Morgunblaðið - 09.11.1983, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 09.11.1983, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1983 55 ! i í Alþýðuskólinn á Eiðum. Allir núlifandi skólastjórar; skipaðir og settir. Talið frá v. Halldór Sigurðsson (s.) ’64—’65, Kristinn Kristjánsson (sk.) 75 ..., Þórarinn Þórarinsson (sk.) ’38—’65, Þorkell St. Ellertsson (sk.) '65—75, Haukur Ágústsson (s.) ’81 —’82 og Ármann Halldórsson (s.) ’59—60. göllum en í heimavist, hvergi öðl- ast menn nánari skilning á sam- vinnu, samhjálp og félagsskap en í heimavistum af því tagi sem lengst hafa fylgt þér, Eiðaskóli. Vissulega lagðir þú stundum á okkur ok og armæðu og þeir voru til sem kiknuðu undan kröfum þínum og byrðum. En þú kenndir okkur að hamingjan er fyrst og fremst fólgin í því að yfirvinna erfiðleika og sigrast á sjálfum sér. Við komum hingað öll fákunn- andi. Þú hertir okkur í blíðu og stríðu, meðlæti og mistökum. Þú kenndir okkur að lyfta Grettistök- um og veittir í veganesti þá gleði sem aldrei þrýtur, og við vitum nú að gott eitt höfðum við af öllu því sem þú mældir okkur, árekstrum, gremju, ástúð og samstarfi, áhuga, gleði og ótal lexíum öðrum sem við urðum að nema. Þannig eru spor þín óafmáanleg í sálum okkar. Þegar árin líða skynjar maður betur það sem yfir gnæfir allt annað. Það er kærleiksbandið, sem tengir alla Eiðamenn. Ylurinn sem maður skynjar í hjartanu, þegar Eiðaskóli er nefndur, hlýjan í brjóstinu við að hitta, sjá eða heyra gamla kunningja frá Eið- um, finna neistann sem kviknar þegar maður heyrir sagt — „ég var á Eiðurn". Þannig rætast einn- ig hér orð Páls postula, „kærleik- urinn fellur aldrei úr gildi“. Því er okkur í dag hverju og einu þakk- læti efst í huga, þakklæti fyrir allt það sem þú varst og gafst. Sér- staklega flyt ég einlægar þakkir fyrir mína hönd og minna. Kæri Eiðaskóli. Hér stendur þú í dag með 100 ár og allar þínar kynslóðir á herðum og ættir sam- kvæmt sumum lögmálum að vera lotinn og lúinn. En skóli eins og þú eldist ekki þótt árin líði. Ekki er heldur annað að sjá en þú sért bæði léttstígur og létt- brýnn. Svo mun verða meðan ræktarsemi lifir og fólk ann þér og menn kunna að meta mátt menn- ingar og mennta. Þær byrðar sem Eiðaskóli hefur á okkur mörg lagt eru þann veg gerðar, að þær létta lífsgönguna. Eiðaskóli gerir menn ekki örvasa heldur unga í anda og unga til átaka. Þannig er aldur Eiðaskóla ekki hefðbundin elli, heldur sífelld æska. Megi sú æska fylgja þér Eiða- skóli næstu 100 árin. Til hamingju með áfangann. EiÖum 11/6 ’83, Þorkell St. Ellertsson. HITAMÆLAR Vesturgötu 16, sími 13280. Þrýstimælar Allar stæröir og gerðir SöMFllgEflgjtyir WifíXTYl ®®<SXTö <& Vesturgötu 16, sími 13280 -HNGIMAR 3ÓNSSON- leikir «NTUCIRT1LÍI«ÓrTAK£NNSLU ÍSKÓUJM. VieUKAMSRÆKT, RJÁLRJN ÍWÓnAfÓLKS OC fYRIR ALMENNINC IÐUNN Iðunn gefur út „Leiki“ „LEIKIR” nefnist bók, sem lóunn hefur gefið út. Ingimar Jónsson tók bókina saman. í henni er lýst leikjum sem henta vel í íþróttakennslu, almennri lík- amsrækt, við þjálfum íþrótta- manna og fyrir almenning. Alls er lýst 75 leikjum ásamt afbrigðum þeirra. Teikningar í bókina gerði Eggert Pétursson en Brian Pilkington gerði kápumynd. „Leikir" er 117 blaðsíður. Prent- rún prentaði. (f'r rrétUtilkynningu) Ég óska eftir að fá sendan nýja ULFERTS myndalist- ann ókeypis. Nafn heimili staður m KRisunn SIGGEIRSSOn HF skipar eitt efstu sætanna á sölulista ULFERTS . . . ástæðan er augljós þegar þú hefur skoðað það nánar. Eins, tveggja og þriggja sæta, með tauáklæði sem taka má af og hreinsa. Ulferfs LAUGAVEG113, REYKJAVÍK, SÍMI 2587D

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.