Morgunblaðið - 27.08.1980, Side 3

Morgunblaðið - 27.08.1980, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 1980 3 Innvigtunargjald á mjólk fellt niður frá 1. sept. nk. FRAMLEIÐSLURÁÐ landbúnad- arins hefur ákvedið að frá og með 1. september nk. verði hætt að innheimta svonefnt innvigtun- argjald af mjólk, sem nú nemur 28 krónum á hvern mjólkurlitra. Gjald þetta er dregið frá þvi verði, sem bændur fá fyrir mjólkina og er tekjum af því ætlað að greiða halla af útflutn- ingi landbúnaðarvara. Alls er áætlað að innvigtunar- gjaldið á mjólkinni gefi frá 1. janúar til ágústloka í ár um 1590 milljónir króna en gjaldið var 16 krónur á hvern lítra á tímabilinu frá 1. janúar til maíloka en þá var gjaldið hækkað í 28 krónur. Gunnar Guðbjartsson, fram-' kvæmdastjóri Framleiðsluráðs, sagði, að þessi ákvörðun um niður- fellingu gjaldsins hefði verið tekin í framhaldi af álagningu fóður- bætisskattsins. Væri reiknað með Tvær sölur í Englandi TVÖ íslenzk fiskiskip lönduðu afla sínum í Bretlandi í gær. Ýmir GK seldi 171 lest í Hull fyrir 81,5 milljónir króna, meðalverð á kíló 475 krónur. Suðurey VE seldi 80,8 lestir í Fleetwood fyrir 46,4 millj- ónir, meðalverð 574 krónur. að fóðurbætisskatturinn færi að gefa tekjur, sem nota mætti í stað innvigtunargjaldsins. Enn hefðu þó ekki komið inn neinar tekjur af fóðurbætisskattinum enda hefði innflytjendum verið veittur þriggja mánaða gjaldfrestur á skattinum. Fjölmenni á norrænni fiski- málaráðstefnu — ÞESSA dagana er haldin í Gauta- bofg Norræn fiskimálaráðstefna, en slikar ráðstefnur eru haldnar annað hvert ár til skiptis á Norðurlöndunum. Um 300 manns sækja ráðstefnuna að þessu sinni og af þeim hópi eru um 25 íslendingar. Frá íslandi sækja ráðstefnuna forystumenn í hagsmunasamtök- um í sjávarútvegi, bæði varðandi veiðar og vinnslu, en einnig eru þar embættismenn og vísindam- enn. Á fundinum verður fjallað um marga málaflokka, en einkum þó um síldveiðar. Jakob Jakobsson fiskifræðingur stjórnar umræðum á ráðstefnunni um norsk-íslenzku síldina og heldur fyrirlestur um þann stofn. Bónorðsbréf- in hlaðast upp „MÚR líður vel og ég er mjög ánægð,“ sagði Unnur Steinsson er Mbl. hafði samband við hana i Manila á Filippseyjum i gær. Unnur tók sem kunnugt er þátt i keppninni um titilinn Miss Young International sem fram fór á Filippseyjum fyrir skömmu. Lenti hún þar i fjórða sæti en hlaut að auki titlana ungfrú Stundvis og ungfrú Vin- átta eða Miss Mabuhay eins og það heitir á máli innfæddra. Þátttakendurnir sjálfir kjósa handhafa þeirra titla. „Ég býst við að koma heim um miðjan september. Ég fer til Parísar á mánudaginn þar sem ég vinn fram að miðjum september við fyrirsætustörf. Hér á Filipps- eyjum er ég nú í ýmsum mynda- tökum í sambandi við keppnina og er að taka á móti verðlaunum sem ég hef fengið. Ég hef t.d. fengið peninga, snyrtivörur, fatnað, perlufestar, gullúr og bíl. Einnig fylgir titlin- um Miss Mabuhay það boð að ferðast um á vegum Philippine Airlines í eitt ár og kynna félagið. Þessi titill er mikils metinn hér, í raun er hann meira virði en titillinn Miss Young Internation- al.“ — Ætlar þú að taka þessu boði flugfélagsins? „Já, maður fær ekki svona tilboð á hverjum degi. Þetta er mér ennþá meira virði þar sem ég var valin úr hópi 44 stúlkna." Unnur Steinsson á nú fyrir höndum árs ferðalag um allan heiminn á vegum Philippine Airlines Ljósm. Mbl. KrlHtinn. Meðal þess, sem felst í starfi Unnar hjá flugfélaginu, er að opna klúbba á þess vegum í flestum stórborgum heims. Fyrsta klúbbinn opnar hún á fimmtudagskvöldið í Manila. Unnur kvaðst vera mjög ánægð með allar móttökur og sagði að farið væri með sig sem hún væri prinsessa. Vinsældir hennar eru ekki síst meðal karlþjóðarinnar því bónorðsbréfin streyma til hennar hvaðanæva að úr heimin- Samkomulag í sjónmáli á Hafréttarráðstefnunni í Genf: Islendingar styðja öll meginatriði sáttmálans „MIKIL bjartsýni ríkir nú á Hafréttarráðstefnunni og flestir gera ráð fyrir að lokatakmark- ið, gerð hafréttarsáttmála milli 160 þjóða heims, sé skammt undan,“ sagði Eyjólfur Konráð Jónsson er Morgunblaðið ræddi við hann í gær. „Meðal þeirra, sem iýst hafa ánægju sinni eru öll stórveldi heims og einna lengst gekk rússneski fulltrúinn í gær þegar hann sagði efnis- lega, að samkomulag væri þegar orðið um allt það. sem máli skipti. Nú ætti því engu að breyta, heidur haga öllum störf- um og Ijúka lokaafgreiðslu á fundi í New York í byrjun næsta árs.“ Eyjólfur sagði, að Hans G. Andersen hefði flutt ræðu síðari hluta dags í gær og lýst ánægju íslenzku sendinefndarinnar og þeirri skoðun hennar að inn í þá endurskoðun, sem nú er unnið að ætti að taka öll þau meginatriði, sem samkomulag hefur náðst um nú síðustu daga. Síðan ætti ekki að opna neitt það málsatriði, sem þegar hefði verið leyst, því ekki mætti stefna í hættu þeim mikla árangri, sem þegar hefði náðst. Hans sagði, að hafréttarsátt- máli gerður á grundvelli sam- komulags væri í sjónmáli, en fyrir~nöklH>uni. árum hefði slíkt verið talið nálgasr kraftaverk. Hann vék einnig að þeim miklu og langvarandi deilum, sem uppi hafa verið um skiptingu haf- svæða og hafsbotnssvæða milli landa, þar sem menn hafa ýmist lagt megináherzlu á sanngirnis- regluna eða miðlínu. Hann sagði, að lausnir yrðu alltaf að byggjast á sanngirni og allar aðferðir Hans G. Andersen mætti nota til að ná þeirri niðurstöðu, þ.á m. miðlínu þar sem það ætti við. Hans kvað íslenzku sendinefndina telja að orðalag 74. og 83. greina núver- andi texta næðu þessum mark- miðum. „Eins og áður hefur komið fram í fréttum komst skriður á málin þegar loks tóksrsamkomu- lag í 1. nefnd ráðstefnunnar um skipan ráðs Alþjóðahafsbotns- stofnunarinnar og önnur atriði varðandi alþjóðasvæðið og hag- nýtingu þess, en þau mál hafa einmitt verið erfiðust viðureignar siðastliðin 1-2 ár,“ sagði Eyjólfur Konráð Jónsson. „Elliot Richardson, aðalfulltrúi Bandaríkjanna, var meðal þeirra fjölmörgu, sem töluðu í dag. Skoraði hann á þá, sem enn halda fast fram tillögum, sem útilokað er að nokkurt samkomulag geti orðið um að fara sér hægar og lagði ríka áherzlu á, að nú væru menn í fyrsta skipti, síðan ráð- stefnan hófst, mjög nærri mark- inu og ekkert mætti gera, sem gæti valdið því, að þessum mikla árangri yrði spillt. Nú um kvöldmatarleytið standa enn sem hæst þær al- mennu umræður, sem hófust í gærmorgun og er hugmyndin að halda þeim áfram fram á nótt ef þörf krefur, svo að síðustu þrjá dagana megi nota til að sam- ræma sjónarmiðin enn frekar en orðið er. Gert er ráð fyrir að fulltrúar a.m.k. 70—80 þjóða taki til máls og því hefur ræðutími verið skorinn niður í 10 mínútur. Eins og fram kemur af því, sem þegar hefur verið sagt, er ekkert það í farvatninu að dómi okkar sendinefndar, sem stofnað getur tslenzkum hagsmunum i voða og því styðjum við þær endurbætur textans, sem nú má telja öruggt að gerðar verði. Hitt er svo annað mál, að enn er margt óljóst og umdeilanlegt eins og lög gera ráð fyrir þegar svo mörg nýmæli eru á ferðinni. Þá ekki sízt það, sem okkur skiptir nú mestu, þ.e. ytri mörk landgrunnsins, og því er enn mikið verk óunnið, eins og Hans G, Andersen vék að í Morgunblaðinu fyrir nokkru," sagði Eyjólfur Konráð Jónsson að lokum. Nú er einstakt tækifæri til aö eignast fyrsta flokks fiskibát á hagstæöu veröi. Faaborg fiskibátar hafa reynst framúrskarandi vel viö erfiöar aöstæður jafnt viö Grænland og Færeyjar. Sýnum 30 feta fullbúinn bát á m m _■ útisvæöi viö Laugardalshöll á lldllllllO Sölumaður okkar á sýningunni gefur allar upplýsingar um bátana Einkaumboðsmenn Víðir Finnbogason hf Grensásvegur 13, R. — Sími 83315.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.