Morgunblaðið - 27.08.1980, Page 5

Morgunblaðið - 27.08.1980, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 1980 5 Skólarnir taka aftur til starfa i næstu viku, og þá er eins gott að vera búinn að ganga frá skóladótinu og athuga hvort skólataskan frá i fyrra sé ekki i lagi. — Ef ekki, þá þarf að kaupa nýja eins og þessi hér var að gera í gaer i miðborg Reykjavíkur. Grunnskólar hef jast í næstu viku: 3 þúsund kennarar kenna 38 þús. nem- endum í 220 skólum ALLS MUNU um 38 þúsund nemendur verða i grunnskólum landsins i vetur i 1. til 9. bekk, og þeim munu kenna rösklega 3 þúsund kennarar, að þvi er Sigurður Helgason, deildarstjóri grunnskóladeildar menntamálaráðuneytisins, tjáði Morgunblað- inu i gær. Auk þess sagði Sigurður, að liklega yrðu nemendur á forskólaaldri um 4 þúsund talsins i vetur, eftir því sem best væri vitað nú. Sigurður sagði að skólahald hæfist almennt í næstu viku, það er í fyrstu viku septembermánað- ar. Þar er um að ræða alia níu mánaða grunnskóla landsins, sem eru á höfuðborgarsvæðinu og í flestum þéttbýliskjörnum lands- ins. Átta mánaða skólar, sem eru víðast hvar í dreifbýli, hefjast svo ekki fyrr en um miðjan septem- bermánuð. Sjö mánaða skólar hefjast síðan i október, en þeir skólar eru einkum í dreifðum byggðum Vestfjarða og Austur- lands, alls um 20 skólar. Starf- andi grunnskólar á landinu eru alls 220 talsins. Fastráðnir kennarar við grunnskóla eru um 2500, og í fyrra voru starfandi nálægt 570 stundakennarar, og er búist við að þeir verði álíka margir í vetur. Þegar rætt er um fastráðna kennara er átt við þá sem skipað- ir eru í stöður, og einnig þá sem settir eru til eins árs. Að sögn Sigurðar Helgasonar deildarstjóra, hefur gengið betur að fá kennara til starfa nú í haust en undanfarin ár. Kvaðst hann einkum þakka því, að minni hreyfing hefur verið á kennurum milli skóla en oft áður. Enn sagði hann óráðið í 30 kennarastöður, og væri það mun minna en undanfarin ár. — Tekið skal fram, að í þeirri tölu eru ekki kennarastöður við grunnskólann í Grundarfirði. — Erfiðast kvað Sigurður að fá kennara til starfa í fámennum og afskekktum byggðarlögum, og væru flestar hinna 30 kennarastaða þar. Dregur úr flúor- eitruu norðanlands VIÐ mælingar á flúoreitrun i gróðri norðanlands í kjölfar ösku- falls úr Ueklu, hefur komið i ljós, að dregið hefur úr eitruninni frá þvi fyrst eftir gosið, en hún er þó enn yfir hættumörkum í innsveit- um i Skagafirði og Eyjafirði og uppi á afréttunum. Hefur fé viða verið rekið af afréttum norðan- lands. Dr. Sturla Friðriksson, deiidarstjóri hjá Rannsóknar- stofnun landbúnaðarins. sagði. að á stærstum hluta öskufallssvæðis- ins væri flúoreitrunin enn yfir hættumörkum og væri ástæða fyrir menn að hafa á sér andvara vegna þessarar hættu. Sturla sagði, að menn hefðu verið uggandi um að með fokösku, sem í síðustu viku barst yfir hluta af Fljótshlíð og Austur-Eyjafjöll, kynni að berast hættulega mikið magn af flúor. Nú hefðu gróðursýni af þessum slóðum verið rannsökuð og væri flúormagn þar undir hættu- mörkum. Sýni vegna mælinga á flúoreitrun eru nú tekin reglulega á föstum athugunarstöðum á öskufallssvæð- inu. Skemmtisamkoma sjálfstæðisfélag- anna í Árnessýslu SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN í Ár- nessýslu efna til skemmtisam- komu í Árnesi laugardaginn 30. ágúst kl. 21. Ávarp flytur Matt- hías Á. Mathiesen alþingismaður, hinir landskunnu söngvarar Garð- ar Cortes og Ólöf K. Harðardóttir syngja og undirleik annast Jón Stefánsson. Hljómsveitin Frost- rósir leikur síðan fyrir dansi. Hreppsnefndin í Grundarfirði: Þakkar keraiumm við skólann fyrir að láta eigin hagsmuni víkja SKÓLASTJÓRADEILAN við grunnskólann i Grundarfirði hef- ur nú verið leyst,,og hefur náðst samkomulag sem allir aðilar máls- ins kveðast geta sætt sig við. í gærkvöldi birti sveitarstjóri Eyr- arhrepps svohljóðandi yfirlýsingu um málið, en neitaði að tjá sig um málsatvik eða samkomulagið að öðru leyti. Fer yfirlýsing sveitar- stjórans, Guðmundar Ósvaldsson- ar, hér á eftir: „Langvinn deila um stöðu skóla- stjórans við grunnskólann í Grund- arfirði hefur verið leyst. Lausnin er fólgin í samkomulagi á milli kenn- ara og skólastjóra, í beinu fram- haldi af fjölmennum foreldrafundi, sem hreppsnefnd Eyrarsveitar gekkst fyrir. an heimamanna, þegar sýnt var að málið var komið í algjöra sjálf- heldu, og fyrirsjáanlegt var að viðkomandi yfirvöld, sem drógu úr hömlu að taka á því, voru alls ófær um að leysa umrædda deilu. Heill nemenda skólans sat í fyrirrúmi við lausn deilunnar." Samþykkt hreppsnefndar Þá samþykkti hreppsnefnd Eyr- arsveitar einnig svohljóðandi ályktun í gær á fundi sínum. Samþykktin var gerð samhljóða: „I ljpsi þess, að samkomulag hefur náðst í svonefndri skóla- stjóradeilu, gerir hreppsnefndin svohljóðandi samþykkt: „Hreppsnefnd Eyrarsveitar fagnar því, að kennarar skuli hafa farið að óskum hennar og gengið til samstarfs við Örn Forberg skóla- stjóra á grundvelli tillögu hrepps- nefndar. Hreppsnefnd lýsir fullum og eindregnum stuðningi við kenn- araliðið og störf þess, og heitir því að stuðla að traustu og góðu skólastarfi á vetri komanda. Hreppsnefnd Eyrarsveitar harmar það að reynt hefur verið að gera kennarana og hlut þeirra í þessari deilu tortryggilegan. Hreppsnefnd Eyrarsveitar þakkar kennurum það alveg sérstaklega, að hafa látið eigin hagsmuni víkja fyrir hagsmunum nemenda og skólans. Að lokum þakkar hreppsnefnd öllum þeim, sem hafa lagt sitt af mörkum til að leysa deiluna." Samkomulagið byggist í fyrsta lagi á því, að eiginkona skólastjór- ans lætur af starfi yfirkennara í hendur þeim kennara, sem gegndi þeirri stöðu á síðasta vetri, í þeim tilgangi að fá meiri breidd í stjórn skólans. í þessari ráðstöfun felst alls ekki neitt vanmat á störfum fyrrverandi yfirkennara. í öðru lagi er um að ræða samkomulag um innra starf skól- ans, sem felur í sér að starfshættir síðastliðins-vetrar muni setja mark sitt á skólastarfið áTtDmandi vetri. Samkomulagið er gert að tilhlut- Margeir teflir í London MARGEIR Pétursson. alþjóðlegur meistari i skák, tekur um þessar mundir þátt i sterku alþjóðlegu skákmóti i London sem nefnist Lloyd Bank Open. Meðal þátttakenda eru þrír stórmeistarar; Sax, Georghiu og Samcovich og 14 alþjóðlegir meist- arar. Eftir 7 umferðir hefur Mar- geir 4 vinninga og er vel fyrir ofan miðju. Hann hefur unnið tvær skákir, tapað einni og gert fjögur jafntefli. Margeir vann stórmeist- ara í kvennaflokki, Veröczy frá Ungverjalandi og Bretann Britton. Alls verða tefldar 7 umferðir í mótinu. Að því loknu heldur Mar- geir til Frakklands, en hann mun taka þátt í alþjóðlegu skákmóti í Monaco, sem hefst 13. september nk. lyftara eigendur Getum útvegaö öryggishús á lyftara frá BoBo í Svíþjóö. Húsin eru hönnuö meö öryggi og þœgindi í huga. Einangrun fyrir hita, hljóöi og titringi. Öll ökuljós. Vinnuljós. Rúöuþurrkur aftan og framan. Rúöur í þaki með öryggisrimlum. Öryggis- gler. Opnanlegar hliðarrúöur. Aukin þœgindi. Aukin afköst. Aukiö öryggi. Hagstætt verð. BÍLABORG HF. SMIDSHÖFDA 23 <2 81299

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.