Morgunblaðið - 15.02.1981, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 15.02.1981, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 1981 Rán - nýr veit ingastaður „VIÐ höíum skírt staðinn upp að nýju. í stað Skrínunn- ar nefnum við veitingastað- inn Rán, sem var sjávargyðj- an og kona Ægis. Og því er, að þegar gestir okkar ganga inn, þá koma þeir í brúna. Aðrar innréttingar eru með svipuðu sniði,“ sagði ómar Hallsson, eigandi veitinga- staðarins Ránar ásamt Rut Ragnarsdóttur í stuttu spjalli. „Við leggjum áherzlu á góða þjónustu en jafnframt ódýran mat, þannig að hinn almenni borgari geti farið út að borða án þess mjög að koma við pyngjuna. Því reynum við að stilla verði rétta mjög í hóf, en við erum með mun ódýrari Eigendur veitingastaðarins Ránar, hjónin Rut Ragnarsdóttir og Ómar Hallsson í brúnni. Mynd Mbl. Kristján. rétti en sambærilegir staðir með sambærilega þjónustu. Það er „franskur stíll“ yfir maðseðli okkar en kokkur hússins er franskur, Paul Eric Calmon. Á maðseðlinum eru 50 réttir. Margir hverjir sem ekki eru annars staðar á boðstólum. Við leggjum áherzlu á nýjungar á matseðl- inum,“ sagði Ómar. í Rán eru létt vín og sterk á boðstólum, leikið er á orgel fyrir gesti í hádeginu, kaffinu og á kvöldin fimm daga vikunnar. Og að sögn Ómars þá mun í lok mánaðarins verða frönsk vika í Rán. Síðar stendur til að halda ítalska viku og einnig kínverska. 11 vióskiptamann banka og sparisjóóa Spariinnlán skiptast nú í þrjá aðalf lokka Verðtryggð innlán Innlán meö verötryggingu, miðað við breytingar á lánskjaravísitölu, auk 1% ársvaxta. Hver reikningur hefur aðeins tvo útborgunar- mánuði á ári, þannig að á sex mánaða fresti, talið frá næstu mánaðamótum eftirstofnun reiknings, verður unnt að taka út fjárhæð, sem staðið hefur í fulla sex mánuði ásamt verðbótum. Seinni inn- borganir eftir stofnun reiknings verða bundnar út yfirstandandi 6 mánaða tímabil og til loka þess næsta þar á eftir. Eigandi getur flutt úttektar- heimild reikningsins yfir á aðra almanaksmánuði með minnst sex mánaða fyrirvara. Vilji eigandi sparifjár eiga kost á að losa það oftar þarf hann að stofna til nýrra reikninga. Verðbætur og vextir reiknast á óhreyfða stöðu milli mánaðamóta, en um inn- og útborganir gilda innan mánaðar sérstakar verðbætur, sem nú eru hinar sömu og heildarvextir 12 mánaða vaxtaaukareikninga. Binditími tveggja ára verðtryggðra reikninga er stofnaðir hafa verið frá 1. júlí 1980 styttist í 6 mánuði og falla þeir sjálfkrafa undir þennan flokk. Frá 1. apríl n. k. er viðskiptamönnum heimilt að flytja innstæður úr 12 mánaða vaxtaaukareikningum 6 mánaða bókum 12 mánaða bókum og 10 ára bókum inn á nýju 6 mánaða verðtryggðu innlánin með bindingu frá flutningsdegi. Vaxtaaukareikningar ' Innstæður með 3j mánaða uppsögn Vextir alls á ári 40,5% Innstæður með 12 mánaða uppsögn 46 % Vextir færðir um áramót og þá lausir í 12 mánuði. Sparisjóðsbækur Almennar bækur, innstæða laus án fyrirvara. 35 % Sparisjóðsbækur með 6 mánaða uppsagnarfresti. 36 % Sparisjóðsbækur með 12 mánaða uppsagnarfresti. 37,5% Nánari upplýsingar um innláns- og útlánskjör eru veittar í bönkum og sparisjóðum. 13. febrúar 1981. ^ Samvinnunefnd banka og sparisjóóa

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.