Morgunblaðið - 09.11.1983, Page 12

Morgunblaðið - 09.11.1983, Page 12
60 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1983 Bindindi á íslandi — eftir Rónald Kristjánsson Ein erfiðasta barátta, sem mannkynið hefur háð, er baráttan við áfengisnautnina, enn hefur manninum ekki tekizt með allri sinni nútíma tækni og vizku að út- rýma með öllu áfengisbölinu. Varðandi okkur íslendinga, er ofdrykkjan margra alda gamall siður. Ef gluggað er í annála, er ekki farið fögrum orðum um drykkjuskap embættismanna t.d. á Alþingi og annarra. Eða á tíð hinnar dönsku einokunarverzlun- ar, þar sem segir að hún hafi verið birg af áfengum drykkjum, en aft- ur var mikill skortur á ýmsum nauðsynjavörum. Þjóðin reikaði um í blindni, og þurfti að opna augu hennar. Þetta sá Jón Árnason biskup í Skálholti (1722-1743). Hann er líklega fyrsti bannmaður þ.e. hefur bar- áttu gegn innflutningi áfengra drykkja til íslands. Tillögur hans um bann eða takmörkun þessa ásamt bænaskrá er hann og nokkrir embættismenn rituðu af Alþingi hinn 22. júlí 1733 voru merkis atburðir á þessum tímum, þar sem djarfaði ekki fyrir bind- indishreyfingu á Islandi. Danska stjórnin og einokunarverzlunin vissu að aðalhagnaðurinn var í brennivínssölunni, og fengu því tillögur Jóns biskups engan hljómgrunn. Fleiri menn gerðu tilraunir til þess að benda stjórn- inni á drykkjuskaparpláguna, eins og Ludwig Harboe, Dines Piper, Ólafur Stephánsson prestssonur frá Höskuldarstöðum á Skaga- strönd og Gísli biskup Magnússon á Hólum. En án árangurs. Um aldamótin 1800 var gefin út tilskipun varðandi áfengismál, er kom að haldi til frambúðar en það var bann við brennivínsbrennslu, sem var reyndar komið á, til að vernda hina dönsku brennivíns- kaupmenn fyrir samkeppni. Eins og margir vita, snertir áf- engisnotkun ekki eingöngu neyt- andann, heldur aðstandendur og aðra. Menn vakna nú við þann draum, að áfengisbölið er al- heimsvandamál. Svíinn Per Wies- elgren hefur bindindisstarfsemi meðal skólapilta árið 1819. Hið Ameríska bindindisfélag er stofn- að í Boston 1826, og er það talið formóðir allra bindindishreyfinga í hinum siðmenntaða heimi. fs- lenzkir stúdentar í Kaupmanna- höfn (Fjölnismenn) stofna 9. sept- ember 1843 hófsemdarfélag, sem 4. febrúar ári síðar er breytt í Is- lenzkt bindindisfélag. Upp úr því (1854—1872) fer að draga verulega úr drykkjuskap á íslandi. Árið 1872 lagði danska stjórnin í fyrsta sinn toll á brennivín til íslands. Alþingi hafði á þeim tíma ekki fullan ákvörðunarrétt um fé úr landssjóði en þangað átti tollurinn að renna. Og jókst því bindindis- áhugi manna og bindindisfélög stofnuð víðsvegar um landið. Á meðan Danir stóðu fastir á því að íslendingar hefðu ekki ákvörðun- arrétt um fé úr landssjóði skuld- bundu margir sig með undirskrift að gerast bindindismenn. Fá nú íslendingar fjárforræði með stjórnarskránni 1874, dalaði þá bindindisáhuginn. Salan minnkaði um rúma 420.000 potta fyrsta árið (eða úr tæpl. 545.000 pt. í rúml. 122.000 pt.) vegna hækkaðs verðs. En jókst svo aftur drykkjan. Um það leyti þegar bindindishreyf- ingarnar eru að dragast upp, er stofnuð í Utica í New York-ríki Hin óháða regla góðtemplara (1851), síðan varð hún Hin alþjóð- lega regla góðtemplara (IOGT). Eru þetta hin einu bindindissam- tök, sem starfað hafa óslitið frá stofnun. Má e.t.v. þakka það því að hún er regla en ekki félag, ásamt hugsjónastefnu sinni jafnrétti og bræðralag allra manna. Góðtemplarareglan kemur hingað til íslands fyrir tilstuðlan Norðmannsins Ole Lied, er stofn- aði stúku á Akureyri þann 10. janúar 1884 í húsi Friðbjarnar Steinssonar bóksala. Stofnfélagar íslandsdeildarinnar voru tólf. Kom þeim saman um að deildin (þ.e. stúkan) bæri heitið ísafold no. 1 og voru hinir fyrstu tíu emb- ættismenn hennar: Ole Lied skósmiður, kjörinn æðsti templar, Simirður Jónsson daglaunamaður, Asgeir Sigurðs- son verzlunarmaður, Pétur Tærgesen er fékkst við smíðar, Eðvald Jónsson daglaunamaður, Jörgen Vikingsstad sjómaður, Jón Jónsson utanbúðarmaður hjá Gránu-verzlun, Benedikt Jónsson Hónald Kristjánsson daglaunamaður, Kristján Krist- jánsson skósmiður og Friðbjörn Steinsson bóksali og bæjarfulltrúi á Akureyri, en hann gegndi emb- ætti fyrrverandi æðsta templars, og var þrautseigasti og tryggasti maður við málstað reglunnar. Fundir voru á hverjum sunnu- degi frá kl. 18—20, en oft var álið- ið, þegar fundi var slitið. IOGT varð fljótlega öflugasta bindind- ishreyfingin á íslandi. önnur bindindisfélög, sem stofnuð hafa verið, hafa mjög náið samstarf við IOGT. Stórstúka íslands var stofnuð á Jónsmessu árið 1886 í alþingishús- inu, undir brjóstlíkneski Jóns Sig- urðssonar, „sannleikurinn mun gera yður frjálsa". Voru þá félagar 542 talsins, og starfandi stúkur tíu. Jafnrétti kvenna hefur ávallt fylgt góðtemplarareglunni og áreiðanlega átt sinn þátt í því að kvenfólk nyti almenns kosninga- réttar, enda gengu fyrstu konurn- ar í regluna hálfum mánuði eftir stofnun hennar eða 27. janúar 1884. Þær hétu Ingibjörg Judith Guðjónsdóttir, eiginkona Sigurðar Jónssonar daglaunamanns, og Friðrikka Nielsdóttir, eiginkona Eðvalds Jónssonar daglauna- manns. — Ég vil bæta því við, að fyrsta konan, sem berst í þágu bindindis hér á landi, var Laura Pétursdóttir Gudjohnsen (1880), eiginkona séra Jóns Bjarnasonar prests á Dvergasteini, síðan höf- uðprestur íslendinga vestan hafs. Nú varð að þýða lög og siði yfir á íslensku og var Jón Pétur Sig- urðsson fyrstur að leggja til að svo verði, ásamt því að stúkusöngvar skyldu þýddir. Sá séra Matthías Jochumsson um þýðingar. Einhver þurfti að flytja mál reglunnar á prenti. Hefur hún blaðaútgáfu á Akureyri 6. desember 1884. Bar málgagnið heitið Bindindistíðindi. Af þvi komu aðeins fimm blöð út, það síðasta á Oddeyri 27. október 1885. En í október 1886 samþykkti stórstúkan tillögu br. Skúla Thoroddsens að hefja blaðaútgáfu mánaðarlega. Var komið af stað mánaðarblaðinu íslenski good templar. Kom það út í sjö ár eða til ársloka 1893. Var síðar gerð til- raun til að endurvekja blaðaútgáf- una 1897—1903, og kom þá út mánaðarblaðið Good templar. 1904—1930 var gefi út blaðið Templar. Og síðasta tilraunin með blaðinu Sókn 1931. Af því komu út alls 18 blöð eða til ársins 1935. Stúkur risu og féllu um land allt. Það væri of langt mál að orð- lengja um þær hér. En ég vil þó bæta því hér við að stúkan Fjall- konan nr. 3 var stofnuð 17. ágúst 1884 og rann saman við ísafold 1885, og heitir í dag Fjallkonan — ísafold nr. 1. En hvað sem því vék, jókst fé- lagatalan og var það fyrir mestu og bestu. Marga góða framámenn hefur reglan átt, er plægðu jarð- veginn og gróðursettu nýjar stúk- ur. Má nefna dugnaðarforkinn Ólafíu Jóhannsdóttur, sem vann göfugt og óeigingjarnt starf fyrir regluna bæði hérlendis og erlend- is. Hún var rómuð á stórstúku- fundi einum í London fyrir fram- komu sína. ólafía stofnaði Is- landsdeild kristilegs alheims bind- indisfélags í Reykjavík 17. apríl 1895 sem óþarfi er að kynna hér og hét Hvítabandið. Ólafur Rósenkranz stofnaði stúkur eins og Einingin nr. 14, sem starfar í dag. En aðalmark- mið hans var að sameina alla bindindiskrafta á landinu undir vængi Reglunnar. Stórstúkan hafnaði þessari áskorun Ólafs á þingi hennar árið 1893. Indriði Einarsson hagfræðingur að mennt jók vegna brennandi áhuga og eldmóðs félagatöluna I sinni stórtemplaratíð. Það var og honum að þakka að stofnaðar voru 50 stúkur. Hann var stórtemplar í sex ár eða frá 1897—1903. Sigurður Eiríksson regluboði frá Eyrarbakka var maður, sem vann allt í kærleika og var laus við allan ofstopa og æsing. Stofnaði hann á 15 ára starfsferli sínum (1897—1912) 58 undirstúkur og 2 umdæmisstúkur. Árið 1909 (bann- árið) sagði hann: „Bindindi ein- staklingsins og bannlög handa þjóðinni voru fegurstu hugsjónir mínar. Regla vor þarf að haldast uppi svo lengi, sem Island byggist, að minnsta kosti á meðan áfengi er búið til og drukkið í nágranna- löndum." Sigurður lést 26. júní 1925. Árni Gíslason leturgrafari og stofnandi stúkunnar Díana nr. 30 á Vatnsleysuströnd 1896 ásamt bindindisfélagi á ísafirði, var ræðumaður mikill og honum mik- ið að þakka hve greiðlega gekk að stofna stúkur árin 1897—1899, eða þar sem hann hafði ferðast og flutt ræður. Ég hef nú aðeins stiklað á stóru hvað varðar frumkvöðla bindind- ismála hér á íslandi og um Góð- templararegluna, sem verður 100 ára á næsta ári, en starfssvið hennar er mun fjölþættara og yf- irgripsmeira en ég gat um. Væri það efni í heila bók, að koma slíku á framfæri, enda skortir mig bæði frásagnarhæfileika og þekkingu. Væri gaman ef Templarar og aðrir áhugamenn um bindindismál létu frá sér heyra. Hvet ég eindregið þá sem vinna að bindindismálum inn á við eða út á við að gerast meðlimir í IOGT. Er alltaf rúm þar fyrir fleiri. Vil ég að lokum vitna í útvarpserindi Helga Schev- ings, sem bar nafnið „Ávarp til æskulýðsins". „Bindindismenn vilja ryðja nýjar brautir. Þeir vilja eyða því myrkri, sem Bakkus hefir vafið um land vort og þjóð. Málefni þeirra hlýtur að fara sig- urför um þetta land. Æskumaður! Hvort kýst þú heldur að fylgja þeim málum, sem tigna hina rís- andi sól, eða hinum, er tigna þá, sem er að hníga niður í myrkrin og kemur aldrei upp oftar?" Kónald Krístjánsson er prentnemi í Keykjarík. Nokkrar athugasemdir — eftir Guðstein ÞengUsson Mig langar til að biðja Morgun- blaðið að birta fáeinar athuga- semdir við langa grein, sem dr. juris Gunnlaugur Þórðarson skrif- aði í blaðið og birtist 26. okt. sl. Þar er vikið að smáklausu, sem birtist í litlum bæklingi, er bar heitið Áfengi og áhrif þess á manns- líkamann. Þar stendur á einum stað m.a.: „Stöðug notkun áfengis skemmir og beinlínis eyðileggur heilafrumur, þar eð áhrif þess eru sexfalt öflugri á taugafrumur en aðrar líkamsfrumur." Það skal tekið fram, að þar sem er vikið að rannsóknum á áhrifum áfengis í þessum stutta bæklingi, byggist það á starfi manna, s.s. dr. Melvin Kniselys við læknaskóla Suður-Karólínu í Charleston og dr. George E. Burch við lækna- skóla Tulane. Það eru sexföldu áhrifin á taugafrumurnar, sem fara fyrir brjóstið á lögmanninum og þykir honum að vonum það hlutfall heldur óhagstætt. En það sem honum finnst aðallega rýra vís- indalegt gildi áðurnefndrar niður- stöðu um áhrif áfengis á hinar ýmsu frumur líkamans, er að ung- ur læknir þýddi gagnrýnislaust fyrir 14 árum skrif úr lítt þekktu tímariti. Þetta er nú rökfræði í lagi. Hvernig má það vera að ung- ur aldur og gagnrýnisleysi þýð- anda geti gert vísindalega niður- stöðu ranga? Miklu skynsamlegra væri að segja, að ranglega sé þýtt. Eða hvaða máli skiptir það, þótt hér á íslandi finnist menn, sem ekki hafa heyrt blaðið nefnt, sem birtir þessar niðurstöður. Það út af fyrir sig rýrir ekki vísindalegt gildi þeirra. Svona röksemda- færsla sæmir ekki lögfræðingi, sem er þjálfaður í skipulegri hugs- un. Lögmaður skýrir svo frá í grein sinni, að allir læknar, sem hann ræddi við um þessi mál, hafi talið umræddar niðurstöður vafasam- ar. Ekki veit ég, hvernig allir þess- ir læknar hafa mótað þá skoðun sína að niðurstöðurnar séu vafa- samar. Líklegast þykir mér, að þeim hafi bara fundist þær ósenni- legar en ekki hitt að þeir hafi haft aðrar hliðstæðar rannsoknir í Guðsteinn Þengilsson „Greinarhöfundur tek- ur dæmi um blessunar- rík áhrif áfengis, en þaö dæmi er fremur óheppi- lega valiö. Kannski staf- ar það af því, aö heppi- leg dæmi finnast ekki.“ huga, sem afsanni það, sem í bæklingnum var eftir haft. Rétt er það hjá greinarhöfundi, að rannsóknum á áfengisneyslu og áhrifum hennar hefur geysimikið fleygt fram á síðustu árum. Niður- stöður þeirra rannsókna hafa und- antekningalftið leitt til þess, að æ svartari skýrslur hafa verið birtar um áfengið og verkanir þess. Nærtækasta dæmið fyrir okkur Islendinga er skýrsla Landlæknis- embættisins um neyslu áfengis, tóbaks og annarra vímugjafa. All- ir sem rita um áfengismál og neyslu vímuefna þyrftu að kynna sér hana rækilega. Greinarhöfundur tekur dæmi um blessunarrík áhrif áfengis, en það dæmi er fremur óheppilega valið. Kannski stafar það af því, að heppileg dæmi finnast ekki. Áfengi veldur að vísu útvíkkun á kransæðum og samkvæmt þessum rannsóknum á það að tefja eitt- hvað fyrir stíflumyndun, en áhrif þess á hjarta- og æðakerfi í heild eru svo skaðvænleg, að það þurrk- ar margfaldlega út þann kost. Annað skrýtið dæmi um blessun áfengis fyrir mannslíkamann var birt í Mbl. fyrir nokkru og sagt frá skýrslu breskra lækna og birtist hún í Lancet, fræðu læknatímariti ensku. Þar var sýnt fram á, að áfengi gæti hamlað eða komið í veg fyrir myndun gallsteina. Til þess þarf að vísu að neyta hálfrar vínflösku á dag ævilangt, því steinarnir geta farið að myndast strax og neyslu lýkur. Rétt er að minna á, að kenning- in um ofnæmi sem orsök drykkju- sýki er ekki komin það á legg, að menn hampi henni sem neinum sérstökum vísindum. Hún er ekki annað en fremur vafasöm tilgáta og ólíklegt að slíkt ofnæmi sé þá orsök nema í sumum tilvikum. Ég er greinarhöfundi hjartan- lega sammála um, að áfengismál eiga ekki að vera nein fjárplógs- starfsemi, og ekki má stunda með- ferð drykkjusjúkra með þeirri hugsun, að hún sé eins og hver annar atvinnuvegur, sem eigi að skila arði, en ekki vil ég skilja hugsjónir SÁÁ á þann veg. Einnig fagna ég öllum umræðum um áfengis- og fikniefnamál. Séu þær málefnalegar, gera þær mikið gagn og vekja fleiri til umhugsun- ar og skilnings. Cudsteinn Þengilsson er læknir í Kópavogi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.