Morgunblaðið - 27.08.1980, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 27.08.1980, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 1980 31 Framarar urðu bikarmeistarar Framarar urðu hikarmeistar- ar i öðrum aldursflokki i knatt- spyrnu i gærkvöldi, en þeir sigr- uðu þá KR-inga i úrslitaleik með tveimur mörkum gegn einu. Stað- an í hálfleik var 1—0 fyrir Fram. Framarar voru vel að sigrinum komnir, einkum léku þeir betur i siðari hálfleik, en þá komu og fóru nokkur góð marktækifæri sem ekki nýttust. Nú bíða menn spenntir eftir því hvort Fram leiki sama leikinn i meistara- flokki, en á sunnudaginn mætast Fram og ÍBV i úrslitaleiknum i bikarkeppni KSÍ Hjá Fram hef- ur nú 2. flokkur vísað veginn. Kristján ljósmyndari Einarsson smellti þessari mynd af hinum nýbökuðu bikarmeisturum i leikslok i gærkvöldi. Sigurður enn með nauma forystu ir w ***j£fá*fi i f \ bEGAR þrjár umferðir eru eftir i 1. deild íslandsmótsins i knatt- spyrnu, er ljóst að baráttan um hæstu meðaíeinkunn i stigagjöf Morgunblaðsins mun einkum standa milli 6 manna. Þeir eru Sigurður Grétarsson, UBK, Guð- mundur Þorbjörnsson og Magnús Bergs úr Val, Trausti Haraldsson og Marteinn Geirsson úr Fram og loks Ragnar Margeirsson úr iBK. Eins og staðan er nú, hefur Sigurður Grétarsson naumt for- skot á hina fimm, raunar hefur 1 Sigurður leitt kapphlaupið í allt sumar. Sigurður hefur hlotið 98 stig í 14 leikjum, eða meðaleink- unnina 7,0. Tveir eru með 6,9 í meðaleink- unn og eru það Framararnir Trausti og Marteinn. Trausti hef- ur hlotið 90 stig í 13 leikjum, en Marteinn 104 stig í 15 leikjum. Það er stutt í Ragnar Margeirs- son, hann hefur hlotið 102 stig í 15 leikjum, eða 6,8 í meðaleinkunn. Magnús Bergs hefur fengið 100 stig í 15 leikjum, 6,6, og Guðmund- ur Þorbjörnsson hefur hreppt 91 stig í 14 leikjum, eða 6,5 í meðaleinkunn. Það er athyglisvert, að aðeins einu sinni hefur einkunnin 9,0 verið gefin fyrir frammistöðu leik- manns í sumar, það var í síðustu umferð og var það Bjarni Sigurðs- son, markvörðurinn ungi hjá IA, sem braut ísinn. Vonandi sjá blaðamenn Mbl. sér fært að veita oftar þá stóru tölu. Björn vann tvöfalt — en Geir fór holu í höggi • Sigurður Grétarsson. Á skólabekk með Heiden KRISTINN Björnsson lék ekki með Skagamönnum gegn KR á laugardaginn, enda kappinn kominn til Ósló. þar sem hann hefur setzt á skólabekk eftir að hafa staðizt inntökupróf i iþróttaskólann þar með sóma. Margir íslendingar hafa setið þarna á skólabekk og nú er þar nemandi ekki ófrægari maður en Erik Heiden, margfaldur ólympiumeistari á skautum í Lake Placid sl. vetur. BJÖRN Morthens, GR, sigraði i „Chrysler“-keppninni í golfi, sem fram fór á Grafarholtsvellinum um helgina. Sigraði Björn bæði með og án forgjafar. Annars bar það helst til tiðinda, að Geir Þórðarson fór holu i höggi á sjöttu braut, en hún er 165 metrar. Sem fyrr segir sigraði Björn Morthens. Með forgjöf lék hann á 67 höggum nettó, Árni Guð- mundsson, GOS, varð annar á 69 höggum nettó og á 71 höggi nettó léku þeir Janus Bragi, GL, Gunn- ar Haraldsson, GR, Kjartan Borg, GR, og Sveinjón Jóhannes- son, GR. Þriðja sætið hreppti Janus. í keppninni án forgjafar lék Björn á 81 höggi, annar varð Janus á 85 höggum og þriðji varð Annel Þorkelsson á 86 höggum. Gunnar Haraldsson lék einnig á 86 höggum. KA og Þór ráða þjálfara ÞÓR og KA á Akureyri hafa bæði ráðið handknattleiksþjálfara fyrir komandi keppnistimabil. KA hefur ráðið Birgi Björnsson og er það þriðja árið i röð sem Birgir sér um þjálfun liðsins. Þórsarar hafa hins vegar ráðið Hreiðar Jónsson. sor. Það er mikið á döfinni hjá GR um þessar mundir. Langt er kom- inn „Olíubikarinn" svokallaði og keppni um hann lýkur 7. septem- ber. „Jón Agnars“-keppnin er einnig langt komin og lýkur um helgina. Þar keppa strákar og stelpur 14 ára og yngri. Firma- keppnin er einnig í fullum gangi og lýkur 6. september. Loks má geta þess að leikin verður fjór- menningskeppni á Grafarholts- vellinum á sunnudaginn kemur. Hefst keppnin klukkan 13.30. Fjórmenningur er þess eðlis, að tveir keppa gegn tveimur og slá menn til skiptis sömu kúlu ... Fortuna er efst - Atli og félagar í 9.-12. sætinu Getrauna- spá M.B.L. o ’•© -C s s tc Um o s Sunday Mirror Sunday People Sunday Express News of the World Sunday Telegraph SAMTALS 1 X 2 Arsenal — Tottenham X X X X X X 0 6 0 Aston Villa — Coventry X 1 1 1 1 1 5 1 0 Brighton — WBA 1 X X 1 1 1 4 2 0 Ipswich — Everton 1 1 1 1 1 1 6 0 0 Leeds — Leichester X 1 1 X 1 X 3 3 0 Liverpool — Norwich 1 1 1 1 1 1 6 0 0 Man. Utd. — Sunderland X 1 1 1 1 1 5 1 0 Middlesbr. — Man. City 1 X 1 1 1 1 5 1 0 Nott. Forest — Stoke 1 1 1 1 1 1 6 0 0 Southampt. — Birmingh. X 1 1 1 1 1 5 1 0 Wolves — Cr. Palace 2 X 1 1 X 1 3 2 1 Chelsea — QPR 2 2 X X X 1 1 3 2 FORTUNA Dússeldorf, bikar- meistari Vestur-Þýskalands tvö síðustu keppnistimabilin, hefur forystuna í vestur-þýsku deilda- keppninni þegar þremur umferð- um er lokið. Liðið sigraði Bayern Múnchen 3—0 á heimavelli sin- um um helgina og skoruðu AII- ofs-bræðurnir Klaus og Thomas hvor sitt markið, Seel það þriðja. Frammistaða Dússeldorf hefur vakið nokkra furðu, það hefur fyrst og fremst verið bikarlið í gegn um árin, og var t.d. meðal neðstu liða i deildinni á siðasta keppnistimabili. Úrslit leikja um helgina urðu annars þessi: 1860Múnchen — Núrnb. 2—4 Hamburger SV — Kaisersl. 3—2 Suttgart — FC Köln 3—0 Leverkusen — Frankfurt 3—2 Bielefeldt — Mönc. gladb. 2—3 Schalke 04 — Uerdingen 3—1 Dússeldorf — Bayern 3—0 Bochum — Duisburg 1—1 Karlsruhe. — Bor. Dortm. 1—1 Atli Eðvaldsson og félagar hans hjá Dortmund máttu gera sér jafntefli að góðu gegn Karlsruhe, en Dortmund er nú í 9.—12. sæti deildarinnar með 3 stig eftir jafn marga leiki. En efsta liðið hefur 6 stig, þannig að öll nótt er alls ekki úti enn. Það er HSV sem er í öðru sætinu sem stendur, liðið hefur hreppt 5 stig. Frankfurt, Bayern, Stuttgart, Mönchengladbach, Kaiserslautern og Duisburg hafa 4 stig hvert. Neðst eru Armenia Bielefeldt og Bayer Uerdingen með samtals ekkert stig... Knatt- spyrnu- úrslit VEGNA þrenKKla I Mbl. I gær. var ekki hæftt aft birta úrslit i neúri deildum ensku knattspymunnar eða I skosku deildar- keppninni. Þar sem vitað er aA álitlegur hópur hefur al þvi yndi að fylgiast með ðllu sem við kemur ensku knattspyrnunni. verða umrædd urslit birt nú. 3. deild: Brentford — KeadinK Bimley — Chesterfleld Chester — Carlfsle Colchester — Walsall GillinKham — Barnsley Buddersfield — Blaekpool Hull — Eieter Newport — Millwall Plymouth — Charleton Porthsmouth — Rotherham Sheffield Utd — Oxford Swindon — Fulham 4. deild: Aldershot — Créwe Bournemouth — Northampton Bradford — Scunthorpe Darlimcton — Stockport Doncaster — PeterbrouKh Halifax — Bury Lincoln — WlKan Mansfield — Hereford Rochdale — Hartlepool Wimhledon — Port Vale York — Torquay Skotland. úrvalsdeild: Alrdrie — Aberdeen Celtic — RanKers Dundee lltd — Morton Partick — Kilmarnock St. Mlrren — Hearts Þremur umferðum er lokið deildarkeppninni ok eru RanKers og Aberdeen efst ok jðfn með fimm sÚk hvort félax. Celtie hefur 4 stlK. 1-2 1-0 1-0 1-1 1-1 1-1 3-3 2-1 1-1 3-1 1-0 3- 4 2-0 0-0 0-0 2-2 0-4 4- 2 2-0 4-0 1-1 1-0 0-4 1-2 1-1 0-1 1-3 skosku KR í stað Víkings HANDKNATTLEIKSLIÐ KR mun taka þátt I fjögurra liða mótinu sem Víkingar hugðust taka þátt I í Vestur- Þýskalandi innan skamms. Eitthvað voru Vikingarnir illa undir það búnir að vera með og gengu KR-ingar þá inn í þeirra stað. Auk KR keppa á móti þessu Valur og vestur-þýsku liðin Danker- sen og Nettelstadt. — K8 Markhæstir í Englandi ÞEGAR þremur umferðum er lokið í ensku knattspyrnunni, er John Hawley, miðherji Sund- erland, markhæsti leikmaður 1. deildar ásamt þeim Garth Crookes hjá Tottenham og Just- in Fashanu hjá Norwich. Allir hafa skorað fjögur mörk í leikjunum þrem. Bæði Hawley og Fashanu hafa skorað sina þrennuna hvor, en Crookes hef- ur hins vegar skorað í ölium leikjum Tottenham til þessa. Félagi Crookes hjá Totten ham. Glenn Hoddle, hefur skor- að þrjú mörk, einnig þeir Frank Stapelton hjá Arsenal og Clive Allen hjá Palace. Þess má geta, að Allen skoraði öll mörk sin i sama leiknum. í 2. deild er Malcolm Poskett, Watford markhæstur með 4 mörk, en Ray Bishop. Cardiff, Trevor Christie, N. County og Brian Kidd hjá Bolton hafa allir skorað þrivegis. Handknattleiksþjálfari óskast íþróttafélagið Stjarnan, Klaksvík, Færeyjum óskar að ráöa þjálfara. Góð laun og hlunnindi í boði. Nánari upplýsingar í síma 30859 milli kl. 14—17.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.