Morgunblaðið - 09.11.1983, Síða 5

Morgunblaðið - 09.11.1983, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER1983 53 Listasafn ASÍ fær gjöf LISTASAFNI ASÍ hefur borist málverk af Vilhjálmi S. Vil- hjálmssyni að gjöf. Það var ekkja Vilhjálms og börn, sem gáfu málverkið. Jón Engilberts málaði myndina á árunum 1963—64 í tilefni af 60 ára af- mæli Vilhjálms og gaf fjöl- skyldunni síðan málverkið. í bakgrunni myndarinnar er sjóvarnargarðurinn á Eyrarbakka og fylking verkafólks með kröfu- spjöld og fána, en Eyrbekkingur- inn Vilhjálmur S. Vilhjálmsson var lengi blaðamaður á Alþýðu- blaðinu og skrifaði mikið um kaup og kjör verkafólks. Listasafni ASl er mikill fengur að þessu málverki Jóns Engilberts og þakkar þann hlýhug til safns- ins, sem gjöfinni fylgdi. Á myndinni eru talið frá vinstri: Guðmundur Vilhjálmsson, Berg- þóra Guðmundsdóttir, Helga Vilhjálmsdóttir Frahm, Gíslfna Vilhjálmsdóttir og Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, sem veitti gjöfinni viðtöku. (Úr rrétutilkynningn) Bókaútgáfan Örn og Órlygur: Ferdabók Sveins Pálssonar BÓKAÚTGÁFAN Örn og Örlygur hefur gefið út Ferðabók Sveins Pálssonar í þýðingu Jóns Eyþórs- sonar, Pálma Hannessonar og Steindórs Steindórssonar. Bókin kom fyrst út í þýðingu þeirra árið 1945, en nú eru í bókinni „Nokkur lokaorð“ Steindórs, þar sem hann segir í fáum orðum sögu þýðingar- innar og minnist samþýðenda sinna. Bókinni fylgir sérprentaður uppdráttur af Skaftáreldahrauni og Eldsveitunum, en sá uppdrátt- ur Sveins er nú prentaður í fyrsta sinn. Uppdrættina gerði Sveinn fyrir 200 árum, þegar hann skoð- aði upptök Skaftárelda og skráði svokallað Eldrit sitt, en það er sá hluti Ferðabókarinnar sem nú kemur út. Rétt er að geta þess að Haraldur Jónsson, kennari og hreppstjóri í Gröf á Snæfellsnesi, vann það þrekvirki á sínum tíma að skrifa upp allt handrit Sveins, sem hann skrifaði á dönsku, orð- og stafrétt. Haraldur hóf þetta verk algerlega ótilkvaddur meðan hann var nem- andi í Kennaraskólanum en lauk því síðan í ígripum um 1930. Afrit Haraldar notuðu þeir Jón, Pálmi og Steindór er þeir þýddu bókina. Ferðabók Sveins Pálssonar er að öllu leyti unnin í Prentsmiðj- unni Odda hf. Sigurþór Jakobsson hannaði titilsíður, bókarspjöld og öskju. Samhliða hinni almennu útgáfu Ferðabókar Sveins Pálssonar sem nú kemur út voru gefin út 97 ein- tök af bókinni tölusett og árituð. Úr rrétUtilkynninKu. MelsnluHad ci hwrjum degi! vmu VERnon BHKIDPÉ Fáðu þér þá stál af fullkomnustu gerð ERO 13 kr.3.050. Hæðarstilling á baki og setu. Veltibak ERO DA 15 kr. 4.100.- Hxðarstilling á baki og setu Veltibak . Veltiseta ' ERO CD I5 kr. 6.040.- Hæoarstuling á og setu. Veltibak Veltiseta ■k ERO stólarnir veita baki þínu réttan stuðning og koma í veg fyrir óeðlilega þreytu og spennu í hryggnum. Þeir hafa alla yfirburði fullkomnustu stóla en eru engu að síður á einstaklega lágu verði. Stóöst gæðaprófun Teknologisk institut í Noregi. STÁLHÚSGAGNAGERO STEINARS HF. SKEIFUNNI 6.SÍMAR: 33590.35110. 39555

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.