Morgunblaðið - 30.09.1981, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 30.09.1981, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 1981 HCG/n/\rtn »I9«1 >— $rr>dicof n Ha-Pi þetrta\jeri£ bró&r þinn,erég \/«S um oó 'eq munoíí eftir kor\um." eg mynoíí ást er... ... ad geta hlustab á lygaþvœluna úr honum. TM Rea. U.S Pat. Ott -all rights reserved ® 1981 Los Angeles Times S)mdicale Mór sýnist húsið þitt þuríi endurnýjunar við! HÖGNI HREKKVISI S/aa/as Æ/? Sú/A/A/ úr/s*//r ÖV&7 Æ?£-<SA/(j/.OS 06 /^OA/A/O fi/AOAA/ " Húsnædisvandinn: Nær að styðja sjálfs- bjargarviðleitnina I»orleifur Kr. GuðlauKsson skrifar: „Fróðlegt var að horfa og hlusta á sjónvarpsþáttinn „Á götunni", er fjallaði um húsnæðisvandann á höfuðborgarsvæðinu. Þar kom ýmislegt fram. Sigurjón Pétursson vildi byggja og byggja. En ég spyr: Er það rétta lausnin? Ég held ekki. Það væri nær fyrir Sigurjón Pétursson og hans stjórnmála- flokk að hjálpa því fólki sem þeir eru að reka út á götuna með sinni skattapólitík. Nú gefst það hreinlejía upp Það munar um minna en þriðj- ungshækkun á húsaleigu, eins og þeir hafa stofnað til með fast- eignaskattinum, sem þeir lögðu á húseigendur og bitnar nú með fullum þunga á fátæka fólkinu og öðrum. Nú hreinlega gefst það upp og hrópar á hjálp, líkt og fólkið sem fór á vergang á síðustu öld. Þetta er það sem þeir vilja, alþýðubandalagsmenn, neyða fólk til uppgjafar við að reyna að bjarga sér. Til hvers er að byggja, ef húsnæði er það dýrt að fólk ræður hvorki við að leigja né kaupa? Ekkert jákvætt frá Sijíurjóni Það væri nær að styðja við sjálfsbjargarviðleitnina, sem svo mörgum er í blóð borin, með því að lána með viðráðanlegum kjör- um, svo að fólk geti eignast hús- næði og þurfi ekki að líta á sig sem þurfalinga eða betlara í þjóð- félaginu. Það komu nokkrar jákvæðar lausnir á þessum málum fram í áðurnefndum þætti, og munu þeir sem hlustuðu og horfðu geta hug- leitt þær, en það kom ekkert já- kvætt frá Sigurjóni Péturssyni, fjarri fór því. Nó>f af húsna^ði í borginni Sigurjón ætti að nota þá fjár- hæð sem hann ætlar í verka- mannabústaði til að lána því fólki sem er á götunni, með góðum lánskjörum, svo að það geti eign- ast þak yfir höfuðið. Það var engin hjálp í þeirri stefnu sem hann boðaði í þættinum. Það er nóg af húsnæði í borginni og þarf enga valdbeitingu við húseigendur ef rétt er að farið. Rúið öllu sjálfræði Sigurjón gumaði af því hvað þeir gerðu mikið fyrir gamla fólk- ið. En hvernig er því háttað í reynd? Landsmenn, féiög og ýmis samtök hafa lagt mikið á sig við að koraa upp húsnæði fyrir aldrað fólk. Ég tek bara eitt dæmi og er ekki með því að deila á neina stofnun, heldur á framkvæmd stjórnunar í þessum máium. Fólk- ið sem býr á þessum stofnunum er rúið öllu sjálfræði. Það á ekki eyri til að víkja að sínum nánustu í einhverri mynd, eins og svo marga á gamals aldri langar þó til að gera. Er þetta verjandi? Það minnsta sem hægt væri að gera fyrir þetta fólk væri að það fengi frítt húsnæði og því væri sköpuð aðstaða til að vinna eitthvað, þeim sem það geta. Það mundu margir þiggja. Reykjalundur er fyrir- mynd í þessu efni.“ Atvinnurekendur: Vélritun . i íióssetn- aÖ S'og vtw""^°nná"a i íslensku- °9 aeskileg- ctarf ....,?kr;,s,o'ust. Greinargóó --- kl. jtoðarstútka anl*knasto1u viö Hlerom st sendiö umsókmr asam^ PJ- íaidur og Wr.n fo : " október. Svarið okkur líka... „Umsækjandi“ skrifar: „Velvakandi! Mig langar til að fá að koma á framfæri í dálkum þínum umkvörtun eða öllu heldur „vinsamlegum tilmæl- um“ til allra þeirra atvinnur- ekenda, sem auglýsa í dag- blöðunum eftir fólki til starfa. Eg er húsóðir á besta aldri og ég hef nú orðið það létt heimili að þess vegna gæti ég unnið úti a.m.k. hálfan dag- inn. Ég hef alllanga starfs- reynslu á einu sviði iðnaðar frá því áður fyrr, og þar að auki tel ég mig hafa bæði nokkuð góða menntun og vit til þess að geta unnið ýmis- legt annað. Eg hef sótt (skrif- lega) um ýmiss konar störf (skv. auglýsingum dagblað- anna) síðan um sl. áramót, en aldrei orðið sú heppna. En það er ekki málið sem ergir mig mest, heldur það að ekki í eitt einasta skipti hef ég verið látin vita að ég kæmi ekki til greina. Mér finnst það þó lágmarkskurteisi, að at- vinnurekendur tilkynni um- sækjanda, sem sendir kurt-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.