Morgunblaðið - 27.08.1980, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 1980
43466
Hlógeröi — 2 herb.
70 fm. jarðhæð sér inng.
Hamraborg — 3 herb.
á 7. haeö, góö eign.
Furugrund 6 3 herb.
80 fm. suður svalir.
Nýbýlavegur — 3 herb.
aukaherb. í kjallara, bílskúr
fylgir. Verö 43—45 m.
Vesturvallagata
3ja herb. íbúð á jarðhæð, laus
fljótlega, bein sala.
Kjarrhólmi — 4 herb.
suöur svalir. Verð 41 m.
Qaukshólar — 3 herb.
á 1. hæð. Verð 33 m.
Digranesvegur
4ra herb. 110 fm. jaröhæö.
Langafit — 4 herb.
efri hæð, bílskúrsréttur.
Arnarhraun — sérhæð
2 herb. í kjallara, bflskúrsréttur.
Austur-Kópavogur
130 fm. efri sérhaeð, bílskúr.
Krummahólar —
Penthouse
130 fm. á tveimur hæöum,
svefnherb. stórar suöur svalir,
verulega vönduð eign mikiö
útsýni. Verð 58 m.
Borgarholtsbraut
Einbýli hæð og ris 2x110 fm.
þarfnast lagfæringar. Verð 55
m.
Hátröð — einbýli
hæð og ris, 2x70 fm. Laus
ftjótlega. Einkasala.
Fatfe ignafokm
EK5NABORG sf.
Hamraborg 1
200 Kópavogur
Sfmar 43466 S 43805
Eldur á
Melavelli
ELDUR kom upp í áhorf-
endastúku Melavallarins
gamla viö Suðurgötu að
kvöldi s.l. sunnudags. Þeg-
ar slökkvilið kom á staðinn
logaði glatt í stúkunni en
slökkvistarf gekk vel. Tals-
vert miklar skemmdir urðu
á stúkunni, sem er úr tré og
bárujárni. Líklegt er talið
að þarna hafi verið um
íkveikju að ræða.
EF ÞAÐ ER
FRÉTTNÆMT
ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
TIL SÖLU
Hús P. Stefánsson h/f.
aö Hverfisgötu 103. Húsiö er verzlunar-, lager- og
skrifstofuhús alls 4418 rúmmetrar. 1604 fm. eignar-
lóö. Hentar vel fyrir verzlanir, veitingarrekstur,
trésmiöjur, bifreiðverkstæði, bifreiöaumboö, prent-
iönaö, heildverzlanir, o.fl. o.fl.
Verzlanahús viö Laugaveg
Til sölu viö neöanveröan Laugaveg húseign sem er
ca 85 fm. aö grunnfleti og er kjallari, verzlanahæö,
tvær hæöir og ris. Stækkunarmöguleikar á jaröhæö-
inni. Verð: 125.0 millj.
Einbýli Vesturbæ
Stórt vel staðsett einbýlishús ca 300 fm. í Vesturbæ.
Verö: 160.0 millj.
Fasteignaþjónustan
Austurstræti 17.’ Sími: 26600.
Ragnar Tómasson, lögmaður.
Fundur norrænna Rauða kross félaga í Reykjavík:
Frá fundi norrænna RauAa krossfélaKa sem nú stendur yfir í Reykjavík.
Viðtal við Henrik Beer,
framkvæmdastjóra Alþjóða-
sambands Rauða kross félaga
FUNDUR formanna og fram-
kvæmdastjóra IlauÓa krossfélaga
á Norðurlöndum var haldinn í
Reykjavík dagana 21.—25. ágúst.
Þetta er i fjórða skiptið sem
slíkur fundur er haldinn hér á
landi er Rauði kross íslands
hefur tekið þátt í samvinnu
Norðuriandanna undanfarin
tuttugu ár. Af hálfu Rauða kross
íslands sátu fundinn: Ólafur
Mixa formaður, Björn Frið-
finnsson og Sigurður H. Guð-
mundsson úr stjórn RKÍ, og
Eggert Ásgeirsson framkvæmda-
stjóri.
Auk formanna og framkvæmda-
stjóra frá hinum Norðurlöndunum
sat fundinn Svíinn Henrik Beer,
framkvæmdastjóri Alþjóða-
sambands Rauða krossfélaga.
Beer var áður framkvæmdastjóri
sænska Rauða krossins og vann
sér ungur frægð sem aðstoðar-
maður Folke Bernadotte í lok
síðari heimsstyrjaldarinnar.
Hann er mikill íslandsvinur og
hefur komið hingað mörgum sinn-
um bæði í sambandi við störf sín
fyrir Rauða krossinn og einnig
ferðast hér um á eigin vegum.
Á föstudag ræddi blaðamaður
Morgunblaðsins við Beer um þau
mál sem voru til afgreiðslu á
þessum fundi og sagði hann þá
meðal annars: „Á þessum fundi
verður fjallað um tvö umfangs-
mikil og aðkallandi mál. Annað
þessara mála eru hjálparstörf
Rauða krossins í Austur-Afríku.
Hungursneyð og óáran ríkir nú í
Eþíópíu, Sómalíu, Uganda og
hluta af Súdan. Þörf er skjótra
aðgerða í þessum ríkjum því þar
er víða mikill skortur á matvælum
og lyfjum. Sendifulltrúar Rauða
krossins vinna þarna mjög erfitt
starf og taka mikla áhættu við
störf sín vegna ófremdarástands
sem ríkir í þessum löndum. Við
dáumst mjög af þeim fyrir þau
störf sem þeir inna nú af hendi. —
Sú ákvörðun var tekin á fundinum
hér í dag að Rauða krossfélög á
Norðurlöndum greiddu þrjár
milljónir svissneskra- franka
(jafnvirði 1500 millj. íslenzkra
króna) til þessa starfs.
Annað stórmál, sem rætt verður
á þessum fundi, er starfið í
Suður-Afríku. Þar hafa á síðustu
árum verið stofnuð mörg ný þjóð-
ríki, s.s. Angóla, Mózambik, Tan-
zanía, Zambía, Zimbabwe o.fl. sem
standa höllum fæti. Rauði kross-
inn hefur gert fimm ára áætlun
um þróunaraðstoð við þessi ríki og
hefur nú verið starfað samkvæmt
henni um tveggja ára skeið.
Grundvallartilgangurinn er að
þjálfa þegna þessara ríkja til
ýmissa sérhæfðra starfa og veita
þeim tækniaðstoð svo þau geti
staðið á eigin fótum. Sendifulltrú-
ar okkar þarna byggja upp sjálf-
stæð Rauða krossfélög með inn-
fæddum sem munu vinna að
öryggis- og framfaramálum innan
þessara landa í framtíðinni. —
Þetta starf hefur gefið mjög góða
raun og við munum ræða um
áframhaid þess á fundinum. Það
er mikilvægt að fylgst sé með
þessu starfi þannig að fé og
fyrirhöfn nýtist vel og sú reynsla
sem þarna fæst geti komið að
gagni í öðrum heimshlutum.
Matsnefnd hefur verið sett til að
—£3-------------——» •«
Henrik Beer, framkvæmdastjóri
Alþjóðasambands Rauða krossfé-
laga.
fylgjast með starfinu og starfar
Eggert Ásgeirsson, framkvæmda-
stjóri Rauða kross Islands í j>ess-
ari nefnd.
Það er mikil þörf fyrir starf
Rauða krossins í heiminum um
þessar mundir og margar hjálpar-
aðgerðir í gangi á okkar vegum.
Þar má sérstaklega nefna hjálpar-
starf vegna flóttafólks í Suð-
austur-Asíu, aðstoð við afganst
flóttafólk í Pakistan og flótta-
mannahjálp í ríkjum Mið-Amer-
íku. Alþjóðasamband Rauða
krossfélaga hefur að undanförnu
sent út hjálparbeiðni þriðju
hverja viku'.
Þó ísland sé lítið land þá hefur
það um langt skeið lagt drjúgan
skerf til alþjóðlegra hjálparstarfa
Rauða krossins. Island er sláandi
„Ma starf er mjkils metið
og heíur skapað Islandi
virðingu á alþjóðavettvangi“