Morgunblaðið - 30.09.1981, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 1981 3 1
• Bill Shankley t.v. heilsar upp á Bob Stokoe frkv.stjóra Sunderland
árið 1973. Liverpool var þá meistari, en Sunderland óvænt bikarmeist-
ari.
Almenn sorg í
Liverpool-borg
KR og FH skulda enn
skýrslu frá sumrinu
- því ekki hægt aö loka uppgjörinu
• Vikingar drógu að flesta áhorfendur í sumar.
Eins og frá var greint í Mbl. í
gær. fékk Bill Shankley hjarta-
slag á heimili sinu á laugardag-
inn. Talið var að hann væri á
batavegi, en aðfaranótt þriðju-
dagsins versnaði honum skyndi-
lega og hann lést. Shankiey var
einhver frægasti og virtasti fram-
kvæmdastjóri bresku knatt-
spyrnunnar og þótt viðar væri
leitað. afrek Liverpool undir
hans stjórn voru stórkostleg. Sex
meiri háttar titlar komust undir
hendur Liverpool-manna meðan
Shankley var við stjórn.
Shankley var 67 ára gamall.
Óhætt er að segja að almenn
sorg hafi ríkt í Liverpool, því karl-
inn var geysilega virtur, sérstak-
lega að sjálfsögðu meðal áhang-
enda Liverpool, en einnig í ríkum
mæli meðal áhangenda erkióvin-
arins og nágrannaliðsins Everton,
en heita má að varla sé til
Liverpool-búi sem er ekki vilhall-
ur öðru hvoru félaginu og rígur er
mikill. Alls staðar í Liverpool var
flaggað í hálfa stöng og á stórum
fána sem hékk á gamalli og niður-
níddri leiguíbúðablokk stóð: „Kon-
ungurinn er allur."
Borgarstjóri Liverpool, Cirill
Carr, sem er sjálfur að ná sér eftir
slag, sagði meðal annars er hann
frétti lát Shankleys: „Hann var í
hávegum hafður hér í borg og ég
mun aldrei gleyma þeim kynnum
sem ég hafði af honum. Sem virð-
ingarvott hef ég beðið rétta aðila
að flagga í hálfa stöng á öllum
opinberum byggingum."
Shankley uppgötvaði knatt-
spyrnusnillinginn Kevin Keegan á
sínum tíma, en Keegan var þá
unglingur, varla kominn með
skeggrót, hjá 4. deildarliðinu
Scunthorpe. Keegan sagði: „Bill
Shankley var á allan hátt sérstak-
ur, sá maður var ekki til sem
Shankley var ekki annt um. Það
kemur aldrei maður í hans stað.“
Og Phil Thompson, fyrirliði
Liverpool, sem lék fjölda leikja
undir stjórn Shankley, sagði: „Eg
er gráti næst, þetta er eins og að
missa ástvin eða náinn ættingja".
„Ég ætlaði að vera löngu búinn
að þessu og hafði ætlað að skila
þessu í síðasta lagi um síðustu
helgi, en tvö féiög, KR og FH,
hafa sett illilega strik i rcikning-
inn. Mig vantar tvær skýrslur frá
FH og eina frá KR og þess vegna
get ég ekki skilað af mér heii-
dartölum og skýrslum.“ sagði
Friðjón B. Friðjónsson gjaldkeri
KSÍ í samtali við Morgunblaðið i
gær. en Friðjón var inntur eftir
lokauppgjöri um áhorfendatölur
og fieira þar að lútandi frá nýlok-
inni knattspyrnuvcrtið.
Friðjón hélt áfram ómyrkur í
máli: „Ég er marg búinn að tala
við þessa menn, en allt kemur
fyrir ekki. Ég get ekki skilið svona
framkomu og slóðaskapur þessara
félaga kemur í veg fyrir lokaupp-
gjör sambandsins." Af þessum
Bill Shankley átti að baki 40 ára
feril í ensku knattspyrnunni.
Hann var leikmaður með Preston,
Carlisle og skoska landsliðinu og
var framkvæmdastjóri hjá Work-
ington, Grimsby og Huddersfield
áður en hann tók við stöðu sinni
hjá Liverpool, þar sem hann sat
eins og kóngur í ríki sínu í 15 ár.
Liverpool var í 2. deild er Shank-
ley kom til sögunnar, en er hann
hætti og eftirlét Bob Paisley stöð-
una, var liðið komið í hóp fræg-
ustu félaga veraldar. Shankley
lagði slíkan grunn, að undir stjórn
Paisleys náði félagið síðan enn
lengra. Leikmenn Liverpool munu
leika með sorgarbönd í kvöld, er
þeir mæta finnska liðinu Oulon
Pallusera í Evrópukeppninni,
einnig í deildarleiknum gegn
Swansea á laugardaginn.
sökum gat Friðjón ekki gefið upp
neinar tölur, en taldi hann þó ým-
is atriði nokkuð ljós varðandi að-
sóknina í sumar.
Til dæmis voru það íslands-
meistarar Víkings, sem trekktu að
flesta áhorfendur að þessu sinni
og er það nýlunda hjá Hæðar-
garðsliðinu. Yfirleitt hafa Vals-
menn haft þennan heiður í vasan-
um. Þá sagði Friðjón að í fljótu
bragði virtist talsverð aukning
hafa verið að meðaltali í Reykja-
vík, en sér virtist sem einhver
fækkun hefði orðið á áhorfendum
á Akranesi. —gg.
Vilja banna faðmlögin
FIFA. alþjoðaknattspyrnusam-
bandið. vill hanna leikmönnum
knattspyrnufélaga eða lands-
liða að faðmast. kyssast og
fleira í þeim dúr að afreki
unnu. þ.e.a.s. eftir skoruð mörk
eða sigra. f leiðara i nýasta
fréttabréfi FIFA. skrifar
stjórnarmaðurinn Rene Courte
meðal annars:
„Það er okkar skoðun, að
fvrirliði liðs eða sá leikmaður
sem lagði markið upp eigi að
óska markaskorara til hamingju
með afrekið, en blóðheit við-
brögð margra leikmanna, sem
hoppa upp i loftið, þeysa til
markaskorarans og hoppa síðan
á hann með umræddum kossum
og faðmlögum teljum við öfga-
kennd og í hæsta máta óviðeig-
andi. Slíkt athæfi ætti að banna
með öliu og framfylgja því.“ Síð-
ar segir Courte: „Eða getur ver-
ið, að nú til dags á öld varnar-
knattspyrnunnar séu mörk orðin
svo fáséð að slík viðbrögð hljóti
að gjósa upp í hvert skipti sem
skorað er?“
Hvað sem FIFA gerir í málinu
má þo öllum Ijóst vera, að erfitt
getur reynst að framfylgja banni
af þvt tagi sem rætt er hér um.
timKARNABÆfí
Laugavegi 66 — Glæsibæ.-Sí
.-Sími 85055.
Austurstraeti 22 Sími frá skiptiborði 85055
W&vz
fk
Laugavsgi 20. Sími frá ikiptiborði 85055.
og útsölustaðir um land allt:
Verzlunin Inga, Hellissandi
Fataval Keflavík,
Bakhúsiö Hafnarfiröi,
Cesar Akureyri,
Epliö ísafiröi,
Eyjabær Vestmannaeyjum,
Lindin Selfossi,
Hornabær Höfn Hornafiröi,
Álfhóll Siglufiröi,
Ram Húsavík,
Óöinn Akranesi,
Austurbær Reyðarfirði,
Verzlunin Skógar Egilsstööum,
Báran Grindavík,
Kaupf. Rangæinga Hvolsvelli,
Þórshamar Stykkishólmi,
ísbjörninn Borgarnesi,
Patróna Patreksfirði.
VENDI-
frá men’s club
Litir: dökkblátt/ljósblátt/vínrautt/ljósgrátt
Verö:
645