Morgunblaðið - 27.08.1980, Qupperneq 32
^SÍminn á afgreiðslunni er
83033
JH«T0unbUit>i&
At'GLÝSINGASÍMINN ER:
22480
JWorounblabit)
MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 1980
Ríkisstjórnin frestar
ákvörðun í vaxtamálum
RÍKISSTJÓRNIN frestaði i >?ær
ákvörðunartöku um vaxtahreyt-
insar 1. september meðan vaxta-
málin verði endurskoðuð i heild í
samræmi við aðrar aðxerðir í
efnahatfsmálum.
Samkvæmt Ólafslögunum svo-
nefndu átti verðtryggingarmarki
vaxta að vera náð í lok ársins og
eru til þess tveir áfangar eftir; 1.
september og 1. desember. Við-
miðunarvextir eru nú 40,5% og
vantar þá 9,5% upp á 50% verð-
bólguspá Þjóðhagsstofnunar, sem
ríkisstjórnin segir ekki rétta við-
miðun, þar sem ekki sé gert ráð
fyrir neinum efnahagsaðgerðum
af hennar hálfu.
Efnahagsnefnd stjórnarinnar
leggur til, að viðmiðunarvextir
verði ekki hækkaðir 1. september,
en framsóknarmenn munu vilja
halda í Ólafsiög meðan alþýðu-
bandalagsmenn vilja hins vegar
vaxtalækkun. I tillögum efnahags-
nefndarinnar er fjallað um fleiri
atriði varðandi stefnu og aðgerðir
í vaxtamálum og mun því ákvörð-
un ríkisstjórnarinnar geta tafizt
meðan þau eru til meðferðar.
Sjá frétt um tillögur efna-
hagsmálanefndarinnar á bls. 2.
Þjófur gripinn
með aðstoð vitnis
LÖGREGLUNNI tókst í gær að
hafa upp á manni einum, sem stal i
fyrradag þremur úrum i verzlun-
inni _Úr og klukkur- að Laugavegi
47. Naut lögreglan ómetanlegrar
Ferskt hrossa-
kjöt selt til
Frakklands
f GÆRMORGUN voru flutt
utan með flugvél íscargo 1500
kiló af fersku hrossakjöti en
kjötið fer til Parísar. Hér er um
að ra'ða tilraun á vegum Bú-
vörudeildar SÍS og Hagsmuna-
samtaka hrossabamda en kaup-
andinn í Frakklandi er fransk-
ur kjötkaupmaður. Óvist er um
framhald á útflutningi hross-
kjöts héðan til Frakklands, þar
sem islenska kjötið þykir of
feitt.
Jóhann Steinsson hjá Búvöru-
deild SÍS sagði, að kjötið hefði
verið flutt til Rotterdam og
þaðan átti kælibíll að flytja það
til Parísar. Hann sagði, að áhugi
væri fyrir því hjá Frökkum að
kaupa meira af fersku hrossa-
kjöti héðan en ekki er markaður
þar fyrir fryst hrossakjöt. Verð-
ið gæti verið sæmilegt en fram-
haldið væri þó vafasamt vegna
þess hversu íslenska kjötið væri
feitt. Þannig hefði vegna þessa
útflutnings verið slátrað 20 full-
orðnum hrossum á Selfossi í
fyrradag og hefðu þau öll verið
sérstaklega valin með tilliti til
þess að kjöt af þeim væri ekki
feitt. Hins vegar hefði aðeins
verið unnt að senda út kjöt af 7
hrossum en miðað væri við að
fita á síðu væri innan við þrjá
sentimetra.
aðstoðar manns nokkurs, sem sá
þjófnaðinn og lagði mikið á sig til
að hann upplýstist. Telur lögreglan
frammistöðu mannsins lofsverða og
Oðrum til eftirbreytni.
Maður þessi ók í fyrradag eftir
Laugavegi. Veitti hann því athygli er
þjófurinn, sem staddur var í verzl-
uninni, teygði sig eftir úrunum og
stakk þeim á sig. Maðurinn stöðvaði
bifreið sína og elti þjófinn niður í
Austurstræti. Hann komst í síma og
gerði lögreglunni viðvart en missti
þá sjónar af þjófnum.
Maðurinn taldi sig hafa séð þjóf-
inn oft áður á gangi í miðbænum.
Var brugðið á það ráð í gær að
maðurinn fór með lögreglunni í ferð
um miðbæinn til að svipast um eftir
hinum grunaða. Sú ferð varð árang-
ursrík, því hann sást þar á gangi og
var gripinn snarlega. Viðurkenndi
hann brot sitt og komust úrin þrjú
til skila.
Eiríkur um borð í Ægi
EIRÍKUR Kristófersson skipherra, sem gat sér frægð í þorskastrfðinu 1958, lætur engan bilbug á sér
finna þótt orðinn sé 88 ára gamall. Landhelgisgæzlan bauð Eiríki með i yfirstandandi ferð
varðskipsins Ægis sem heiðursgesti og sést hann hér á brúarvængnum ásamt Bjarna Helgasyni
skipherra, er skipið kom inn til Húsavikur á mánudaginn. Eiríkur var um árabil skipherra á gamla
Ægi. Ljósm. Mbl. SÍKurður P. Bjornsson.
Ollum flugmönnum
Flugleiða sagt upp?
AÐAL erfiðleikar Flugleiða varð-
andi uppsagnir þeirra 400 starfs-
manna félagsins, er standa fyrir
dyrum miðað við 1. desember, eru
i sambandi fækkun flugmanna
féiagsins, sem nú cru liðlega 100.
Stéttar^élög flugmanna eru tvö
og þarf félagið að ákveða hvort
eingöngu verður sagt upp flug-
mönnum Félags Loftleiðaflug-
manna, sem flogið hafa á Amer-
ikuieiðinni, eða hvort starfsaldur
félaga FÍA og FLF á að ráða, en
yrði svo er iiklegt að hópur
félaga FÍA yrði stærri. Telja
sumir flugmenn jafnvei likicgt
að Flugleiðir segi upp öllum
flugmönnum sinum og endurráði
þann fjölda sem þarf og á þær
flugvélategundir sem notaðar
verða tii að sinna verkefnum
féiagsins i næstu framtíð.
Upplýsingar um hvernig upp-
sögnunum yrði háttað fengust
ekki hjá Flugleiðum í gær og
höfðu stéttarfélögin ekki heldur
fregnað neitt um þær. Kvað
Sveinn Sæmundsson blaðafulltrúi
Flugleiða líklegt að frá þessum
málum yrði skýrt á morgun, en
skýrt hefur verið frá að fyrir
dyrum standi uppsagnir um 200
innlendra starfsmanna félagsins
og jafnmargra erlendra. Kvað
Sveinn ljóst að m.a. yrði að loka
einhverjum skrifstofum félagsins
erlendis. Stéttarfélögin búa sig
undir að halda félagsfundi um
málin strax og uppsagnirnar hafa
verið ákveðnar.
Skólastjóradeilan í Grundarfirði:
Skólastjórinn verður á-
fram og kennarar einnig
Eiginkona skólastjórans lætur af störfum yfirkennara
SKÓLASTJÓRADEILAN í
Grundarfirði hefur nú verið
leyst. Aðalatriði samkomulags,
sem gert var í gær, er að Örn
Forberg verður áfram skóla-
stjóri, en eiginkona hans, Guðrún
Agústa Guðmundsdóttir, vikur
úr sæti yfirkennara fyrir Birgi
Guðmundssyni, sem gegndi þeirri
stöðu síðastliðinn vetur. Þá er
gefið fyrirheit um að skólahald i
vetur verði í sama anda og var í
fyrra, en þá telja kennarar að öll
stjórn skólans hafi verið betri en
áður var, það er áður en Örn
Forberg fór í ársleyfi.
Samkomulag þetta kemur í
kjölfar borgarafundar í Grundar-
firði, þar sem yfirgnæfandi meiri-
hluti nemenda við grunnskólann í
kauptúninu lýsti því yfir að þeir
óskuðu þess að reynt yrði að ná
sáttum í málinu. Aður höfðu
kennarar hótað að hætta störfum,
yrði Örn áfram við skólann, og
Ingvar Gíslason menntamálaráð-
herra hafði sagt að þá yrðu stöður
þeirra augiýstar lausar til um-
sóknar. Aðfinnslur þær, er kenn-
arar höfðu uppi um Örn Forberg,
voru þær, að hann væri ósam-
vinnuþýður og áhugalaus í starfi.
Menntamálaráðherra hafði sagt,
að ásakanir kennara á hendur
Erni væru svo léttvægar, að ekki
kæmi til greina að víkja honum úr
starfi þeirra vegna. Vegna þessar-
ar deilu sagði skólanefndin í
Grundarfirði einnig af sér.
í gærkvöldi tókst ekki að ná í
skólastjórann eða eiginkonu hans,
og ekki heldur Birgi Guðmundsson
yfirkennara. Garðar Eiríksson,
formaður skólanefndar þeirrar er
sagði af sér, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að hann vildi ekki
tjá sig um málið að svo komnu.
Verið gæti hins vegar að síðar yrði
það skýrt nánar, einkum hvað
varðaði þátt menntamálaráðherra
í því. Ingvar Gíslason mennta-
málaráðherra hafði þetta um mál-
ið að segja í gærkvöldi: — Ég er
mjög ánægður með þessi málalok
og að þeir skyldu hafa séð að sér
kennararnir og lauk málinu á
þann hátt sem ég hafði beðið um
að því lyki.
Þar sem samdráttur Flugleiða
verður mestur á leiðinni yfir
Norður-Atlantshaf telja félags-
menn FIA að uppsagnir flug-
manna eigi fyrst og fremst að
miða við þá flugmenn er starfað
hafa á DC—8 þotum og flogið hafa
á Ameríkuleiðinni og hyggjast
mótmæla, verði það sjónarmið
ekki látið ráða. Verði sameigin-
legur starfsaldur flugmannafélag-
anna beggja látinn ráða, koma
uppsagnirnar mest niður á yngstu
flugmönnunum, sem fljúga eink-
um Fokker vélunum. í stað þeirra
yrði að þjálfa nýja menn á Fokker
vélarnar, sem kosta myndi millj-
ónir. Ekki tókst að fá upplýsingar
um það hversu mörgum flugmönn-
um hugmyndin er að segja upp.
Flugmenn nefna milli 20 og 30 og
allt upp í 40 menn og telja
hugsanlegt að til að höggva á
hnútinn myndi öllum flugmönnum
verða sagt upp. Fulltrúar FLF
vildu ekki tjá sig um málið á þessu
stigi, en sem fyrr segir er búist við
að málin skýrist á morgun.