Morgunblaðið - 15.02.1981, Page 21

Morgunblaðið - 15.02.1981, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 1981 21 svo sem marka má af málverki hans „Stúlkurnar á brúnni" er seldist á einn og hálfan millj- arð gamalla króna á uppboði í lok síðasta árs. Þessu fylgir að vátrygging verka hans, sem lánaðar eru á sýningar erlendis hefur hækkað eftir því og þori ég ekki að giska á þá voðaupp- hæð sem viðlíka sýning og sú í Iðnskólanum kæmi til með að verða í dag. Þótt sýningin í göngum og bókasafni Norræna hússins komist ekki í hálfkvisti við Iðnskólasýninguna gefur hún þó góða hugmynd um umfang grafíklistar hans. Málverkin í myndröðinni „Ævintýraskóg- urinn", gefur hins vegar litla hugmynd um stærð hans sem málara og þó er merkilegt að fá þau hingað því þau opinbera vissa hlið á myndsýn hans. Eiginlega var þeim uppruna- lega ætla að skreyta barnaher- bergi velunnara hans og stuðn- ingsmanns dr. Max Linde í Ltibeck en þau komu þó aldrei til að gera það. Sagan segir annars, að dr. Linde hafi verið logandi hræddur um að Munch myndi einungis mála myndir af nöktum konum, sem hann gerði mikið af á þeim tíma! Myndlisl eftir BRAGA ÁSGEIRSSON Margar grafík-myndirnar eru heimsfræg öndvegisverk en þær njóta sín ekki sem skyldi í þröngum göngum Norræna hússins, hefði verið æskilegt að koma þeim fyrir í kjallarasöl- unum og þá í afmörkuðu en hnitmiðuðu rými. Það er vissu- lega undarleg tilfinning að ganga fram hjá þessum mynd- um í göngum og hugsa til þess að sumar þeirra, þ.e. eintök af þeim sem föl eru á frjálsum markaði seljast á því sem svarar 55.000 enskum pundum. Eg ritaði langa grein um grafík Edvards Munch í sam- bandi við fyrrnefnda listhátíð- arsýningu ( 5. júlí 1970) og bendi fróðleiksfúsum að nálg- ast hana vilji þeir fá ítarlegri upplýsingar, hér tel ég óþarfa að vera að koma með endur- tekningar. Það sem meginmáli skiptir með þessari sýningu, er að hún veki athygli og áhuga almenn- ings á myndum þessa mikla málara, sem mikinn hluta lífs síns var vanmetinn af löndum sínum og reyndar ofsóttur á yngri árum. Aldrei hef ég lesið heiftarlegri árásir á verk eins myndlistarmanns og í norskum blöðum frá því í lok síðustu aldar. Til samanburðar tel ég árásirnar á Septembersýn- ingarnar íslenzku hér forðum, blíðuhót ein! Edvard Much, August Strindberg og Henrik Ibsen urðu til þess með Iist sinni, að sú ramma setning varð fleyg á meginlandinu „ljósið kemur úr norðrinu14. Ég býst við að flestir skilji hvað átt er við og til gamans skal það upplýst að frægar myndir af Ibsen og Strindberg prýða sýninguna í Norræna húsinu. Skyldi það svo ekki vera samviskuspurning hvers og eins, hvort hann hafi efni á að láta þennan listviðburð fram hjá sér fara ... Hrein sýndarmennska af hálfu Alþýðubandalagsins - segir Davíð Oddsson um viðræður við fóstrur um kjör þeirra „ÞAÐ ER greinilegt að umræð- urnar um þetta mál í horgarstjórn og tillöguflutningur um málið eru hrein sýndarmennska af hálfu Alþýðubandalagsins. engin alvara var þar að baki.“ sagði Davíð Oddsson, borgarfulltrúi i samtali við Morgunblaðið í gær. En á fundi borgarráðs i gær lögðu þeir Albert Guðmundsson og Davíð Oddsson fram eftirfarandi fyrir- spurn: „Að tilhlutan talsmanns Alþýðu- bandalagsins í félgsmálum sam- þykkti borgarstjórn á síðasta fundi sínum að taka upp að nýju viðræð- ur um kjaramál fóstra. Spurt er: 1. Hafa þessar viðræður átt sér stað? 2. Hvaða tillögur hefur Alþýðu- bandalagið fram að færa í sam- bandi við þær viðræður? 3. Stendur til í framhaldi af þess- ari samþykkt að opna á ný almenn- ar viðræður milli launamálanefnd- ar og STRV vegna annarra starfs- hópa?“ Sem svar við þessari fyrirspurn kom eftirfarandi bókun frá Björg- vin Guðmundssyni, borgarfulltrúa Alþýðuflokksins: „Ég hefi þegar átt viðræður við formann Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar um kjaramál Reykjavíkurborgar almennt og þar á meðal um kjaramál fóstra. í þeim viðræðum var það meðal annars rætt, hvaða afleiðingar það hefði fyrir kjarasamning Reykjavíkur- borgar og starfsmannafélagsins ef kjörum fóstra yrði breytt. Fundur verður í launamálanefnd Reykja- víkurborgar mánudaginn 16. febrú- ar. Þar verður rætt um framan- greind mál og þar á meðal það atriði, sem spurt er um í 3. lið fyrirspurnar borgarráðsmanna Sjálfstæðisflokksins." Sigurjón Pétursson borgarfull- trúi og oddviti Alþýðubandalags- ins, óskaði einnig að gera bókun um málið, og er hún svohljóðandi: „Vegna fyrirspurnar Davíðs Oddssonar og Alberts Guðmunds- sonar um samþykkt borgarstjórnar um viðræður við fóstrur er rétt að taka eftirfarandi fram: 1. Tillagan var samþykkt í borgar- stjórn með atkvæðum allra borg- arfulltrúa og verður að vænta þess að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafi haft einhverjar hugmyndir um hvað þeir voru að samþykkja. 2. Alþýðubandalagið mun beita sér í þessum viðræðum fyrir því að finna viðunandi lausn á kjaramál- um fóstra í þeirri von að takast megi að koma i veg fyrir lokun dagvistunarstofnana. 3. Að mínu áliti eiga þessar við- ræður ekki að leiða til nýrra allsherjarsamninga við STFR.“ Sem fyrr segir taldi Davíð Oddsson í samtali við Morgunblað- ið í gær, að þessi viðbrögð og fyrrnefndar bókanir bæru þess vott að um hreina sýndarmennsku hefði verið að ræða af hálfu Alþýðu- bandalagsins, er samþykkt var að taka upp á nýjan leik viðræður við fóstrur um kjör þeirra. baðinnréttingar í öllum málum og gerðum *Y Eigum fyrirliggjandi sturtuklefa og hurðir fyrir sturtubotna og baðkör. Ofnþurrkaður furupan- ill á lager til afgreiðslu strax. BS Tréval hf. ~=sa Nýbýlavegi 4, Kópavogi, sími 40800. Góðir greiðsluskilmálar og stuttur afgreiðslufrestur. Heimsækift okkur í sýningasal okkar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.