Morgunblaðið - 25.06.1980, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 1980
25
fclk í
fréttum
Hlýtt á þjóðsöngvana leikna
+ Þessi fréttamynd er tekin á Krasflótinni við Hvíta Húsið i Washinnton á döKunum, er Hussein
JórdaniukónKur kom i opinbera heimsókn tii forsetahjónanna i Bandarikjunum. — Ilér er verið að
hlýða á þjoðsonif'a landanna leikna við komu hinna konungloKu gesta. A myndinni eru frá vinstri
prinsarnir Faisal ok AbduIIah, þá móðir þeirra Noor drottnig, Rosalyn forsetafrú, kóntfurinn og loks
Carter forseti.
Páfinn sker
afmaelistertuna
♦ Fyrir nokkru átti Jóhannes Páll páfi sextugsafmæli.
— Þann dag var mikió um dýrðir á Páturstorginu. —
T.d. flutti afmælisbarniö þar messu undir berum himni
og voru viðstaddir þá messu um 50.000 stúdentar. Á
torginu söfnuðust saman á að giska 150.000 manna,
sem kom þangað til að færa páfanum heillaóskir í
tilefni af afmælinu. — Hvað eftir annaö hafði
mannfjöldinn hrópað einum munni „auguri" — ham-
ingjuóskir og „Viva il papa“ — Lifi páfinn. — Frá
bökurum í Róm barst honum rúmlega 100 kg. þung
afmælisterta sem var um 150 cm. löng og um metri á
þverveginn, — meö 60 kertum. — Þaö höföu 10
bakarameistarar lagt hönd á verkið. — En hér á
myndinni má sjá hvar afmælisbarniö sker sér sneið af
afmælistertunni stóru. Þennan sama dag hafði páfinn
vísiterað litla kirkju í Róm, en hann er jafnframt biskup
Rómaborgar.
+ Untfi maðurinn á þessari
AP-mynd er hinn heimsfrægi
ítalski knattspyrnumaður Paolo
Rossi, sem var meðal þeirra
italskra knattspyrnumanna.
sem var settur í leikbann vegna
mesta fótbolta-hneykslismáls á
Ítalíu. — Hann sagði nýlega
frá þvi í samtali i sjónvarpi
suður á ítaliu að hann hefði
ekki átt neinn þátt i þessu máli.
Rossi var af iþróttadómstóli
settur í þrÍKKja ára leikbann.
— Hann áfrýjaði leikbanns-
dóminum til hæstaréttar íþrótta-
dómstólanna á ítaliu ok kvaðst
vera vonKÓður. Þar mun mál
þetta verða tekið fyrir í sumar.
— Vegna þess að erlend knatt-
spyrnufélöfí eru sögð hafa ver-
ið að kanna möguleikana á
því að gera samning við Rossi,
hefur ítalska knattspyrnusam-
bandið bent á að ekkert land
innan alþjóðasamtaka knatt-
spyrnufélaga. FIFA, getur haft
gagn af þvi að kaupa hina 24 ára
Kömlu leikstjörnu, vegna þess
að leikbannsdómurinn nær til
allra aðildarlanda FIFA. —
Hann gæti leikið í S-Afríku eða í
Zimbabwe. en þau lönd eru
ekki í FIFA, segir í blaða-
fregnum.
Öllum þeim fjölmörgu fjær og nær, sem sýndu mér
hlýhug og glöddu mig meö skeytum, blómum,
gjöfum, heimsóknum og traustu handtaki á
sextugsafmæli mínu sendi ég mínar innilegustu
þakkir og kveðjur.
Ég bið guð að blessa ykkur öll og fjölskyldur
ykkar,
Ottó A. Michelsen,
Litlageröi 12,
Reykjavík.
Býður
nokkur betur?
Málning — Hraunmálning — Þakmálning —
;. Fúavarnarefni — allar málningavörur.
Afsláttur
Kaupir þú fyrir 30—50 þúsund veitum viö 10% afslátt
Kaupir þú umfram 50 þúsund veitum viö 15% afslátt
Veggfóður — veggdúkar 51 cm breiður
—Afsláttur-----------
Kaupir þú 3—5 rúllur veitum viö 10% afslátt
Kaupir þú umfram 5 rúllur veitum viö 15% afslátt
Sannkallað Litaverskjörverð
Ertu aö byggja, viltu breyta, þarftu að bæta
• Líttu við í Lítaver, þvt það hefur ávallt borgað sig
.. „ Grensésvegi, Hreyfilshusinu Simi 82444.
•j:;• \ • \ %«
Sumarbústaður á Hvidbjerg
í Danmörku
Miðja vegu milli Vejle og Fredericia, er til sölu.
Einkar hagstæð fjárfesting á verðbólgutímum.
Lóðin er 1200 fm með fallegum trjágróðri. Húsið
er 9 ára, byggt úr hvítum kalksandsteini, viðar-
klætt. Sérlega skemmtileg baðströnd í aöeins 200
m fjarlægð. Á jarðhæð er forstofa, samliggjandi
dagstofa og borðstofa, eldhús og baðherbergi. Á
efri hæð er svefnherbergi og 2 gestaherbergi.
Húsið er 111 fm. Húsið selt fullbúið húsgögnum.
Verð Dkr. 600.000.-.
Aðeins áhugasamir kaupendur sem geta greitt háa
útborgun eru beðnir að hafa samband við:
Hans Lund,
Bo-Bedre, Vestergade 11,
7100 Vejle,
Danmark.