Morgunblaðið - 27.08.1980, Page 2

Morgunblaðið - 27.08.1980, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 1980 Dráttur á nýja mjólkurverðinu FUNDI þeim, sem vera átti í sexmannanefnd í gær um nýtt verð á landbúnað- arafurðum, var frestað, en nýr fundur í nefndinni hefur verið boðaður í dag. Er nú Ijóst að verð á mjólk og öðrum nautgripaafurð- um mun ekki hækka á mánudag, 1. september, en nýja verðið gæti í fyrsta lagi tekið gildi öðru hvoru megin við aðra helgi. Fulltrúar bænda í nefndinni hafa jafnan lagt á það áherslu að nýtt verð á nautgripaafurðum tæki gildi 1. september eins og lög gera ráð fyrir, en nýtt verð á sauðfjárafurðum tekur yfirleitt ekki gildi fyrr en um miðjan september. Bíða spenntir eftir smokknum Flugfreyjur héldu í gær félagsfund þar sem m.a. var rætt um uppsagnir þær sem vofa yfir þeim ásamt fleiri starfsmönnum Flugieiða. Að sögn Jófriðar Björnsdóttur var á fundinum í gær m.a. rætt um fyrirhugað pilagrímaflug o.fl., en flugfreyjum hafa enn þá ekki borist upplýsingar frá Flugleiðum um hversu mörgum flugfreyjum verður sagt upp. Ljósm. Kristján r * Samningaviöræður ASI og VSI: Ljóst í dag hvort heildarsamningar nást PatrekNfirði AÐEINS hefur orðið vart við smokkfisk hér út af að undan- förnu og bíða menn spenntir eftir o INNLENT Eiríkur Briem fjármálastjóri Rafveitunnar EIRÍKUR Briem hefur verið ráð- inn fjármálastjóri Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Var fjallað um ráðn- ingu fjármálastjóra á fundi borg- arstjórnar sl. föstudag öðru sinni og lagt fram bréf stjórnar veitu- stofnana varðandi ráðninguna. Var á fundi borgarstjórnar sam- þykkt með 4 atkvæðum tillaga stjórnar veitustofnana um að ráða Eirík Briem. að sjá hvort ganga kemur af honum í ár. í fyrra var mjög góð smokkfiskveiði hér vestra eftir 14 ára hlé, en smokkfiskur er afbragðsgóð beita. Skuttogarinn Guðmundur í Tungu var dreginn til Reykjavíkur fyrir nokkru vegna bilunar og hefur nú verið frá veiðum nokkuð á annan mánuð. Óvíst er hvenær viðgerð lýkur, en þessi bilun setur stórt strik í reikninginn hvað hráefnisöflun áhrærir. Stóru bát- arnir liggja flestir í höfn og bíða þess að haustvertíð hefjist. Hins vegar hefur verið ágætis afli hjá handfærabátum og á dragnót að undanförnu. Hafa færabátarnir komið með allt upp í 9 lestir að landi eftir 3 sólarhringa, en langt hefur verið að sækja. Fréttaritari Ökklabrotnaði ÞAÐ slys varð í Kambaseli í Breiðholti um hálftvöleytið í gær að sendibíll keyrði yfir fót öku- manns steypubíls, sem var að skola af bíl sínum. Maðurinn var fluttur á slysadeildina og reyndist vera ökklabrotinn. EFTIR sáttafund samninga- nefndar Alþýðusambandsins og samningaráðs Vinnuveitend- asambandsins, sem haldinn var í gær er enn ailt mjög óljóst um framvindu mála. Vinnuveitendur munu hafa lagt fram endurskoð- aðar tillögur sinar um röðun i launaflokka og krónutölu fyrir hvern flokk. Þótti ýmsum i hópi ASÍ-manna lítið bætast við frá fyrri tillögum og telja útlitið vera svart. Eitthvað mun staðan hjá iðnverkafólki hafa batnað og ákveðnar lagfæringar náðst fram þar. Ákveðnir hópar innan ASÍ leggja mikla áherzlu á að ná fram breytingum á launaflokka- röðun. Einhverjar hugmyndir munu hafa komið fram af hálfu vinnuveitenda til að koma til móts við láglaunafólkið, ef fallið verður frá kröfunni um vísitölu- gólf. Sáttanefndin er nú farin að herða að mönnum að komast að niðurstöðu og hefur hún ákveðið að ræða einslega við hvert sérsam- band ASÍ í dag og í kvöld hefur hún boðað samningaráð VSÍ til sérstaks fundar. Allt bendir til þess að dagurinn í dag skeri úr um það hvort hægt verði að standa að heildarsamningum eða að hvert sérsamband ASÍ semji fyrir sig. Á því er talinn vera talsverður möguleiki miðað við þróun mála. Dagsbrún hefur þegar aflað sér verkfallsheimildar og er búizt við að fleiri verkalýðsfélög geri það ef skriður kemst ekki á samningavið- ræðurnar. Fyrsti fundur bankamanna með sáttasemjara verður haldinn fyrir hádegi í dag, en í gær hélt sáttasemjari fund með aðilum í veitingahúsarekstri. Einar Olgeirsson Viðtalsbók við Einar Olgeirsson BÓKAÚTGÁFA Máls og menn- ingar hefur nú í undirbúningi útgáfu á ævisögu Einars Olgeirs- sonar fyrrum þingmanns og rit- stjóra. Að sögn Þorleifs Hauks- sonar útgáfustjóra fyrirtækisins er hér um að ræða samtalsbók, sem skráð hefur Jón Guðnason lektor. Bókin er nú í vinnslu í prentsmiðju og mun koma út eftir nokkrar vikur, en fyrstu bækur útgáfunnar á þessu hausti eru væntanlegar laust eftir miðjan september. Tillögur Efnahagsmálanefndar: Ríkið semji við bændur - en ekki um fiskverð - útlánastjórn í stað Seðlabanka TILLÖGUR Efnahagsmálanefndar ríkisstjórnarinnar gera ráð fyrir breyttri skipan mála við ákvörðun verðs á landbúnaðarvörum og fiski. Lagt er til, að sexmannanefnd verði lögð niður og þess i stað teknir upp beinir samningar milli ríkis og bænda. Þá leggur nefndin til. að Verðlagsráð sjávarútvegsins verði afnumið og hætt að skipa oddamann af hálfu ríkisstjórnarinnar til að taka þátt í ákvörðun á fiskverði. Samhliða þessum kerfisbreytingum gerir nefndin, sem skipuö er fulltrúum allra aðila stjórnarsamstarfsins. ráð fyrir því að við ákvörðun landbúnaðarverðs núna 1. september fái bændur ekki hækkun á vörur sínar nema sem nemur hækkun á launalið, en hún er 8,57%. Nefndin miðar einnig við það, að 1. október hækki fiskverð ekkert, en kauptrygging sjómanna um það sem nemur visitöluhækkun launa 1. september, 8,57%. Sérstök stjórn á að samræma útlánastefnu bankanna í stað Seðlahanka íslands. Með tillögur Efnahagsmála- nefndarinnar hefur verið farið mjög leynt og hið eina, sem nefndarmenn hafa viljað láta eftir sér hafa, snertir breytingar á yfirstjórn Framkvæmdastofn- unar ríkisins. í nefndarálitinu, sem ekki hefur að geyma heild- stæðar tillögur um lausn aðsteðjandi efnahagsvanda, munu fulltrúar einstakra aðila stjórnarsamstarfsins hafa fyrir- vara á afstöðu sinni til einstakra þátta og á stundum er látið að því liggja, að um hugmyndir en ekki beinar tillögur sé að ræða. Nefndarálitið hefur verið til meðferðar hjá ríkisstjórninni, en einstakir ráðherrar hafa verið ófáanlegir til að segja álit sitt á því. Látið hefur verið að því liggja, að tillögur nefndarinnar verði birtar í heild í næstu viku. Ákvörðun landbúnaðarverðs og fiskverðs eru meðal brýnustu verkefna á borði ríkisstjórnar- innar um þessar mundir og í þeim efnum eru tillögur Efna- hagsmálanefndarinnar skýrar, eins og frá er greint hér að ofan. Skal ekki tekið neitt tillit til hækkunar á aðföngum bænda við ákvörðun landbúnaðarvöru- verðs nú, heldur einungis miða við verðbótahækkun launa á hinum almenna markaði. Þá mun það felast í tillögugerðinni, að ekki verði gengið frá neinum samningum um kaup og kjör, hvorki við ríkisstarfsmenn né á almenna vinnumarkaðnum fyrr en eftir 1. september, svo að sú launahækkun hafi ekki áhrif á landbúnaðarverð. Atkvæða- greiðsla BSRB-manna um ný- gert samkomulag við ríkis- stjórninna fer fram 4. og 5. september nk. Efnahagsmálanefndin gerir ráð fyrir, að í stað Verðlagsráðs sjávarútvegsins semji útgerð- armenn beint við sjómenn og síðan útgerðarmenn við frysti- húsaeigendur og aðra fiskkaup- endur. Ráðgert er, að fiskverð hækki ekki 1. október og sjó- menn fái þar af leiðandi enga hækkun nema á kauptryggingu, sem svari til 8,57% almennu hækkunarinnar 1. september. Efnahagsmálanefndin leggur til, að horfið verði af braut samfellds gengissigs og þess í stað stefnt að ákveðnum gengis- fellingum öðru hverju, svo sem á hálfs eða eins árs fresti. Þá er einnig gert ráð fyrir því að rjúfa sjálfvirkni verðhækkana með íhlutun í verðbætur á laun. Þannig er til dæmis lagt til, að nýr vísitölugrundvöllur komi til sögunnar frá og með 1. janúar 1981. Og við þá nýbreytni verði málum þannig fyrir komið, að sú hækkun á niðurgreiðslum, sem ákveðin var frá og með 1. ágúst sl., verði ónauðsynleg á næsta ári, því að þá vegi landbúnaðar- vörur minna í vísitölunni en Efnahagsmálanefndin gerir ekki ráð fyrir því, að vextir hækki frá og með 1. september, eins og þeir ættu að gera væri svonefndum Ólafslögum fylgt. Sparifjáreigendur hafa sjaldan verið verr settir vegna þess mikla munar, sem er á innláns- vöxtum og verðbólgustigi. Nefndin setur fram tillögu um það, að horfið verði frá tengingu afurðalánavaxta við erlenda mynt, en sú skipan var tekin upp á síðasta ári að tillögu Lúðvíks Jósepssonar, að öðru leyti verði vextir samræmdir. Lagt er til, að komið verði á fót sérstakri stjórn til að samræma útlána- stefnu bankanna, en Seðlabanki Islands hefur gegnt því verkefni til þessa. Þá leggur nefndin til að ríkisbönkum verði fækkað úr þremur í tvo. Hugmynd nefndar- innar um útfærslu á þessu atriði er óljós, þó mun ákveðið að Útvegsbankinn verði lagður niður. í tillögum nefndarinnar er almennum orðum fjallað um atvinnumál og þar er að finna hugleiðingar um aukna hagræð- ingu í atvinnurekstri, bæði einkaaðila og ríkisins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.