Morgunblaðið - 15.02.1981, Síða 5

Morgunblaðið - 15.02.1981, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 1981 5 Sjónvarp kl. 21.45: Sveitaaðallinn Á dagskrá sjónvarps kl. nýjum breskum framhalds- 21.45 er fyrsti þáttur af átta í myndaflokki, sem nefnist Jón Ásgeirsson tónskáld Sjónvarp kl. 21.05: Tónlistar- maðurinn Jón Ásgeirsson Á dagskrá sjónvarps kl. 21.05 er þátturinn Tónlist- armenn. Að þessu sinni verður kynntur Jón Ás- geirsson tónskáld. Egill Friðleifsson ræðir við Jón, en auk þeirra koma fram í þættinum: Ilamrahlíðar- kórinn, stjórnandi: Þor- gerður Ingólfsdóttir, Helga Ingólfsdóttir, ís- lenski blásarakvintettinn, Sigríður Ella Magnúsdótt- ir, Ólafur Vignir Alberts- son, Kór Langholtskirkju, stjórnandi: Jón Stefáns- son. Jón Ásgeirsson er fædd- ur á ísafirði 11. október 1928. Hann lærði píanóleik og tónsmíði við Tónlist- arskólann í Reykjavík og í einkatímum hjá dr. Victor Urbancic. Stundaði hann framhaldsnám í Glasgow og London eftir lokapróf í tónsmíði frá Tónlistarskól- anum 1955. Þá var hann um skeið stjórnandi Lúðra- sveitar Hafnarfjarðar og Lúðrasveitar verkalýðsins, Liljukórsins og Fílharm- oníu. Þá hefur Jón stundað kennslustörf, m.a. í Siglu- firði og á Neskaupstað, við barnaskólann í Hafnar- firði, frá 1962 við Kennara- skólann og síðar Kennara- háskólann, og loks við Tónlistarskólann og Söngskólann. Jón hefur starfað að tónsmíðum í frístundum og sumarfríum og skrifað tónlistargagn- rýni í Morgunblaðið. Helstu tónverk Jóns Ás- geirssonar eru óperan Þrymskviða, sem flutt var í Þjóðleikhúsinu 1974, og Blindisleikur, sem frum- fluttur var í Þjóðleikhúsinu fyrir síðastliðin áramót. Áuk þess hefur Jón samið hljómsveitarverk, sönglög og kórverk. stuttar og einstaklega ódýrar hópferðir páskaferð til ævintýraeyjarinnar í Miðjarðarnafinu Brottför 12. apríl. Heimkoma 28. apríl. Einstaklega glæsileg páskaferð til hinnar friðsælu og undurfögru ævintýraeyjar, Möltu. Gisting í stórkostlegum sumar- húsum við Mellieha Holiday Center, aðeins steinsnar frá vinsælustu bað- strönd eyjarskeggja. Helgarferð til London Við lengjum helgina með hinum sívinsælu fjögurra daga ferðum til London. Gisting á Royal Scott - vel þekktu og vinsælu hóteli meðal íslenskra Lundúnafarþega. Arsenal -Birminghamá knattspyrnuvellinum þann 14. mars og verslanir, veitingahús, leikhús, skemmtistaðir o.m,fl. að sjálfsögðu opið alla daga. Við útvegum miðana - þú greiðirí íslenskum peningum Brottför 13. mars Heimkoma 16. mars Verð aðeins kr. 2.413 Gagnkvæmt leiguflug lækkar fargjaldið Innifalið i verði: Flug, gisting með morgunverði, akstur til og frá flugvelli erlendis, íslensk farar stjórn ög 1/2 dags skoðunarferð um borgina. Liverpool - West Ham Úrslitaleikurinn i deildarbikamum á Wembley 14. mars. Verð aðeins kr. 5.597 miðað við fjóra íbúa i hverju húsi. Barnaafsláttur. Innifalið i veröi: Flug, gisting á Möltu í 14 nætur, gisting í Kaupmannahöfn í 2 nætur og akstur til og frá flugvelli erlendis. Páskaferð til Irlands Hin árlega páskaferð til Dublin, sem notið hefur mikilla vinsælda undanfarin ár, er framundan á ný. Gist er á Hótel Burlington - öndvegis hótel í hjarta borgarinnar. Brottför 15. apríl Heimkoma 20. apríl Aðeins einn vinnudagur tapast! Verð aöeins kr 2.890 Gagnkvæmt ieiguflug lækkar fargjaldið Innifalið i verði: Flug, gisting með höfðinglegum írskum morgunverði, flutningurtil og fráflugvelli erlendis og íslensk fararstjórn. Páskaferð til Luleá (Svíþjóð) Brottför 16. apríl Heimkoma 23. apríl Gagnkvæmt leiguflug - ótrúlega hagstætt verð * Áætlað verð miðað við gistingu i tveggja manna herbergjum Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 Sveitaaðallinn (Love in a Cold Climate). Leikstjóri er Donald McWinny. Þýðandi er Rannveig Tryggvadóttir. Myndaflokkurinn byggist á tveimur metsölubókum eftir Nancy Mitford, The Pursuit of Love og Love in a Cold Climate - nýr breskur framhalds- myndaflokkur sem út komu fyrir um 30 árum. Sagan gerist á árunum 1924—’41 og lýsir lífi tveggja fagurra enskra aðalsmeyja og fjölskyldna þeirra á síðustu glæsiárum breska aðalsins. Þar skiptast á skin og skúrir og sagan endar í skugga síðari heimsstyrj aldarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.