Morgunblaðið - 27.08.1980, Side 1

Morgunblaðið - 27.08.1980, Side 1
32 SÍÐUR 192. tbl. 68. árg. MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Rússar varpa aftur sprengjum á þorp Nýju Dehli, 26. ágúst. AP HEIMILDIR írá Aíganistan hermdu í dag, að þjóðfrelsisöflin í landinu hafi lokað þjóðveginum frá Kabul til Pakistan á sama tíma og sovézki herinn var með mikla hergagnaflutninga um vegina. og að frelsisöflin hafi náð á sitt vald svo til allri borginni | Jalalahad. sem er ein mikilvægasta borgin í austurhluta Afganistans. Þjóðvegurinn er hlekkur í aðalsamgönguleiðinni frá Evr- ópu til Suðaustur-Asíu, en hún liggur m.a. um Khyber-fjalla- skarðið í Pakistan, er opnað var fyrr í mánuðinum. Frelsisöflin í Afganistan lokuðu veginum við Sorobi, sem er 80 kílómetrum austan við Kabúl, er hundruð sovézkra skriðdreka og her- flutningabíla voru á leið frá Pul-i-Charkhi herstöðinni við Kabul til Sorobi. Til átaka kom í röðum afganskra hermanna í Sorobi. Sovézkar þyrlur og orrustuþotur sáust fljúga til Sorobi. Fregnir fóru af bardögum á ýmsum stöðum í landinu, eink- um í nágrenni Kabúl. Þá herma fregnir að sovézkar flugvélar hafi á föstudag byrjað á nýjan leik að varpa sprengjum á þorp við þjóðveginn norður af Kabúl, allt til Charikar, jafnt um nótt sem bjartan dag. Áreiðanlegar heimildir hermdu loks, að a.m.k. fjórir ráðherrar til viðbótar úr stjórn Hafizullah Amin hafi verið líf- látnir á laun í Kabúl fyrir skömmu. Þreyttur verkíallsnefndarmaður í Lenín-skipasmíðastöðinni í Gdansk fær sér blund meðan hann bíður eftir að samninganefnd ríkisvaldsins birtist. Simamynd - AP. Verkfallsréttur sýnd veiði en ekki gef in? Gdan.sk, 2«. á><úst. ap. i við endurskoðun laga um verkalýðsfélög yrði séð til þess að MIECZYSLAW Jagielski, fyrsti varaforsætisráðherra Pól- I vinnustöðvun yrði heimil ef allar aðrar leiðir til samninga lands, átti í dag nokkra viðræðufundi með verkfallsmönnum reyndust ófærar. Leiðtogar verkfallsmanna sögðu að verk- borginni Gdansk, og gaf hann þá m.a. í skyn, að yfirvöld I fallsrétturinn væri sýnd veiði en ekki gefin, engin vissa væri íynnu að veita verkamönnum verkfallsrétt. Hann sagði að | fyrir því að stjórnvöld efndu þessi loforð. Á fundinum í dag neitaði Jagielski hins vegar að láta undan kröfum verkfallsmanna um sjálfstæð og frjáls verka- lýðsfélög og sagði að hlutverk sitt væri aðeins að semja við verkfallsmenn í Eystrasalts- héruðum um kröfur þeirra. Leiðtogar verkfallsmanna sögðust hvergi hvika frá kröf- um sínum um frjáls verkalýðs- félög, og að fyrr hæfu þeir ekki störf að nýju en gengið hefði verið að þeim kröfum. Gáfu þeir í skyn, að efnt yrði til allsherjarverkfalls um allt land, ef ekki yrði orðið hið fyrsta við kröfunni um verka- lýðsfélög er væru óháð komm- únistaflokknum og kosið væri til leynilegri kosningu. Einnig neituðu þeir að ræða samn- inga er aðeins næðu til Eystrasaltshéraðanna. Fregnir bárust af frekari útbreiðslu verkfallanna í dag. Allar samgöngur lömuðust í borginni Lodz, næststærstu borg Póllands, er atvinnubíl- stjórar þar fóru í verkfall, og mörg iðjuver í iðnaðarborg- inni Wroclaw urðu óstarfhæf er starfsmenn lögðu niður vinnu. Heimildir herma að a.m.k. 480 iðnver og verk- smiðjur séu lamaðar í Eystra- saltshéruðunum, og að verkfallsmenn þar séu um 300.000 talsins og um hálf milljón í landinu öllu. Verk- fallsleiðtogar í Gdansk kvört- uðu undan því í dag, að þeim væri meinað að hafa samband við stallbræður sína annars staðar á svæðinu. . Pólsk stjórnvöld gripu til þess ráðs í dag, að láta Stefán Wyszynski kardinála, æðsta mann kaþólsku kirkjunnar í Póllandi, ávarpa þjóðina í sjónvarpi. Var hann látinn hvetja verkfallsmenn til að hætta aðgerðum sínum, og að reglu yrði komið á í landinu hið fyrsta. Formælandi sovézka utan- ríkisráðuneytisins sagði í dag, að tengsl Sovétríkjanna og Póllands væru með ágætum, og að „atburðirnir", sem ættu sér stað í Póllandi um þessar mundir, væru mál Pólverja einna, innanríkismál er þeir einir ættu að ráða fram úr. Formælandi bandaríska varnarmálaráðuneytisins sagði að ekkert benti til þess, að verið væri að flytja sovézk- ar hersveitir í áttina að Pól- landi. Brezhnev: Vill fækka eldflaugum Bunn. 26. áiíust. AP. LEONID Brezhnev, forseti Sov- étríkjanna, hefur ritað ieiðtog- um vestrænna ríkisstjórna bréf þar sem hann segist vilja að gert verði samkomulag um fækkun meðaldrægra eldflauga. að því er vestur-þýzkir embætt- ismenn skýrðu frá í dag. Meðal þeirra, er fengið hafa bréf af þessu tagi frá Brezhnev, eru Ilelmut Schmidt. kanzlari V-Þýzkalands, og Odvar Nordli, forsætisráðherra Nor- egs. Talsmaður kanzlaraembættis- ins sagði einungis, að í bréfinu ítrekaði Brezhnev áhuga Sovét- manna á samningum um fækkun meðaldrægra eldflauga. í heimsókn Schmidts til Sov- étríkjanna í sumar sagðist Brez- hnev vilja semja um fækkun meðaldrægra eldflauga í heimin- um, án tillits til þess hvort vesturveldin hættu við fyrirætl- anir sínar um að staðsetja slík vopn í Vestur-Evrópu. Tékkneskir bræður flýja VinarborK, 26. áftúst. AP. TVÆR skærustu isknattleiksstjðrn- ur Tékka flýðu land er þær voru á keppnisferðalagi í Austurriki og eru þær nú komnar til Kanada þar sem þær hafa beðið um hæli sem pólitiskir flóttamenn, að þvi er kanadíska sendiráðið í Vinarborg staðfesti i dag. íþróttamennirnir, sem eru rétt rúmlega tvítugir bræður, Peter og Anton Statsny, létu til skarar skríða á sunnudag eftir kappleiki í Austur- ríki. Þriðji og elzti bróðirinn, Marian Statsny, sem er 23 ára, hélt hins vegar heimleiðis með liðinu að lok- inni keppni. Miklar breytingar í stiórnkerfi Kína Peking, 26. ágúst. AP. FASTÁNEFND kínverska þingsins gerði í dag meiriháttar breytingar í kinverskum ráðuneytum, og segja kunnugir, að enn frekari breytingar og hreinsanir liggi í loftinu. Sett var á laggirnar ríkisorku- manni nefndarinnar. nefnd, er fengið hefur öll meiri- háttar vandamál á sviði kín- versks orkubúskapar til úrlausn- ar, og var Yu Quili, varaforsæt- isráðherra og forstöðumaður ríkisskipulagsins, gerður að yfir- Annar varaforsætisráð- herra, Yao Yilin, var settur yfir ríkisskipulagið í stað Quili. Þá var Wan Li, varaforsætis- ráðherra, settur yfir ríkisland- búnaðarnefndina í stað Wang Renzhong, er vikið var nýlega úr embætti. Wu Bo fjármálaráðherra var vikið úr embætti í dag og í hans stað tekur við Wang Bingqian, er eitt sinn var varaforsætis- ráðherra. Þá samþykkti fasta- nefndin afsögn Song Zhenming olíuráðherra, sem sagði af sér að tilmælum Hua Guo-feng forsæt- isráðherra. Á laugardag hefst tveggja vikna langur fundur kínverska þjóðþingsins, en búist er við, að þar verði aðalmálið afsögn Hua Guo-fengs forsætisráðherra, Deng Xiao pings aðstoðarforsæt- isráðherra og fleiri aldraðra forsprakka í kínverska kommún- istaflokknum. Því er spáð, að við taki sveit manna, sem vilhöll er Deng.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.