Morgunblaðið - 27.08.1980, Síða 18

Morgunblaðið - 27.08.1980, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 1980 Kjötskorturinn: 30 tonn áttu að fara til Færeyja - 12 tonn verða send I>EGAR tók að bera á skorti á dilkakjöti í I og II verðflokki i byrjun mánaðarins átti enn eftir að flytja um 30 tonn af dilkakjöti til Færeyja miðað við þá samn- inxa, sem gerðir höfðu verið við Færeyinga um kjötsölu þangað að aflokinni haustslátrun í fyrra. Jóhann Steinsson hjá Búvöru- deild Sambandsins, sem annast útflutning á kjötinu, sagði að vegna þess ástands, sem skapast hefði hér heima í kjötmálunum, hefði verið leitað eftir samkomu- lagi við færeysku kaupendurna um að draga úr þessum útflutn- ingi um rúman helming. Niður- staðan varð sú að alls verða flutt út til Færeyja um 12 tonn af dilkakjöti í stað þeirra 30 sem samið hafði verið um. Jóhann sagði, að þessi 12 tonn væru enn ekki farin frá Seyðis- firði en þar væri kjötið geymt í frystigeymslu á vegum umboðsað- ila Smyrils. Ástæðan væri sú að mikið hefði verið um farþega og bíla í síðustu ferðum ferjunnar en farþegar væru látnir ganga fyrir vöruflutningum. Ráðgert væri að kjötið yrði flutt út í þrennu lagi. Besta berjasprettan við Isaf jarðardjúp Utanríkisráðherra Austur-Þýskalands, sem hér var i opinberri heimsókn, hélt utan í gærdag. Átti hann viðræður í gærmorgun við dr. Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra og síðar ólaf Jóhannesson. Hitti Oskar Fischer einnig forseta íslands, Vigdísi Finnbogadóttur að máli og þáði síðan hádegisverð í boði borgarstjórnar áður en hann hélt af landi brott klukkan 15 i gær. Myndina tók ólafur K. Magnússon i gær er ráðherrann ræddi við forseta íslands. BERJASPREiTTA virðist með minna móti en oft áður viða um land og virðist sem best berja- spretta hafi verið á Vestfjörðum m.a. kringum ísafjarðardjúp, að þvi er Mbl. hefur verið tjáð. Talsmenn Blómaskálans í Kópa- vogi, sem oft hefur haft ber til sölu síðla sumars, tjáðu Mbl., að á hefðbundnum berjasvæðum á Snæfellsnesi væri mun minna um oer nú en áður og hefðu þeir látið tína fyrir sig við Isafjarðardjúp til sölu í Blómaskálanum. Fagranesið nefur farið hópferð með fólk vestra til berja í Jökulfirði, en í Veiðileysufirði er gott berjaland og vel sprottið í ár. Betur en oft áður, en þar er að finna bæði bláber og aðalbláber, og krækiber fyrir þá sem þau vilja. Aðalfundur Stéttarsam- bands bænda haldinn um næstu helgi á Klaustri AÐALFUNDUR Stéttarsam- bands bænda verður haldinn í Kirkjubæjarklaustri um næstu helgi. Gert er ráð fyrir að aðal- mál fundarins verði framhald stjórnunar á framleiðslumálum landhúnaðarins og þá einkum framtið fóðurbætisskattsins og kvótakerfisins. Skrifstofu Stéttarsambandsins eru nú að berast samþykktir svonefndra kjörmannafunda, sem haldnir eru til undirbúnings aðal- fundinum heima í sýslunum. Gunnar Guðbjartsson, formaður Stéttarsambandsins, sagði, að í þessum samþykktum kæmi í flest- um tilvikum fram stuðningur við álagningu kjarnfóðurgjaldsins en í mörgum þeirra væru tillögur aðalfundar Stéttarsambandsins í fyrra um að bændur fái ákveðið magn af kjarnfóðri án skattlagn- ingar ítrekaðar. Margar athuga- semdir kæmu fram varðandi kvótakerfið og einkum væri lögð áhersla á að létta af skerðingu á minnstu búunum. Fundurinn hefst kl. 10. árdegis á laugardag og þá verða fluttar skýrslur um starfsemi Stéttar- sambandsins og eftir hádegi flytja landbúnaðarráðherra og fleiri gestir ávörp. Mestur hluti laugar- dagsins fer þó í almennar umræð- ur. Um kvöldið og fram eftir sunnudegi starfa nefndir fundar- ins en á mánudag fer fram afgreiðsla mála og gert er ráð fyrir að fundinum verði slitið seint á mánudagskvöld. Fjóshlaða og súg- þurrkunartækin skemmdust í eldi FJÓSHLAÐA á bænum Lónseyri á Bæjum við ísa- fjarðardjúp brann fyrir stuttu og skemmdist all- mikið, en bjarga tókst nokkru af heyi, sem komið var í hloðuna. SKemmdust einnig af eldinum súg- þurrkunartæki við hlöð- una, en tókst að verja fjós og bæjarhúsin sem áföst eru. Jens Guðmundsson bóndi tjáði Mbl. að milli 30 og 40 menn af nágrannabæjunum hefði drifið að og aðstoðað við slökkvistarfið. Taldi hann að allt að 40 tonnum af sjó hefðu verið notuð við slökkvi- starfið. Sagði Jens að tekist hefði að bjarga nokkru af heyinu og ynni hann um þessar mundir við að drífa nýtt þak yfir hlöðuna og 99 Ósvífinn áróð- ’ um Pólland ur APN FRÉTTASTOFA Sovét- stjórnarinnar á íslandi sendi Morgunblaðinu í gær eftirfar- andi yfirlýsingu um Pólland undir fyrirsögninni „ósvífinn áróður“ og er sagt, að hún hafi birst í sovéskum bloðum þriðju- daginn 24. ágúst, þó er ekkert getið um í hvaða blaði. eins og venja er í daglegum fréttabréf- um APN á Íslandi. Yfirlýsingin er svohljóðandi: „Það er varla hægt að lýsa þeim áróðri, sem nú er rekinn á Vesturlöndum vegna atburðanna í Póllandi á annan hátt en hér sé um að ræða tilraun vissra heimsvaldasinnaðra hópa á Vesturlöndum til að skipta sér af innanríkismálefnum hinna - segir APN á Islandi fullvalda sósíalísku ríkja til þess að snúa rás atburðanna sér í hag. Það þarf ekki sérfræðing til að sjá, að erfiðleikarnir eru ekki meiri en svo, að hægt er að yfirvinna þá og það er alls ekki hægt að bera þá saman við þá hrikalegu kreppu, sem svo oft hefur ríkt á Vesturlöndum. Hvers vegna gerir vestrænn áróður svo mikið úr ímynduðu efnahagshruni í Póllandi og þeg- ir um þá staðreynd, að stærsta og ríkasta landið á Vesturlönd- um, Bandaríkin, hafa lengi átt við efnahagslega erfiðleika að etja, að verkfallsmenn þar skipta hundruðum þúsunda og að meira en 26 milljón Banda- rikjamenn eru neyddir til að draga fram lífið á upphæð, sem er fyrir neðan þá upphæð, sem opinberlega er talið að þurfi til framfærslu. Hvers vegna hrópar hinn vestræni áróður ekki yfir heiminn, að í hinum þróuðu kapítalísku löndum eru yfir 18 milljónir atvinnuleysingja? Hvers vegna er það ekki hrun kapítalismans, þegar vestrænu löndin eiga í miklum efnahags- örðugleikum og orkukreppu? Sá áróður, sem rekinn hefur verið í þessu sambandi, er síður en svo til að draga úr slökun spennu í heiminum." nýja glugga svo koma mætti heyinu inn að nýju. Að öðru leyti kvað Jens góðar fréttir úr hérað- inu, þar hefði nú ríkt einmunatíð í langan tíma. Að lokum kvaðst Jens Guð- mundsson vilja minna á að nytin í kúm sínum væri tekin að minnka með minnkandi kjarnfóðurgjöf og taldi kaupstaðarfólkið ekki ofsælt á næstunni þegar þrengjast færi að með mjólk. Jón L. tapaði í tíundu umferð JÓN L. Árnason tapaði fyrir Utut frá Indónesiu I tiundu um- ferð heimsmeistaramóts ungl- inga i skák i gær. Jón er nú með 5 vinninga. en efstur er Kasparov með 7,5 vinninga. Sviinn Ákesson er annar með 7 vinninga og Rúmeninn Neguleschu þriðji með 6,5 vinninga. Helgi Ólafsson, aðstoðarmaður Jóns, sagði í samtali við Mbl., að Indónesinn hefði haft hvítt gegn Jóni og teflt beint til jafnteflis. Jón hefði svo tekið mikla áhættu og reynt að snúa taflinu sér í hag, en það mistókst og Jón tapaði skákinni eftir 37 leiki. í níundu umferð á sunnudag vann Jón Skotann McNab í 22 leikjum, en í áttundu umferð á laugardaginn tapaði hann fyrir Danailov frá Búlgaríu og sagði Helgi, að það tap hefði verið „grátlegt". „Jón var búinn að pakka honum saman en lék svo öllu niður í tímahraki," sagði Helgi. í tíundu umferðinni í gær gerði Kasparov jafntefli við Short frá Englandi, Ákesson vann Tempone, Argentínu, og Negu- leschu vann Toro frá Chile. Að loknu heimsmeistaramóti unglinga heldur Jón L. Árnason til Sovétríkjanna, þar sem hann tefl- ir í minningarmóti Chigorins, en þangað var Jóni boðið eftir að Guðmundur Sigurjónsson gat ekki þegið boð um þátttöku vegna starfsins sem aðstoðarmaður Húbners. Tíu bátar á síld frá Eyjum VeHtmannaeyjum, 26. ágÚHt. REIKNAÐ er með að 10 bátar geri út á reknetaveiðar héðan í haust. þar af 7 heimabátar. Fyrsti háturinn fór á veiðar i fyrrakvöld, Friðrik Sigurðsson ÁR, en Ófeigur III er einnig að verða tilbúinn. Þá er liklegt að einhverjir af minnstu bátunum reyni að veiða síld i lagnet á næstunni. Togararnir Breki og Klakkur liggja hér við bryggju með hátt i 200 lestir af fiski hvor. Skipin eiga soludag i Þýzkalandi í næstu viku og verður þessum afla landað þar. Hjól atvinnulífsins eru nú að byrja að snúast aftur hér í Eyjum eftir langt sumarleyfi, en frysti- húsin hafa ekki tekið á móti fiski síðan fyrir þjóðhátíð. Tekið verður á móti síld ef einhver berst næstu daga og síðan fljótlega á móti öðrum fiski. Sigurgeir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.