Morgunblaðið - 05.03.1982, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. MARZ 1982
SJONVARP
DAGANA
6/3-13
/3
L4UG4RD4GUR
6. mars
16.30 íþróttir
Umsjón: Bjarni Felixson.
18.30 Riddarinn sjónumhryggi
Fimmtándi þáttur.
Spænskur teiknimyndaflokkur
um Don Quijote.
I’ýóandi: Sonja Diego.
18.55 Knska knattspyrnan
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og vedur
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Parísartískan
Myndir frá París, þar sem sýnd
er bæði vor og sumartískan
fyrir árið 1982.
20.45 Lödur
48. liáttur.
l>etta er fyrsti þátturinn í nýjum
skammti af bandaríska gam-
anmyndaflokknum, sem síðast
var á dagskrá í Sjónvarpinu í
október sl.
Pýðandi: Ellert Sigurbjörnsson.
21.10 Sjónminjasafnið
Fjórði þáttur.
Doktor Finnbogi Rammi grams-
ar í gömlum sjónminjum. Pessir
þættir eru byggðir á gömlum
áramótaskaupum og er Flosi
Ólafsson, leikari, höfundur og
leikstjóri allra atriðanna, sem
sýnd verða í þcssum þætti.
21.50 Furður veraldar
Fimmti þáttur. Tröllaukin tákn.
Myndaflokkur um furðuleg
fyrirbæri í fylgd Arthurs C.
Clarkes.
Þýðandi: Ellert Sigurbjörnsson.
22.15 Bankaránið mikla
(The Great Bank Robbery)
Bandarísk bíómynd frá árinu
1969.
Leikstjóri: Hy Averback. Aðal-
hlutverk: Zero Mostel, Kim
Novak, Clint Walker og Claude
Akins.
Þrír bófaflokkar — einn undir
stjórn útfarins bankaræningja í
dulargervi prests, annar undir
stjórn tveggja groddalegra mex-
íkanskra bófa, og sá þriðji und-
ir stjórn hermanns, sem hefur í
fylgd með sér sex kínverska
þvottakalla — reyna að ræna
sama bankann á sama morgnin-
um.
I'ýðandi: Kristmann Eiðsson.
23.45 Dagskrárlok
SUNNUD4GUR
7. mars
16.00 Sunnudagshugvekja
16.10 Húsið á sléttunni
Nítjándi þáttur*
Þýðandi: Óskar Ingimarsson.
17.00 Óeirðir
Fimmti þáttur. íhlutun.
í þessum þætti eru könnuð
áhrif af dvöl breska hersins á
Norðurírlandi í Ijósi þess, að
ekki hefur tekist að fínna lausn
á vandamálum héraðsins.
Þýðandi: Bogi Arnar Finnboga-
son. Þulur: Sigvaldi Júlíusson.
18.00 Stundin okkar
Dagskrá í tilefni æskulýðsdags
Þjóðkirkjunnar 7. mars. Orð
dagsins eru æska og elli, og því
eru gestir bæði ungir og gamlir.
Nemendur úr LangholLsskóla
kynna Jóhann Hjálmarsson
með Ijóðaflutningi, söng og
dansi undir stjórn þeirra Jennu
Jensdóttur. Auk þess er haldið
áfram að kenna fíngrastafrófíð,
brúður taka til máls og sýnt
verður framhald teiknisögu
Heiðdísar Norðfjörð, „Strákur
inn sem vildi eignast tunglið".
Þórður verður enn á sínum
stað.
18.50 Listhlaup kvenna
Myndir frá Evrópumeistara-
mótinu á skautum.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Sjónvarp næstu viku
Umsjón: Magnús Bjarn-
freðsson.
20.45 Fortunata og Jacinta
Sjöundi þáttur. Sænskur fram-
haldsmyndaflokkur.
Þýðandi: Sonja Diego.
21.40 FÍH
Frá hljómleikum í veitingahús-
inu „Broadway" 22. febrúar sl.
Þessir hljómleikar eru liður í
afmælishaldi Félags íslenskra
hljómlistarmanna og er ætlað
að endurspegla dægurtónlist á
því 50 ára tímabili sem félagið
hefur starfað. Sjónvarpið mun
gera þessu afmæli skil í nokkr
um þáttum. í þessum fyrsta
þætti er flutt tónlist frá árunum
1972—1982. Fram koma hljóm-
sveitirnar Friðryk, Start,
Þrumuvagninn, Mezzoforte,
Brimkló, Pelikan og Þursa-
flokkurinn.
Kynnir: Þorgeir Ástvaldsson.
Stjórn upptöku: Andrés Indriða-
son.
Dagskrárlok óákveðin.
/MhNUDöGUR
8. mars
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
Þar sem liljurnar blómstra
„Þar sem liljurnar blómstra, bandarísk bfómynd frá árinu
1974, er á dagskrá sjónvarps kl. 21.05 laugardaginn 13. marz.
Leikstjóri er William A. Graham en meó aóalhlutverk fara Julle
Gholson, Jan Smithers og Harry Dean Stanton. Myndin greinir
frá fjórum, sem eiga enga foreldra eftir aó pabbi þeirra deyr.
Þau halda andláti hans leyndu til þess aó koma í veg fyrir, aó
þau veröi aðskilin og komiö fyrir á stofnunum. — Kvikmynda-
handbókin gefur þessari mynd fjórar stjörnur og telur hana
þar meó mjög góóa.
BUTLEY
„Butley“, brezk-bandarísk bíómynd frá árinu 1973, byggö á
leikriti eftir Simon Gray, er á dagskrá sjónvarps kl. 22.00
föstudaginn 12. marz. Leikstjóri er Harold Pinter en meó aðal-
hlutverk fara Alan Bates, Jessica Tandy og Richard O’Callagh-
an. Myndín fjallar um hjónabönd, en þó aðallega um Butley,
sem er kennari vió Lundúnaháskóla. Butley er erfióur f sam-
býli og konan fer frá honum með ungabarn þeirra meó sér.
Ben Butley er uppspenntur persónuleiki og þessi eiginleiki
hans vill veróa til þess aó spilla samskiptum hans og annarra.
— Kvikmyndahandbókin gefur þeesari mynd fjórar stjörnur og
telur hana þar meó mjög góóa.
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Ævintýri fyrir háttinn
Sjötti þáttur.
Tékkneskur teiknimyndaflokk-
ur.
20.40 Reykingar
Fyrsti þáttur.
{ tilefni af „reyklausum degi“
9. mars, verða á dagskrá Sjón-
varpsins 8., 9. og 10. mars stutt-
ir þættir, sem fjalla um skað-
semi reykinga. óbeinar reyk-
ingar, nýtt frumvarp um reyk-
ingavarnir o.fl.
Umsjónarmaður: Sigrún Stef-
ánsdóttir. Stjórn upptöku: Marí-
anna Friðjónsdóttir.
20.50 íþróttir
Umsjón: Bjarni Felixson.
21.20 Við dauðans dyr
Leikrit eftir Valentin Rasputin {
uppfærslu fínnska sjónvarpsins.
Leikstjóri: Timo Bergholm. Að-
alhlutverk: Irma Seikkula, Anja
Pohjola og Oiva Lohtander.
Leikritið fjallar um gamla og
vitra konu, börn hennar og mis-
munandi afstöðu þeirra til Iffs
og dauða. Sagan gerist í litlum
bæ i Síberfu, en þangað eru
börnin komin til þess að kveðja
móður sína hinstu kveðju.
Þýðandi: Kristín Mántylá.
(Nordvision — Finnska sjón-
varpið.)
LEGUK0PAR
Legukopar og fóðringar-
efni í hólkum og heilum
stöngum.
Vestur-þýzkt úrvals efni.
Atlashf
Ármúli 7 — Sími 26755.
Pósthólf 493, Reykjavík
22.35 Spánn í NATO?
Verður Spánn eitt af aðildar
ríkjum Atlantshafsbandalags-
ins? Sovétmenn hafa lagt
áherslu á, að Spánverjar verði
utan bandalagsins, og sömuleið-
is stjórnarandstaðan á Spáni.
En ríkisstjórn landsins stefnir
að inngöngu f bandalagið, og
allt bendir til þess, að af henni
verði í maímánuði nk.
Þýðandi og þulur: Guðni Koh
beinsson.
22.45 Dagskrárlok
ÞRIÐJUDKGUR
9. mars
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Múmínálfarnir
Þrettándi og síðasti þáttur.
Þýðandi: Hallveig Thorlacius.
Sögumaður: Ragnheiður Stein-
dórsdóttir. (Nordvision —
Sænska sjónvarpið.)
20.45 Reykingar
Annar þáttur.
Fjallað er um skaðsemi reyk-
inga og fleira í tilefni af „reyk-
lausum degi“ f dag, 9. mars.
Umsjón: Sigrún Stefánsdóttir.
Stjórn upptöku: Maríanna Frið-
jónsdóttir.
20.55 Albeimurinn
Ellefti þáttur. Þrálátt minnið
Hvað er fólgið í vitsmunalífí?
spyr Carl Sagan, leiðsögumaður
okkar f þessum þáttum. í þætt-
inum fjallar Sagan um manns-
heilann og miðtaugakerfið.
Þýðandi: Jón O. Edwald.
22.00 Eddi Þvengur
Níundi þáttur.
Breskur sakamálamyndaflokk-
ur. Þýðandi: Dóra llafsteins-
dóttir.
22.50 Fréttaspegill
Umsjón: Ólafur Sigurðsson.
23.25 Dagskrárlok
AIKMIKUDKGUR
lO.mars
18.00 Nasarnir
Fyrsti þáttur.
Þriggja þátta flokkur um nasa,
kynjaverur, sem líta að nokkru
leyti út eins og menn og að
nokkru eins og dýr. Nasarnir
hafa tekið sér bólfestu f kofum
meðfram ánni. Ýmislegt skrýtið
drífur á daga þeirra.
Þýðandi: Jóhanna Jóhannsdótt-
ir. (Nordvision — Sænska sjón-
varpið.)
VORLÍNAN ’82
er komin
18.20 Oheillakráka
Bresk fræðslumynd um fugla af
hröfnungaætt. Ymsar goðsagnir
eru til um fugla þessarar ættar,
en einkum þó krákuna. Þær eru
tíðum í fornum sögnum tákn
um lánleysi eða dauða.
Þýðandi og þulur: Óskar Ingi-
marsson.
18.45 Ljóðmál
Enskukennsla fyrir unglinga.
19.00 HM í skíðaíþróttum
Frá heimsmeistaramótinu f
norrænum skíðaíþróttum í
Osló.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Reykingar
Þriðji og síðasti þáttur.
Um skaðsemi reykinga, óbeinar
reykingar og fleira í tilefni af
„reyklausum degi“.
Umsjón: Sigrún Stefánsdóttir.
Stjórn upptöku: Maríanna Frið-
jónsdóttir.
20.45 Nýjasta tækni og vfsindi
Umsjón: Sigurður H. Richter.
21.15 Emile Zola
Nýr flokkur
Fyrsti þáttur. Hugrakkur mað-
ur.
Franskur framhaldsmynda-
Óheillakráka
Brezk fræóslumynd um
fugla af höfrungamtt,
„Óheillakréka“, er á dagskrá
sjónvarpsins kl. 18.20 nk.
miðvikudag. Ýmsar goó-
sagnir eru til um fugla þess-
arar ættar, en einkum þó
krákuna. Þær eru tfóum
haföar í fornum sögum sem
tákn um lánleysi eóa dauöa.
flokkur í fjórum þáttum. Höf-
undar: Armand Lanoux og
Stello Lorenzi. Leikstjóri: Stello
Lorenzi. Aðalhlutverk: Jean
Topart, Dominique Davray,
Maryvonne Schiltz. Francois
Chaumette, André Valmy.
I þáttunum er fjallað um
Dreyfus-málið fræga í Frakk-
landi, en jafnframt er dregin
upp mynd af Emile Zola, sem
lét ekki bilbug á sér fínna f erf-
iðri baráttu fyrir sannleikanum.
í fyrsta þætti segir frá því
hvernig virtur rithöfundur gerir
sér grein fyrir því, að liðsforingi
í hcrnum, sem er af gyðingaætt-
um, hefur verið órétti beittur.
Þýðandi: Friðrik Páll Jónsson.
23.05 Dagskrárlok
FÖSTUDKGUR
12. mars
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Á döfinni
Umsjón: Karl Sigtryggsson.
20.50 Skonrokk
Popptónlistarþáttur.
Umsjónarmaður: Edda And-
résdóttir.
21.20 Fréttaspegill
Umsjón: Guðjón Einarsson.
22.00 Butley
(Butley) Bresk-bandarísk bfó-
mynd frá árinu 1973 byggð á
leikriti eftir Simon Gray.
Leikstjóri: Harold Pinter. Aðal-
hlutverk: Alan Bates, Jessica
Tandy, Richard O’Callaghan.
Myndin fjallar um hjónabönd,
en þó aðallega Butley, kennara
við Lundúnaháskóla. Hann er
erfíður f sambýli og konan fer
frá honum með ungbarn þeirra
með sér. Ben Butley er upp-
spenntur persónuleiki og þessi
eiginleiki hans vill verða til
þess að spilla samskiptum hans
og annarra.
Þýðandi: Heba Júlíusdóttir.
00.05 Dagskrárlok
L4UG4RD4GUR
13. mars
14.55 íþróttir.
Bein útsending.
Sýndur verður úrslitaleikur í
ensku deildarbikarkeppninni
milli Liverpool og Tottenham
Hotspur, sem fram fer á
Wembley-leikvanginum f Lund-
únum.
16.45 íþróttir.
Umsjón: Bjarni Felixson.
18.30 Riddarinn sjónumhryggi.
Sextándi þáttur.
Spænskur teiknimyndaflokkur
um farandriddarann Don Quij-
ote.
Þýðandi: Sonja Diego.
18.55 Enska knattspyrnan.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Löður.
49. þáttur.
Bandarískur gamanmynda-
flokkur.
Þýðandi: Ellert Sigurbjörnsson.
Emile Zola
Franskur framhaldsmynda-
flokkur um Dreyfus-málió
fræga f Frakklandi hafur
göngu sína í sjónvarpinu á
miövikudagskvöld kl. 21.15,
og nefnist fyrsti þáttur „Hug-
rakkur maöur“. Höfundar eru
Armand Lanoux og Stello
Lorenzi, sem jafnframt er
leikstjóri. Meó aóalhlutverk
fara Jean Topart, Dominique
Davray, Maryvonne Schiltz,
Francois Chaumette og
André Valmy. I þáttunum er
dregin upp mynd af rithöf-
undinum Emile Zola, sem
ekki lét bilbug á sér finna f
erfiðri baráttu fyrir sannleik-
anum. í fyrsta þsetti er greint
frá því hvernig þessi virti rit-
höfundur geröi sór grein fyrir
því, aó liósforingi f hernum,
sem er af gyóingaættum,
hefói verið órétti beittur.
MMBBBHMMMMM
21.05 Þar sem liljurnar blómstra.
(Where the Lilies Bloom)
Bandarísk bfómynd frá árinu
1974.
Leikstjóri: William A. Graham.
Aðalhlutverk: Julie Gholson,
Jan Smithers, Harry Dean
Stanton.
Myndin segir frá fjórum börn-
um, sem eiga enga foreldra eftir
að pabbi þeirra deyr. Þau halda
andláti hans leyndu til þess að
koma í veg fyrir, að þau verði
skilin að og send á stofnanir.
Þýðandi: Rannveig Tryggva-
dóttir.
22.40 Svefninn langi.
Endursýning.
(The Big Sleep)
Bandarfsk bfómynd frá árinu
1946, byggð á skáldsögu eftir
Raymond Chandler.
Leikstjóri: Howard Hawks.
Aðalhlutverk: Humphrey Bog-
art, Laureen Bacall og Martha
Vickers.
Leynilögreglumaður er kvaddur
á fund aldraðs hershöfðingja,
sem á tvær uppkomnar dætur.
Hann hefur þungar áhyggjur af
framferði þeirra, þvf önnur er
haldin ákafri vergirni, en hin
spilafíkn. Nú hefur hegðan ann-
arrar valdið þvf, að gamli mað-
urinn er beittur fjárkúgun.
Einnig kemur f ljós, að náinn
vinur fjölskyldunnar hefur horf-
ið. Leynilögreglumaðurinn
flækist óafvitandi inn f mál fjöh
skyldunnar og brátt dregur til
tfðinda.
Þýðandi: Jón Skaftason.
Mynd þessi var áður sýnd í
Sjónvarpinu 30. september
1972.
00.30 Dagskrárlok.
mmmmmm HHHHi mmmmmm
HITT 0G LÍKA ÞETTA
„A Town
like Alice“
Úr „A town like Alice“, sem sjónvarpió fer aó hefja sýningar á meö vorinu. Þeir, sem framleiddu þá
þáttaröð, framleíddu einnig myndaflokkinn „Against the Wind“ sem sýndur var í sjónvarpinu fyrir
nokkru.
„A Town like Alice“, er heiti
á framhaldsmyndaflokki sem
sjónvarpiö hefur fjárfest í
meö þaö í huga aö senda
hann á öldum Ijósvakans um
sjónvarpskerfi okkar íslend-
inga einhvern tíma meö vor-
inu, ef ekki fyrr. Myndaflokk-
ur þessi er ástralskur aö ætt
og uppruna. Hann er geröur
eftir bók, metsölubók meira
aö segja, eftir Nevil nokkurn
Shute. Bókin varö mjög vin-
sæl enda seldist hún í ekkl
færri en tveimur milljónum
eintaka fyrsta kastiö og hefur
hún veriö þýdd á 14 tungu-
mál. Ekkert viröist myndá-
flokkurinn þessi vera síöri en
bókin, því hann hlaut hin virtu
Emmy-verölaun árið 1981 og
hefur veriö sjónvarpaö um
rétt 44 lönd.
Viö hér á fslandi erum ekki
alveg hreint ókunnug þeim
framleiðendum sem standa
aö myndaflokknum, því þeir
eru nefnilega hinir sömu og
framleiddu myndaflokkinn
um geöþekku írsku stúlkuna,
sem send var sem fangi í'
fanganýlendur í Ástralíu. Sú
giftist, eftir miklar hamfarir í
nýja landinu, luralegum
vinnumanni og þau fóru aö
búa. Þættirnir voru byggöir á
sannsögulegum atburöum og
geröust í lok átjándu aldar-
innar og í byrjun þeirrar nítj-
ándu. Annars var ég aö frétta
aö þessi sem lék vinnu-
manninn á bænum í þeim
þáttum, ef einhver man eftir
honum, er meiriháttar
rokkstjarna í Ástralíu.
„A Town like Alice“ gerist
hins vegar í seinni heimsstyrj-
öldinni og segir frá stúlku
nokkurri sem handtekin er af
Japönum og flutt í kvenna-
fangabúðir þeirra á Malakka-
skaga. Inn í þaö fléttast hinir
og þessir atburöir og jafnvel
ástarævintýri, sem ómögu-
legt er aö segja frá núna. Þaö
myndi bara skemma fyrir. Þó
er í lagi aö minnast á þaö aö
hann Gordon Jackson, sem
lék í þáttunum bresku „Hús-
bændur og hjú“, leikur stórt
hlutverk í þessum þáttum.
Útvarpsráö hefur fjallaö
nokkuö um undirskriftalista,
sem fólk hefur veriö að safna
undanfarnar vikur, þar sem
beöið er sem náöarsamleg-
ast um aö Dallas-þættirnir
veröi teknir til sýninga aftur.
Þaö er að segja þeir þættir
sem ekki er þegar búiö aö
sýna hér á landi, náttúrulega.
Heyrst hefur aö útvarpsráö
teldi ráölegt aö taka afstööu
til áframhaldandi sýninga á
Dallas mjög fljótlega. Úr
þessu orðalagi er hægt aö
lesa aö meirihluti útvarpsráös
samþykki á næstunni aö
kaupa til iandsins fleiri þætti
um Dallas-liöiö, en þó ekki í
neinu hasti. Fyrstu þættirnir
veröa sennilega ekki sýndir
fyrr en þegar fer að líöa á
vorið.
Á þessu má sjá aö undir-
skriftalistar eru til margra
hluta nytsamlegir, þó heyrst
hafi líka aö útvarpsráö hafi
svo sem ekki orðið neitt upp-
veörað út af þeim. En maöur
fer nú bara aö bíöa eftir því
aö undirskriftalistar fari í
gang sem heimta þá kump-
ána Tomma og Jenna á skjá-
inn aftur, eöa sem heimta að
Ómar Ragnarsson veröi lát-
inn lesa veöurfréttlrnar, eöa
þá aö þulirnir veröi látnir vera
í bikini, eöa jafnvel aö ög-
mundur Jónasson raki skegg
sitt.
„Butley“ nefnist leikrit eftir
Simon Grey, sem eflaust
verður bráölega sýnt í sjón-
varpinu. Þaö er breskt, en
þaö skemmtilega viö þaö
svona aö óséöu er aö leik-
ritahöfundurinn Harold Pinter
leikstýrir því.
„Húsiö á sléttunni”, eða
„Grenjað á gresjunni", eöa
„Tárast á túndrunni" fer brátt
aö renna sitt skeið á enda, í
bili aö minnsta kosti. Síðasti
þátturinn veröur aö öllum lík-
indum sýndur um miöjan apr-
íl en um þaö leyti fer sumar-
dagskrá sjónvarpsins af staö.
Karl Ingjalds í „Húsinu é sléttunni", en þættirnir um Ingjaldsfjöl-
skylduna fara brátt aö renna sitt skeið á enda.