Morgunblaðið - 15.02.1981, Síða 26

Morgunblaðið - 15.02.1981, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 1981 Sveinn B. Valfells „lífsfílósófí" eins og hann kallaði það. Stóö kennslan nær 20 ár fram að hádegi hans hinzta dags. í því síðasta samtali ráðgerðum við að vitja vesturstranda saman innan skamms. Hugði ég gott til farar- innar, því enn var margt ólært. En nú glymur klukkan skyndilega og kennsla er úti. Meistarinn farinn en próf væntanleg. Kvíði er í nemandanum við þessi tímamót og hefði hann margt betur viljað kunna, þó að hann finni að ýmislegt hefur skýrzt í hans daufa huga. Fyrir það verður hann ávallt þakklátur. Lærisveinar Sveins skipta tugum og hef ég enga heildaryfirsýn yfir fjölda þeirra né nöfn. Geri ég ráð fyrir, að misjafn hafi orðið þroski þeirra eins og gengur í skólum. En eitt veit ég fyrir víst. Enginn varð verri maður við kynni sín af Sveini B. Valfells. En miklu fleiri urðu betri. Slíkur maður var hann, jákvæður, ráðhollur og umtals- frómur um menn, jafnt þá, sem áttu það skilið, og hina. Hann var trölltryggur vinum sínum og óþreytandi að leysa vandræði manna og fyrirtækja, sem til hans leituðu. Hann var glaður maður, góður og hlýr, snotur vel og spekingur að viti. Kunni manna bezt að njóta góðra stunda. Geiglaus og djarfur, hvað sem að höndum bar, þó vissulega fengi hann að kynnast sorgum og mótlæti í lífinu. En jafnaðargeð hans, rökhyggja og umburðarlyndi, sem hann taldi höfuðdyggðir manna, vísuðu hon- um veginn, sem hann gat leitt aðra eftir með sér. „Og blessaður vertu, þetta fer einhvernveginn," sagði hann stundum, ef einhver hafði áhyggjur af framtíðinni. Og svo er það í Hfinu, áhyggjur leysa engan vanda. Ávallt fannst mér birta þar sem hann kom og samræður tókust góðar. Voru þá einatt fljót að gleymast staður og stund, þegar hann hélt athygli manna fanginni með skemmtisögum af mönnum og málefnum. En hann notaði slíkt gjarnan sem dæmisögur, til þess að beina hugsun viðmælenda til réttra lausna á vandamálum líðandi stundar. Er fáum gefin slík samræðulist. Saman fórum við víða vegu og gistum ókunn lönd. Það voru ógleymanlegar stundir og lærdómsríkar. Hann var sannur heimsborgari og hafði séð flesta lýði og lönd hér á jörð. Minnið og athyglisgáfuna notaði hann gjarna til þess að draga lærdóma af atferli manna til notkunar á nærtæk viðfangsefni. Snobb fyrir fínum stöðum og bruðl með ferðafé voru honum fjarri. Samt höfðum við sífellda veizlu og skemmtan með hagsýni, sem gerði hvern skilding að tveim- ur. Sói maður ekki, skortir mann ekki síðar. Hinsvegar gat hann verið svo djarfur með stórfé, þegar ákvörðun um fjárfestingu var tekin, að manni féll allur ketill í eld. Hvað lífsviðhorf snertir, held ég, að hann hafi álitið manninn eiga aðeins einn höfuð- óvin, en það er sína eigin heimsku. Gegn heimskunni vildi hann berj- ast, aðeins heimskan væri bölvald- ur manna og það sem stæði í vegi fyrir því, að flestum geti liðið betur á þessari jörð. Nú eru leiðarlok og lífi hans er lokið. Eftir er aðeins bergmál í hugum okkar, sem þekktum hann. Það er freistandi að spyrja sjálfan sig: Náði hann takmarki sínu á langri ævi? Ég er ekki viss um það. Þó okkur sýnist hann hafa náð langt á sviðum, sem flestir láta sér duga sem skilgreiningu á velgengni, held ég samt, að hann hafi haft hærri markmið. Ég hygg, að hann hefði kosið að fá að hafa meiri áhrif á mótun efna- hagsstefnu fyrir þjóðina, og hversu búið skuli að atvinnu- rekstri í landinu, en honum auðn- aðist. Hann hefði viljað leiða íslendingum fyrir sjónir, að mörg af þeirra mest brennandi vanda- málum eru heimatilbúin, nóg væri af tækifærum og landgæðum, allt gæti verið auðveldara ef menn beittu skynseminni fremur en tilfinningunum. Ég held, að hon- um hafi verið það vonbrigði, þó hann flíkaði lítt, að oft náði rödd hans ekki eyrum fjöldans né foringjanna. Og það voru litlar sárabætur, þegar stjórnmálamenn fóru síðarmeir að myndast við að framkvæma ýmsa hluti í efna- hagsmálum, sem hann hafði hald- ið fram áratug á undan en þá fyrir daufum eyrum. Því oftar en hitt, varð framkvæmdin hálfkák, — of lítið of seint, og árangur eftir því. En nú er stundinni lokið og klukkan hefur glumið í hinzta sinni. Ég vil þakka Sveini B. Valfells, meistara, félaga og vini, fyrir samfylgdina. Seint mun snjóa yfir öll hans spor. Halldór Jónsson verkfr. Með Sveini Valfells er genginn einn af fremstu athafnamönnum samtíðarinnar, sem setti svip sinn mjög á umhverfið. Segja má að sú hagsæld, sem við búum við í dag, sé ekki sízt þeim frumkvöðlum að þakka, sem gerðu sér grein fyrir því á fyrri hluta þessarar aldar að aukinni þekkingu og tækni yrði að beita í atvinnulifinu til að bæta kjör þjóðarinnar. Sveinn stóð þar framarlega í flokki. Sveinn var brautryðjandi í iðn- rekstri hér á landi og beitti sér um áratuga skeið fyrir framþróun og auknum skilningi á þeirri at- vinnugrein. Þetta brautryðjanda- starf mætti litlum skilningi fram- an af, en í dag er svo komið að iðnaður er sú atvinnugrein, sem flest atvinnutækifæri veitir hér á landi. Sveinn ólst upp við naum kjör í sveit í byrjun þessarar aldar og starfaði sem unglingur við land- búnað, sem segja má að þá hafi tekið litlum breytingum allt frá landnámstíð. Hugur hans snerist snemma til viðskipta og athafna, og þar sem saman fór óvenjuleg greind, íhygli og framsýni, náði hann miklum árangri á því sviði. Æfi hans spannaði æfintýralegt framfaraskeið íslenzku þjóðarinn- ar frá fátækt til allsnægta og þar gegndi hann þýðingarmiklu hlut- verki. Á margan hátt var Sveinn framsækinn hugsjónamaður og þá stundum misskilinn. Sárnaði hon- um oft tómlæti og skilningsleysi samferðamannanna. Þannig er oft um brautryðjendur og hugsjóna- menn, sem skara fram úr, því þeir skyggja á aðra. íslendingum er margt betur gefið en að meta athafnamenn — í landi þar sem slíkt er oft notað sem skammar- yrði. Sveinn hafði til að bera ákaf- lega frjóan hug og átti auðvelt með að gera sér grein fyrir nýjungum í atvinnulífinu, og hvað hentaði hér á landi í þeim efnum. Beitti hann sér fyrir og átti þátt í að innleiða nýja tækni á fjölmörg- um sviðum í íslenzku atvinnulífi. Hann var víðfróður, vel lesinn og vel að sér, enda heimsborgari í þess orðs beztu merkingu. Hafði hann dvalið langdvölum erlendis, bæði austan hafs og vestan og kunni því góð skil á alþjóðlegu atvinnulífi, auk þess að þekkja íslenzkt atvinnulíf til hlítar. í allri umgengni var Sveinn blátt áfram og hispurslaus, enda vinmargur og frændrækinn. Hjálpsamur og greiðvikinn var hann með afbrigðum. Hann hafði Iétta lund og gamanyrði voru honum afar töm. í fjölmenni var hann hrókur alls fagnaðar. í umræðum um flókin málefni átti hann auðvelt með að skilja kjarn- ann frá hisminu, gera flókin mál einföld svo allir skildu. Sveinn Valfells var afar starfs- samur og reglusamur alla tíð. Starfsþrek og góð heilsa entist honum til æfiloka. Hann var farsæll maður jafnt í einkalifi sem í starfi, enda jákvæður og velvilj- aður í öllu sem hann snerti. Eftirlifandi ættingjum vottast einlæg samúð. Sigurður Helgason Kynni mín af Sveini B. Valfells hófust fyrst að ráði um 1960, en um þær mundir komu fram hug- myndir um að stofna félag, er hafa skyldi að markmiði að reisa hentug iðnaðarhús á félagslegum grundvelli og skyldi öllum aðilurn í landssamtökum iðnaðarmanna og iðnrekenda boðin þátttaka. Sveinn var aðalhvatamaður að þessari hugmynd og árangurinn varð stofnun Iðngarða hf. Var stórmannlega á málinu tekið og reis skjótt af grunni myndarleg iðnaðarhús við Skeif- una. Þar skyldi vera hátt til lofts og vítt ti! veggja, og fyrst og fremst hugsað um að nota mætti fyllstu hagræðingu í iðnrekstri. Var mjög gaman að vinna með Sveini að þessum málum, þar sat áhuginn, kjarkurinn og bjartsýnin í fyrirrúmi. Hann hafði óbilandi áhuga á iðnaði og nýjungum í iðnaði og var formaður Félags ísl. iðnrekenda um margra ára bil. Hann barðist ótrauður fyrir því, að fá iðnaðinn viðurkenndan sem atvinnugrein, er fyllilega stæði á sporði gömlu atvinnuvegunum, landbúnaðar og sjávarútvegs og hann sá raunar lengra, hann sá að auka þyrfti iðnaðinn og gera hann að aðalatvinnuvegi þjóðarinnar, ef takast ætti að veita komandi kynslóðum fulla atvinnu og bætt lífskjör. Hann krafðist því, að iðnaður- inn nyti eigi lakari kjara en aðrir atvinnuvegir, hvað varðaði fjár- mögnun og fyrirgreiðslu stjórn- valda. Hann var mikla virðingu fyrir fjármunum og vildi að fé yrði varið til þeirra hluta, er gefa mestan arð fyrir þjóðarheildina. „Peningar eru vald þeirra hluta, sem gera skal“, heyrði ég hann oft segja. Sveinn var stjórnarformað- ur Iðngarða frá stofnun og höfum við samstarfsmenn hans þar notið margra góðra ráða og ánægju- legra samverustunda með honum. Utan starfs var Sveinn sérlega skemmtilegur, hann var hafsjór af fróðleik og sögum og miðlaði þeim óspart til félaga sinna. Var því oft tilhlökkunarefni að eiga fundi með honum. Fyrst voru alvörumálin rædd og reynt að finna lausn á þeim, en síðan fenginn sér kaffibolli og slegið á léttari strengi. Við félagar hans í Iðngörðum söknum góðs drengs, af honum er mikill sjónarsviptir. Ég votta eftirlifandi börnum hans mína innilegustu samúð. Sveinn K. Sveinsson Þá Sveinn B. Valfells er kvadd- ur að leiðarlokum, kemur upp í huga okkar árviss ferð, sem farin var til veiða og skemmtunar síðastliðin tíu ár til Héðinsfjarð- ar. I þeim var Sveinn félagi okkar sjálfkjörinn foringi, vegna reynslu hans á ferðalögum og fyrirhyggju við hinar ólíklegustu aðstæður. Naut sýn þar þekking hans, vís- dómur og skipulagsgáfa. Hann var ávallt hrókur alls fagnaðar, sögumaður mikill og frásagnargáfa hans var frábær og litrík. Hann var sem félagi jafn- vígur til leiks og starfa við veiði, matreiðslu og smíðar, enda ber eldhúsborðið í veiðihúsinu okkar í Héðinsfirði vitni um hagleik hans, sem við í daglegu tali kölluðum „Sveinsstykki" Ógleymilegar endurminningar hlaðast upp í huga okkar frá þessum ferðum. Og þar ber hæst sú hin mikla kempa sem Sveinn B. Valfells var. Kvöldvökurnar verða okkur ávallt hugstæðar, vegna hins létta skapferlis og síunga, jákvæða viðhorfs hans til lífsins. Með djúpstæðum söknuði kveðj- um við félaga okkar Svein, og færum börnum hans okkar inni- legustu samúðarkveðjur. F.h. veiðifélaganna i Héðins- firði, Þorgrímur Brynjólfsson. -■ Norrænar goðsagnir endursagðar Norrænar goðsagnir (The Norse Myths) heitir b<)k, sem út kom í Lundúnum i byrjun febrúar. Ilún hefur að geyma endursögn Kevin Crossley- Hollands á fjölda goðsagna, sem að mestu eru sóttar i islenzk rit, fyrst og fremst Snorra-Eddu. Kevin Crossley-Holland er ljóðskáld, rithöfundur, þýð- andi og barnabókahöfundur, auk þess sem hann hefur ritstýrt margskonar útgáfu, og m.a. verið blaðamaður hjá The Observer. Hann hefur gert talsvert af því að endur- segja gamlar sögur og ævin- týri fyrir börn. Bókin, sem nú var að koma út, er fyrst og fremst skrifuð fyrir fullorðna lesendur, en ætlunin er að umskrifa hana og einfalda innan tíðar og gefa síðan út sem barnabók. íslendingar hafa löngum hælt sér af því að eiga tungu, svo hreina og upprunalega, að hvert barn geti án erfiðismuna lesið fornbókmenntirnar — menningararfinn — og geri það sér til ánægju. Svo rótgró- in virðist þessi kenning vera, að það er með hálfum huga, að Kevin Crossley-Holland nokkur maður hefur annað á orði, þótt ástæða sé til að efast um að þetta eigi við rök að styðjast. Hér á landi hefur lítið verið af því gert að endursegja fornar sögur og kvæði, svo auðskilið verði hverju barni, ef undanskildar eru frásagnir í kennslubókum í Islandssögu, en fornbókmenntirnar eru fjársjóður sem nýta mætti miklu betur en nú er gert, bæði sem efnivið í barnabæk- ur og fyrir fullorðna. Bók Crossley-Hollands hef- Baldurs draumar Ásinn kveinkaði sér. Hann engdist sundur og saman, þar sem hann lá, og reyndi að flýja þessar myrku myndir. Hann saup hveljur og stundi enn. Svo vaknaði hann. Langa hríð lá hann í rökkrinu, hinn hvíti ás. Hárið var bjart og hann var skínandi hvitur á brún og brá, skínandi eins og hið hvítasta meðal blóma. Og þar sem hann lá elti hann draumurinn og reyndi að gripa hann, reyndi að nefna hverja mynd og bægja henni frá sér. En svipirnir hörf- uðu undan, inn í skuggana, og þegar hann vaknaði sá hann ekki lengur móta fyrir þeim. Smám saman varð beygurinn að óljósum fyrirboða. Hann lét aftur augun og lét hugann reika. Jafnskjótt og honum rann aftur í brjóst læddust þessar óboðnu hausaskeljar enn fram á sjónar- sviðið og reyndu að draga frá honum ljósið og gleypa það. Hann bylti sér. Hann hrópaði hátt og vaknaði við ópið. Enn kenndi hann ótta, umkomuleysis og fordæm- ingar. Er æsir og ásynjur spurðu drauma Baldurs þyrptust þau saman til að ráðgast um hver fyrirboðinn væri. Þau voru á einu máli um að hann væri ljúfastur ása, öðrum miskunnsamari og vinsælli, og sá er sízt ætti skilið að fá slíka næturgesti. Þeim bar saman um að á Breiðabliki aldrei fyrr hefði slíkan ófögnuð borið að garði. En allt sem á góma bar varð til þess að auka angur þeirra. Baldurs draumur var þeim hulin ráðgáta. „Ég fer sjálfur," kvað Alfaðir, sem átti Baldur að syni, „og sæki ráðninguna." Hann kunni fyrir sér og var jafngamall og tíminn. Hann reis á fætur og hraðaði sér á braut. Hann lagði á Sleipni og hleypti honum yfir tindrandi regnbogann. Brátt var hann kom- inn út á veginn langa, sem liggur í norður frá Miðgarði, niður í myrka móðu og ginnandi glýju Niflheima. Rakkinn, sá er úr helju kemur, heyrði Óðin nálgast. Blóðkleprar voru á makka hans og bringu. Hann geyjaði af hamrinum sem leið opnast niður í undirheima. Rúnafaðir lét sér hvergi bregða. Hann hleypti Sleipni, svo hratt að glumdi og skall í freðnum sverði undan hófunum átta, og linnti ekki fyrr en hann kom að háum heljar ranni. Þar sté hann af baki og skyggndist inn. Náir fylltu salinn, sem var allur í gulli og gersemum. Hann teymdi Sleipni austur fyrir dyr þar sem hann vissi um leiði völvu einnar. Hann stóð við haug- inn og skaut á það fránu auga og hóf særingar. Um síðir reis fölur svipur völvunnar upp úr haugn- um, tók á sig mynd i móðunni og gnæfði yfir honum. „Hver er hinn ókunni maður, sem raskar ró minni og ýfir angur mitt?“ gól hún. „Ég hef legið í fönn, verið slegin regni og dögg hefur seytlað í gegnum mig. Ég er löngu dauð.“ „Nafn mitt er Vegtamur og ég er sonur Valtams. Seg mér úr helju, ég þekki alla aðra heima. Hví er gullhringum stráð um alla

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.