Morgunblaðið - 27.08.1980, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 1980
+
Móöir okkar, amma og tengdamóðir,
ELÍSABET MARÍA SIGURBJÖRNSDÓTTIR (ELLA MAJA),
Lönguhlfö 23,
lést í Landspítalanum 24. ágúst.
Fyrir hönd vandamanna.
Sigurbjörn Bernótusson,
Sigríöur Bernótusdóttir,
Jórunn Bernótusdóttir,
Þóra Bernótusdóttir,
Anna Fríða Bernótusdóttir,
tengdabörn og barnabörn.
\
Faöir minn,
GUNNAR HELGMUNDUR ALEXANDERSSON,
lést 26. ágúst í hjúkrunarheimilinu Grund.
Guóríöur Gunnarsdóttir.
+
RANNVEIG KJARAN,
Móvahlíó 44,
er lést í Landspitalanum 19. ágúst veröur jarösungin frá
Dómkirkjunni fimmtudaginn 23. ágúst.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Móöir okkar, tengdamóöir og amma,
SIGRÍÐUR ÁRNADÓTTIR,
Rauöalæk 2, Reykjavík,
sem lést 17. ágúst veröur jarösungin frá Laugarneskirkju
fimmtudaginn 28. ágúst kl. 13.30.
Hannes Árni Wöhler, Kirstín G. Lórusdóttir,
Bryndís Kristiansen, Ketill Pólsson
Bragi Kristiansen, og barnabörn.
+
Eiginkona mín, móöir, dóttir, tengdamóöir og amma,
HULDA FJOLA MORK,
Keldulandi 21,
sem andaöist aö heimili sínu 20. þ.m. veröur jarösungin í
Fossvogskirkju miövikudaginn 28/8 kl. 10.30.
Ulf Mork,
Björn Mork,
Bippe Mork,
Elfn Söebech,
Hafdís Albertsdóttir
og barnabarn.
+
Útför eiginmanns míns, fööur, tengdafööur og afa,
SKÚLA A. STEINSSONAR,
forstjóra, Heiöargerði 19,
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 29. ágúst kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hans er vinsamlega bent á Krabbameins-
félaglö.
Gyöa Brynjólfsdóttir,
Bryndís Skúladóttir, Póll Árnason,
Gunnsteinn Skúlason, Sigrún Gunnarsdóttir,
Guölaug Skúladóttir, Vilberg Skúlason,
Sigrún Skúladóttir, Jón Sverrisson,
Haildór Skúlason, Jóna Ágústa Helgadóttir
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir færum viö öllum þeim fjölmörgu sem vottuöu
okkur samúö og vinarhug viö fráfall og útför eiginmanns míns,
fööur okkar, tengdafööur og afa,
ATLA BALDVINSSONAR,
fyrrum framkvssmdaatjóra, Hveravöllum.
Steinunn Olafsdóttir,
Sigríóur Atladóttir, Vigfús Jónsson,
María Atladóttir, Unnsteinn Jóhannsaon,
Ólafur Atlason, Alda Pólsdóttir,
Baldvin Atlason
og barnabörn.
Atli Þór Helgason
úrsmiöur - Minning
Fæddur 19. janúar 1950.
Dáinn 7. ágúst 1980.
Það er örugg vissa og staðreynd
að dauðinn vitjar okkar allra að
lokum. En hvar og hvenær það
augnablik kemur sem verður
okkar síðasta í þessum heimi
vitum við yfirleitt ekki fyrirfram
sem betur fer „því enginn veit sína
æfina fyrr en öll er“.
Það er í sjálfu sér ofur eðlilegur
atburður þegar aldurhnigin
manneskja, þrotin að kröftum og
heilsu, sofnar í hinsta sinn þreytt
eftir starf langrar ævi og yfirgef-
ur þetta tilverusvið. En því erfiðar
gengur okkur að skilja þann til-
gang og sætta okkur við, þegar
ungir atorkumenn í blóma lífsins,
eru kallaðir burt frá þessu lífi
mitt í dagsins önn á sólfögru
sumri. Þá stöndum við jarðarbörn
harmi slegin, og brestur skilning á
tilgangi forsjónarinnar.
Eg kom úr stuttri heimsókn á
æskustöðvarnar síðla kvölds 7.
ágúst sl. glaður og hress, en næsta
morgun biðu váleg tíðindi. „Hann
Atli Þór drukknaði í gær.“ Þetta
var voðafregn. Atli var góðvinur
okkar hjónanna. Þessi fáu kveðju-
og þakkarorð til góðs drengs og
vinar megna þó tæpast að tjá hug
okkar allan á erfiðri stund.
Ég kynntist Atla ungum að
árum vegna nábýlis okkar og
foreldra hans. Þessi glaðlegi, röski
og síhressi strákur vakti athygli
mína. Við drógumst fljótt hvor að
öðrum vegna sameiginlegs áhuga
á dægurmálum, bílum, tæknibún-
aði o.fl., en hjá honum kom maður
ekki að tómum kofanum þegar
slíkt var til umræðu.
Síðar þegar við vorum báðir
félagar í Kiwanisklúbbnum Þyrli,
kynntumst við enn betur. Þar
ávann Atli sér virðingu allra,
úrræðagóður og fljótur að átta sig
á málefnum, og það sem mest um
var vert, alltaf síkátur og drífandi
og hreif okkur hina með sér til
dáða. Það var oft að ég var á gangi
um götur bæjarins með daprar
hugsanir vegna einhverra tilfall-
andi erfiðleika, að bíll Atla renndi
upp að gangstétt og kallað var:
„Ertu að fara eitthvað sérstakt?
Ég skal skutla þér“. Þá vildi oft
teygjast úr ökuferðinni, en að
lokum skilaði Atli mér á áfanga-
stað og hafði þá með sínu glaða og
góða viðmóti hresst svo upp sinni
mitt að þegar leiðir skildu, var ég
glaður og hress á ný. Þetta var
honum eiginlegt. Hann var því
sannkallað sólskinsbarn á meðal
okkar, og því var vel við hæfi hve
sólin skein bjart og heitt þegar við
kvöddum hann öll í hinsta sinn, og
hlýr sumarandvarinn gerði sitt
besta til að þerra tárin sem
féllu.—
Það er svo sárt að sjá á bak ungs
vinar í blóma lífsins. Hann átti
svo margt ógert, hann ætlaði að
gera svo margt í framtíðinni.
Hann hafði aflað sér vandaðrar
menntunar hér heima og erlendis í
+
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför
sonar okkar, bróöur og frænda,
TRYGGVA ÓSKARSSONAR,
Þórshöfn.
Klara Guójónsdóttir,
Óskar Jónsson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Hughellar þakkir til þeirra mörgu sem sýnt hafa okkur samúð og
vinarhug viö andlát og útför elglnmanns míns, fööur okkar,
tengdafööur og afa,
KARLS SVEINSSONAR,
aöalbókara, Skipasundi 57, Reykjavfk.
Fyrir mína hönd, barna mlnna, tengdabarna og barnabarna.
Bergþóra Sigmarsdóttir.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og útför bróður
okkar,
SIGMUNDAR JÓHANNSSONAR
frá Skógum.
Sérstaklega færum viö alúöar þakklr læknum, hjúkrunarfræöing-
um og starfsllöi öllu á deild 8 Landspítalanum fyrir frábæra
umönnun í langvarandi veikindum hans.
Systkinin.
+
Viö þökkum innilega alla þá samúö og vináttu sem okkur hefur
veriö sýnd viö andlát og útför,
ATLA ÞÓRS HELGASONAR,
úrsmiös, Akranesi.
Sigrfóur Óladóttir og börn,
Hutda og Helgi Júlíusson,
Hallfríöur Helgadóttir, Pjetur Már Helgason.
+
Þökkum auösýnda samúö viö andlát og útför eiginmanns míns,
fööur okkar og tengdafööur,
SIGURDAR GUNNARSSONAR,
prentara frá Selalsek.
Sigrfóur Ólafsdóttir,
Sigrföur Siguröardóttir, Helgi Kristbjarnarson,
Ólafur Sigurðsson, Sólveig K. Pátursdóttir.
iðn föður síns og hlotið meistara-
réttindi í úrsmíðum, þeir feðgar
voru samstarfsmenn og félagar.
Og framtíðarheimilið beið fjöl-
skyldunnar eftir fáa daga.
Við hann voru svo miklar vonir
bundnar. Sár er því harmur Helga
og Huldu og ástvina allra, því þau
hafa mikið misst. Atli Þór var sá
gæfumaður að eiga góðan lífsföru-
naut. Fyrir rúmum sex árum á
þjóðhátíðarári gekk hann að eiga
eftirlifandi konu sína Sigríði
Óladóttur einstaka atorku- og
myndarkonu. Þau eignuðust gott
og fagurt heimili, enda samhent
og bæði óvenju atorkusöm. Börnin
voru orðin þrjú á aldrinum 2
mánaða til 6 ára þegar faðirinn
var kallaður til annars tilveru-
sviðs. En móðir þeirra hefur sýnt
slíkt þrek á raunastundum að
fágætt er. Ég bið guð að veita
henni og börnunum styrk og
hugarró á þessum erfiðu stundum.
Allar góðu minningarnar eru
okkur öllum huggun og styrkur
meðan tíminn líður og dregur
sviðann úr sárunum. Við hjónin
óskum aðstandendum Atla Þórs
alls góðs í framtíðinni. Við teljum
okkur það mikið lán að hafa
fengið að njóta samvista við hann
á liðnum árum. Það auðgaði hugi
okkar af minningum um ágætan
vin. Minningin um góðan dreng
mun lifa á meðal okkar allra, og
það eru bjartar minningar og
kærar.
Hafðu þökk fyrir samveruna
vinur.
Stefán Lárus Pálsson.
Birting
afmælis- og
minningar-
greina
ATHYGLI skal vakin á þvi, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig
verður grein, sem birtast á í
miðvikudagsblaði, að berast i
síðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með
greinar aðra daga. Greinar
mega ekki vera í sendibréfs-
formi. Þess skal einnig getið
af marggefnu tilefni að frum-
ort Ijóð um hinn látna eru
ekki birt á minningarorðasið-
um Morgunblaðsins. Handrit
þurfa að vera vélrituð og með
góðu linubili.
AUCLÝSINCASTOFA
MYNDAMÓTA HF