Morgunblaðið - 15.02.1981, Side 20

Morgunblaðið - 15.02.1981, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 1981 Grafík og málverk Edvards Munch Síöasta verk fráfarandi for- stjóra Norræna hússins, Eriks Sönderholrh, varðandi kynn- ingu norrænnar myndlistar, var að fá hingað dálítið sýnis- horn á verkum norska snill- ingsins Edvard Munch. Jafn- framt bauð hann forstjóra Munchs-safnsins í Osló, Alf Böe, að halda fyrirlestur um list jöfursins í Norræna hús- inu. Fyrirlesturinn var fjöl- sóttur, enda var hér um stór- merkan og óvenjulegan viðburð að ræða og með fyrirlestrinum var sýndur fjöldi litskyggna. Forveri Alf Böe í starfi, dr. Ragna Stang, átti raunar að halda slíkan fyrirlestur fyrir rúmum tveimur árum en úr honum varð ekki af skiljan- legum ástæðum, þar sem Ragna lést í bílslysi í Mombasa í Afríku 10 dögum áður. Hún var þar í heimsókn hjá dóttur sinni, sem um árabil hafði unnið þar að líknarstörfum og hlaut hún einnig sitt skapa- Alf Böe forstjóri Munch-safnsins í Osló er hér var á dógunum og hélt fyrirlestur um list Edward Munchs. eftir að vinátta þeirra beið skipbrot. Vigeland gerði, að sögn, ágæta brjóstmynd af Munch á yngri árum, en eyði- lagði hana í reiðikasti að því sagt er. Eg hef verið svo lánsamur að kynnast báðum fyrrnefndum forstjórum Munch-safnsins og Rögnu þekkti ég vel og hafði þekkt í 10 ár er hún lézt. Eftir hana liggur glæsilegasta bók sem gefin hefur verið út um list Munchs, sem kom út árið 1977 og hefur þegar verið þýdd á fjölda tungumála. Hún er meðal dýrgripanna í safni mínu af listaverkabókum og fagurlega árituð af höfundin- um. Ragna var listsagnfræð- ingur að mennt með endur- reisnartímabilið sem sérgrein. Það eru mikil býsn og undur hve Edvard Much er almennt lítt þekktur hérlendis miðað við þá gífurlegu þýðingu sem hann hafði á þróun málaralist- arinnar í Evrópu, auk þess sem hann umbylti grafík-tækninni og hóf listgreinina til vegs og virðingar á Norðurlöndum og miklu víðar. „Mannshöfuð umvafið konuhári" (1896). dægur í hinu hörmulega bíl- slys. Þar misstu frændur vorir Norðmenn tvær mikilhæfar konur. Að vera forstjóri Munch- safnsins er mikið starf og vandasamt, því að auk mikilla umsvifa á heimavettvangi, fylgir því einnig, að vera á faraldsfæti um allan heim í sambandi við opnanir og skipu- lagningu sýninga á verkum Munch. Sagði Alf Böe undirrit- uðum á góðri kvöldstund á heimili mínu, að sér teldist að hann væri á ferð 70—80 daga á ári hverju í þessu augnamiði. Afl Böe er listsagnfræðingur að mennt með listiðnað sem sérgrein, og hefur hann verið forstjóri safnsins síöan um áramótin 1976—’77. Hann nam listasögu, ensku og sögu í Bergen, Osló og Oxford. Auk Munch-safnsins hefur hann einnig með safn myndhöggvar- ans Gustav Vigelands að gera. Dálítið furðulegt því að Munch og Vigeland voru litlir vinir um dagana og töluðust ekki við Edvard Munch virðist vera furðu nálægur okkur í tíman- um og þó var hann jafnaldri Toulouse Lautrec, 16 árum eldri en Paul Klee og átján árum eldri en Picasso. A fyrstu Listahátið Reykjavíkur var mikil sýning á verkum hans í nýbyggingu Iðnskólans og var það tvímælalaust merkasti við- burður hennar og sá er lengst mun lifa í minnum fjölmargra. Þetta voru eingöngu grafík- verk en slík úrvalsverk að áhöld munu vera um að önnur slík sýning rekist hingað í bráð og lengd. Á þeim rúmu tíu árum sem liðin eru, hefur frægð Munchs nefnilega aukist á þá veru að langur biðlisti mun vera um sýningar á verk- um hans í virtustu söfnum heims. I Japan er frægð hans slík, að langar biðraðir eru fyrir utan sýningarhallir er hýsa verk hans og þeir hafa gefið út stærstu og veglegustu bækur með litmyndum á yerk- um hans sem ég hefi augum litið. Verð á verkum Munchs hefur hlaupið upp úr öllu valdi,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.