Morgunblaðið - 27.08.1980, Side 17

Morgunblaðið - 27.08.1980, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 1980 17 Verkfallsmenn i Lenín-skipasmiðastöðinni biðjast fyrir. Verkföll í Austur- Evrópu í SOVÉTRÍKJUNUM lðgðu verkamenn nýlega niður vinnu í hinum miklu Togliatti-bflaverk- smiðjum vegna vöruskorts í verslunum, einkum vegna þess að kjöt og önnur matvara var illfáanleg. Yfirvöld neituðu því, að verkföll hefðu átt sér stað. Tilraunir til að stofna frjáls verkalýðsfélög og tryggja verka- mönnum verkfallsrétt hafa verið kæfðar í fæðingu af sovéskum stjórnvöldum og upphafs- mönnum þeirra stranglega refs- að. í Austur-Þýskalandi er ekki vitað um nein meiriháttar verk- föll síðan 1953, þegar rússneskar hersveitir bældu niður andóf verkamanna . Frést hefur þó, að á síðasta ári hafi verkamenn í verksmiðju hótað verkfalli ef þeir fengju ekki laun sín greidd að hluta í vestrænum gjaldeyri, sem þeir gætu notað til að kaupa fyrir lúxusvörur. í Rúmeníu fóru 30.000 náma- menn í Jiu-dalnum í verkfall vegna þess að laun þeirra höfðu verið skert. Þeir héldu Ilie Ver- det forsætisráðherra í eins kon- ar gislingu meðan á samninga- viðræðunum stóð. Stjórnin varð að láta undan í fyrstu en hefndi sín grimmilega síðar. Margir námamenn voru reknir úr starfi, um 4000 að því er sumir telja í Tékkóslóvakiu hefur verið sagt frá stuttum vinnustöðvun- um og í ræðu nýlega sagði tékkneskur verkalýðsleiðtogi, Ladislav Jasik, að það yrði í verslununum sem baráttan yrði háð á næstunni. í Júgóslavfu, sem er kommún- ískt riki en óháð Sovétríkjunum, eru um 100 vinnustöðvanir ár- lega, en yfirleitt skammvinnar. Verkföll eru í raun viðurkennd sem nauðsynleg aðferð við að ýta við skriffinnskubákninu. Búast má við því, að verkföllum fjölgi á komandi mánuðum vegna efna- hagslegra aðhaldsaðgerða og meiri krafna, sem verið er að gera á hendur verkamönnum. í Ungverjalandi er ekki vitað um verkföll enda er nokkur annar háttur hafður á þar í landi en öðrum A-Evrópuríkjum. Með því að leyfa tiltölulega frjálst efnahagslíf hefur verið komið í veg fyrir verkföll og samskipti verkamanna og stjórnenda eru þar óþvingaðri en annars staðar fyrir austan járntjald. uríki á krossg'ötum Frá fundi sameiginlegrar stjórnar verkfallsmanna, MKS. Verkfallsmenn úr fjölda verksmiðja hafa tekið sig saman og semja nú sameiginlega við yfirvöld. Lech Walesa, formaður MKS, er þriðji frá hægri. Kona heimsækir mann sinn i skipasmíðastöðina. geisa, hafði verið rofið, en nú hafa verkfallsmenn fengið símann opnaðan aftur. Þeir hafa engan aðgang að blöðum en koma skoð- unum sínum á framfæri í dreifi- riti, „Robotnink", sem berst hratt um borgirnar og víðar. Það, sem verkfallsmenn verða helst að reiða sig á, er afstaða almennings, sem yfirleitt talar í hæðnistón um þennan einhliða málflutning stjornvalda og þær tilslakanir sem þau hafa lýst sig reiðubúin til að gera. I fyrstu stóðu yfirvöld á því fastara en fótunum, að ekki yrðu teknar upp samningaviðræður við verkfallsmenn, nema hver verk- smiðja yrði afgreidd sérstaklega. Nú hafa yfirvöld ekki séð sér annað fært en að láta undan kröfum verkfallsmanna um að semja sameiginlega við starfs- menn allra verksmiðjanna og í því felst mikill árangur fyrir verk- fallsmennina. Ekkert austan- tjaldsríki hefur látið undan kröf- um sem þessum og í þessu felst viss viðurkenning á samtökum verkamanna óháðum stjórnvöld- um. Hvort réttur verkamanna til þess að stofna slík samtök verður nú formlega viðurkenndur af stjórnvöldum skiptir í raun litlu máli. Fordæmið hefur þegar verið gefið og ekkert hindrar, að verka- menn geti tekið sig saman síðar meir við svipaðar aðstæður, hvort sem er í Póllandi eða öðrum austantjaldsríkjum. Yfirvöldum hefur mistekist að takmarka um- ræðurnar við efnahagsleg atriði og ljóst er, að verkfallsmenn munu ekki sætta sig við óbreytt skipulag verkalýðsmála. Á sunnudag lofaði Edward Gie- rek, formaður pólska kommún- istaflokksins, verkfallsmönnum í ræðu, sem hann flutti í sjónvarpi, að lýðræðislegar og leynilegar kosningar gætu farið fram til stjórna verkalýðsfélaganna. Verk- fallsmenn tóku boðinu hins vegar fálega og sögðust ekki mundu láta blekkjast af stjórnvöldum. „Að- eins frjáls verkalýðsfélög geta fært okkur fuilan sigur og gert okkur ánægð," sagði Walesa. Er hætta á rússn- eskri innrás? Öllum er ljóst, að þær pólitísku tilslakanir, sem stjórnin í Póllandi kann að gera til þess að koma til móts við verkfallsmenn, verða að vera innan marka sem Sovétmenn geta sætt sig við. Ýmsir forystu- menn KOR-samtakanna telja, að kröfur um frjáls verkalýðsfélög séu óraunsæjar og þess í stað ættu verkamenn að beita sér fyrir því, að óformlegu lýðræði verði leyft að þróast innan hinna opinberu verkalýðsfélaga, líkt ogtíðkaðist á Spáni í stjórnartíð Francos. En hver sem framvinda þessa máls verður, er talið ólíklegt, að Sovét- menn geri innrás í Pólland. Að- stæður í Póllandi eru gerólíkar því sem var í Tékkóslóvakíu 1968, þegar hinn frjálslyndi Dubcek komst til valda, en stefna hans var í veigamiklum atriðum frábrugðin stefnu Sovétstjórnarinnar og fól því í sér beina ógnun við völd Sovétmanna í landinu. Yfirvöld í Póllandi fylgja hins vegar Moskvu-línunni í einu og öllu og það er þeim jafnmikið áhugamál og Rússum, að kröfum verka- mannanna um aukið lýðræði verði haldið niðri. (Stuðst við L'Express, The Observer, Now! og Daily Telegraph.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.