Morgunblaðið - 15.02.1981, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 15.02.1981, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 1981 Minning: Sveinn B. Val- fells iðnrekandi Fæddur 26. september 1902. Dáinn 6. febrúar 1981. Það var haustið 1929 sem fund- um okkar Sveins B. Valfells bar fyrst saman. Við vorum samskipa með e/s Lyru. Hann var á leið til Englands til þess að kaupa inn vörur fyrir heildverslun Garðars Gíslasonar en ég var í minni fyrstu utanlandsferð á leið til Noregs. Þótt samfylgdin yrði stutt að því sinni, Sveinn fór frá borði í Þórshöfn, var ferðin til Færeyja með gömlu Lyru í stormi og stórsjó til þess að mynda traustan kunningskap sem entist alla tíð. Síðar þegar leiðir okkar lágu saman í starfi og félagsskap var gott að minnast fyrstu kynna frá eftirminnilegri sjóferð. Sveinn var Mýramaður, fæddur á Grenjum í Alftaneshreppi, 26. september 1902. Foreldrar hans voru Bjarnþór Bjarnason bóndi þar og kona hans Sesselja Níels- dóttir. Fékk hann leyfi til að bera ættarnafnið Valfells árið 1925. Sveinn brautskráðist úr Verzlun- arskóla Islands 1921. Hann var ágætur nemandi í skóla og greind- ur vel, en mest lærði hann í skóla lífsins. Má segja að hann hafi verið sjálfmenntaður hagfræðing- ur sem hafði glöggan skilning á efnahags- og fjármálum. Sveinn var fjölfróður, víðlesinn og vel minnugur á það sem hann las og heyrði. Ungur að árum, aðeins 14 ára að aldri, byrjaði Sveinn verslunar- störf í Borgarnesi hjá Jóni Björns- syni frá Bæ. Fór hann þaðan 1920 til Reykjavíkur og vann hjá heild- verslun Garðars Gíslasonar í full- an áratug. í ársbyrjun 1932 stofn- aði hann Vinnufatagerð íslands hf. og var forstjóri hennar og meðeigandi frá upphafi. Var Vinnufatagerðin traust og gott fyrirtæki undir stjórn hans. Sveinn var mikill áhugamaður um almennar framfarir í landinu. Á stríðsárunum rofnuðu við- skiptasambönd við Evrópu. Fór Sveinn þá til Bandaríkjanna á vegum Félags vefnaðarvöruinn- flytjenda og var þar á árunum 1942—1946. Hafði hann aðsetur í New York en ferðaðist víða um Bandaríkin í því skyni að útvega viðskiptasambönd. Sveinn var duglegur og glöggur kaupsýslu- maður og náði oft betri viðskipta- kjörum en almennt gerðist. Hann var athafnarmaður og efnaðist vegna ráðdeildar og hygginda. Hann átti sæti í stjórnum ýmissa hlutafélaga og var ávallt tillögu- góður og áhrifamikill, hvar sem hann kom við sögu. Sveinn var formaður Félags íslenskra iðnrek- enda í mörg ár, formaður banka- ráðs Iðnaðarbanka íslands var hann um margra ára skeið, for- maður stjórnar Iðngarða hf. var hann frá stofnun 1962. í bygg- ingarnefnd sýningar- og íþrótta- húss í Laugardal var hann og í Stóriðjunefnd á viðreisnarárun- um, þegar grundvöllur var lagður að víðtækri endurreisn atvinnu- lífsins og bættum lífskjörum fyrir almenning með stórvirkjunum, stóriðju og öðrum víðtækum fram- förum í iðnaði og öðrum atvinnu- greinum í landinu. Sveinn var rökvís og gerði sér fulla grein fyrir því að ísland er gott land með miklum möguleikum til arð- gefandi atvinnureksturs og góðrar lífsafkomu fyrir landsmenn alla. Hann vildi nýta auðlindir landsins á skynsamlegan hátt, til hagsæld- ar fyrir þjóðina í nútíð og fyrir komandi tíma. Sveinn hafði góða hæfileika og var heilsugóður til síðustu ára. Hann var fátækur af reiðufé þegar hann hóf göngu sína út í lífið, en því ríkrai af hugsjónum, dugnaði og hugmyndum um fram- farir og batnandi tíma þjóðinni til handa. Sveinn vann oft langan vinnudag og afkastaði miklu, en gætti ávallt hagsýni i ákvörðunum og athöfnum. Hann fylgdist vel með í landsmálum og hafði mik- inn áhuga fyrir þjóðarhag. Hann taldi ekki síður þörf á því að gæta hagsýni í opinberum rekstri og framkvæmdum ríkisins en hjá einstaklingum eða einkafyrirtækj- um. Sveinn ávann sér traust og virðingu samferðamannanna og sérstaklega þeirra sem kynntust honum vel. Hann var aðalræðis- maður fyrir Tyrkland og var sæmdur ýmsum heiðursmerkjum, innlendum og erlendum. Sveinn taldi það sína mestu gæfu að hafa eignast góða konu, heimili og efnileg börn. Hann giftist árið 1932 Helgu Ágústs- dóttur prófessors H. Bjarnasonar. Helga var góð kona, glæsileg og vel að sér. Hún dó fyrir nokkrum árum. Börn þeirra hjóna eru þrjú, tveir synir og ein dóttir, Sigríður og er hún prófessor við Banda- rískan háskóla. Er hún nú á sjúkrahúsi hér í Reykjavík eftir slys er hún varð fyrir á sl. ári. Er það von allra að hún megi fá fullan bata sem allra fyrst. Syn- irnir eru dr. Ágúst, prófessor í Bandaríkjunum, en hann kennir við Háskóla íslands í vetur. Er vonandi að Háskóli íslands megi njóta menntunar hans og hæfi- leika til frambúðar. Sveinn er starfandi verkfræðingur í Reykja- vík. Vinir og samferðamenn hverfa, þessi í dag og annar á morgun, en vissulega er gott að vita ekki fyrirfram hver verður næstur. Sveinn B. Valfells lauk miklu dagsverki í umfangsmiklu starfi. Hann var gæfumaður og sá marg- ar vonir sínar og hugsjónir verða að veruleika. Hann var mjög vinsæll og er hans nú saknað af vinum og samferðamönnum. Ástvinum Sveins og vanda- mönnum öllum vil ég votta fyllstu samúð. Ingóifur Jónsson Ég var ungur að árum, er ég hafði fyrst spurnir af Sveini Valfells, rétt vaxinn úr grasi. Sveinn var í þann tíma starfsmað- ur umsvifamikils fyrirtækis í út- og innflutningi. í starfi sínu átti hann æði oft leið til minnar heimabyggðar. Hafði ég þá tæki- færi til þess, sem áhorfandi, að fylgjast með því hvernig hann vann. Það var nýtt og framandi. Sveinn starfaði þá við sölustörf. Þar var öðruvísi tekið til höndum en maður átti að venjast. Maður- inn var í senn vinur og ráðgefandi sinna viðskiptamanna. Slíkt starf býður gjarnan upp á að selja og bara selja. í þá gröf féll Sveinn aldrei. Hann þekkti markaðinn og vissi gjörla hvað hann þoldi, var alla jafnan með á boðstólum nýja, ef til vill áður óþekkta, ódýra og vandaða vöru. Við slíkar aðstæður vildi það gjarnan henda að menn kunnu sér ekki hóf og urðu stórtækir í innkaupum sínum. Þá komu í ljós þetta sem mér var svo framandi og öðruvísi, en ég átti að venjast í starfi annara manna er við sölumennsku fengust, hann blátt áfram steig ofan á kaupgleði viðskiptamannanna. Benti þeim á að markaðurinn væri ekki stór, óvissa um afkomuna og líklega rétt að ganga hægt um. Þetta varð til þess að hann öðlaðist traust, að hann var alltaf auðfúsugestur og að margur kaupmaðurinn blátt áfram fólu honum alfarið að sjá um innkaup sín á þeim vörum er þeir þörfnuðust og Sveinn hafði að bjóða. Þetta fannst mér einstakt. Og árin líða, ósköp uppburðalít- ill ungur maður, nánast alger sveitamaður, er í sinni fyrstu utanlandsreisu. Iðandi mannhaf, umferð og umsvif í einni af stærri borgum veraldar er vægast sagt truflandi. Einmanaleiki sótti að á stundum. í þann mund, fyrir röskum þrem áratugum hófust kynni okkar Sveins fyrir tilstilli sameiginlegs vinar. Sveinn heims- maður, þekkti líf, atvinnuhætti, og sögu þessar miklu þjóðar. Þar var ég algjör þiggjandi, hann veitandi. I hugann koma nú, upp óteljandi unaðsstundir, er setið var yfir bjórglasi, og rætt voru hin óskyld- ustu efni. Líf og starf okkar litlu þjóðar í gegnum aldirnar, framtíð hennar og nútíð, þann metnað, sem hann hafði fyrir hennar hönd og þá möguleika, sem yrði að nýta, leiðir til bættra lífskjara. I þann mund hafði Sveinn ærið að starfa. Hann þurfti ekkert til mín að sækja, eigi að síður, var hann ávalt reiðubúinn til að leggja lykkju á leið sína mér til aðstoðar. Aka um langan veg til að sýna mér það er athyglisvert var og benda á það sem rétt væri að íhuga. Þá urðum við Sveinn vinir er entist æ síðan. Og seinna þegar komið var á heimaslóðir var þráðurinn tekinn upp að nýju. I amstri daganna var gott að leita á vit þessa stór- brotna, hugljúfa og gáfaða manns. Honum var fátt mannlegt óvið- komandi. Hugstæðast var honum þó allt það er að atvinnu og fjármálum laut og var þá oft gaman að fylgjast með honum á fluginu. En Sveinn lét ekki sitja við orðin ein. Hann var athafna- maður í orðsins fyllstu merkingu. Á þeim vettvangi kom hann víða við, ruddi nýjar brautir, fylgdi þeim eftir af kjarki, fyrirhyggju og framsýni, er honum var svo eðlislæg. Sveinn var ekki langskólageng- inn maður, en eigi að síður var hann stórvel menntaður maður á minn mælikvarða, lífsreynslan, lestur góðra og hagnýtra bóka, umburðarlyndi, heilbrigð lífsvið- horf, ljúf kímni, gerði það að verkum. Maðurinn var hafsjór af fróð- leik, sem svo sannarlega kom manni æði oft algjörlega á óvart. Og svo þegar líka kom til mikil og góð frásagnargáfa og gleði var ekki að undra að manni liði vel í návist hans. Svo sem fyrr er sagt var Sveinn maður mikilla umsvifa og at- hafna, en hann hélt sér ekki alfarið við sinn hestastein. Mörg- um manninum hjálpaði hann til að koma góðum hugmyndum í framkvæmd, og ætlaðist ekki til launa. Gleðin yfir, ef vel til tækist, var honum nóg. Og nú er ég kveð þennan góða vin minn er mér mikill söknuður í huga, og ég hugsa til ástvina hans, sem hafa misst svo mikið, þeim sendi ég einlægar samúðarkveðjur og bið þeim velfarnaðar. Sveinn var stórbrotinn persónuleiki, er gaf mér með sinni elskulegu við- kynningu, margt það er ég vildi síst án vera, og lifa mun í vitundinni þar til yfir lýkur. Björn Guðmundsson, Vestmannaeyjum. Kveðja frá Félagi ís- lenskra iðnrekenda. Nú er horfinn af sjónarsviðinu einn heiðursfélagi Félags ís- lenskra iðnrekenda. Það var ekki að ástæðulausu, að Sveinn B. . Valf,ells var kjörinn heiðursfélagi íslenskra iðnrek- enda. Hann var um margra ára skeið í stjórn félagsins og var formaður félagsins á erfiðum tíma og stýrði því með þeim yfirburða gáfum og hæfileikum, sem honum voru gefnir. Sveinn hafði alla tíð brennandi áhuga á íslensku efnahagslífi og því að bæta lífskjör þjóðarinnar. Það var því engin tilviljun, að hugur hans snerist að því að hyggja upp alhliða heilbrigt at- vinnulíf í landinu og að hann varð einn helsti atvinnurekandi á sviði iðnaðar og það var heldur engin tilviljun, að hann var málsvari iðnaðarins í marga áratugi. Öruggt er að afburða minni hans og rökhyggja hafa reynst honum mikilvægt vopn í þeim mörgu orrustum, sem hann neyddist til að heyja fyrir hönd íslensks iðnað- ar. Sá, sem þetta skrifar átti þess kost að kynnast Sveini og starfa með honum í hartnær tvo áratugi. Ég verð að játa, að í fyrstu stóð mér ógn af þessum manni, ógn vegna gáfna hans og kunnáttu. Það kom þó strax í ljós á okkar fyrsta fundi, að þessi ótti reyndist með öllu ástæðulaus, því Sveinn reyndist vera hið mesta ljúfmenni, sem tók mér afburða vel og tókst einhvern veginn að koma skoðun- um sínum til skila á þann hátt, að ég varð ekki var við hvernig hann mótaði mínar. Sveinn var afburða fróður mað- ur og minnið óbrigðult. Hann hafði þann hæfileika að kunna að segja skemmtilega frá og annan hæfileika, sem er jafnvel enn fágætari með þessari þjóð, að hann kunni að hlusta. Það fór því ekki hjá því, að hvar sem Sveinn kom, var hann hrókur alls fagnað- ar og miðpunktur þess hóps, sem í kringum hann var. Okkur, sem berjumst fyrir frjálsum atvinnurekstri og hags- munum íslensks iðnaðar, er því mikill vandi á höndum, þegar við ekki getum lengur leitað til Sveins til skrafs og ráðagerða. Og þrátt fyrir það, að til sé íslenskur málsháttur sem segir „maður kemur í manns stað“, þá er ég þess fullviss, að þessi málsháttur á ekki við, þegar rætt er um Svein B. Valfells. Ég kveð gamlan góðan vin. Hafi hann þökk fyrir áratuga leiðsögn og órofa tryggð. Davið Sch. Thorsteinsson Við andlát Sveins B. Valfells koma upp í huga mér margar og góðar endurminningar um hann frá því 30 ára skeiði, sem við höfum þekkst og starfað saman að ýmsum málum iðnaðarins. Þau kynni hófust 1951, þegar ég tók sæti í stjórn Félags ísl. iðnrekenda, en Sveinn var þar fyrir í stjórn og einn mestur áhrifamaður þar. Hann var svo formaður félagsins árin 1956— 1963. Stjórnarfundir voru tíðir og voru kynni okkar því náin. Var það mér góður skóli að vinna með svo víðsýnumog fróðum manni sem Sveinn var. Á þessum árum hófust regluleg samskipti félagsins við hliðstæð samtök, aðallega á Norðurlöndum, og fórum við Sveinn margar ferðir saman til útlanda. Var Sveinn þar frábær fulltrúi íslands og ís- lenskra iðnrekenda vegna ágætrar málakunnáttu og mikillar þekk- ingar á mönnum og málefnum bæði innlendum og erlendum. Sér- staklega naut sín vel þekking hans á íslenskri og norrænni sögu, er við sóttum fundi til hinna Norður- landanna. Á mannamótum var Sveinn alltaf ræðinn og skemmti- legur. Hann hafði góða kímnigáfu og kunni vel að segja frá. Eru það einhverjar skemmtilegustu stund- ir, sem ég hef átt að sitja og hluta á Svein og Kristján Jóh. Krist- jánsson segja sögur, en Kristján var eins og kunnugt er formaður Félags ísl. iðnrekenda á undan Sveini. Það sem ber hæst af störfum Sveins í þágu iðnaðarins á eftir formennsku hans í Félagi ísl. iðnrekenda er formennska í bankaráði Iðnaðarbanka íslands hf. Hann var einn af hvata- mönnum að stofnun bankans og var kjörinn varamaður í bankaráð á stofnfundi hans. Hann var svo kosinn aðalmaður í bankaráð 1%2. Bankaráðið kaus hann for- mann ráðsins og gegndi hann því embætti allt til ársins 1973. Sveinn hafði mikla þekkingu í fjármálum. Skoðanir hans í efna- hagsmálum voru mjög ákveðnar og fylgdi hann þar stefnu frjáls markaðskerfis og var eindregið fylgjandi frjálsu gengi ísl. krón- unnar. í ræðum hans á aðalfund- um bankans kemur glöggt fram skilningur hans á vandamálum efnahagslífsins og þörfin á því að efla arðbæran rekstur. Sveinn var bjartsýnismaður, en þegar honum blöskruðu athafnir ráðamanna í efnahagsmálum gat hann ekki orða bundist og kallaði gerðir þeirra „algert fíflarí". En þó Sveinn hneykslaðist minnist ég þess ekki, á öllum þeim árum sem ég þekkti hann, að hafa nokkru sinni séð hann reiðan. í formannstíð hans efldist Iðn- aðarbankinn og opnuð voru útibú í Hafnarfirði, á Akureyri og tvö í Reykjavík. Hann fylgdist vel með daglegum rekstri bankans og hafði náið samband við banka- stjóra. Sveinn var mjög vel látinn af starfsfólki bankans, enda lét hann sér annt um hag þess. Hann var mjög tíður gestur „innan búðar" í bankanum einnig eftir að hann let af formennsku í banka- ráði. Til marks um það hve starfsfólk kunni vel að meta félagsskap hans, var hann ein- róma kjörinn heiðursfélagi starfs- mannafélagsins árið 1975. Okkur hjónum var Sveinn mjög kær og var sérlega góð vinátta milli Elínar konu minnar og hans, enda mat hún mikils hlýtt viðmót hans og kímnigáfu. Fáum vikum fyrir andlátið var hann gestur á heimili okkar og lék þá á alls oddi og hvarflaði þá ekki að okkur, að þetta væri síðasti fundur okkar. Við hjónin vottum aðstandendum hans hans innilegustu samúð við fráfall þessa góða vinar okkar. Þá flyt ég þeim dýpstu samúðarkveðj- ur starfsmanna, bankastjóra og bankaráðs Iðnaðarbankans, en í sögu bankans mun hans ávallt verða minnst sem ötuls og farsæls leiðtoga. Gunnar J. Friðriksson. ísland er þekkt fyrir fornbók- menntir sínar. í þeim ber Njála hvað hæst. Hún greinir frá merkri persónu á söguöld, Snorra goða. Höfundur Njálu lýsir Snorra svo, að hann hafi verið vitrastur manna sinnar samtíðar, en hafi skort hæfileikann til framsýni eða forspár. Við fráfall vinar míns og frænda, Sveins, kom mér í hug þessti tilvitnun úr Njálu. Fram- angreind mannlýsing höfundar Njálu gæti átt við Svein að því leyti, að hann var gæddur frábær- um og óvenjulegum vitsmunum, en framsýni og forspá átti hann umfram Snorra goða. Fyrir mínum hugskotssjónum verður Sveinn að teljast sem fullgildur jafnoki þeirra goða, sem mestir voru á söguöld. Þeir mannkostir, sem hann hafði til að bera, áttu rót sína að rekja til meðfæddra hæfileika, til ómetan- legs veganestis úr foreldrahúsum á æskuheimili hans í Álftanes- hrepp á Mýrum, til staðgóðrar menntunar, til víðtækrar starfs- reynslu hérlendis og erlendis á sviði verzlunar og atvinnurekstrar og skilnings hans á möguleikum íslenzks samfélags til sköpunar verðmæta og aukinna framfara. Sveinn kom víða við á sínum athafnaferli. Hann reyndist ein- lægur og ötull stuðningsmaður fjölmargra einstaklinga, sem leit- uðu ráða hans og aðstoðar við stofnun og rekstur atvinnufyrir- tækja og mun þar á stundum hafa verið um að ræða fjárhagslegan stuðning, sem skipti sköpum. Hika ég ekki við að fullyrða, að ráð hans hafi jafnan reynst hollráð. Sveinn var frábær félagi, glaður og hvetjandi, hugmyndaríkur og sí

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.