Morgunblaðið - 15.02.1981, Síða 31

Morgunblaðið - 15.02.1981, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 1981 31 BSRB: Módelsamtök eða stéttarfélag? AtkvæðagreiðKla: Talning. Ennþá einu sinni hafa þeir Kristján og Haraldur verið kvadd- ir til undirskrifta. Þeir eru alltaf að gera góða samninga. Unna sér aldrei hvíldar. Við, almennir fé- lagar í samtökum opinberra starfsmanna, höfum ekki við að fylgjast með sigurgöngu þeirra frá samningi til samnings. Það er rétt eins og þá er Gunnar á Hlíðarenda sveiflaði atgeirnum. Þá sýndust þrír á lofti. Ekki eru bírópennarn- ir færri þá er Kristján tekur til við undirskriftir. Hann er algjör skrifari. Og sá kann nú að þakka fyrir sig. Hjartnæmt var ávarp hans og þakklætisorð í garð fjár- málaráðherra er átti frumkvæði að „launabótum". Þetta var sami ráðherra er undirritaði samning- inn góða á liðnu hausti. Sá samn- ingur var ávöxtur margra mánaða funda, umræðu og athugana und- irnefnda, ferðalaga og atkvæða- greiðslu. Um þann samning sagði ráðherra í blaðaviðtali: „Ég er mjög ánægður með niðurstöðuna í atkvæðagreiðslunni. Þátttakan var að vísu í dræmara lagi, en það skýrist nú kannski fyrst og fremst af sumarleyfum og þessum árs- tíma. Þegar samningar hafa ver- ið samþykktir svo til einróma i samninganefnd, reikna flestir með að máiið sé útkljáð og því tel ég það nokkuð góða útkomu. að 75% þeirra, sem þátt tóku, skuli lýsa yfir stuðningi við samning- inn. Mér er sagt að þetta sé mjög svipuð útkoma og var haustið 1977 eftir 2ja vikna verkfall og þótti sá samningur mjög góður.“ Seinna kom í ljós, að ráðherr- ann var fjarri því að vera ánægð- ur. Málið var alls ekki „útkljáð". Samningur sá er hann lýsti ánægju sinni yfir þá er blekið var rétt að þorna, kvað á um 14 þúsund króna kauphækkun þorra félagsmanna BSRB. Tæp- ast höfðu skjalaverðir náð að hefta inn plögg sín og launadeild að reikna út breytingar en hljóðskraf hófst í palisanderkont- órum Þjóðhagsstofnana og ráðu- neyta um að nú þyrfti að gera bragarbót og rifta nýgerðum samningi. Það kom nefnilega í ljós að„samráð“ við samtök launa- manna eru síst vænleg. Enn var í fullu gildi landsföðurleg yfirlýsing frá liðinni tíð, „Vér einir vitum". Rökrétt ályktun af orðtakinu forna um að því verr gefist heimskra manna ráð sem fleiri séu samankomnir. Á aðfangadag, meðan heimsglys og glingur, jólaljós og grenigrein- ar sefjuðu múgsálir og almúga skunduðu stefnufastir herramenn til fundar. Þeim kom saman um að nú þyrfti að hafa snör handtök. Mæltu sér mót á gamlársdag að fullnægja réttlæti, án afskipta og „samráðs". Og enn voru bírópenn- ar á lofti. Sami fjármálaráðherra er lýsti ánægju sinni með 14 þúsund króna kauphækkun á haustmánuðum, taldi nú að miklu hollara væri fyrir opinbera starfs- menn að fá áramótakveðju er hljóðaði upp á 30—40 þúsund króna kauplækkun, frá 1. marz nk. Hver voru viðbrögð forystu- manna BSRB? Hvað um baráttu- anda „bunumeistaranna" frá verk- fallsráðstefnu BSRB í Munaðar- nesi? Leituðu þeir samstarfs við ASI um mótmælaaðgerðir og verkfall svo sem gerðist árið 1978? Öðru nær. Það voru hljóðir og hógværir menn er muldruðu og tautuðu í barminn eitthvað sem enginn skildi sem mótmæli. Þar fylgdi enginn hugur máli. „Gersemi ertu hve þú ert mér eftirlátur," sagði Hallgerður á sínum tíma. Hvar var nú hagfræðingurinn í rissblokk BSRB? Var ekki fullt eins mikil ástæða til þess að taka hús á ráðherrum þeim er misvirtu samtök opinberra starfsmanna, hundsuðu samráðsákvæði og settu bráðabirgðalög, eins og að taka sendiráðið í Stokkhólmi á sínum tíma? Hvar voru línurit og töflur hagfræðingsins er sýndu áhrif 7% kjaraskerðingar? Hvers vegna tóku fulltrúar okkar þegjandi við 30 — 40 þúsund króna kauplækk- un, þeir hinir sömu er þóttust hafa fært 14 þúsund króna björg í bú? Greinarhöfundur hefir verið að geta sér til um hugrenningar fjármálaráðherra þá er hann rit- aði undir samning við BSRB á liðnu hausti í því skyni að „tryggja vinnufrið". Niðurstaðan er þessi: Það þýðir náttúrlega ekki að ógilda samning fyrr en búið er að skrifa undir hann. Það sér hver heilvita maður. Allt verður að fara eftir röð og hvað hefir sinn tíma. Fyrst samninga- og sátta- fundir mánuðum saman. Skipun oddvita sáttanefndar, valinkunns sómamanns, Vilhjálms Hjálmars- sonar. Þá lögleg undirskrift, stað- fest með allsherjaratkvæða- greiðslu. Síðan ógilding með bráðabirgðalögum. Þá er allt klappað og klárt. í taðkvörnina með allt helvítis klabbið. Vil- hjálmur Brekkubóndi hefir ekkert vit á fjárhagsstöðu Ríkissjóðs. Og Kristján er alltaf til með pennann. Þar er á vísan að róa. Enda kom Kristján með verkfallsvopnið í haust og bað mig að koma því í trygga geymslu. Hann sagði eins og Gunnar á Hlíðarenda um at- geirinn: „Þetta er flugbeittur fjandi. Ég gæti bara skaðað mig á þessu.“ Eitthvað á þessa leið gætu hugleiðingar ráðherra verið. Nú þurfa opinberir starfsmenn að krefjast allsherjaratkvæða- greiðslu um nýgerðan samning við fjármálaráðherra. Þeir þurfa að skera upp herör gegn samninga- makki og undanhaldi. Fulltrúar Módelsamtakanna í BSRB er taka að sér að sitja fyrir hjá ljósmynd- urum við undirskrift samninga hafa í störfum sínum sýnt að þeir ganga erinda stjórnvalda og hopa hvert sinn þá er að þeim er sótt. Þeir eiga ekki að fjalla um kjara- mál. En þeir gætu tekið að sér fyrirsætustörf hjá Karon eða Módelsamtökunum við undirskrift samninga. Pétur Pétursson þulur Teppaverksmiðja Álafoss - eina teppaverksmiðja landsins ÁLAFOSS h/f boðaði nýverið til fundar með islenskum arki- tektum i Iðnaðarmannahúsinu við Hallveigarstig. til að kynna þeim og gera grein fyrir teppa- verksmiðju Álafoss, sem er eina starfandi teppaverksmiðjan hérlendis. Það kom m.a. fram á fundin- um að fyrir 10 árum þegar íslendingar gengu í EFTA, voru 6 teppaverksmiðjur starfandi hérlendis. Teppaverksmiðja Ála- foss lifði ein hina erlendu sam- keppni. Ástæðuna fyrir því, töldu forráðamenn fyrirtækisins vera, að þeir hafi verið viðbúnir samkeppninni, og einnig að gólfteppaframleiðsla fyrirtækis- ins væri einungis 8% af heildar- umsetningu þess. Pétur Eiríks- son sagði að verksamkeppnin hafi ekki verið íslenskum fyrir- tækjum hvað erfiðust, heldur hafi það fyrst og fremst verið það mikla úrval sem innflutta framleiðslan hafði uppá að bjóða — verksmiðjurnar hérlendis hafi flestar verið svo litlar. — Við hjá Álafoss, sagði Pétur, höfum á hinn bóginn svo til eingöngu framleitt fyrir dýrasta markaðinn sem gerir mestar gæðakröfurnar. Það hefur alltaf verið 100% ull í okkar teppum, og innfluttu alullarteppin eru a.m.k. tvöfalt dýrari en okkar framleiðsla. Pétur sagði, að forráðamenn Álafoss hefðu viljað vekja at- hygli arkitekta á því, að það væri til teppaverksmiðja á land- inu, sem gæti framleitt teppi eftir óskum atkitekta og við- skiptavina, einungis ef magnið væri nægjanlegt. Pétur Sigurjónsson hjá Iðn- tæknistofnun talaði næstur, og vildi brýna fyrir mönnum, að velja sér teppi í híbýli eftir því hvar þau ættu að vera, teppi í svefnherbergi gætu t.d. ekki ver- ið þau sömu og teppi í forstofur. Þá sagði Pétur að Álafoss-menn væru brautryðjendur á því sviði hérlendis að láta hlutlausa aðila rannsaka gæði framleiðslu sinn- ar, og þó teppaverksmiðja Ála- foss væri ekki mikil að vöxtum, þá legðu forráðamenn hennar sig í líma við að laga sig að kröfum neytendanna. Þá talaði Guðjón Hjartarson, og fór nokkrum orðum um helstu teppategundir hér í heimi, og ræddi um mun á þeim teppum, og sagði hverjar tegundir Ála- foss framleiddi. Ólafur Ottósson sagði, að það væri orðið ljóst að Álafoss lifði af samkeppni við tollalausa út- lenda framleiðslu. En nú ætluðu forráðamenn Álafoss að fá úr því skorið, hvort teppafram- leiðsla á íslandi ætti sér ein- hverja framtíð. Til að standa undir endurnýj- un tækja þyrfti framleiðsla teppaverksmiðjunnar að vaxa heilmikið frá því sem hún væri núna. Ólafur sagði Álafoss geta framleitt með fyllstu gæðum það sem viðskiptavinirnir óskuðu, en fyrirtækið hefði ekki möguleika á að liggja með mikið úrval á lager. Tilgangurinn með þessum fundi, væri sá, eins og fram hefði komið, að kynna arkitektum, sem iðulega réðu miklu um teppaval húseigenda, þá mögu- leika sem teppaverksmiðja Ála- foss byði uppá. Að endingu báru atkitektarn- ir, sem á fundinum vocu, fram fjölmargar og ólikar fyrirspurn- ir. Forráðamenn Álafoss standandi á og haldandi á nýjungum í framleiðslunni: ólafur Ottósson. framkvæmdastjóri, Guðjón Iljart- arson, framkvæmdastjóri, Einar Egilsson, verslunarstjóri, Steinar Jónasson, sölustjóri i teppadeild. og Pétur Eiriksson, forstjóri. Ljósm. Kristinn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.