Morgunblaðið - 27.08.1980, Síða 15
Falldin
feröaðist
á puttanum
Stokkhólmi. 26. ittúnt. AP.
THORBJÖRN Fálldin forsæt-
isráðherra Svia varð að ferð-
ast á puttanum til þess að ná i
tæka tið til Stokkhólms til að
vera viðstaddur setningu sér-
leBs þinKfundar um efna-
hagsmál á mánudag.
Fálldin var á leið til höfuð-
borgarinnar á sunnudag, er
lest hans tafðist vegna járn-
brautarslyssins fyrir norðan
Stokkhólm. Er Falldin sá að I
óefni stefndi, vatt hann sér frá
borði og skundaði út á næsta
þjóðveg, þar sem hann „húkk-
aði“ far til höfuðborgarinnar.
Japanir
styðja
Pólverja
Túkýó, 26. ásntat. AP.
TALSMAÐUR stærstu verka-
lýðssamtaka í Japan (Sohyo)
lýsti í dag yfir stuðningi sam-
takanna við pólska verk-
fallsmenn og hvatti pólsk
stjórnvöld til að verða við
kröfum þeirra. Hann sagði, að
verkalýðsfélög ættu að vera
frjáls, jafnvel í sósíölsku þjóð-
félagi.
Páfi
biður fyrir
Pólverjum
Vatikanlnu. 26. ágúat. AP.
JÓHANNES PÁLL páfi sendi
í dag skeyti til leiðtoga pólsku
kirkjunnar þar sem hann full-
vissar þá um að hann sé með
öllum löndum sínum „í anda
og bæn“. Tilefnið var hátíð
madonnunnar frá Czestoch-
owa, en þá safnast pólsku
biskuparnir saman í klaustr-
inu í Jasna Gora, sem eins
konar tákn pólskrar kaþólsku.
Páfi minntist ekkert á verk-
föllin en sagði, að kirkjan
þyrfti á styrk að halda, eink-
um „á þessum tímum“.
Varað við
íhlutun
WaHhintfton. 26. ágúst. AP.
MEIRA en helmingur þing-
manna í bandarísku fulltrúa-
deildinni hefur lýst stuðningi
sínum við tillögu þar sem
segir, að erlend ríki eigi ekki
að koma í veg fyrir að Pólverj-
ar ákveði stofnun frjálsra
verkalýðsfélaga og að verka-
menn megi efna til verkfalla.
Það er repúblikaninn Don
Ritter sem að tillögunni stend-
ur.
Atvinnuleysi
eykst
Ltuenborg, 26. áffitat. AP.
FJÖLDI atvinnulausra innan
aöildarlanda Efnahagsbanda-
lags Evrópu jókst um 75 i júli sl.
Atvinnulausir i löndunum niu
eru þvi 6.675.600 manns og er
það mesta atvinnuleysi sem
skréð hefur verið siðan banda-
lagið var stofnað fyrir 23 árum.
Frá því t júlí á sl. ári og þar til
i sl. mánuði jókst atvinnuleysi í
Danmörku, Hollandi og írlandi
meira en nokkru sinni áður.
í skýrslu frá EBE segir að
skýringin á hinni miklu fjölgun
atvinnulausra i sl. mánuði kunni
að vera sú að þá voru margir
nemendur útskrifaðir úr skólum
og fóru í fyrsta sinn út á
atvinnumarkaðinn.
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 1980
15
Segja að Billy hafi
sjálfur beðið um lán
Tripoli. 26. ágúst. AP.
UTANRÍKISRÁÐHERRA
Libýu sagði í dag, að stjórn
hans hefði veitt Billy Carter
200.000 dollara lán að hans
ósk og að Líbýumenn
myndu halda áfram að beita
sér fyrir hagsmunum sínum
i Bandaríkjunum.
Ali Abdolsalam Treiki,
utanríkisráðherra Líbýu,
vildi ekki gefa frekari upp-
lýsingar um viðskipti Líbýu-
stjórnar og Billy Carters,
bróður Carters forseta, en
sagði, að það væri „eðlilegt",.
að Líbýumenn reyndu að
hafa áhrif á bandarískt al-
menningsálit „því að í
bandaríska innanríkisráðu-
neytinu er skellt á okkur
öllum hurðum".
Bandarískir öldungadeild-
arþingmenn, sem eru að
kanna mál Billy Carters,
sögðu í gær, að þeir hefðu
fengið upplýsingar frá leyni-
þjónustumönnum um hryðju-
verkastarfsemi Líbýumanna
og tilraunir þeirra til að hafa
áhrif á bandarísk stjórnvöld.
Þeir vildu þó ekki taka of
djúpt í árinni þegar þeir voru
spurðir hvort Líbýumenn
hefðu reynt að hafa áhrif á
Billy Carter vegna flugvéla,
sem Líbýumenn hafa greitt
fyrir, en bandarísk stjórn-
völd neita að afhenda. Strom
Thurmond, öldungadeildar-
þingmaður, sagði, að segja
mætti, að „í Ijós hefði komið,
að Billy Carter hefði áhuga á
flugvélum, þar á meðal C->
130“, en af þeirri gerð eru
vélarnar, sem Líbýumenn
hafa greitt fyrir.
Billy Carter frammi fyrir rann-
sóknarnefnd handarísku öld-
ungadeildarinnar.
Vilja að Bandaríkjamenn
styðji Pólland f járhagslega
WashinjUon. 26. ágitat. AP.
LEIÐTOGAR Bandaríkjamanna
af pólskum ættum áttu sl. mánu-
dag fund með embættismönnum
innanrikisráðuneytisins, þar sem
þeir fóru fram á það, að Banda-
rikjastjórn lýsti yfir stuðningi
sinum við pólska verkfallsmenn
og styddi pólsk stjórnvöld fjár-
hagslega.
„Við erum ekki að fara fram á
íhlutun, en okkur finnst, að
Bandaríkjamenn ættu að vera
eindregnari í stuðningi sínum,"
sagði Aloysius Mazewski, forseti
samtaka Bandaríkjamanna af
pólskum ættum. Mazewksi sagði,
að þeim fyndist, að Bandaríkin
ættu að hjálpa Pólverjum í þeim
efnahagslegu þrengingum sem
þeir væru í en þeir verða að borga
árlega 7 milljarða dollara í af-
borganir og vexti. Ef þessi skulda-
baggi yrði gerður þeim léttbærari,
SYRLENSKIR ílugmenn,
sem háðu loftbardaga við
ísraelsmenn yfir Suður-Líb-
anon, héidu því fram í dag, að
1 átökunum hefðu ísraels-
menn beitt F-15 orrustuþot-
um, sem eru þær fullkomn-
ustu, sem framleiddar eru í
Bandaríkjunum. ísraelsmenn
halda því aftur fram, að þeir
yrði auðveldara að koma til móts
við kröfur pólskra verkamanna,
sagði hann. Mazewski hvatti einn-
ig til aukinna kornsendinga til
Póllands og rýmri veiðikvóta í
bandarískri fiskveiðilögsögu.
Embættismenn innanríkisráðu-
^ Indlandi. 26. áKÚst. AP.
ÁTÖK urðu i dag milli kommún-
ista og fylgismanna Indiru
Ghandi i bænum West Bengal i
austurhluta Indlands. Einn mað-
ur lét lífið f átökunum og fjórir
særðust að sögn indversku
fréttastofunnar.
Fréttir herma einnig að átökin
milli múhameðstrúarmanna og
lögreglu í norðurhluta Indlands
hafi blossað upp að nýju í dag
eftir viku hlé. Sl. þriðjudag voru 7
hafi aðeins notað ísraelskar
Kfir-þotur.
Ætlast er til að ísraelsmenn
noti bandarísk vopn aðeins í
varnarskyni en ekki er neitt
sem mælir gegn því að þau séu
notuð annars staðar en á
ísraelsku landsvæði. ísraels-
menn segja, að orrustan hafi
hafist með því að sýrlensku
neytisins tóku heldur dræmlega í
tillögurnar og er haft eftir einum
þeirra, að um 10 ára skeið hafi
pólsk stjórnvöld tekið lán í þeim
tilgangi að kaupa sér frið við
pólska verkamenn, en nú sé mál að
þeim leik linni.
manns drepnir í átökum milli
múhameðstrúarmanna og lög-
reglu í bænum Allahabad og mun
einn maður hafa verið drepinn í
dag í sama bæ.
Alls hafa um 160 manns látist í
átökunum í Norður-Indlandi frá
því þau blossuðu upp 13. ágúst sl.
Átökin hófust er múhameðstrú-
armenn sögðust hafa komið auga
á svín er þeir voru á bæn en í
þeirra augum eru svín óhrein dýr.
MIG-21 vélarnar hafi flogið í
veg fyrir ísraelsku vélarnar,
sem hafi verið í eftirlitsflugi
yfir S-Líbanon, en Sýrlend-
ingar segja, að þeir hafi skor-
ist í leikinn þegar ísraels-
mennirnir létu sprengjum
rigna yfir stöðvar Palestínu-
manna og flóttamannabúðir í
Suður-Líbanon.
Veður
víða
um heim
Akureyri 12 skýjaó
Amtterdam 19 heióskírt
Aþena 31 heióskfrt
Berlin 43 heióskírt
Bröááel 25 heióskírt
Chicago 30 rigning
Feneyjar 23 léttskýjaó
Frankfurt 19 heióskirt
Fnreyjar 9 skýjað
Genf 20 skýjaó
Heleinki 17 skýjaó
Jerúáalem 29 heíóskírt
Kaupmannahöfn 18 ekýjaö
Lisaabon 25 skýjaó
London 23 heióskírt
Los Angeles 29 heióskirt
Madríd 28 skýjaó
Malaga 28 skýjaó
Mallorca 30 léttskýjaó
Miami 30 skýjaó
Moskva 15 skýjaó
New York 34 heióskírt
Oslo 15 heióskírt
- París 22rigning
Rio de Janeiro 34 skýjaó
Reykjavík 12. hélfskýjaó
Rómaborg 28 heióskírt
Stokkhólmur 18 skýjaó
Tsi Aviv 30 heióskírt
Tókýó 22 rigning
Vancouver 24 skýjaó
Vinarborg 16 skýjaó
Kólerufarald-
ur á Indlandi
Indlandi, 26. áKÚst. AP.
HÁTT á fimmta þúsund manns
hafa látist í miklum kóleru- og
garnabólgufaraldri sem geysar
um miðhluta Indlands, að sögn
indversku fréttastofunnar. Sjúk-
dómar sem þessir geysa þar sem
hreinlæti og heilbrigðisþjónustu
er ábótavant.
Beittu ísraelsmenn
F-15 orrustuþotum?
Damaskus, 26. áffúst. AP.
Óeirðir á Indlandi
Einlífið að verða meiri-
háttar vandamál í Kína
Peking. 26. ágúst. AP.
UNGIR, einmana Kínverjar eru
nú farnir að krefjast þess, að
komið verði á fót opinberri
hjónamiðlun, að því er segir í
fréttum kinverska æskulýðs-
blaðsins. t blaðinu segir, að þvi
hafi borist meira en 100 bréf
þar sem farið er fram á svipaða
þjónustu og japanskar hjóna-
bandsskrifstofur inna af hendi
en í blaðinu var nýlega skýrt
írá þeirri starfsemi í Japan.
Það er einkum fólk um þrí-
tugt, sem bréfin skrifar, fólk
sem vinnur á afskekktum stöð-
um, og foreldrar, sem eiga syni
eða dætur, sem ekki hafa gengið
út. „Þetta fólk líður fyrir að það
hefur ekki getað fundið rnaka,"
segir í blaðinu. „Ástleysið dregur
úr áhuga þess á námi og vinnu
og það er ekki hollt fyrir þjóðfé-
lagið og það sjálft." Blaðið segir
að einlífið sé orðið að meirihátt-
ar vandamáli í kínversku samfé-
lagi.
Einn bréfritaranna segir, að á
hans vinnustað séu 12.000
ókvæntir karlar og 4.000 konur
og annar, jarðfræðingur að
mennt, segir að hann stundi
einkum störf sín uppi um fjöll og
firnindi og sjái sjaldan nokkra
kvenpersónu. „Það er vissulega
erfitt fyrir þá að kynnast konu
sem fá aðeins frí einu sinni á
ári,“ segir blaðið í samúðartón.
Ungur maður frá Shanxi-
héraði sagði, að hann hefði talið
hjónabandsmiðlun „úrkynjað
einkenni á kapítalísku þjóðfé-
lagi“ en nú væri hann kominn á
aðra skoðun og fagnaði hug-
myndinni.
I blaðinu sagði, að nú væri
sums staðar verið að koma upp
hjónábandsmiðlun í tilrauna-
skyni og í æskulýðsblaðinu í
Shanghai er sérstakur dálkur,
„Fyrir þig“, sem er ætlað að
hjálpa kínverskum sjómönnum,
sem eru að leita að hinni einu
sönnu ást.