Morgunblaðið - 27.08.1980, Síða 19

Morgunblaðið - 27.08.1980, Síða 19
 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 1980 19 | JÓN ÁS(«EIRSS()N: _ i 1920 — WinnipeK Falcons: frá vinstri: Gordon Sigur- jonsson, þjálfari, H. Axford, formaður, Wally Byron, markmaður, Slim Halder- son, hægri útherji, Frank Frederickson, fyrirliði, mið- herji, W.A. Hewitt, ritstjóri Toronto Star, Connie Jo- hannesson, hægri bakvörður, Mike Goodman, vinstri út- herji, Allan Woodman, vara- maður, Bobby Benson, vinstri bakvörður, Chris Fridfinnsson, varamaður, William Fridfinnsson, ritari. IPBh íslenska íshokkýliðsins minnst með veglegum hætti Bandaríkjamenn tóku einnig þátt í leikunum, og voru þeir fyrirfram taldir sigurstrangleg- astir. Þá voru Svíar einu Norð- urlandabúarnir, sem tóku þátt í þessari keppni, en af öðrum Evrópuþjóðum má nefna Belgíu- menn, Frakka, Svisslendinga og Tékka. Fálkarnir kepptu fyrst fyrir Tékkana og var það ójafn leikur, sem lyktaði með sigri Fálkanna, sem skoruðu fimmtán mörk gegn engu. Mesta burstið var í leik Bandaríkjamanna og Svisslend- inga. USA sigraði með tuttugu og níu mörkum gegn engu. Leik- tíminn í þá daga var 40 mínútur, svo Bandaríkjamennirnir hafa skorað mark að jafnaði á hverj- um 80 sekúndum, sem er næsta ótrúlegt í þessari íþrótt. Kanadíska liðið, bandaríska og sænska komust áfram í aðra umferð, og þannig dróst, að Svíarnir sátu fyrst hjá. Það var því komið að eiginlegum úrslita- leik keppninnar, leik Fálkanna ogUSA. í Winnipeg Free Press er meðal annars sagt frá leiknum á þessa leið: Bandaríkjamennirnir, sem höfðu gert sér vonir um sigur í keppninni, urðu furðu lostnir er þeir fundu, að Fálkarnir voru miklu fljótari en þeirra allra fljótustu menn, og auk þess gættu þeir andstæðinga sinna svo vel, að þeir komust nánast aldrei í skotfæri. Allir framherjarnir í liði Fálkanna, sérstaklega Mike Goodman, sýndu snilldartakta, hraða og hugkvæmni í öllum leik sínum. í vörninni stóðu þeir sem klettar Benson og Johannesson. í fyrri hálfleik (20 mín.) var ekkert mark skorað, en á elleftu mínútu síðari hálfleiks skoraði Frank Frederickson, fyrirliði liðsins, fyrsta mark leiksins. Frank varð síðar þekktur at- vinnumaður í íshokký, keppti meðal annars með Victoria Cougars í Pacific Coast League, og Detroit og Boston í National League. Sjö mínútum síðar skor- aði Connie Johannesson annað mark, og þau urðu úrslit leiks- ins, 2—0. Nýlega var þess minnst í Winnipeg, Manitoba, Kanada, að sextíu ár eru liðin írá því kanadíska landsliðið í íshokký sigraði á ólympíuleikunum í Antwerpen árið 1920 og hlaut þá um leið heims- meistaratitil í þessari íþróttagrein. Það heíur þótt í írásögur færandi, að í þessu kanadíska landsliði voru allir keppendurnir, utan einn, af íslenskum ættum. Raunar var hér um að ræða félagslið, Winnipeg Falcons, oft nefnt Fálkarnir. þeir félagar tóku þátt í kanadíska meistaramótinu, Allan Cup, og í úrslitaleiknum sigruðu þeir frægasta liðið í Kanada um þær mundir, háskólaliðið frá Toronto. Kanadíska íshokkýsambandið var því ekki í neinum vafa um hverja skyldi senda á Olympíuleik- ana til þess að verja heiður landsins, sem sagt íslendingana. Frank Frederickson Síðasti leikurinn var nánast formsatriði, Fálkarnir sigruðu þá Svíana með 12—1 og var sagt, að Islendingarnir hefðu leyft Svíunum að gera þetta eina mark svona rétt fyrir frændsemi sakir. Þeir tveir, sem skoruðu mörk- in í leiknum gegn USA, Frank Frederickson og Connie Johann- esson urðu báðir þekktir á ís- landi, ekki einasta fyrir íþrótta- afrek, heldur miklu frekar vegna framlags þeirra til íslenskra flugmála. Frank fór beint til íslands eftir Ólympíuleikana til þess að ÍS88»8WWW^MtWWM38W5li08ilil!lljaýaai.lOSaji8S»ia>jB8SWSi>B Mike Goodman taka við flugvél, sem þá hafði nýlega verið keypt til landsins. Hann varð þannig fyrsti islenski flugmaðurinn, sem flaug hér á landi. Sú saga er ítarlega rakin í Annálum íslenskra flugmála, sem komu út fyrir fáum árum. Konni Johannesson rak um langt skeið flugskóla í Winnipeg, og hjá honum lærðu margir af frumherjum Loftleiða og Flugfé- lags íslands. Enn eru margir af nemendum Konna í fullu starfi sem flugstjórar, bæði hérlendis og erlendis. Aðrir leikmenn í þessu fræga íshokkýliði 1920 voru Wally Byr- on, markmaður, Bobby Benson, varnarmaður, Slim Halderson, hægri útherji og Chris Fridfin- son, varamaður. Harvey Benson, bróðir Bobbys var einnig í liðinu, en hann keppti ekki. Eini leik- maðurinn, sem ekki var af ís- lenskum ættum var Huck Wood- Fálkarnir sérstak- lega heiðraðir Sem fyrr er getið var þess svo sérstaklega minnst fyrir skömmu í Winnipeg, að 60 ár eru liðin frá því Fálkarnir urðu ólympíumeistarar og heims- meistarar. íþróttasambandið í Manitoba hélt hátíðlegt tíu ára afmæli sitt (áhugamannasam- tökin), og var þá jafnframt sett á laggirnar sérstök stofnun, sem í framtíðinni á að varðveita nöfn þekktustu íþróttamanna fylkis- ins, MANITOBA SPORTS HALL OF FAME. Að þessu sinni voru tilnefndir níu ein- staklingar og eitt félagslið, Fálk- arnir. Einn leikmannanna er enn á lífi, Mike Goodman. Auk þess að vera einn af bestu mönnum íshokkýliðsins vann hann sér það til frægðar að sigra eitt sinn á Norður-ameríska skautamót- inu, North American Speed Skating Championship. Mike Goodman hefur verið búsettur á Florida síðustu ára- tugi, en kom til Winnipeg til þess að vera viðstaddur í hófinu, sem efnt var til af fyrrgreindu tilefni, og um sex hundruð manns sátu. Undirritaður átti þess kost að ræða við Goodman stutta stund, og minntist hann félaga sinna með hlýjum orðum. Einnig bað hann fyrir kveðju heim til íslands. Sagan af skaut- unum hans var rifjuð upp. Það þótti með ólíkindum hve maður- inn var fljótur á skautum, og engir höfðu roð við honum. Komst þá sá orðrómur á kreik á Ólympíuleikunum, að skautarnir hans væru húðaðir með ein- hverju efni, sem hefði verið framleitt sérstaklega til þess að auka skriðið. Um þetta áttu auðvitað engir að vita. Svo háværar urðu þær raddir, sem héldu þessu fram, að svo fór, að Mike fékk fjölmörg tilboð í skautana, og segir sagan, að sumir hafi viljað borga allt að eitt hundrað dollurum fyrir þá, og var það ekki lítil upphæð í þá daga. Það ætti að vera óþarft að taka fram, að skautana lét Mike aldrei frá sér. Við heimkomuna frá Ant- werpen fengu Fálkarnir höfðing- legar móttökur. Þeim voru haldnar veglegar veislur í Tor- onto og Winnipeg, og þeim var margvíslegur annar sómi sýnd- ur. Free Press segir meðal annars svo frá: „í gærkvöldi stóð múgur manns fyrir framan ritstjórn- arskrifstofur blaðsins og beið fjöldinn þolinmóður eftir úrslit- um leiksins frá Ólympíuleikun- um í Antwerpen. Jafnskjótt og þau voru kunn voru þau birt í glugganum, og þá laust mann- fjöldinn upp fagnaðarópi. Þá voru úrslitin látin berast til allra kvikmyndahúsa og leik- húsa í bænum, þar sem þau voru síðan tilkynnt um hæl öllum áhorfendum, sem einnig fögnuðu þessum ánægjulegu tíðindum." íslensku blöðin í Manitoba létu auðvitað ekki sitt eftir Iiggja. í Heimskringlu segir meðal annars á þessa leið: „Sjaldan hefur verið jafnmikið um dýrðir í Winnipeg og þegar íslensku Fálkarnir komu heim úr frægðarför sinni. Bæjarstjór- inn veitti þeim móttöku með hinni mestu viðhöfn, fagurlega skreyttar bifreiðar þutu fram og aftur um borgina með nöfnum þeirra og myndum, og blöðin gerðu þá að umtalsefni, — fluttu af þeim myndir með alls konar lofi, og kvæði, sem um þá var ort, þar sem þess var greinilega getið að þeir væru Islendingar. í öllum búða- og skrifstofuglugg- um voru skrautprentuð nöfn þeirra, og stórletruð spjöld voru á hverjum strætisvagni bæjar- ins, þar sem menn sögðust vera stoltir af þeim. Þeim var haldinn hver dansinn eftir annan og hvert heimboðið rak annað. íslenska þjóðin hefur aldrei fengið betri auglýsingu hér í landi.“ — já

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.