Morgunblaðið - 09.11.1983, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 09.11.1983, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1983 50 Landbrot Hér- aösvatna verð- ur að stöðva Þetta er fyrirhleðslugarðurinn vestan núverandi farvega Héraðsvatna og var hann aðallega byggður á síðastliðnum tveim áratugum. (Reykjatunga í baksýn.) Hann er staðsettur í landi Miklabæjar og kemur í veg fyrir að vötnin valdi tjóni á flatlendinu vestur og norður af bænum Stokkhólma. Þessi garður hefur engu að síður valdið því að stórfellt landbrot hefur átt sér stað og á sér stað austan Héraösvatna, vegna þess að engar fyrirbyggjandi aðgerðir voru þar gerðar á sínum tíma. Garðurinn hefur verið hækkaður og styrktur stórlega síðan þessi mynd var tekin í sept. sl., en ekkert er ennþá gert fyrir austan Vötn. eftir Þórstein Ragnarsson Miklabæ, 17. október. í RÚMLEGA tvo áratugi hafa Héraðsvötn í Skagafirði verið að sverfa af ræktuðu landi austan Vatna. Verst hafa Vötnin leikið jörðina Þorleifsstaði í Akra- hreppi, en þar hafa þau skolað á haf lít verðmætri gróðurmold af tugum hektara. Bæirnir Miðhús, Höskuldsstaðir, Grundarkot, Hrólfsstaðir og Stóru-Akrar hafa einnig orðið fyrir barðinu á vatnsfallinu, en í minna mæli. Forsaga þessa máls er, að stór- um hluta til, einhliða bygging fyrirhleðslugarðs að vestanverðu, þ.e. frá Arnarstapa í landi Vind- heima og eftir Miklabæjareyrum vestanverðum í átt að Stokk- hólma. Þetta mannvirki var að mestu leyti gert á síðastliðnum tveimur áratugum og átti aðeins rétt á sér samhliða því, að fyrir- hleðslugarðar væru byggðir að austanverðu, en það hefur ennþá ekki verið gert þrátt fyrir gífur- legar afleiðingar, sem áður grein- ir. Vegagerð ríkisins hefur tekið að sér viðhald vatnagarðsins að vest- anverðu vegna flóðahættu við, Þjóðveg nr. 1 frá Varmahlíð að Héraðsvatnabrúnni nýju. Verk- fræðingar Vegagerðarinnar höfðu áformað að styrkja garðinn með hleðslu grjótgarða (straumbeina) út úr gamla garðinum, allt að 170 m langa, en vatnafélagið Land- vörn mótmælti þeirri ráðagerð vegna frekari hættu á landbroti austan Héraðsvatna. Þeim mót- mælum var ekki fyllilega sinnt, því straumbeinir var gerður út úr garðinum í trássi við viljayfirlýs- ingu fundarmanna í Vatnafélag- inu Landvörn, og er það litið al- varlegum augum. Þjóðvegur nr. 1 liggur í gegnum Akrahrepp framanverðan og hef- ur varanlegt slitlag verið lagt á veginn fram að Miðhúsum. Síð- astliðinn vetur munaði minnstu að vötnin ólguðu yfir nýja veginn á löngu svæði, allt frá Miðhúsum og út undir Dalsá, og er því ráða- mönnum Vegagerðarinnar brýn þörf á að huga að fyrirbyggjandi aðgerðum að austan engu síður en að vestan. Það er mál til komið að látið verði af einhliða fikti öðru hvoru megin við vötnin og sam- ræmd vinnubrögð verði tekin upp, þar sem samráð væri haft við hagsmunaaðila bæði austan og vestan Vatna. Vatnafélagið Land- vörn var stofnað af þessum hags- munaaðilum og nær félgssvæðið frá Uppsölum að framanverðu og út að Grundarstokk (Miðgrund) og á þessu svæði eru yfir 30 jarðir beggja vegna við Héraðsvötnin. Það verður ekki liðið, að ráða- menn Vegagerðar ríkisins fram- kvæmi við Héraðsvötn einhliða ráðstafanir í nafni vegagerðar, án tillits til viljayfirlýsingar starf- andi vatnafélags á svæðinu. Þess skal að lokum getið, að unnið er að því að upplýsa ráða- menn þjóðarinnar um það mikla landbrot, sem á sér stað austan Héraðsvatna. Það er gert í þeirri von, að þá ljúkist upp fyrir öllum hlutaðeigandi aðilum hvað sé brýnast: Að stöðva landbrot í stór- um stíl! Þórsteinn Ragnarsson er stjórnar- maður í Vatnafélaginu Landvörn. Þorleifur Hólmsteinsson, bóndi og formaður í vatnafélaginu Landvörn, stendur hér í túni sínu Hér má sjá hvernig vatnselgurinn leikur sér að því að rífa niður um 10 metra háa moldarbakka neðan við bæinn Þorleifsstaði í Akrahreppi, en þar hafa Héraðsvötn skolað á haf út tugum neðan við bæinn Þorleifsstaði í Akrahreppi, Skagafirði. hektara á um 1130 m strandlínu. Hrafnabjörg II, 1930, eftir Jóhannes Kjarval. Litprentuð kort af verkum í eigu Listasafns íslands UNDANFARIN 20 ár hefur Listasafn íslands látið gera eftirprentanir af verkum íslenskra myndlistarmanna í eigu safnsins. Nú eru nýkomin út þrjú litprentuð kort á tvöfalt karton af eftirtöldum verkum: Taumar, 1977, eftir Hörð Ágústsson, Hrafnabjörg II, 1930, eftir Jóhannes S. Kjarval, Slóð í sandinn, 1983, eftir Sigurð Sigurðsson. Kortin eru til sölu í safninu. Úr rrétutilkynningu. Aðalfundur læknafélags íslands: Heilsugæslustöð taki árlega til starfa í Rvík næstu fimm ár Á AÐALFUNDI Læknafélags íslands, sem haldinn var í Reykja- vík dagana 19. og 20. september, var auk venjulegra aðalfundar- starfa fjallað um ýmis mál og gerðar um þau ályktanir. í ályktun- um frá fundinum segir meðal annars, að fjölgun heilsugæslu- stöðva í Reykjavík sé aðkallandi og er því beint til heilbrigðismálaráðherra að stofnun heilsugæslustöðva verði hrað- að þannig að ein stöð taki til starfa árlega næstu fimm árin. Þá voru samþykktar tillögur um að halda ráðstefnu um skipulag og samræmingu á námi islenskra lækna heima og erlendis. Þá var vakin athygli á að ekkert mið- bókasafn í læknisfræðum er til og var ákveðið að athuga hvort slíkt safn gæti fengið inni í þjóðar- bókhlöðunni. Fundurinn lýsti því yfir varðandi ógn kjarnorkuvíg- búnaðarins að auka þyrfti fræðslu heilbrigðisstétta og almennings um afleiðingar kjarnorkustríðs og fagnaði stofnun samtaka ís- lenskra lækna gegn kjarnorkuvá. Þá skoraði fundurinn á heil- brigðismálaráðherra að láta gera áætlun um læknaþörf á Islandi fram til næstu aldamóta, bæði varðandi heildarfjölda og fjölda lækna í hinum ýmsu sérgreinum. Á fundinum voru kosnir tveir heiðursfélagar, þeir Jón Steffen- sen, prófessor emeritus, og Þór- oddur Jónasson, læknir á Akur- eyri. Þorvaldur Veigar Guðmundsson var endurkjörinn formaður, og Jón Bjarni Þorsteinsson var endurkjörinn gjaldkeri, báðir til tveggja ára. Meðstjórnendur voru kjörnir til eins árs þeir Finnbogi Jakobsson, Haukur Þórðarson og ólafur Z. Ólafsson. Fyrir í stjórn voru Halldór Steinsen varafor- maður, Kristján Eyjólfsson ritari og Kristófer Þorleifsson með- stjórnandi. Úr frétutilkynningu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.