Morgunblaðið - 15.02.1981, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 15.02.1981, Qupperneq 3
3 Loðnuveiði á 2 svæðum ÁTTA loðnuskip eiga nú eftir að fylla upp í kvóta sinn á þessari vertíð, en aðeins er eftir að veiða um 16 þúsund lestir. Siðastliðna nótt fengu nokkur skip ágætan afla á tveimur veiðisvæðum, ann- ars vegar um 10 milur austur af Langanesi og hins vegar á Hval- bakssvæðinu, og var um 9 tima stim á milli veiðisvæðanna. Fimm skip höfðu tilkynnt Loðnunefnd um afla fyrir hádegi i gær og héldu 3 þeirra tii Eskifjarðar, 1 til Seyðisfjarðar og 1 hélt heim- leiðis til Vestmannaeyja. Eftirtalin skip tilkynntu um afla: Helga Guðmundsdóttir 650, Svanur 570, Kap II 500, Guðmund- ur 500, Sæberg 300. Lubbi talinn af „NEI, LUBBI hefur ekki komið fram enn, við erum helzt á þeirri skoðun, að hann hafi lagzt undir snjóinn. sennilega til að deyja. Hann var orðinn anzi gamall, á sextánda ári, og farinn að verða heilsuveill,“ sagði Auð- ur Laxness, kona skáldsins, er Morgunblaðið spurðist fyrir um Lubba. „Við höfum verið á eilífum þeytingi undanfarna viku við að skoða hunda, sem við höf- um fengið ábendingar um, en allt hefur komið fyrir ekki, Lubbi hefur ekki fundizt og við teljum hann nú af. En það er alveg ótrúlegt hvað hundar eiga marga vini meðal mann- fólksins, það höfum við fengið að reyna að undanförnu og við erum þakklát öllu því fólki, sem hefur gefið okkur ábend- ingar," sagði Auður. Hafið þið hugsað ykkur að fá nýjan hund? „Nei, Lubbi kom hér fyrst fyrir tilviljun, stelpurnar komu með hann heim sem hvolp og björguðu honum þannig frá lífláti. Hann ílengdist síðan hjá okkur og við höfðum af honum mikla ánægju, en um nýjan Lubba verður aldrei að ræða." Seinni lands- leikurinn er í kvöld SEINNI landsleikur íslendinga og A-Þjóðverja i handknattleik fer fram i Laugardalshöllinni i kvöld, sunnudag og hefst klukk- an 20. Þjóðverjarnir unnu fyrri leikinn 18—16 eftir jafna og spennandi viðureign. Hilmar Björnsson landsliðs- þjálfari tjáði Mbl. í gærmorgun að hann væri ekki búinn að velja liðið fyrir leikinn í kvöld. Hann sagði liðið yrði byggt upp á sömu leikmönnum og léku fyrri leikinn en þó yrðu hugsanlega gerðar 2—3 breytingar. Fáir lögðu inn fyrsta daginn ENN ER lítið um það að fólk hafi lagt fé inn á hina nýju verð- tryggðu sparifjárreikninga hankanna, sem nú verða aðeins bundnir til 6 mánaða. Er Morg- unblaðið hafði i gær samband við nokkra banka, kom i ljós, að fólk virtist vera fremur hikandi við það vegna ónógra upplýsinga og flókinna auglýsinga. í Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis höfðu innan við 10 slíkir reikningar verið opnaðir, í aðalbanka Landsbankans og Verzlunarbankans höfðu á milli 20 og 30 reikningar verið opnaðir. MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 1981 Golf, Skotlandi Útsýn efnir til hópferöar til Skotlands fyrir golfáhugamenn 8. maí nk. í 2 vikur. Gisting á Pond Hotel, Glasgow. Sam- iö hefur veriö um sérstakt „greenfee“ fyrir þátttakendur. Utsýn mun gangast fyrir golfkeppni 16. maí í Dunblane. Verö frá kr. 6.100,- m/hálfu fæöi og akstri á golfvelli. %»: ,. „„ ■■■<*.*» yt ■'*„ . SKIÐAFERÐIR til Akureyrar og Húsavíkur Ódýrar helgarferdir Brottför alla föstudaga. Verö frá kr. 549.-. Feróaskrifstofan UTSÝN Muniö Valentínshátíö Útsýnar Hótel Sögu í kvöld, — skemmtun í sérflokki — JMarbella. — staður hinna vandlátu Marbella er einn glæsilegasti baðstaðurinn á suðurströnd Spánar — Costa del Sol — og eftirlætis dvalarstaður þeirra, sem gera kröfur um góðan aðbúnað. Útsýn býður nú viðskiptavinum sínum, í fyrsta sinn, ferðir á þennan fræga tískubaðstað og að venju býður Útsýn beztu gististaðina: Glæsilegt íbúðahótel í fögrum garði um 5 mín. gang frá miðborg Marbella, sem stendur andspænis hinu fræga hóteli Don Pepe. Vel búnar, rúmgóðar íbúðir, góð sólbaðsaðstaða, sundlaug, matsölustaður o.fl. — Verð frá kr. 4.680.-. Sjón er sögu ríkari — PANTIO RÉTTU F£RO(NA TIMANLEGA — Hótel Andalucia Plaza Mjög gott fjögurra stjörnu hótel, innréttað í andalusískum stíl. Góð herbergi, inni- og útisund- laug, tveir matsölustaðir, barir og setustofur. Verð frá kr. 6.330.- m/hálfu fæði. Marbella Club Hotel — Puente Romano Eitt glæsilegasta hótel Spánar, með öllum hugsanlegum þægind- um, fyrir þá allra vandlátustu. Verð frá kr. 8.310.-m/morgun- verði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.