingamaður í Versölum sagði að þar yrðu létt vín á boðstólum og einnig for- drykkir og vín sem tengjast mat, svo sem koníak og Irish Coffee. Versalir voru opnaðir fyrir nokkrum vik- um. Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra: Frystiiðnaðurinn betur búinn undir tímabundna Gengissig krónunnar 1,3% á 3 vikum GENGISSIG íslenzkrar krónu gagnvart Bandaríkja- dullar hefur numið 1,3% frá 8. febrúar. en það er dagur- inn. sem ríkisstjúrn Gunn- ars Thoroddsen tók við völd- um. Miðað við gengisskrán- ingu Seðlabankans í fyrra- dag og síðan gengisskrán- ingu bankans í gær var sigið þennan eina sólarhring 0.3%. Þegar ríkisstjórnin tók við völdum var sölugengi Banda- ríkjadollars 401,70 krónur, en í gær var þetta sama gengi skráð 407 krónur og í fyrra- dag 405,90 krónur. erfiðleika en oft áður

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.