Morgunblaðið - 15.02.1981, Side 1

Morgunblaðið - 15.02.1981, Side 1
72 SIÐUR 38. tbl. 69. árg. SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 1981 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Simamynd-AP. Allt brann sem brunnið gat í næturklúbbnum og björgunarmenn fundu lík víðs vegar um húsið. Næturklúbbur í Dyflinni breyttist í logandi víti - að minnsta kosti 48 ungmenni biðu bana og 130 slösuðust Walesa á fundum Vnrejá, 14. (ebrúar. AP. LECH WALESA, leiðtogi óháðu verkalýðshreyfingarinnar i Pól- landi, ræddi i dag við fulltrúa rikisstjórnarinnar i von um að ná samkomulagi um ný verkalýðslög og útkljá deiluna um verkalýðs- hreyfingu bænda. Stúdentar í Lodz, Poznan, Bi- elsko-Biala, Varsjá og Kraká halda áfram rúmlega þriggja vikna mót- mælaverkfalli, þótt stjórnvöld hafi gengið að flestum kröfum þeirra um aukið sjálfstæði æðri mennta- stofnana og námsbækur. Nú er helzti ásteytingarsteinninn eins árs herskylda stúdenta, er var tekin upp fyrir tveimur árum. Stúd- entar hafa veitt frest til miðnættis til að gengið verði að kröfum þeirra. Fjöldamorð í Atlanta Atlanta, Georgiu. 13. (ebr. AP. LÍK blökkubarns hefur fundizt i úthverfi Atlanta og þar með hafa fundizt lik 16 svartra barna, sem hafa verið myrt i borginni á undan- förnum 19 mánuðum að sögn yfir- valda. Þar að auki er þriggja ungra blökkumanna saknað. Barnið virtist vera á aldrinum 10 til 14 ára. Litil hauskúpa hefur auk þess fundizt t Fulton County. Um 45 lögreglumenn voru sendir á vett- vang. í fyrradag skoruðu prestar í Atl- anta á safnaðarmeðlimi í borginni að fasta á hverjum miðvikudegi og biðja til guðs þangað til lögreglan hefði hendur í hári þeirra sem bæru ábyrgðina á morðunum. Jules Verne yfir Indlandi Nýju Dehll, 14. (ebrúar. AP. ÞEIR félagarnir Maxie Ander- son og Don Ida, sem fyrstir manna ætla að ferðast umhverf- is jörðina i loftbelg, sáust i morgun yfir Indlandi og var búist við að þeir myndu lenda skammt frá Nýju Dehli siðdegis I dag. Þeir félagar sögðu að leki hefði komið að loftbelgnum Jules Verne, en svo virðist sem þeim hefði tekist að vinna bug á þeim erfiðleikum. Tilræði við Kennedy-mann Washinirton, 14. (ebrúar. AP. HELZTA aðstoðarmanni Edward M. Kennedys oldungadeildar- manns, Richard E. Burke, hefur nokkrum sinnum verið hótað lifláti að undanförnu, brotizt hefur verið inn f fbúð hans og litlu munaði að kúla tilræðismanns hæfði hann i höfuðið, að sögn blaðsins Washing- ton Post í dag. FBI var falið að kanna málið, því að í einu hótunarbréfi til Kennedy- mannsins var einnig hótað að myrða Ronald Reagan forseta. Rannsókn málsins hefur staðið í hálfan mánuð, en ekkert leitt í ljós. Blaðiö segir, að Burke hafi ráðið í sína þjónustu leynilögreglumenn fyrirtækis, sem er undir stjórn Charles F. Vance, eiginmanns dóttur Gerald Fords fyrrverandi forseta, Susan, og njóti verndar allan sólar- hringinn. Dydlnni, 14. febrúar. AP. AÐ MINNSTA kosti 48 ung- menni biðu bana og 130 slösuðust þegar eldur kom upp i nætur- klúbbi i Dyflinni á írlandi i nótt. Af hinum 130 eru 30 hroðalega brennd og i lífshættu. Eldurinn kom upp i Stardust-næturklúbbn- um i norðurhluta borgarinnar um tvöleytið i nótt. „fcg sá blossa skammt frá sviðinu og eins og hendi væri veifað læstist eldurinn í sviðstjöld og svartur reykur barst um allt,“ sagði einn þeirra, sem komst lífs af úr hildarleikn- um. Gifurleg skelfing greip um sig, en um 700 ungmenni voru saman- komin í húsinu, en þar fór fram diskódanskeppni. Allt rafmagn fór af húsinu skömmu eftir að eldsins varð vart og jók það á ringulreið- ina. Fæstir vissu hvert halda skyldi. Fólk þreifaði sig áfram í myrkrinu og að sögn sjónarvotta, þá gengu sumir inn í eldhafið og biðu bana. Þá tróðust margir undir þegar fólk þusti í átt til dyra. Fólk reyndi að komast út um glugga, en stálrimlar voru fyrir þeim og neyðarútgönguhurðir voru lokað- ar. „Ég sá mann reyna að rífa stálrimla frá glugga með berum hnúum. Hendur hans voru alblóð- ugar, en hann réðst ótrauður að rimlunum þar til hann hneig niður. Kæfandi reykurinn yfirbug- aði hann,“ sagði einn sjónarvotta. Slökkviliðsmenn fundu sex lík við einn gluggann og var greinilegt, að ungmennin höfðu leitað út- gangs þar. Logandi eldtungur náðu til margra. „Ég sá stúlku og allt hár hennar var brunnið, svo og andlit. Hún hlýtur að vera dáin,“ sagði einn gestanna. „Við innganginn mætti ég ungmenni. Andlit hans var skaðbrunnið. Hann var óþekkjanlegur. Það var skelfilegt," sagði einn slökkviliðsmanna. Næturklúbburinn var til húsa í gömlu vöruhúsi. Orðrómur barst út að um íkveikju hefði verið að ræða, en lögreglan sagðist ekkert hafa í höndunum, sem benti til þess, en málið er í rannsókn. Allar líkgeymslur Dyflinnar yfirfylltust og þar mátti sjá örvæntingarfulla foreldra leita barna sinna, en jafnframt biðjandi þess, að finna þau ekki. „Þetta er hræðilegt. Fólk er vitstola og biður þess, að finna ekki dóttur sína eða son,“ sagði lögreglumaður á vakt í einu lík- húsinu. Flestir þeirra sem biðu bana, voru á aldrinum 17 ára til um og yfir tvítugs. í fyrstu var talið, að 56 ungmenni hefðu beðið bana, en lögreglan lækkaði töluna í morgun í 48. „Líkin voru svo mörg og ringulreiðin svo mikil, að erfiðleikum var bundið að fá rétta tölu,“ sagði yfirmaður í lögregl- unni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.