Morgunblaðið - 09.11.1983, Síða 4
52
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1983
Hvarfer
vöruverö
neöar?
/V1IKUG4RDUR
MARKAÐUR VÐ SUND
ÖRVERUFRÆÐI__ ______eftir dr. Ara Kr. Sæmundsson
Fjölbreytileiki baktería
Bakteríum er jafnan skipt ( þrjá megin hópa eftir lögun, þ.e. í staflega (bacilli),
hnattlaga (cooci) og spírallaga (spirilla) bakteríur. Á efri hhita myndarinnar má
sjá smásjármyndir af þessum þremur hópum (til vinstri) og þeir hafa einnig verið
teiknaðir (til hsgri) til frekari glöggvunar. Á neðri hluta myndarinnar má sjá
rafeindasmásjármynd af bakteríu í skiptingu (tU vinstri). Einnig eru sýnd nokkur
stig frumuskiptingar (til hsgri). Takið eftir hvernig frumuveggurinn vex niður og
inn í bakteríuna og skiptir henni smám saman (tvo nýja einstaklinga. Ktaflaga
bakteríur eru að jafnaði u.þ.b. einn míkrómeter að lengd, en það er V1000 úr
millimetra. ((lr bókinni „Biology Today“)
Bakteríur eru merkilegar lífver-
ur. Þær eru einfrumungar, þ.e.
hver einstök fruma er sjálfstæður
einstaklingur. Innviðir baktería
mynda engan skipulegan strúktúr,
líkt og hjá heilkjörnungum (euca-
ryotes), þar sem frumunni er skipt
í kjarna og umfrymi og í umfrym-
inu er að finna fjölda frumu-
líffæra, sem öll gegna einhverju
ákveðnu hlutverki. Allar frumur
mannslíkamans eru t.d. ( hópi
heilkjörnunga. Þessu er sem sagt
ekki til að dreifa hjá bakteríum og
þær fylla því þann flokk Hfvera,
sem nefnast einu nafni dreifkjörn-
ungar (procaryotes). Miðað við
heilkjörnunga, þá eru bakteríur
mjög einfaldar að uppbyggingu og
gerð. Erfðaefni baktería er saman
komið ( einum bakteríulitningi,
sem flýtur um í súpu af próteinum
og öðrum lífefnum. Þessa súpu
umlykur svo frumuhimna og utan
um frumuhimnuna er að finna
frumuvegg. Frumuveggir bakteria
eru mjög sterkbyggðir og gera
þeim kleift að þola margt það, sem
venjulegir heilkjörnungar þola
ekki.
Bakteriur fjölga sér með því að
hver einstök bakteríufruma deilir
sér í tvennt. Þá myndast tvær
svokallaðar dótturfrumur, sem
síðan deila sér aftur og svo koll af
kolli. Sá tími, sem líður frá þvi að
ný bakteria fæðist á þennan hátt,
og þar til að sú baktería er reiðu-
búin að skipta sér að nýju, kallast
kynslóðatími (generation time).
Kynslóðatíminn hjá bakteríum er
yfirleitt mjög stuttur. Það leiðir
því af sjálfu sér að ein baktería
getur eignast ótrúlega marga af-
komendur á tiltölulega skömmum
tíma. Tökum dæmi: í bakteríu-
rækt, þá getur kynslóðatími saur-
bakteríunnar Escherichia coli, sem
sennilega er mest rannsakaða og
best þekkta lífvera á jarðríki,
komist niður í 20 mínútur. Á
tveimur klukkustundum verða því
til sex kynslóðir baktería, sem
myndi svara til 120 ára hjá mann-
inum. Á einum sólarhring myndi
ein E. coli-baktería eignast u.þ.b.
10.000.000.000.000.000.000.000 af-
komendur, sem myndu vega um
10.000 tonn. Að öðrum sólarhring
liðnum myndi massi afkomend-
anna vera margfaldur massi jarð-
ar. Það geta allir séð að þetta gæti
aldrei gengið og þetta gerist ekki.
í bakteríuræktun í tilraunastof-
um örverufræðinga eru vaxtarsk-
ilyrði yfirleitt ákaflega góð og
vaxtarhraði því mikill. Þar af leið-
ir að kynslóðatíminn er mjög
stuttur eins og í dæminu hér að
ofan. Slík vaxtarskilyrði eru ákaf-
lega sjaldan fyrir hendi í náttur-
unni, sem gerir það að verkum að
vaxtarhraðinn er mun hægari, auk
þess er ekki til nægilegt rými fyrir
alla þessa nýju einstaklinga. Það
sem gerir það að verkum að bakt-
eríur eiga ekki við „fólksfjölgun-
arvandamár að stríða er sífelld
samkeppni um lífsviðurværi og
bústað og lífslíkur því ákaflega
litlar. Til þess að létta sér lífsbar-
áttuna hafa margar bakteríuteg-
undir aðlagað sig mjög sérstökum
aðstæðum.
Maðurinn stærir sig oft af ótrú-
legri aðlögunarhæfni. Með allri
virðingu fyrir manninum og að-
lögunarhæfni hans, kemst hann
ekki með tærnar þar sem bakterí-
urnar hafa „hælana". Að vísu
verður að segjast eins og er að það
hefur tekið þær bakteríur, sem
valið hafa sér að okkar mati,
kúnstugt umhverfi til búsetu,
milljónir ára að þróa þá byggingu
og þau efnaskiptaferli, sem henta
best til búsetu á þeim ákveðna
stað. Margar bakteríur eru þvi
mjög háðar því umhverfi sem þær
hafa valið sér, og eru dauðans
matur ef snöggar breytingar verða
i umhverfinu. Það breytir ekki því
að bakteríur hafa aðlagað sig að-
stæðum, sem maðurinn gæti að-
eins látið sig dreyma um að sigr-
ast á.
Bakteríur má finna allt frá
sjávardjúpum suðurheimskauts-
ins til sjóðandi hvera á íslandi.
Þær er að finna á ísbreiðum jökla,
i saltpæklum og sýrum, og jafnvel
i bensíntönkum. Þær er að finna
djúpt i jörðu og í innyflum manna
og dýra. Þær eru alls staðar.
En fjölbreytileiki baktería kem-
ur ekki aðeins fram í þeim mörgu
ólíku stöðum, sem þær hafa valið
sér til búsetu. Bakteríur hafa
jafnframt þróað með sér mjög
flókin og mismunandi efnaskipta-
ferli, sem gerir þeim kleift að nýta
sér furðuleg búsetuskilyrði til
fulls. Til eru ljóstillífandi bakteri-
ur sem geta notfært sólarljósið,
líkt og plöntur. Til eru fjölmargar
bakteríur sem beinlínis drepast í
því andrúmslofti sem hentar
okkur best. Þær eru sem sagt
loftfælnar (a' xerobic). Þær velja
sér því bústaðí þar sem litlar likur
eru á að súrefni verði á vegi
þeirra. Þess í stað nota þær köfn-
unarefni, brennistein eða koltvi-
sýring til öndunar.
Þar að auki eru flestar bakterí-
ur, þrátt fyrir smæð sína, sjálfum
sér nógar um framleiðslu á öllum
þeim lífefnum sem nauðsynleg eru
til að þær geti lifað af. Þær fram-
leiða jafnframt mörg lífræn efni,
sem nauðsynleg eru öðrum lifver-
um til vaxtar og viðgangs, um leið
og þær gegna miklu hlutverki í
rotnun og sjá þannig til þess að
ýmiss frumefni losni úr flóknum
efnasamböndum og standi öðrum
lífverum til boða. Það má því með
sanni segja að með starfsemi sinni
á ólíkustu stöðum séu bakteríur
einn mikilvægasti hlekkurinn í því
stóra vistkerfi sem jörðin er.
Heimildir:
GA Stent (1971) „Molecular Genetica“. W.H.
Freeman & Co.f San Francisco, California.
T.D. Brock (1974) „Biology of Microorganiama**.
Prentice-Hall, Inc., Englewood Cliffa, New Jer»-
ey.
Margir höfundar (1972) „Biology Today“. CRM
Boolts. Del Mar, California.
SC BDMHG
Dieselknúnar
jarðvegsþjöppur
Eigum nú fyrirliggjandi 2 gerðir
af dieselknúnum jarðvegsþjöppum
frá BOMAG, 152 og 177 kg að þyngd.
Hagstætt verð.
BÍLABORG HF.
Smiðshöfða 23 sími 812 99
Þrír af forsvarsmönnum Flugleiðaskákmótsins með verðlaunabikarinn sem
keppt er um. Frá vinstri. Andri Hrólfsson, Björn Theodórsson og Hálfdán
Hermannsson.
24 sveitir
skákmóti
Flugleiðaskákmótið ’83 fer fram
dagana 12. og 13. nóvember að Hótel
Loftleiðum. Þetta er í fimmta sinn,
sem Flugleiðir efna til móts af þessu
tagi, en hið fyrsta fór fram árið 1979.
í Flugleiðaskákmótinu taka þátt
24 sveitir, þar af 11 utan af landi.
Keppt verður um bikar, sem Flug-
leiðir hafa látið gera, auk þess sem
fleiri verðlaun eru í boði, jafnt til
skáksveita sem einstaklinga innan
þeirra.
Fram til þessa hefur sveit Búnað-
keppa á
Flugleiða
arbanka Islands farið þrisvar með
sigur af hólmi í Flugleiðaskákmót-
um og sveit Útvegsbanka Islands
einu sinni.
Flugleiðaskákmótið hefst klukk-
an níu að morgni laugardaginn 12.
nóvember í Kristalssal Hótels Loft-
leiða og verða tefldar 23 umferðir.
Mótinu lýkur með verðlaunaaf-
hendingu á sunnudagskvöld. Skák-
stjórar eru Hálfdán Hermannsson
og Andri Hrólfsson.
0r fréttatilkynningu.