Morgunblaðið - 15.02.1981, Page 15

Morgunblaðið - 15.02.1981, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 1981 15 Vortískan frá París: UM ÞESSA helgi, eða 15. febrú- ar, birtast í blöðum í 35 löndum í fimm heimsálfum myndir frá vor- sýningu Haute Coiffure Fran- caise, þeim félagsskap hár- greiðslufólks, sem stendur að nýsköpun hártískunnar tvisvar sinnum á ári. Meðlimir frá þess- um 35 löndum komu til Parísar og horfðu 1. og 2. febrúar á nýju tízkulínuna á sýningu í sýningar- salnum við Port Maillot, og mega síðan opinbera og birta tízku- greiðsluna nýju frá 15. febrúar. Þeir tveir íslenzku hárgreiðslu- meistarar, sem sóttu sýninguna að þessu sinni, Elsa Haraldsdóttir og Guðbjörn Sævar, lögðu nú í vikunni hárið á þessum sýn- ingarstúlkum, sem hér sjást á myndinni, samkvæmt því sem þau sáu þarna og ljósmyndari Mbl. tók myndir. Elsa sagði, að hárið væri sam- kvæmt þessari tísku enn að stytt- ast. Og það hefði sem fyrr létt permanent og strípur. En áber- andi væri hve mikil hæð væri höfð í hárgreiðslunni uppi á höfð- inu, og hárið því túperað. Ef hárið væri sítt, þá mætti taka það í lítið tagl eða láta liggja frjálst með litlu permanenti. En mjög lítið hefði verið um sítt hár á sýning- unni. Línan, sem nú er valin, er kölluð Barner, kennd við skemmtikraftana sem einu sinni voru svo frægir, Barner og Bailey. í rauninni er þarna um tvenns konar úrvinnslu greiðslunnar að ræða, en stutt hár í báðum. Önnur línan er sportlegri og kannski meira ætluð ungu stúlkunum og sú er í aðeins síðara hár. Hin er styttri, allt hárið stutt, og hærri uppi á höfðinu. Klippingin enn aðalatriðið. Og ættu myndirnar hér á síðunni að skýra það. - Hártízkan var sýnd með fata- tízkusýningu frá tveimur fyrir- tækjum, Loris Azzago, sem var með mikið af pífum á fatnaðinum og Bernard Perrio, sem sýndi hvít föt, sem lítt henta fyrir íslenzkar aðstæður. Enda sagði Elsa þennan fatnað í allt öðrum stíl en mest sést í fatabúðum í París nú. Það er áberandi mikið af Bermúda- buxum, þ.e. hnésíðum buxum. Gul- ur litur virðist vinsælastur, auk appelsínuguls.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.