Morgunblaðið - 09.11.1983, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1983
61
Áfengismálin á 8. flokks-
þingi framsóknarmanna
Frá im‘nnlamálanef«»d.
III. Bindindismál.
Flokksbingið harmar það ástand, sem riklr 1 4í*n*is,n<llu™'i
lelur það hættulegt saemd og þroska VglaTtastað’,
sem varið er til menni.igarmála, að nok*ru 8
ei ekkl verður reist rönd vlð hlnnMmxandl vlnnautm
— eftir Halldór
Kristjánsson
Doktor Gunnlaugur Þórðarson á
grein í Morgunblaðinu 26. október.
Sú grein á að nokkru leyti að vera
svar til mín og Angantýs Hjálm-
arssonar.
Doktorinn segir að við höfum
stokkið fram á ritvöllinn „í þeim
megintilgangi að vega að persónu
greinarhöfundar og að ausa fúk-
yrðum og brigslum úr skálum
reiði sinnar þegar þeir fundu að
þeir gátu ekki rætt málin á þeim
vettvangi sem um var að tefla".
Þessum orðum vísa ég til föður-
húsanna. Umræðan var málefna-
leg frá okkar hlið.
Doktor Gunnlaugur segir nú að
ég hafi lagst „svo lágt að svívirða
löngu látna listamenn með gróu-
sögum". Það var doktorinn sem
dró þessa menn inn í umræðuna
með því að vitna til þess sem þeir
höfðu sagt lofsamlegt um áfengi.
Mér þótti rétt að þá kæmi fram
hvernig áfengið reyndist þeim.
Dr. Gunnlaugur Claessen ritaði
grein um andlát Jónasar Hall-
grímssonar og tildrög þess í Heil-
brigðu lífi. Hann studdist þar
einkum við dagbækur spítalans.
Dr. Gunnlaugur má kalla þetta
gróusögur ef hann vill. Enda þótt
Jónas Hallgrímsson sé kannski
mestur og merkastur íþróttamað-
ur íslenskra skálda, var hann sá
ógæfumaður að hafa hættulegt
viðhorf til áfengis. Ég sé ekki að
þjóni nokkrum jákvæðum tilgangi
að reyna að blekkja sjálfan sig eða
aðra í því sambandi.
Doktorinn tekur upp og feitletr-
ar þessi ummæli mín:
„En ég vil ekki liggja undir því
að bera manni fölsun á brýn að
ósekju, því að fölsun er slæmur
hlutur."
Síðan segir hann: „Hér var ein-
faldlega um mistúlkun að ræða,
sem var eðlileg eins og á stóð.“
Það sem gerðist var þetta, að
doktorinn tók orðrétt upp úr
minningabók Bernharðs Stefáns-
sonar ummæli sem hann eignaði
öðrum manni og laug því að
Bernharð segði það mín ummæli.
Þetta kalla ég fölsun og ég sé ekki
að sú „mistúlkun" sé á nokkurn
hátt „eðlileg".
Tilefni þessarar greinar minnar
eru þau ummæli dr. Gunnlaugs að
sumir af flokksbræðrum mínum
hafi bent sér á að skora á mig að
birta afrit af hinni „stífu bindind-
is- og banntillögu" sem ég hafi
flutt á 8. flokksþingi framsókn-
armanna og Bernharð Stefánsson
vitnaði til í endurminningum sín-
um. Ég bið því Morgunblaðið að
birta frásögn af meðferð áfeng-
ismála á flokksþinginu samkvæmt
fundargerðum, sem hljóta að telj-
ast frumheimildir í þessu máli.
Samkvæmt fundargerðum flutti
menntamálanefnd þingsins tillög-
ur í þremur liðum og var III. liður
kallaður bindindismál. Þær tillög-
„Lína“ — fyrsta bók
í nýjum bókaflokki
Setberg hefur gefið út fyrstu
bókina í nýjum bókaflokki fyrir
litla krakka. Bókin heitir „Lina og
vinir hennar í vetrarfríi".
„Flest íslensk börn kannast við
bækurnar um kettlingana Snúð og
Snældu. En í þessari bók hafa
Snúður og Snælda slegist í hóp með
þeim Kol, Kóp og Lappa og fara nú
í vetrarfrí með henni Línu vinkonu
sinni," segir í frétt frá útgefanda.
„Lína og vinir hennar í vetrar-
fríi“ er litprentuð bók í stóru broti.
Texti og teikningar eftir franska
listamanninn Pierre Probst, en
Vilbergur Júlíusson skólastjóri
endursagði.
„Enda þótt Jónas Hall-
grímsson sé kannski
mestur og merkastur
íþróttamaður íslenskra
skálda, var hann sá
ógæfumaður að hafa
hættulegt viðhorf til
áfengis.“
ur komu til meðferðar laugardag-
inn 30. nóvember og segir svo í
fundargerð:
„3. Tillögur menntamálanefnd-
ar.
Framsögumaður Sigurvin Ein-
arsson. Til máls tóku Halldór Júlí-
usson, Sigurjón Guðmundsson og
Guðlaugur Rósinkrans. Fundar-
stjóri lagði til að III. lið nefndar-
álitsins verði vísað til nefndarinn-
ar aftur, og var það samþykkt einu
hljóði."
Fundarstjóri þennan dag var
Karl Kristjánsson.
Fyrri liðir í tillögum nefndar-
innar um skólamál og önnur
Mase
600 E
Spenna:
220 volt 600 wött
12 volt 20 amper
24 volt 15 amper
Vegur: 19 kg.
600 E er eins og 5100
nema ekki í lokuöum
kassa. Handhægar og
þægilegar, hvar sem er.
Verö kr. 24.356.
Benco
Bolholti 4,
símar 91-21945 / 84077.
starfsgreinum!
5
menningarmál voru síðan af-
greiddir.
Nú er rétt að geta þess, að á
þessu flokksþingi er ekki getið um
neinar tillögur um áfengismál
aðrar en tillögur menntamála-
nefndar. Formaður hennar var
Pálmi Hannesson rektor, en með
honum í nefndinni voru t.d. Sigur-
vin Einarsson, Páll Þorsteinsson,
Jón Eyþórsson, Andrés Krist-
jánsson, Kristján Benediktsson og
Tómas Árnason. Ég var ekki í
þessari nefnd, heldur í allsherjar-
nefnd og mun það hafa verið
vegna þess en ég var þá í stjórn-
arskrárnefnd, en allsherjarnefnd
ályktaði um stjórnarskrármálið.
Hitt kann ég ekki að skýra
hvers vegna Bernharð Stefánsson
eignar mér þessa tillögu nefndar
sem ég var ekki í, en ekki lái ég dr.
Gunnlaugi þó að hann trúi frásögn
Bernharðs. Það lá við að ég tryði
henni sjálfur, enda hef ég fáa
þekkt sem mér hafa þótt ólíklegri
en Bernharð Stefánsson til að
hnika viljandi frá því sem hann
vissi rétt og satt. Það verður
sennilega lengi óleyst ráðgáta
hvers vegna allt stórmenni nefnd-
arinnar hefur horfið í skugga
minn í minningu Bernharðs svo
sem virðist hafa verið.
Tillögur nefndarinnar um bind-
indismál komu til meðferðar síð-
asta dag þingsins, 3. des. Um það
segir fundargerð:
„4. Tillögur menntamálanefndar
um bindindismál. Framsögumað-
ur Sigurvin Einarsson. Til máls
tóku auk framsögumanns Halldór
Kristjánsson, Danival Danivals-
son, Hannes Pálsson, Bernharð
Stefánsson, Páll Zóphóníasson,
Pálmi Hannesson og Halldór Júlí-
usson.
Páll Zóphóníasson flutti svo-
hljóðandi breytingartillögu:
„Eftir 1. málsgrein komi:
„Þess vegna felur það þing-
flokknum að vinna að því með
löggjöf og á annan hátt að áfeng-
isnautn landsmanna minnki og
stefna að útrýmingu áfengis.
Önnur málsgrein tillögu nefnd-
arinnar og til enda falli niður.“
Breytingartillagan var sam-
þykkt með 63:48 atkv.
Tillaga nefndarinnar svo breytt
var samþykkt með öllum atkvæð-
um gegn þremur."
Nú bið ég Morgunblaðið að birta
ljósrit af tillögu nefndarinnar.
Striki er slegið yfir það sem fellt
var niður samkvæmt breytingar-
tillögunni. Ég vona að dr. Gunn-
laugur meti ljósritið jafnt stað-
festu eftirriti sem hann var að
tala um.
Það skal tekið fram, að breyt-
ingar á tillögunni frá því að hún
kom fyrst fram og þar til hún var
Halldór Kristjánsson
tekin til endanlegrar afgreiðslu
voru þær helstar að önnur máls-
grein var endursamin. Upphaflega
var hún svo:
„Til þess að vinna gegn vín-
nautn vill flokksþingið benda á
þessar leiðir."
Á þessa málsgrein kom „bind-
indis- og bannsvipur" við endur-
skoðun nefndarinnar. Aðrar
breytingar voru litlar. Þó var orð-
inu ströng bætt inn í tölulið 1 og
nú þegar bætt við tölulið 3.
Þannig var þá meðferð og afdrif
áfengismála á 8. flokksþingi fram-
sóknarmanna. Ég tel mig muna
það rétt að ég hafi verið í hópi
þeirra 48 sem atkvæði greiddu
gegn breytingartillögunni En ég
sé ekki neitt sem bendir til þess,
að ég hafi verið nokkur einfari í
þessum málum á þinginu.
Hvað dr. Gunnlaugur hefur svo
eftir „sumum af flokksbræðrum
mínum“, læt ég mig einu gilda. Því
eru líka takmörk sett hvað ég
nenni að eltast við hugarburð
hans og heilaspuna út frá þvílíku.
En mér fannst rétt að rekja þessa
sögu fyrir hann.
Halldór Kristjínsson er í forystu-
sreit Góðtemplara hér i landi.
VANDAÐAR PLOTUR
VIÐRÁÐ ANLE GT VERÐ
B.M.VALLÁ H Fáanlegar úr gjalli eða vikri
PANTANIR:
Bíldshöfða 3, sími: 91-85833 og hjá
Iðnverk h/f Nóatúni 17, 105 Rvk.
Símar: 91-25930 og 91-25945